Íslenski boltinn

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - FH 4-0 | FH-ingar niðurlægðir í Kópavogi
Breiðablik vann öruggan 4-0 sigur á FH í 9. umferð Pepsi Max-deildar karla í fótbolta í kvöld. Sigur þeirra grænklæddu var aldrei í hættu, jafnvel þrátt fyrir atvik sem minnti óþægilega á það tengt Christiani Eriksen á Parken á dögunum.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Leiknir 1-0 | Annar sigur Keflvíkinga í röð
Keflavík hafði betur gegn Leikni í nýliðaslagnum og er búið að vinna tvo leiki í röð.

„Með því lélegra sem ég hef tekið þátt í“
„Manni líður eins illa og það verður held ég. Þetta held að þetta hafi bara verið með því lélegra sem ég hef tekið þátt í,“ sagði Guðmann Þórisson, miðvörður FH, eftir 4-0 tap liðsins fyrir Breiðabliki í Pepsi Max-deild karla í kvöld.

„Það var bara eins og maður væri kominn í þetta atvik á EM“
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, var ánægður eftir 4-0 stórsigur liðsins á FH í Pepsi Max-deild karla í kvöld. Þá er honum létt að Jason Daði Svanþórsson sé á batavegi.

Góðar fréttir af Jasoni Daða
Jason Daði Svanþórson, leikmaður Blika, var borinn af velli í leik Breiðabliks og FH í Pepsi Max deild karla í kvöld.

Umfjöllun: Stjarnan - HK 2-1 | Stjörnumenn taplausir í fjórum leikjum í röð
Stjörnumenn náðu að nýta tvö af mjög fáum færum sínum í dag þegar þeir lögðu HK 2-1 í 9. umferð Pepsi Max deildarinnar. Stjörnumenn hafa ekki tapað í fjórum leikjum í röð og eru komnir í gang í deildinni.

Umfjöllun og viðtöl: KA - Valur 0-1 | Þrjú víti fóru forgörðum í toppslagnum
KA og Valur mættust í toppslag í Pepsi Max deildinni á Dalvíkurvelli í dag. Valsmenn fóru að lokum með 0-1 sigur af hólmi eftir virkilega hraðan og skemmtilegan leik.

Þorvaldur: Við þurfum bara að ná stigum og góðum úrslium
Þorvaldur Örlygsson var ánægður með sína menn í dag og sérstaklega fyrri hálfleikinn, þegar Stjarnan lagði HK að velli 2-1 í 9. umferð Pepsi Max deildarinn í dag. Stjörnumennn voru með góð tök á leiknum en í lok leiksins skoraði HK eitt mark og heimamenn klúðruðu víti þannig að það kemur ekki á óvart að það hafi farið um marga Garðbæinga seinustu mínúturnar.

Arnar um áhugann á Brynjari: Verður að koma í ljós
Arnar Grétarsson, þjálfari KA, var að vonum svekktur eftir að lið hans tapaði 0-1 fyrir Val í dag. KA liðið brenndi af tveimur vítaspyrnum og fóru illa með nokkur góð færi sem á endanun kostaði þá verulega.

Umfjöllun og viðtöl: Fylkir - ÍA 3-1 | Botnliðið í vandræðum
Fylkismenn tóku á móti Skagamönnum á Würth vellinum í dag á þessum sólríka sunnudegi. Skagamenn voru án fyrirliða síns, Óttars Bjarna, sem að fékk rautt spjald í seinasta leik gegn KA eftir hættulega tæklingu.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Tindastóll 1-0 | Heimastúlkur höfðu betur í nýliðaslagnum
Botnlið Tindastóls hefur tapað fimm leikjum í röð en Keflavík er í fínum málum eftir tvo sigurleiki í röð.

Höfuðverkurinn varðandi íslenska markið: Seinni hluti
Svo gæti verið að Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, fái sama höfuðverk og kollegi sinn Arnar Þór Viðarsson, þjálfari karlalandsliðsins, þegar kemur að því að velja aðalmarkvörð fyrir komandi verkefni.

Þá segir maður miðjumanninum að þruma einhvern niður og hleypa leiknum upp í bál og brand
Munurinn á miðju Vals og Breiðabliks í Pepsi Max deild karla var ræddur í Stúkunni í gærkvöld að loknum 3-1 sigri Vals. Ólafur Jóhannesson hefði viljað sjá miðjumenn Breiðabliks fara í eins og eina tæklingu til að koma sér inn í leikinn.

Markasúpa gærdagsins: Valur skoraði þrjú, KA nýtti vindinn, Stjarnan sótti stig og loks skoraði Gibbs
Fjórir leikir fóru fram í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í gær. Mörkin úr leikjunum fjórum má sjá hér að neðan.

Lof og last 8. umferðar: Allt er fertugum fært, Nikolaj Hansen, andlausir FH-ingar og veðrið upp á Skaga
Áttundu umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu lauk í gærkvöld. Þó enn eigi eftir 7. umferð mótsins þá var sú áttunda kláruð í gær. Hún hófst þann 12. júní og lauk svo í gær með tveimur leikjum.

Þurftum að fara í grunnvinnuna
Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals var léttur í lund eftir 3-1 sigur sinna manna á Blikum í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: FH - Stjarnan 1-1 | Gestirnir snúið genginu við á meðan ekkert gengur upp hjá Hafnfirðingum
Stjarnan sótti stig í Kaplakrika er liðið mætti FH í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í kvöld. Lokatölur 1-1 sem þýðir að Stjarnan hefur nú náð í fjögur stig gegn Val og FH í síðustu tveimur leikjum á meðan FH hefur ekki unnið í síðustu fjórum.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 3-1 | Íslandsmeistararnir aftur á beinu brautina
Íslandsmeistarar Vals unnu góðan 3-1 sigur á Breiðablik þegar liðin mættust á Origo-vellinum fyrr í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - HK 2-0 | Joey Gibbs tryggði heimamönnum sigur í fallslagnum
Keflavík vann frábæran 2-0 sigur á HK er liðin mættust í botnslag í Pepsi Max deild karla í dag. Joey Gibbs skoraði bæði mörk heimamanna sem lyfta sér upp úr botnsætinu með sigrinum.

Fram rúllaði yfir Þrótt
Fram valtaði yfir nágranna sína í Þrótti Reykjavík í Lengjudeild karla í knattspyrnu í kvöld, lokatölur 5-1.

„Við vorum heppnir að tapa bara 2-0 í dag“
Stefan Alexander Ljubicic, leikmaður HK, segir að Kópavogsbúar hafi ekki átt neitt skilið út úr leiknum sem það spilaði við botnlið Keflavíkur í dag.

Umfjöllun og viðtöl: ÍA - KA 0-2 | Gestirnir fara heim með þrjú stig
KA hafði ekki spilað leik í 24 daga er liðið heimsótti Skipaskaga í dag. Það kom ekki að sök en liðið vann öruggan 2-0 sigur á ÍA í Pepsi Max deild karla.

Staða sem við viljum vera í
Leikur ÍA og KA fór fram á Akranesi í kvöld. Ásgeir Sigurgeirsson, fyrirliði KA-manna í kvöld, var að vonum ánægður með 2-0 sigur sinna manna.

FH-ingar hafa ekki tapað fjórum leikjum í röð í 26 ár
FH-ingar hafa ekki unnið leik í næstum því mánuð en geta endað óvenju langa bið sína eftir sigri á móti Stjörnunni á heimavelli í Kaplakrika í kvöld klukkan 20:15.

Stjarnan fær annan Dana
Danski sóknarmaðurinn Oliver Haurits hefur samið við knattspyrnudeild Stjörnunnar og mun geta spilað með liðinu seinni hluta leiktíðar.

„Ofboðslega gaman að sjá tvo menn með stórt hjarta takast á“
Kjartan Henry Finnbogason var á skotskónum með KR-ingum í sigri á Leikni í Pepsi Max deild karla í gærkvöldi en einvígi hans og Leiknismannsins Brynjars Hlöðverssonar var líka til umræðu í Pepsi Max stúkunni eftir leik.

Sjáðu Kjartan Henry stela marki af liðsfélaga sínum
KR sótti þrjú stig í Efra-Breiðholtið í gær en 2-0 sigur liðsins á Leikni kom Vesturbæingum upp í fimmta sæti Pepsi Max deildar karla og upp fyrir Leiknismenn.

Rúnar: Við ætluðum ekki að hleypa þeim inn í leikinn
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR var að vonum sáttur með sína menn eftir 2-0 sigur á Leikni fyrr í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Leiknir - KR 0-2 | KR-ingar fyrstir til að sækja þrjú stig í Breiðholtið
KR-ingar heimsóttu Leiknismenn í Breiðholtið fyrr í kvöld og unnu þar sannfærandi 2-0 sigur gegn nýliðunum þar sem Pálmi Rafn Pálmason og Kjartan Henry Finnbogason skoruðu sitt hvort markið.

Dramatík í Eyjum
ÍBV vann dramatískan 2-1 sigur á Þór en liðin mættust í 6. umferð Lengjudeildar karla í Vestmannaeyjum í kvöld.