

Aðalsteinn Eyjólfsson og Óðinn Þór Ríkharðsson urðu nú rétt áðan svissneskir meistarar í handknattleik með liði Kadetten Schaffhausen eftir sigur á Kriens í fjórða leik liðanna í úrslitaeinvígi.
Þvert á það sem að þýska handknattleiksfélagið Magdeburg hafði sagt fyrir mánuði síðan er tímabilinu ekki lokið hjá landsliðsmanninum Gísla Þorgeiri Kristjánssyni. Hann getur því verið með um Final Four helgina í Köln, þegar úrslitin ráðast í Meistaradeild Evrópu.
Það er umtalsverður munur á aldri og reynslu þeirra leikmanna sem í dag voru útnefndir bestu leikmenn Olís-deild karla og kvenna í handbolta á síðustu leiktíð. Fyrir valinu urðu Elín Klara Þorkelsdóttir og Rúnar Kárason.
Kiel er komið með níu fingur á þýska meistaratitilinn í handknattleik eftir stórsigur á Wetzlar í kvöld. Kiel gæti orðið meistari á morgun ef Magdeburg vinnur ekki sigur í sínum leik.
Janus Daði Smárason og Sigvaldi Björn Guðjónsson urðu í kvöld Noregsmeistarar í handknattleik eftir sigur á Elverum í fjórða leik liðanna í úrslitaeinvíginu.
Langri handboltaleiktíð er ekki enn lokið hjá dómurunum Antoni Gylfa Pálssyni og Jónasi Elíassyni, þó að þeirra störfum á Íslandi hafi lokið í bili þegar þeir dæmdu oddaleik ÍBV og Hauka um Íslandsmeistaratitil karla á dögunum.
Óskar Bjarni Óskarsson var í dag ráðinn þjálfari karlaliðs Vals í handbolta í þriðja sinn á sínum ferli. Hann kveðst fremur vera viljugur en tilneyddur til verkefnisins.
Ragnheiður Júlíusdóttir, leikmaður Fram í Olís deild kvenna og íslenska landsliðsins, hefur ekki spilað handbolta undanfarna 16 mánuði eftir að hafa fengið kórónuveiruna. Hún segist nú loks finna fyrir batamerkjum og lætur sig dreyma um að spila handbolta á nýjan leik.
Kristján Örn Kristjánsson, Donni, átti frábæran leik þegar Aix tapaði naumlega fyrir meistaraliði París Saint-Germain í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta. Þá mættust markverðirnir Viktor Gísli Hallgrímsson og Grétar Ari Gunnarsson.
Óskar Bjarni Óskarsson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Vals. Hann tekur við starfinu af nýráðnum landsliðsþjálfara, Snorra Steini Guðjónssyni.
Landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson og liðsfélagar hans í Veszprém eru komnir í oddaleik um ungverska meistaratitilinn í handbolta þökk sé sjö marka sigri á Pick Szeged í kvöld, lokatölur 34-27.
Línumaðurinn Elísabet Gunnarsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarþjálfari Stjörnunnar í Olís-deild kvenna í handbolta. Ekki er vitað hvort Elísabet mun spila áfram með liðinu.
Handboltamaðurinn Arnar Birkir Hálfdánsson hefur samið við nýliða Amo í sænsku úrvalsdeildinni.
Norska liðið Vipers frá Kristiansand varð í dag Evrópumeistari í handknattleik þegar liðið vann FTC frá Ungverjalandi í úrslitaleik fyrir framan metfjölda áhorfenda.
Óðinn Þór Ríkharðsson var öflugur í liði Kadetten Schaffhausen sem tapaði fyrir Kriens í maraþonleik í úrslitaeinvígi svissnesku deildarinnar í handknattleik.
Nokkrir leikir voru á dagskrá í þýska handboltanum í dag og nú sem áður fyrr voru Íslendingar áberandi í leikjum deildarinnar.
Álaborg vann í dag mikilvægan sigur í öðrum leik úrslitaeinvígis dönsku úrvalsdeildarinnar gegn ríkjandi meisturum GOG, lokatölur í leik dagsins 34-29, Álaborg í vil.
Fredericia, undir stjórn íslenska þjálfarans Guðmundar Guðmundssonar, tryggði sér í dag oddaleik í einvígi um bronsverðlaun dönsku úrvalsdeildarinnar með sigri á Skjern.
Snorri Steinn Guðjónsson, nýráðinn landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, segir að sú hugmynd, að hann og Dagur Sigurðsson myndu taka við landsliðinu, hafi aldrei farið á alvarlegt stig. Þá hafi hann aðeins gert nauðsynlega hluti þegar að umræðan um ráðningarferli HSÍ stóð sem hæst.
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari danska úrvalsdeildarfélagsins Frederica segir Einar Þorstein Ólafsson, leikmann liðsins hafa tekið miklum framförum en félagið er hans fyrsti viðkomustaður á atvinnumannaferlinum. Þá megi greina takta hjá leikmanninum sem faðir hans, handboltagoðsögnin Ólafur Stefánsson, bjó yfir í leik sínum.
Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði sex mörk og gaf fimm stoðsendingar er lið hennar Zwickau gulltryggði sæti sitt í þýsku úrvalsdeildinni með sigri í tveggja leikja einvígi við Göppingen.
Snorri Steinn Guðjónsson, nýráðinn landsliðsþjálfari í handknattleik, var gestur í nýjasta þætti Handkastsins þar sem hann ræddi landsliðið við Arnar Daða Arnarsson stjórnanda hlaðvarpsins.
Arnór Atlason hlakkar til að vinna með Snorra Steini Guðjónssyni við þjálfun íslenska karlalandsliðsins í handbolta.
Bjarki Már Elísson og liðsfélagar hans í ungverska liðinu Veszprém eru í slæmri stöðu eftir að hafa tapað fyrsta leik í úrslitaeinvíginu um ungverska meistaratitilinn gegn Pick Szeged, 31-25.
Það er ekki á hverjum degi sem fráfarandi og verðandi þjálfari Íslandsmeistaraliðs eru báðir í viðtali á sama tíma en það gerðist í Seinni bylgjunni eftir oddaleik ÍBV og Hauka.
Snorri Steinn Guðjónsson er tekinn við sem þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta en hann er þó ekki í hópi þeirra sem hafa yngstir tekið við landsliði Íslands.
„Ég er mjög sáttur. Ég tel að við höfum tekið rétta ákvörðun út frá þeim möguleikum sem við höfðum,“ sagði Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, eftir að hafa kynnt Snorra Stein Guðjónsson sem nýjan landsliðsþjálfara karla í handbolta.
Arnar Freyr Arnarsson og Arnór Þór Gunnarsson áttu fína leiki fyrir sín lið í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld. Magdeburg jafnaði Kiel að stigum á toppnum með stórsigri á Minden.
Óðinn Þór Ríkharðsson og Aðalsteinn Eyjólfsson eru einum sigri frá því að vera svissneskir meistarar í handbolta eftir sigur Kadetten Schaffhausen á HC Kriens í dag.
Snorri Steinn Guðjónsson segist stoltur yfir því að hafa verið ráðinn þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta.