Golf

Óstöðvandi Jason Day 18 undir pari eftir 36 holur á BMW meistaramótinu
Leiðir með fimm höggum á næstu menn. Jordan Spieth og Rory McIlroy eru báðir ofarlega á skortöflunni en hvorugur virðist eiga séns í Day.

Jason Day í sérflokki á BMW meistaramótinu
Er á tíu höggum undir pari eftir fyrsta keppnisdag og leiðir með fjórum. Jordan Spieth fór holu í höggi og er einnig ofarlega á skortöflunni.

Axel náði ekki að fylgja eftir frábærri byrjun
Axel og Þórður Rafn léku báðir sveiflukennt golf í dag en þeir léku frábært golf fyrri níu holur dagsins en seinni níu holur vallarins reyndust þeim erfiðari.

Axel og Þórður í erfiðri stöðu í Þýskalandi
Axel Bóasson og Þórður Rafn Gissurarson eru í erfiðri stöðu eftir tvo daga á fyrsta stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina sem fer fram á Fleesensee vellinum í Þýskalandi.

Jordan Spieth bjartsýnn á gott gengi á BMW meistaramótinu
Segist vera fullur sjálfstrausts þrátt fyrir að hafa misst af tveimur niðurskurðum í röð á PGA-mótaröðinni.

Axel og Þórður náðu sér ekki á strik á fyrsta degi
Kylfingarnir hófu leik á fyrsta degi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina en þeir léku báðir yfir pari. Axel er tveimur höggum frá sæti á næsta stigi mótsins en Þórður er fimm höggum fyrir annan hringinn.

Þórður og Axel hefja leik í dag á úrtökumóti Evrópumótaraðarinnar
Þórður Rafn Gissurarson, Íslandsmeistari í golfi 2015 úr GR, og Axel Bóasson, Íslandsmeistari í holukeppni 2015 úr GKG, hefja leik í dag í Þýskalandi á fyrsta stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina.

Herskyldan kallar eftir Forsetabikarinn hjá Sang Moon Bae
Suður-Kóreski kylfingurinn var valin af Nick Price í lið heimsúrvalsins fyrir Forsetabikarinn, en þarf svo að skrá sig í herinn strax eftir mótið.

Mickelson ætlar að réttlæta liðsvalið í Forsetabikarnum
Var valinn í bandaríska liðið af fyrirliðanum Jay Haas þrátt fyrir slæmt gengi á árinu.

Tiger staðfestir þátttöku á Frys.com
Ætlar sér greinilega að komast í keppnisform fyrir næsta tímabil og verður meðal þátttakenda í fyrsta móti PGA-mótaraðarinnar á nýju tímabili.

Birgir Leifur missti af niðurskurðinum í Kasakstan
Kylfingurinn úr GKG náði sér ekki á strik í Kasakstan í dag en hann lék á fimm höggum yfir pari á öðrum degi og missti fyrir vikið af niðurskurðinum

Birgir Leifur lék undir pari á fyrsta hring í Kasakstan
Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, hóf leik í morgun á gríðarlega sterku móti á Áskorendamótaröðinni sem fram fer í Kasakstan.

Rickie Fowler sigraði í Boston eftir harða baráttu við Henrik Stenson
Rickie Fowler og Henrik Stenson börðust af krafti um sigurinn á Deutsche Bank meistaramótinu sem kláraðist í kvöld. Stenson gerði þó afdrifarík mistök á 16. holu sem Fowler nýtti sér til fulls og tryggði sér þriðja sigur sinn á ferlinum.

Stenson og Fowler efstir fyrir lokahringinn á TPC Boston
Mynda spennandi lokaholl á lokahringnum á Deutsche Bank meistaramótinu sem klárast í dag. Charley Hoffman sem leiddi eftir tvo hringi lék hræðilega á þriðja hring og er ekki lengur í toppbaráttunni.

Tveir bestu kylfingar heims í veseni í Boston - Charley Hoffman leiðir eftir frábæran annan hring
Jordan Spieth missti af niðurskurðinum á Barclays meistaramótinu á meðan að Rory McIlroy rétt náði í gegn. Charley Hoffman leiðir þetta stóra mót eftir frábæra frammistöðu á öðrum hring.

De Jonge í forystu í Boston - Spieth í tómu tjóni
Kylfingurinn Brendon De Jonge frá Zimbabwe leiðir á Deutsche Bank meistaramótinu sem fram fer á TPC Boston vellinum en Jordan Spieth sem margir spáðu góðu gengi lék mjög illa á fyrsta hring.

Rory kominn í efsta sæti heimslistans á ný | Day blandar sér í baráttuna
Norður-írski kylfingurinn náði toppsæti heimslistans í golfi á ný um helgina en handan við hornið eru Jordan Spieth og Jason Day.

Magnaður Jason Day sigraði á Barclays
Lék lokahringinn eins og sannur meistari og tryggði sér sinn annan sigur í röð eftir að hafa sigrað á PGA-meistaramótinu fyrr í mánuðinum.

Day og Bae taka forystuna fyrir lokahringinn á Barclays
Eru á 11 höggum undir pari fyrir lokahringinn á Plainfield vellinum en Bubba Watson, Henrik Stenson og sigurvegari Opna breska, Zach Johnson, eru allir í toppbaráttunni.

Bubba efstur á Barclays - Spieth úr leik
Hinn högglangi Bubba Watson leiðir eftir 36 holur á Barclays meistaramótinu á meðan að besti kylfingur heims, Jordan Spieth, missti af niðurskurðinum.

Valdís og Ólafía byrja vel
Valdís Þóra Jónsdóttir, Leyni, og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, byrjuðu vel á fyrsta keppnisdeginum á LETAS móti sem hófst í Finnlandi í dag.

Jordan Spieth í vandræðum á fyrsta hring á Barclays
Kylfingurinn gæti misst efsta sætið á heimslistanum í golfi í hendurnar á Rory McIlroy ef hann nær ekki niðurskurðinum. Fjórir kylfingar deila efsta sætinu eftir fyrsta dag.

Spieth heldur að hann sé fyndinn en er í raun hálfvíti
Kylfingurinn Hunter Mahan virðist ekki vera of hrifinn af bröndurum besta kylfings heims í dag, Jordan Spieth.

Davis Love sigraði óvænt á Wyndham - Tiger klúðraði lokahringnum
Hinn 51 árs gamli Davis Love stal senunni á Wyndham meistaramótinu af Tiger Woods og Jason Gore sem léku báðir illa á lokahringnum í kvöld.

Axel stigameistari karla á Eimskipsmótaröðinni
Axel Bóasson varð í dag stigameistari í karlaflokki á Eimskipsmótaröðinni en hann lenti í 15. sæti í síðasta móti ársins á Urriðavelli í dag.

Tinna stigameistari kvenna á Eimskipsmótaröðinni
Tinna Jóhannesdóttir úr Golfklúbbnum Keili varð í dag stigameistari á Eimskipsmótaröð kvenna í golfi en hún bar sigur úr býtum á lokamóti mótaraðarinnar á Urriðavelli.

Púttaði í á sextándu holu og bað konunnar
Andreas Hartø var heldur betur rómantískur á sextándu flötinni á Evrópumótaröðinni á dögunum, en mótið var haldið í Danmörku.

Jason Gore tekur forystuna á Wyndham fyrir lokahringinn - Tiger í öðru
Jason Gore lék frábærlega á Sedgefield í dag og tók forystuna af Tiger Woods sem leitar að sínum fyrsta sigri í tvö ár.

Haraldur Franklín með fjögurra hogga forystu á Urriðavelli
Haraldur Franklín Magnússon, úr GR, er með fjögurra högga forskot fyrir lokahringinn á lokamótinu á Eimskipsmótaröðinni, Nýherjamótinu, sem leikið er á Urriðavelli.

Anna Sólveig leiðir fyrir lokahringinn
Anna Sólveig Snorradóttir, úr Golfklúbbnum Keili, er með eins högga forystu á Signý Arnórsdóttir, Tinnu Jóhannsdóttir og Kareni Guðnadóttir fyrir lokahringinn á Nýherjamótinu sem fram fer á Urriðavelli.