Gagnrýni

Staðalímyndir látnar lönd og leið
Vel heppnuð og einföld saga fyrir börn og myndskreytingarnar líflegar og í takt við söguna. Sagan er hlýleg og bráðfyndin og lætur staðalímyndir lönd og leið.

Smekklaus fiðluleikur
Leiðinlegur einleikari en frábær hljómsveitarstjóri.

Ekki gera ekki neitt
Leiftrandi skemmtilegt ævintýri á tveimur tímaplönum með skýrum skilaboðum sem þó verða aldrei að predikun.

Safarík frásögn af átakatímum
Listilega skrifuð bók um átakatíma í íslenskri pólitík. Opinská og á köflum drepfyndin.

Freyja Potter í Dónol
Vel skrifuð og spennandi fantasía sem ætti að höfða til ævintýraþyrstra ungmenna.

Stórvirki!
Bækur Sölva eru gnægtahorn veiðiáhugamannsins – ótæmandi af fróðleik og skemmtilegheitum. Þetta er einstök viðbót í flóru íslenskra veiðibókmennta.

Útþynntur Orwell uppi í sveit
Pólitísk táknsaga um andlega kúgun í vel unninni en full drungalegri sviðsetningu. Forvitnilegt verk sem er einnar kvöldstundar virði, þó að Orwell sjálfur sé betri.

Flöskuskeyti frá vígstöðvunum
Þörf samantekt á flóknum og afdrifaríkum atburðum í sögu landsins, út frá sjónarhóli leiðtoga sem hafði mikil áhrif á örlög þjóðarinnar.

Ádeila á raunveruleikann
Kómískur performans sem ögrar áhorfendum með ádeilu á raunveruleikann. Skemmtileg sýning sem vekur til umhugsunar. Vel gert áhugaleikhús.

Heljarstökk eftir hljómborði
Sérlega skemmtilegir tónleikar með tveimur píanóleikurum í fremstu röð.

Karlar með körlum
Meistaralegar mannlýsingar og áhugaverð gegnumlýsing á samfélagi karla í fortíðinni.

Ein stjarna sem skín
Arnar Jónsson bregst engum væntingum í heldur bragðdaufum einleik Þorvalds Þorsteinssonar. Það hefði óneitanlega verið skemmtilegt að sjá hann glíma við stórbrotnara verkefni á þessum tímamótum.

Ósamræmi
Aðdáendur Stefáns Mána verða ekki fyrir vonbrigðum, sagan flengist áfram. En grófgerð persónusköpun karaktera sem spóka sig á raunsæislegu sögusviðinu aftra því að trúverðugleikinn sem sóst er eftir standist skoðun.

Eldklerkur á erindi enn
Afar vel heppnuð tilraun til að endursegja eitt af höfuðritum bókmenntanna og veita innsýn inn í eitt dramatískasta tímabil Íslandssögunnar.

Þau sungu, hinir æptu
Óhætt er að segja að þetta hafi verið einhverjir skemmtilegustu tónleikar ársins.

Vandræðalegt augnablik
Gunnar Guðbjörnsson var í afleitu formi og skemmdi heildarmyndina fyrir öðru ágætu listafólki.

Vindurinn, hafið og eilífðin
Mögnuð skáldsaga sem sýnir meistaratök höfundar á formi skáldsögunnar.

Harmleikur í þátíð og nútíð
Vel unnin og þrauthugsuð saga á tveimur tímaplönum. Sögusvið, persónusköpun og bygging haldast í hendur við að gera Skuggasund að einni bestu bók Arnaldar.

Einstök ástarsaga
Eftirminnileg og einstök ástarsaga sem varpar ljósi á umbrotatíma í íslenskri samtímasögu.

Pálmi er á leiðinni
Merkilega vel stíluð veiðibók, skyldueign í bókaskáp hvers veiðimanns en brokkgeng.

Sálarró Ásgeirs
Hæfileikar Ásgeirs eru ótvíræðir og frammistaða hans í Hörpu var eftir því.

Rauðkuflar, særingamenn og djöflar
Hressileg og fimlega skrifuð fantasía með sérlega skemmtilegri hetju.

Móðurást til sölu
Vönduð sýning og einkar athyglisverð frumraun ungs höfundar.

Margmiðlunarveisla í Eldborg
Eftirvæntingin var mikil fyrir tónleikum þýsku raftónlistarsveitarinnar Kraftwerk í Eldborgarsal Hörpu.

Kraftur leystur úr læðingi
Breska pönkrokksveitin Savages er skipuð fjórum konum. Fyrsta platan þeirra, Silcence Yourself, kom út fyrr á árinu og vakti töluverða athygli.

Ferskir vindar á Airwaves
Tónleikar Nordic Affect á Airwaves voru sérlega skemmtilegir, spilamennskan var vönduð, tónlistin áhugaverð, myndböndin grípandi.

Gold Panda kveikti í Hafnarhúsinu
Það var frábær stemning á tónleikum raftónlistarmannsins Gold Panda sem fram fóru á laugardagskvöld í Listasafni Reykjavíkur

Dönsuðu við framandi tóna
Souleyman er goðsögn í heimalandi sínu en undanfarin ár hefur hann verið duglegur við að spila utan heimalands síns við góðar undirtektir.

Grant stóð fyrir sínu
Persónulegi trúbadorinn eins og ég kýs að kalla hann, John Grant, stóð vel fyrir sínu í Silfurbergi.

Enginn Pollock, en bara góður fyrir því
Niðurstaða: Þægileg og átakalítil leikhússtund með tveimur úrvalsleikurum. Heiðarleg gamaldags sagnalist, laus við listræna sýndarmennsku og pólitískt harðlífi – og fær plús fyrir það.