Gagnrýni

Sjö stjörnu djass og endurreisnartónlist
Tónleikar ársins! Algerlega stórkostleg dagskrá með himneskri tónlist og snilldarlegum flutningi.

Innra net og þræðir hjartans
Virkilega metnaðarfull efnistök sem þurfa agaðri mótunaraðferð.

Íslensk þjóðlög í tyrkneskum búningi: Og?
Vel unnin plata en nær þó aldrei flugi.

Glæsilegur einleikur á hvorum tveggja vígstöðvum
Neyðarleg feilnóta en annars magnaðir tónleikar með afburða einleik.

Það verður allt í lagi með okkur
Syndafallið er í senn kraftmikið uppgjör og einlæg ástarjátning höfundar til breyskra en afar forvitnilegra persóna.

Jólasveinar ganga um gátt
Vel skrifuð og spennandi glæpafurðusaga sem vinnur með þjóðsagnaarfinn á áhugaverðan og skapandi hátt.

Ekkert sinfóníugarg hjá götuspilara
Frábær einleikari og hljómsveit. Með bestu tónleikum ársins.

Að borða hvorki ánamaðk né könguló
Launfyndin saga sem leynir á sér – lesið hana helst tvisvar.


Óhugnaður í hríðarbyl
Spennandi og vel fléttuð saga, tvímælalaust besta bók höfundar til þessa.

Þrjóska, viljastyrkur og yfirnáttúruleg atorka
Reynir sterki er skemmtileg, umræðuverð og vönduð yfirferð yfir aflraunir, persónuleika og galla stórmerkilegs manns. Vel þess virði að kíkja á.

Ein í kotinu
Ljúfasta saga og vel þess virði að lesa um konu sem loksins, loksins fer að hugsa um sjálfa sig.


Sumt stórbrotið, annað ósannfærandi
Mjög færir hljóðfæraleikarar í sjálfu sér, en túlkunin var ekki alltaf sannfærandi.

Ágætisarnaldur
Frekar hefðbundin en ágæt glæpasaga sem sver sig í höfundarverkið án þess að valda straumhvörfum.

Tímaskekkja eða ekki
Hljómsveitin lék ekki alltaf nægilega vel, en tónlistin var mögnuð og einleikarinn frábær.

Síðasti einstaklingurinn
Áhugaverð og vel skrifuð samtímarýni þar sem múgurinn, einstaklingurinn og kerfið takast á um örlög, mennsku og heppni.

Kúkabrandarar geta verið alvörumál
Ágæt viðbót við sérlega vel lukkaðan bókaflokk. Haltu áfram að skrifa, Gunnar!

Gefin fyrir drama þessi dama
Glæstur söngur og mögnuð hljómsveit gerði Toscu að sérlega lifandi og áhrifamikilli sýningu.

Á ógnarhraða úr öskunni í eldinn
Æsispennandi reyfari um ástir og átök í framandi glæpaheimi sem inniheldur þó skýra skírskotun til íslensks samfélags í dag.


Svifið hátt á vængjum sorgarinnar
Metnaður listrænna aðstandenda skilar þeim Hafrúnu og Íó næstum því alla leið.

Vel fléttuð fantasía full af hasar, ógnum og góðum boðskap
Vel fléttaður og ansi ógnvekjandi hasar fyrir fantasíuaðdáendur á öllum aldri.

Myrkrið sem við yfirstígum
Vandlega ort og fögur ljóðabók sem lætur engan ósnortinn og sem flestir ættu að lesa.

Særingarmáttur sannleikans og haugalyganna
Stórbrotið listaverk sem enginn má missa af.

Margt smátt gerir eitt stórt
Dásamleg viðbót við frábæran bókaflokk, fyndin og sorgleg í senn með skírskotun til vandamála sem heimurinn allur glímir við og þarf að leysa.

Með krafta í kögglum og risastórt hjarta
Einlæg og skondin fantasía sem flytur mannbætandi boðskap sem bæði stórir og smáir lesendur hafa gott af að heyra.

Hádegisverður með klisjukenndum hjónum
Klisjurnar bera Risaeðlurnar ofurliði.

Gæsahúð aftur og aftur
Magnaður söngur og framúrskarandi píanóleikur gerðu tónleikana að einstakri upplifun.

Í leit að Paradísargarðinum
Tímagarðurinn er skemmtilegt tímaferðalag um Ísland með skemmtilegum persónum sem er vel þess virði að kynnast.