Innlent „
316 317 318 319 320 321 322 323 324 … 334 ›
„Ég get ekki mánuð eftir mánuð greitt 85 þúsund krónur“ Niðurgreiðslur Reykjavíkurborgar til foreldra barna sem vistuð eru hjá dagforeldrum hafa ekki komið til framkvæmda þrátt fyrir að hafa verið samþykktar í sumar. Faðir nítján mánaða drengs segir svör borgarinnar óljós og greiðslurnar verulega íþyngjandi. Innlent 3.11.2023 21:07
Dregið úr jarðskjálftavirkni Nokkuð hefur dregið úr jarðskjálftavirkni á Reykjanesi síðan klukkan 18 í kvöld og skjálftarnir sem nú mælast eru minni. Virknin er þó enn töluverð og um 450 skjálftar hafa mælst á svæðinu í kringum Þorbjörn frá klukkan 15 í dag. Engin merki eru um að kvika sé að brjóta sér leið upp á yfirborð. Innlent 3.11.2023 20:48
Keyrði á gangandi vegfaranda og stakk af Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir vitnum vegna umferðarslyss þar sem ekið var á gangandi vegfaranda á gatnamótum Þingvallastrætis og Dalsbrautar klukkan 18:15 í kvöld. Ökumaður bifreiðarinnar ók af vettvangi án þess að tilkynna slysið. Innlent 3.11.2023 20:03
Finnur ráðinn verkefnastjóri vegna stofnunar þjóðaróperu Menningar- og viðskiptaráðuneytið hefur ráðið Finn Bjarnason sem verkefnisstjóra vegna stofnunar þjóðaróperu. Ráðningin er til eins árs. Tólf sóttu um starfið. Innlent 3.11.2023 19:39
Skotin höfnuðu á fjórum stöðum Sex hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í tengslum við skotárás í Úlfarsárdal í fyrrinótt á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Tveir særðust í árásinni. Annar þeirra er þekktur ofbeldismaður með nokkra dóma á bakinu. Dómsmálaráðherra er gríðarlega brugðið yfir málinu. Nauðsynlegt sé að bregðast við. Innlent 3.11.2023 19:00
Aðkoma stúlkunnar með símann „svívirðileg“ Meint fíkniefnaskuld var kveikjan að því að ungmenni ákváðu að veitast að 27 ára gömlum Pólverja fyrir utan Íslenska rokkbarinn í apríl. Brotaþoli lést eftir hnífstungur, högg og spörk. Héraðsdómari er ómyrkur í máli og lýsir atburðarásinni sem „leik kattarins að músinni“. Innlent 3.11.2023 18:25
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Lögreglan hefur farið fram á gæsluvarðhald yfir sex mönnum í tengslum við skotárás í Úlfarsárdal í gærnótt. Tveir særðust í árásinni. Annar þeirra er þekktur ofbeldismaður með nokkra dóma á bakinu. Við förum yfir málið og ræðum við yfirlögregluþjón í beinni útsendingu. Innlent 3.11.2023 18:09
Vilja sex í varðhald vegna skotárásar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gerir kröfu um að sex einstaklingar sæti gæsluvarðhaldi í allt að eina viku í tengslum við rannsókn embættisins á skotárás í Úlfarsárdal aðfaranótt fimmtudag. Innlent 3.11.2023 16:36
Dauðsföll af völdum stormsins Ciarán Að minnsta kosti 13 dauðsföll eru rakin síðustu daga til stormsins Ciarán sem gengið hefur yfir Vestur-Evrópu. Innlent 3.11.2023 16:30
Bílvelta í hvassviðri við Ingólfsfjall Jeppi með hjólhýsi aftan í fór út af veginum í bílveltu á Suðurlandsvegi við Ingólfsfjall rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Innlent 3.11.2023 16:10
Tíu ára fangelsi fyrir manndrápið við Fjarðarkaup Sæmundur Tryggvi Norðquist Sæmundsson, tæplega nítján ára karlmaður, var í dag dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir manndráp á bílastæðinu við Fjarðarkaup í Hafnarfirði í apríl síðastliðnum. Tveir félagar hans í kringum átján ára aldur fengu tveggja ára dóm fyrir stórfellda líkamsárás. Sautján ára stúlka fékk tólf mánaða skilorðsbundinn dóm til fimm ára. Innlent 3.11.2023 15:19
Séra Friðrik situr sem fastast og fylgist með í Lækjargötu Borgarráð hefur verið upptekin við að ræða fjárhagsáætlun og kom því ekki við að ræða „Stóra styttumálið“ á fundi ráðsins í gær. Umræða um tillögu þess að styttan verði fjarlægð frestast því um viku. Innlent 3.11.2023 15:06
Gætt hafi verið að börnunum í Grafarvogi Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu segir það vera hlutverk embættisins að framfylgja niðurstöðu dómstóla í þeim tilvikum sem henni er ekki hlýtt. Efst í huga allra sem komi að aðgerðum líkt og þeirri í Grafarvogi þann 25. október síðastliðnum séu börnin sem eigi í hlut. Innlent 3.11.2023 15:00
Skjálfti af stærðinni 4,3 Jarðskjálfti af stærðinni 4,3 mældist norðaustur af Grindavík klukkan 13:14 í dag. Um er að ræða einn stærsta skjálfta sem mælst hefur í yfirstandandi hrinu. Innlent 3.11.2023 14:34
Íslenska ríkið sýknað og kröfu Björns vísað frá dómi Landsréttur hefur sýknað íslenska ríkið og snúið við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli sem blaðamaðurinn Björn Þorláksson höfðaði gegn Kjara-og mannauðssýslu ríkisins. Kröfu Björns um miskabætur vegna uppsagnar hans árið 2021 hefur því verið vísað frá. Innlent 3.11.2023 14:25
Verslunarstjóri dæmdur fyrir fjárdrátt Fyrrverandi verslunarstjóri verslunar Krónunnar í Nóatúni hefur verið dæmdur í þrjátíu daga fangelsi fyrir að hafa dregið sér samtal tæpa milljón króna frá versluninni. Innlent 3.11.2023 13:56
„Gríðarlega brugðið eins og allri þjóðinni“ Dómsmálaráðherra segist slegin vegna skotárásar sem átti sér stað í Úlfársárdal í gærnótt. Ofbeldisárásir virðist vera að færast upp á næsta stig og nauðsynlegt sé að bregðast við. Frumvarp um breytingar á lögreglulögum sé tilraun til þess. Innlent 3.11.2023 13:48
Skjálftavirknin viðbúin þegar land rís svona hratt Stærðarinnar skjálftar hafa riðið yfir norðvestur af Grindavík frá miðnætti, þrír hafa verið yfir fjórum að stærð. Jarðeðlisfræðingur segir eðlilegt að stærri skjálftar ríði yfir þegar landris verður eins hratt og raunin er við fjallið Þorbjörn. Það þurfi þó ekki að þýði að von sé á gosi. Innlent 3.11.2023 12:06
Davíð loksins á Bessastaði eftir langa bið Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, fór ásamt fríðu föruneyti til fundar við forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannesson. Innlent 3.11.2023 11:53
Tveir urðu fyrir skoti í árásinni við Silfratjörn Tveir ungir menn urðu fyrir skotum í skotárásinni í Úlfarsáradal í gær, annar særðist en hinn fékk skrámu. Um er að ræða deilur milli tveggja hópa sem ólíklegt er að sjái fyrir endann á. Lögregla kannar hvort auka þurfi viðbúnað í höfuðborginni vegna málsins. Innlent 3.11.2023 11:50
Vilja leggja bann á fiskeldi í opnum sjókvíum: „Þetta er bara ógeðslegt“ Þingmenn Pírata hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að banna eigi fiskeldi í opnum sjókvíum. Flutningsmaður tillögunar segir eldið vera dýraníð og að það valdi gríðarlegum skemmdum á vistkerfum landsins. Innlent 3.11.2023 11:46
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við áfram um skotárásina sem gerð var í Úlfarsárdal í fyrrinótt. Innlent 3.11.2023 11:41
Íslensk stjórnvöld auka fjárframlög og kalla eftir mannúðarhléi Íslensk stjórnvöld hyggjast tvöfalda framlög sín til mannúðaraðstoðar á Gasa. Frá þessu var greint við neyðarumræðu um átökin á svæðinu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gærkvöldi, þar sem fulltrúi Íslands kallaði eftir tafarlausu hléi. Innlent 3.11.2023 10:22
Yfirheyrslur yfir sjömenningum framundan Yfirheyrslur yfir mönnunum sjö sem handteknir voru vegna skotárásar í fjölbýli á Silfratjörn í Úlfarsárdal munu fara fram í dag. Lögregla hyggst ekki veita frekari upplýsingar um mennina að svo stöddu. Innlent 3.11.2023 09:29
Ísland á kortið sem dýraníðingar og umhverfissóðar The Guardian hefur tekið til umfjöllunar það mál sem skekið hefur íslenska sjókvíaeldisiðnaðinn að undanförnu; lús hefur lagt undir sig sjókvíar og herjar á lax. Innlent 3.11.2023 09:11
Ýmsir dáðust að vígahnetti sem náðist á myndband Svokallaður vígahnöttur lýsti upp himininn á Vesturlandi um klukkan átta í morgun. Innlent 3.11.2023 08:36
750 skjálftar frá miðnætti Alls hafa 750 jarðskjálftar mælst á Reykjanesinu frá miðnætti og segir sérfræðingur að virknin hafi aukist aðeins í nótt. Innlent 3.11.2023 07:23
Bændahjón óttaslegin vegna erja: „Hann á eftir að drepa okkur“ Bændahjón úr Kjós segjast hafa óttast um líf sitt og fjölskyldu sinnar vegna nágranna sem er ákærður fyrir að aka bíl á ógnandi hátt að þeim, elt þau um tíu kílómetra vegarkafla í Hvalfirði og reynt að þvinga þau af veginum. Atburðirnir sem málið varðar áttu sér stað á júníkvöldi árið 2021. Innlent 3.11.2023 07:01
„Þetta er í fyrsta sinn sem manni er svolítið órótt“ „Ég vaknaði bara strax við þann fyrsta sem kom eftir miðnætti. Og vaknaði aftur um klukkan þrjú og hef ekki sofnað síðan. Þetta er bara búið að vera viðvarandi; stórir skjálftar. Maður sér á vefnum að þeir eru yfir þrír meira og minna.“ Innlent 3.11.2023 06:42
Skjálfti 4,2 að stærð rétt vestur af Bláa lóninu Skjálfti 4,2 að stærð varð um 1,2 kílómetra vestur af Bláa lóninu á Reykjanesskaga klukkan 3:51 í nótt. Sjö skjálftar sem hafa verið stærri en 3 að stærð, hafa mælst frá miðnætti, en skjálftanir hafa fundist víða á suðvesturhorni landsins. Innlent 3.11.2023 05:41