Innlent
219 220 221 222 223 224 225 226 227 … 334 ›
Má ekki hleypa köttum inn í sameiginlegt þvottahús Íbúi í fjölbýlishúsi má ekki hleypa köttum sínum í gegnum sameiginlegt þvottahús, og ekki geyma þar dekk og aðra persónulega muni. Þetta er álit kærunefndar húsamála, en erindi barst til þeirra frá nágranna íbúans. Innlent 11.7.2024 20:22
Biden lýsti aðdáun á Íslandi og hrósar framlagi til NATO Framlag Íslands til Atlantshafsbandalagsins er til fyrirmyndar og umfram væntingar að sögn forseta Bandaríkjanna. Þetta sagði Joe Biden í samtali við Bjarna Benediktsson forsætisráðherra á leiðtogafundi NATO sem nú stendur yfir í Washington. Síðasti dagur 75 ára afmælis- og leiðtogafundar NATO er í dag en eftirvænting ríkir fyrir blaðamannafundi sem Biden hefur boðað síðar í kvöld. Innlent 11.7.2024 20:02
Lúsmý verði bráðlega komið um allt land Gísli Már Gíslason, vatnalíffræðingur og prófessor emeritus í dýrafræði við HÍ, segir lúsmýið munu brátt hafa breitt úr sér um allt land. Lúsmýið hafi greinst nýverið á Austfjörðum þar sem það hafði ekki greinst áður. Hann segir lúsmýið komið til að vera á Íslandi öllu nema yst á annesjum. Innlent 11.7.2024 20:02
Svikahrappar reyna að gabba lögregluna Óprúttinn aðili gerði í dag tilraun til að gabba lögregluna á Suðurnesjum með póstsvindli svokölluðu sem herjað hefur á landsmenn í auknum mæli undanfarin ár. Innlent 11.7.2024 18:58
Leggja kílómetragjald á bensín- og olíubíla Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur kynnt til samráðs mál um að kílómetragjald verði tekið upp fyrir bensín- og olíubíla. Gjaldið var lagt á rafmagns, tengiltvinnbíla, og vetnisbíla um síðustu áramót. Kílómetragjaldið á að koma í stað olíu- og bensíngjalda, sem nú eru greidd við kaup á jarðefnaeldsneyti. Áformað er að olíu- og bensíngjöld verði felld brott. Innlent 11.7.2024 18:50
Vörubíll hafnaði utan vegar á hliðinni í Mýrdalshreppi Vörubíll hafnaði á hliðinni eftir að hafa ekið út af veginum í neðstu beygjunni í Gatnabrún í Mýrdalshreppi á Hringveginum. Umferð hefur verið stöðvuð tímabundið. Innlent 11.7.2024 18:29
Biden hrósar Íslendingum og litlaus bílafloti Framlag Íslands til Atlantshafsbandalagsins er til fyrirmyndar og umfram væntingar að sögn forseta Bandaríkjanna. Þetta sagði Joe Biden í samtali við Bjarna Benediktsson forsætisráðherra á leiðtogafundi NATO sem nú stendur yfir í Washington. Við fjöllum um fundinn í fréttatímanum. Innlent 11.7.2024 18:27
Hildur biður Samfylkinguna afsökunar Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, biður Samfylkinguna afsökunar á rangfærslum í grein sem hún skrifaði í Morgunblaðið í dag. Í greininni segir hún Samfylkinguna ekki hafa komið á tólf mánaða fæðingarorlofi þrátt fyrir yfirlýsingar þeirra um að svo hafi verið, það reyndist ekki alveg rétt hjá henni Innlent 11.7.2024 17:49
Stöðvuðu starfsemi Hríseyjar Seafood Matvælafyrirtækið sem Matvælastofnun gerði að hætta starfsemi í síðustu viku, vegna alvarlegra frávika frá matvælalögum, er Hrísey Seafood. Fiskvinnslu félagsins var lokað og má ekki opna aftur fyrr en úrbætur hafa verið gerðar. Innlent 11.7.2024 16:54
Stjórnsýslufræðingur segir Þórarinn Inga brotlegan við siðareglur Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur telur blasa við að Þórarinn Ingi Pétursson Framsóknarflokki, hafi brotið siðareglur þingsins, þá er hann mælti fyrir breytingu á búvörulögum. Innlent 11.7.2024 16:30
Edda Sif segir ranghugmyndir um Carbfix með miklum ósköpum Edda Sif Aradóttir framkvæmdastjóri Carbfix fettir fingur út í ummæli Davíðs Arnars Stefánssonar, sem er sérfræðingur á sviði sjálfbærrar landnýtingar hjá Land og skógi og oddviti Vg í Hafnarfirði og segir þau dæma sig sjálf. Líkt og önnur þess efnis að Carbfix ógni fólki með einhverjum hætti. Innlent 11.7.2024 16:01
Telur pólitísk afskipti hafa ráðið því að ráðningin var dregin til baka Óskar Steinn Ómarsson stjórnmálafræðingur telur pólitísk afskipti af ráðningarferli Hafnarfjarðarbæjar vera ástæðu þess að ráðning hans í starf deildarstjóra í grunnskóla í bænum hafi verið dregin til baka. Hann segist ætla með málið eins langt og hægt er. Innlent 11.7.2024 15:40
Framkvæmdir við Suðurnesjalínu 2 hefjast á næstu dögum Framkvæmdir við Suðurnesjalínu 2 hefjast á næstu dögum, en með tilkomu línunnar verður flutningskerfi raforku sveigjanlegra á Suðurnesjunum og mun afhendingaröryggi aukast til muna. Innlent 11.7.2024 15:37
„Rasísk“ ummæli foreldrafulltrúa vekja reiði íbúa Til stendur að starfrækja móttökuúrræði fyrir börn í leit að alþjóðlegri vernd í Breiðagerðisskóla í Reykjavík frá og með næsta hausti. Fulltrúi foreldra í skólaráði telur úrræðið slæmt fyrir börn í skólanum, sem eigi ekki „blandast“ með börnum í neyð. Aðrir íbúar hneykslast á þessum ummælum foreldrafulltrúans. Innlent 11.7.2024 15:07
Óttast vaxandi atvinnuleysi á næstu misserum Atvinnuleysi í júní mælist ívið meira en í fyrra, en skráð atvinnuleysi var 3,1% á landsvísu. Hagfræðingur ASÍ óttast að atvinnuleysi fari vaxandi á næstunni í ljósi horfa í efnahagslífinu. Meðal annars sé hátt vaxtastig farið að hægja á umsvifum í hagkerfinu og því sé ekki ólíklegt að minni umsvif hafi áhrif á atvinnustigið. Innlent 11.7.2024 14:48
Aurskriða í Syðridal: „Ég hef aldrei séð svona áður“ Aurskriða féll í Syðridal nærri Bolungarvík klukkan ellefu í dag. Mikill hávaði fylgdi og svart ský myndaðist fyrir ofan skriðuna, sem náðist á myndband. Innlent 11.7.2024 14:47
Skipstjórinn var drukkinn og skipaði stýrimanni að sigla á brott Skipstjóri og stýrimaður fraktskipsins Longdawn játuðu sök þegar mál ákæruvaldsins á hendur þeim var þingfest í dag. Þeim var gefið að sök að hafa skilið skipstjóra strandveiðibátsins Höddu HF eftir í sjávarháska, eftir að hafa siglt skipinu á bátinn. Þá játaði skipstjórinn að hafa verið drukkinn. Innlent 11.7.2024 14:17
Jón Einar sakfelldur fyrir umfangsmikla sjónræningjastarfsemi Jón Einar Eysteinsson, athafnamaður á Spáni, hefur verið dæmdur til að sæta fangelsi í 60 daga – skilorðsbundið. Og fallist er á bótakröfu á hendur honum af hálfu Stöðvar 2. Þetta er fyrir að hafa gegn betri vitund selt ótilgreindum fjölda fólks aðgang að læstri dagskrá sjónvarpsstöðva í gegnum streymisveitu sína. Innlent 11.7.2024 13:43
Stöðva starfsemi matvælafyrirtækis á Norðurlandi Matvælastofnun stöðvaði starfsemi matvælafyritækis á Norðurlandi eystra í síðustu viku vegna alvarlegra frávika frá matvælalögum. Innlent 11.7.2024 13:31
Spyr hvort Íslendingar megi einir nauðga á Íslandi „Er kannski málið að það er auðveldara að kenna erlendum manni um að vera nauðgari en að horfast í augu við að vinur þinn sé mögulega slíkt ómenni?“ Innlent 11.7.2024 12:05
Eigandi stakk af eftir að hundur beit konu með ungbarn Þýskur fjárhundur, sjeffer, réðst á konu sem var á gangi með ungbarn sitt í Árbænum í síðasta mánuði með þeim afleiðingum að hún hlaut áverka á hendi. Konan segir eigandann hafa flúið vettvang og hunsað beiðni hennar um að hringja á sjúkrabíl. Innlent 11.7.2024 11:53
Gengi Icelandair, vaxandi atvinnuleysi og skátar á Landsmóti Í hádegisfréttum fjöllum við um gengi Icelandair en hlutabréfaverð félagsins hefur lækkað undanfarið. Innlent 11.7.2024 11:37
Ætlar að leggja til málshöfðun á hendur íslenska ríkinu Íslenska ríkið hefur hafnað miska- og skaðabótagreiðslu til handa ekkju Andemariams Beyene sem lést 30. janúar 2014 í kjölfar plastbarkaígræðslu á Karólínska háskólasjúkrahúsinu í júní árið 2011. Lögmaður ekkjunnar er Sigurður G. Guðjónsson mun að öllum líkindum leggja til við skjólstæðing sinn að hún höfði mál á hendur íslenska ríkinu. Innlent 11.7.2024 11:24
Ekki hægt að gera grein fyrir 5200 fiskum Samherji fiskeldi gat ekki gert grein fyrir rétttæplega 5200 fiskum eftir strok á eldislaxi úr fiskeldisstöð fyrirtækisins í Silfurstjörnunni í Öxarfirði. Matvælastofnun áætlar að það sé sá fjöldi seiða sem mögulega hafi smoltast í settjötn og strokið út í sjó. Innlent 11.7.2024 10:27
Sóttu framkvæmdastjóra þingflokks til SA Stefanía Kolbrún Ásbjörnsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Hún tekur við af Tryggva Mássyni, sem hefur tekið við starfi hjá Klíníkinni. Innlent 11.7.2024 10:16
Sýslumaður hótar því að taka aðventista af skrá Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra hefur ritað stjórn Kirkju sjöunda dags aðventista bréf þar sem hann krefst þess að ef stjórnin ljúki ekki aðalfundi sem staðið hefur í tvö ár fyrir 10. ágúst næstkomandi þá muni hann grípa til þess að fella félagið af skrá sem trúfélag. Innlent 11.7.2024 10:09
Einn alvarlega slasaður eftir slysið Einn er alvarlega slasaður eftir bílslys sem varð á Holtavörðuheiði síðdegis í gær þegar tveir bílar sem komu úr gagnstæðri átt skullu saman. Innlent 11.7.2024 09:08
Fleygði lögreglumanni í jörðina eftir hlaup um miðbæ Akureyrar Karlmaður á fertugsaldri hlaut þriggja mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til þriggja ára, í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir að veitast að lögreglumanni í miðbæ Akureyrar í júlí í fyrra. Innlent 11.7.2024 07:19
Var að ónáða fólk og taka af því myndir Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning í gærkvöldi eða nótt þar sem óskað var aðstoðar vegna einstaklings sem var sagður vera að ónáða fólk og taka af því myndir. Innlent 11.7.2024 06:21
Karfa loftbelgsins valt á hliðina í lendingunni Þeir sem sáu loftbelginn hverfa upp í háloftin yfir Rangárvöllum í beinni útsendingu Stöðvar 2 í gærkvöldi vilja eflaust margir vita hvernig flugferðin endaði. Hér sjáum við þá sögu. Innlent 10.7.2024 22:44