
Innlent

Loftslagsáætlun Íslands sögð ómarkviss og bjartsýn úr hófi fram
Aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum er ómarkviss, margar aðgerðanna eru ófjármagnaðar og ávinningur þeirra hefur ekki verið metinn, að dómi Loftslagsráðs. Árangursmat áætlunarinnar eru einnig sagt afar bjartsýnt af þessum sökum.

Borgarísjaki en enginn björn
Landhelgisgæslan varar sjófarendur við borgarísjaka vestur af Vestfjörðum. Ekki sást til hvítabjarnar við eftirlitsflug þyrlu gæslunnar í gær.

Svartsengi keyrt á varaafli
Orkuveruð í Svartsengi er nú keyrt á varaafli, eftir að Svartsengislína fór út. Rafmagnslaust er í Grindavík. HS Orka fylgist grannt með stöðunni á Njarðvíkuræð, sem sér Suðurnesjunum fyrir heitu vatni.

Hraun náð Njarðvíkuræð
„Nú fylgjumst við bara í raun og veru með rennsli hraunsins; hraunið hefur náð þessari veitulínu, Njarðvíkurlínunni,“ segir Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, um stöðu mála við Grindavík.

Verði að koma í ljós hvort fergjun Njarðvíkuræðar heldur
Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi hjá Almannavörnum, segir að þrátt fyrir að gosin hafi öll verið á svipuðum slóðum komi upp nýjar áskoranir í hvert sinn sem gýs.

Hraun rann yfir Grindavíkurveg
Hraun rann yfir Grindavíkurveg upp úr klukkan half fimm í nótt og nálgast það nú Njarðvíkuræð. Áætlað hraunrennsli á umræddri hrauntungu er um 300 metrar á klukkustund.

Miðlarnir úti í heimi ekki eins áhugasamir og fyrir ári
Fjallað er um eldgosið sem hófst í gærkvöldi í fjölmiðlum erlendis, en þó í talsvert minna mæli en fyrir tæpu ári síðan.

Barnabarnið hélt að gosið væri grín þegar afi reyndi að koma honum á lappir
Eiríkur Óli Dagbjartsson, Grindvíkingur, var staddur í bænum þegar gosið hófst í gærkvöldi. Hann heyrði ekki í viðvörunarlúðrum sem láta íbúa bæjarins vita þegar það byrjar að gjósa. Það er í annað skipti sem það gerist.

Kort af staðsetningu gossprungunnar
Lengd gossprungunnar þar sem gýs norðan Grindavíkur er áætluð um tveir og hálfur kílómetri. Syðri endi hennar er við Sýlingarfell. Sérfræðingar Veðurstofunnar telja gosið minna í upphafi en síðasta gos í ágúst.

Áttu ekki von á eldgosi í nóvember
Vísindamenn á Veðurstofu Íslands sögðust síðdegis á þriðjudag telja ólíklegt að nægur þrýstingur yrði búinn að byggjast upp í kvikuhólfinu undir Svartsengi til að koma af stað eldgosi í nóvember, kosningagosi. Önnur varð sannarlega raunin því rúmum sólarhring síðar er eldgos hafið norðan Grindavíkur, það sjöunda á árinu og það tíunda síðan eldgosahrinan á svæðinu hófst í mars 2021.

Rýming í Bláa lóninu og Grindavík gengur vel
Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Suðurnesjum segir að rýming gangi vel í bæði Grindavík og Bláa lóninu. Miðað við upplýsingar um staðsetningu eldgossins og hraunflæði séu engir innviðir eða vegir í bráðri hættu akkúrat núna.

Stukku út í glugga og biðu eftir eldgosinu
Jóhanna Ósk Þrastardóttir býr á Ásbrú í Reykjanesbæ í um tuttugu kílómetra fjarlægð frá eldgosinu sem hófst klukkan 23:14 í kvöld.

Vaktin: Eldgos hafið á ný og bílastæðaplan Bláa lónsins nú undir hrauni
Eldgos hófst við Sundhnúksgígaröðina klukkan 23:14 á miðvikudag. Sprungan liggur austan Grindavíkurvegar í norðaustur. Um er að ræða sjötta elgosið á árinu og það tíunda síðan goshrinan hófst í mars 2021.

Tæp tíu þúsund hafa kosið utan kjörfundar
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefur staðið yfir í um tvær vikur. Lillý Valgerður Pétursdóttir fréttamaður heimsótti Holtagarða í kvöldfréttunum en þar er utankjörfundaratkvæðagreiðsla haldin fyrir höfuðborgarsvæðið.

Vilja samræmdar reglur um símafrí í skólum
Foreldrar barna í Seljaskóla safna nú undirskriftum í þeirri von að tekið verði upp símafrí í skólanum. Þau vilja að borgaryfirvöld beiti sér fyrir því að slíkar reglur verði teknar upp í öllum grunnskólum borgarinnar.

Um 150 manns munu fá vinnu við smíði nýrrar Ölfusárbrúar
Um 150 manns munu fá vinnu við smíði nýrrar brúar yfir Ölfusá við Selfoss. Fyrsta skóflustungan af brúnni var tekin í dag. Ráðherra segir að veggjaldið yfir brúnna verði eins og verðið á einni kókflösku.

Fyrrverandi forseti furðar sig á taktík kennara
Guðni Th. Jóhannesson fyrrverandi forseti var gestur á hátíðarhöldum á Seltjarnarnesi í dag þar sem haldið var upp á dag mannréttinda barna. Í ræðu sinni ræddi Guðni tengsl sín við Seltjarnarnes og ýmislegt annað. Þá barst einnig í tal verkfall kennara en kennarar í leikskólanum á Seltjarnarnesi hafa verið í ótímabundnu verkfalli frá 29. október.

Hafnar því að honum hafi verið vísað út
„Ég ræddi ekki við kennara og ekki við skólastjórann (og Samfylkingaraktívistann) sem lét hafa ýmislegt eftir sér í frétt á Vísi. Hvorki hún né nokkur annar starfsmaður báðu mig að fara út.“

Bankinn steli til baka hluta af ávinningi af vaxtalækkuninni
Allir viðskiptabankarnir ætla eða hafa gert breytingar á vaxtakjörum sínum eftir stýrivaxtalækkun Seðlabankans í morgun. Hjá Íslandsbanka hafa vextir á óverðtryggðum lánum þegar lækkað en hækkað á verðtryggðum lánum. Formaður Neytendasamtakanna gagnrýnir harðlega hækkun á verðtryggðum lánum.

Ríkið þarf ekki að greiða borginni milljarðana
Hæstiréttur Íslands hefur sýknað íslenska ríkið af nokkurra milljarða króna kröfu Reykjavíkurborgar í tengslum við framlög ríkisins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.

Funda þriðja daginn í röð á morgun
Hreyfing er komin á kjaraviðræður kennara og ríkis og sveitarfélaga. Samninganefndir funduðu í Karphúsinu í gær og sátu svo aftur í allan dag á fundi.

Fyrsta flug þotu sem markar þáttaskil í sögu Icelandair
Fyrsta Airbus-þota Icelandair fór í sitt fyrsta reynsluflug í Hamborg í gær. Stefnt er að því að flugvélin komi til landsins 3. desember og hefji áætlunarflug viku síðar.

Stefna á að verk hefjist við Fossvogsbrú snemma á næsta ári
Fyrsta lota borgarlínu hefur tekið nokkrum breytingum samkvæmt nýjum tillögum. Opnað verður fyrir tilboð í fyrsta áfanga Fossvogsbrúar í byrjun desember og framkvæmdastjóri Betri samgangna væntir þess að framkvæmdir geti hafist snemma á næsta ári.

Sigmundi vísað úr VMA eftir að hann krotaði á varning annarra flokka
Aðstoðarskólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri vísaði Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og öðrum meðlimum Miðflokksins úr húsakynnum skólans í dag eftir að hann var staðinn að því að krota á varning annarra flokka.

Ný gögn í Geirfinnsmáli eigi að fara til lögreglu á Suðurnesjum
Jón H.B. Snorrason saksóknari hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir best að byrja hjá lögreglu sé fólk með vitnisburð eða gögn sem geti varpað nýju ljósi á rannsókn lögreglu í einhverju máli. Útgefandi bókar um hvarf Geirfinns Einarssonar geti snúið sér til lögreglunnar á Suðurnesjum.

Varar við launahækkunum umfram núverandi kjarasamninga
Seðlabankinn býst við að verðbólga verði komin niður í 2,5 prósent árið 2026. Seðlabankastjóri segir þó óvissuþætti í kortunum og hagfræðingur varar við miklum launahækkunum.

Vaxtalækkun, símabann og mandarínuskortur
Peningastefnunefnd Seðlabankans lækkaði stýrivexti í í annað skipti í röð í morgun og býst við að verðbólga haldi áfram að hjaðna. Seðlabankastjóri segir óvissuþætti þó vera í kortunum og hagfræðingur varar við miklum launahækkunum.

Kallaði kynferðisbrot gegn stjúpdóttur djók og leik
Karlmaður hefur hlotið sjö mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Suðurlands vegna kynferðisbrota gegn stjúpdóttur sinni þegar hún var tólf til fjórtán ára gömul.

Ein sleppur en mæðgurnar skulda tugi milljóna
Dómur í umfangsmiklu skattalagabrotamáli á hendur þremur konum gekk í gær. Ein þeirra gat sýnt fram á að himinháar greiðslur frá spænskum auðjöfri hafi getað verið lán og var því sýknuð. Mæðgur gátu það hins vegar ekki og voru sektaðar um á sjönda tug milljóna.

Fyrsta skóflustungan að nýrri Ölfusárbrú
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra tók fyrstu skóflustunguna að nýrri Ölfusárbrú í dag. Þá var undirritaður verktakasamningur í Golfskálanum á Selfossi.