Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Atli Ísleifsson skrifar 28. júní 2026 07:15 Maðurinn var ákærður fyrir að hafa í fjórgang ekið bíl undir áhrifum slævandi lyfja. Vísir/Vilhelm Landsréttur hefur mildað dóm yfir manni sem meðal annars var dæmdur í héraði fyrir að hafa í fjögur skipti ekið undir áhrifum slævandi lyfja á Akureyri. Maðurinn var upphaflega dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra, en Landsréttur sýknaði manninn af því að hafa ekið undir áhrifum og mildaði dóminn í þrjá mánuði.
Í dómi Landsréttar má sjá að dómurinn hafi talið að matsgerðir Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði hjá Háskóla Íslands, sem lágu til grundvallar sakfellingar í héraði, nægi ekki einar til að hægt sé að sakfella manninn fyrir umræddan akstur og var hann því sýknaður af þeim hluta ákæru. Maðurinn var í héraði dæmdur fyrir þjófnað og ýmis brot gegn umferðarlögum, þar á meðal að hafa í fjögur skipti ekið bíl undir áhrifum slævandi lyfja. Í eitt skiptið ók maðurinn á ljósastaur. Fyrir Landsrétti komu einungis til endurskoðunar þær sakargiftir sem ákærði hafði ekki játað í héraði, en hann neitaði að hafa verið óhæfur til aksturs vegna áhrifa slævandi lyfja í umrædd skipti – það er í þrígang fyrri hluta árs 2024 og svo í eitt skipti 2025. Í niðurstöðukafla dóms Landsréttar kemur fram að að teknu tilliti til staðfastrar neitunar mannsins og niðurstaðna klínísks mats læknis eftir að maðurinn hafði ekið á ljósastaur og slævandi efni mælst í blóði hans – væru matsgerðirnar ekki einar nægar til að sanna, svo hafið sé yfir skynsamlegan vafa, að hann hafi sýnt af sér þá háttsemi sem rakin var í ákæru, það er að aka undir áhrifum slævandi lyfja. Var meðal annars vísað til breyttrar dómaframkvæmdar í málum sem þessum á síðustu árum. Maðurinn var því sýknaður af þeim sakargiftum og kröfu ákæruvalds um sviptingu ökuréttar hafnað. Maðurinn var hins vegar dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir þau brot sem hann hafði játað, þjófnað í verslun.
Dómsmál Lyf Umferðaröryggi Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira