Erlent
322 323 324 325 326 327 328 329 330 … 334 ›
Sorphirðumenn Glasgow í verkfalli á meðan risafundurinn er Sorphirðumenn Glasgow-borgar í Skotlandi hafa samþykkt að fara í vikuverkfall, á sama tíma og risaloftlagsráðstefnan COP26 verður haldin í borginni. Erlent 18.10.2021 23:21
Gates hafi verið ráðlagt að láta af óviðeigandi tölvupóstsamskiptum Yfirmenn hjá Microsoft eru sagðir hafa ráðlagt Bill Gates að hætta kynferðislegum tölvupóstsamskiptum við kvenkyns starfsmann fyrirtækisins árið 2008. Erlent 18.10.2021 21:56
Rússar hefna fyrir refsiaðgerðir NATO-ríkja Skrifstofum Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Moskvu verður lokað og sendinefnd Rússlands gagnvart bandalaginu verður kölluð heim með aðgerðum sem stjórnvöld í Kreml tilkynntu um í dag. Aðgerðirnar eru svar við brottvísun rússneskra sendifulltrúa hjá NATO. Erlent 18.10.2021 15:46
Fórnarlömbin í Kongsberg voru myrt með eggvopnum Fimm manns sem létu lífið í árás vopnaðs manns í Kongsberg í Noregi í síðustu viku voru stungnir til bana en ekki skotnir með boga og örvum eins og talið var í fyrstu. Sumir þeirra voru myrtir heima hjá sér en aðrir úti á götu. Erlent 18.10.2021 15:10
Herforingjastjórnin ætli að sleppa 5.600 stjórnarandstæðingum lausum Herforingjastjórnin í Mjanmar segist ætla að sleppa 5.600 pólitískum föngum lausum. Þetta var tilkynnt aðeins dögum eftir að yfirherforingjanum var meinað að mæta á leiðtogafund Sambands Suðaustur-Asíuríkja fyrir að takast ekki að koma á friði í landinu. Erlent 18.10.2021 13:47
Fyrstu kvikmyndatökunni úti í geim lokið Rússnesk leikkona og leikstjóri sneru aftur til jarðar í gær eftir að hafa varið tólf dögum í Alþjóðlegu geimstöðinni þar sem þau voru við tökur á nýrri kvikmynd. Við komuna til jarðar fóru þau strax í að taka upp nokkrar aukasenur þrátt fyrir tólf daga linnulausar tökur. Erlent 18.10.2021 13:21
Colin Powell látinn vegna Covid-19 Colin Powell, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er látinn af völdum fylgikvilla Covid-19. Hann var 84 ára gamall. Erlent 18.10.2021 12:17
Var nauðgað í fullri lest á meðan aðrir farþegar sátu hjá Lestarfarþegar í Fíladelfíu sátu hjá og gerðu ekkert á meðan konu var nauðgað í lestarvagninum á miðvikudagskvöld. Ekki einn farþeganna brást við á meðan á árásinni stóð og enginn hringdi í neyðarlínuna að sögn yfirvalda í Fíladelfíu. Erlent 18.10.2021 09:23
Stjórnarandstaðan sameinast um frambjóðanda gegn Orban Íhaldssamur bæjarstjóri stóð uppi sem sigurvegari í sameiginlegu forvali ungversku stjórnarandstöðunnar fyrir þingkosningar sem fara fram á næsta ári. Hann fær það hlutverk að leiða sameinaða stjórnarandstöðuna og freista þess að fella Viktor Orban, forsætisráðherra. Erlent 18.10.2021 09:04
Græningjar samþykkja að ráðast í formlegar stjórnarmyndunarviðræður Mikill meirihluti þýskra Græningja samþykkti í gær að hefja formlegar stjórnarmyndunarviðræður við Jafnaðarmenn (SPD) og Frjálslynda demókrata (FDP). Erlent 18.10.2021 08:23
Forsætisráðherra Spánar heitir því að banna vændi á ný Pedro Sanchez, forsætisráðherra Spánar, hét því í gær að banna vændi í landinu. Í ræðu sinni undir lok þriggja daga ráðstefnu Sósíalistaflokksins sagði hann vændi gera konur að þrælum en rannsóknir benda til að 30 til 40 spænskra karla hafi greitt fyrir kynlíf. Erlent 18.10.2021 07:21
Að minnsta kosti 24 látnir í miklum rigningum á Indlandi Miklar rigningar hafa gengið yfir suðurhluta Indlands síðustu daga og hafa ár víða flætt yfir bakka sína með tilheyrandi tjóni og röskun á samgöngum. Erlent 18.10.2021 06:48
Minnst tuttugu eru látin í gríðarlegum flóðum á Indlandi Úrhellisrigning hefur valdið flóðum í Kerala á Indlandi síðustu daga. Minnst tuttugu hafa látisst og tuga er saknað. Erlent 17.10.2021 16:34
Innanríkisráðherra íhugar lögregluvernd fyrir þingmenn eftir morðið Priti Patel, innanríkisráðherra Bretlands, hefur sagst vera að íhuga að bjóða þingmönnum upp á lögregluvernd eftir að þingmaðurinn David Amess var myrtur á föstudaginn. Erlent 17.10.2021 12:45
Nafngreina grunaðan morðingja þingmannsins Maðurinn sem grunaður er um að hafa myrt breska þingmanninn Sir David Amess í Essex á föstudag heitir Ali Harbi Ali og er 25 ára Breti af sómölskum uppruna, samkvæmt fréttum breskra fjölmiðla sem nafngreina hann í dag. Erlent 17.10.2021 10:09
Að minnsta kosti sautján Bandaríkjamönnum rænt á Haítí Hópur af trúboðum, ásamt fjölskyldum þeirra, var rænt nálægt höfuðborg Haítí, Port-au-Prince, í gær. Erlent 17.10.2021 07:38
Jarðgöngin koma í röðum, þau næstu fyrir áttatíu íbúa Ekkert lát ætlar að verða á jarðgangaborunum Færeyinga. Fyrir tveimur vikum fögnuðu þeir fyrstu sprengingu nýrra Árnafjarðarganga. Samtímis er hafið útboðsferli á göngum til Fámjins, áttatíu manna byggðar á Suðurey. Erlent 17.10.2021 06:27
Ellefu nemendur drukknuðu í skólaferðalagi í Indónesíu Ellefu nemendur á aldrinum tólf til fimmtán ára drukknuðu í Indónesíu í gær. Nemendurnir voru að hreinsa árbakka í skólaferðalagi þegar þeir féllu út í ána. Erlent 16.10.2021 15:16
Morð þingmannsins minni óþægilega mikið á morðið á Jo Cox Stjórnmálafræðingur segir morðið á breska þingmanninum David Amess geta haft gífurleg, og alvarleg, áhrif á stjórnmál í Bretlandi og víðar. Lögregla í Lundúnum rannsakar nú morðið sem hryðjuverk en Amess var stunginn til bana á kjördæmisskrifstofu sinni í Essex í gær. Erlent 16.10.2021 14:16
Greint frá nöfnum þeirra sem létust í árásinni í Kongsberg Lögreglan í Noregi hefur nú greint frá nöfnum fórnarlambanna fimm sem létust í árásinni í Kongsberg á miðvikudag. Fórnarlömbin voru á aldrinum 52-78 ára. Erlent 16.10.2021 13:48
Loftslagsáætlun Bidens í vanda Metnaðarfull loftslagsaðgerðaáætlun Joes Biden Bandaríkjaforseta virðist vera að sigla í strand. Fjármögnun orkuskipta, sem var einn burðarstólpa áætlunarinnar, verður líklega felld út úr fjárlagafrumvarpi sem nú er í meðferð í öldungadeild Bandaríkjaþings. Erlent 16.10.2021 12:58
Að minnsta kosti þrír létust í jarðskjálfta á Balí Mannskæður jarðskjálfti varð á eyjunni Balí í Indónesíu í morgun. Skjálftinn mældist 4.8 að stærð. Margir særðust og að minnsta kosti þrír létust í jarðskjálftanum. Erlent 16.10.2021 11:54
Ekki lengur hrópandinn í eyðimörkinni Lisa Murkowski öldungardeildarþingmaður Republikana fyrir Alaska mætti áhugaleysi og jafnvel efasemdum um raunveruleika loftlagsbreytinganna innan flokksins þegar hún hóf að vekja athygli á málefnum norðurslóða á Bandaríkjaþingi. Hún hefur sótt Hringborð norðurslóða frá upphafi og segir stöðuna hafa breyst mikið í dag. Erlent 16.10.2021 10:00
Morðið á breska þingmanninum rannsakað sem hryðjuverk Breski þingmaðurinn Sir David Amess var stunginn margsinnis þar sem hann var staddur í kjördæmaskrifstofu sinni í Leigh-On-Sea í Essex í gær. Lögreglan segir að málið sé rannsakað sem hryðjuverk. Erlent 16.10.2021 07:32
Skjóta geimfari af stað í tólf ára leiðangur Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) munu í dag skjóta geimfarinu Lucy af stað í tólf ára leiðangur. Þetta er í fyrsta sinn sem geimfar er sent til Smástirnabeltisins svokallaða í þeim tilgangi að rannsaka þau og á Lucy að auka þekkingu vísindamanna á uppruna sólkerfisins. Erlent 16.10.2021 00:14
Ódæðismaðurinn vistaður á stofnun: Norðmenn eru í sárum Norðmenn eru í sárum eftir ódæðin í fyrradag þegar karlmaður vopnaður boga og örvum myrti fimm manns. Lögregla telur ekki um hryðjuverkaárás að ræða heldur sé árásarmaðurinn andlega veikur. Hann hefur verið vistaður á viðeigandi stofnun. Erlent 15.10.2021 22:36
Danir bjóða öllum þriðju sprautuna Öllum Dönum mun bjóðast þriðji bóluefnisskammturinn gegn Covid-19. Þetta tilkynnti Magnus Heunicke heilbrigðisráðherra í dag. Erlent 15.10.2021 16:38
Opna landamærin fyrir bólusetta 8. nóvember Bandarísku landamærin verða opnuð fyrir öllum bólusettum þann 8. nóvember næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hvíta húsinu en landamærin hafa lengið verið lokuð ferðamönnum. Erlent 15.10.2021 16:18
Bein útsending: Kínverjar senda þrjá geimfara til geimstöðvarinnar Þremur geimförum verður í dag skotið á braut um jörðu frá Kína. Þar munu geimfararnir vera í hálft ár að vinna við gerð geimstöðvar Kína. Shenzhou-13 er annað af fjórum mönnuðum geimskotum Kína á meðan verið er að klára geimstöðina. Erlent 15.10.2021 16:00
Parkland-morðinginn mætir fyrir dóm Mál Nikolas Cruz, sem játað hefur á sig fjöldamorð í miðskóla í Parkland í Flórída fyrir rúmum þremur árum, verður tekið fyrir í dómsal í dag. Erlent 15.10.2021 15:16