

Minnst 22 létu lífið og rúmlega hundrað særðust er rússneskar eldflaugar lentu í borginni Vinnitsía, sem liggur suðvestur af Kænugarði. Ráðamenn í Úkraínu segja eldflaugunum hafa verið skotið frá kafbáti í Svartahafi og segja Rússa vísvitandi hafa gert árás á óbreytta borgara. Ekkert hernaðarlegt skotmark hafi verið á svæðinu.
Fjórtán ára stúlka lést í rússíbanaslysi í Friheden tívolíi í Árósum fyrr í dag. Þrettán ára drengur slasaðist einnig á höndum í slysinu þegar vagn á Cobra-rússíbananum losnaði og fór af teinunum. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem það verður slys í rússíbananum.
Twitter datt út í um hálftíma rétt fyrir hádegi fyrir tugþúsundir notenda samfélagsmiðlsins. Þetta hálftíma sambandsleysi er það lengsta hjá forritinu síðan 2016. Forsvarsaðilar miðilsins hafa ekki greint frá ástæðunum.
Bandarískur dómari neitaði í gær að fella niður tíu milljóna dala miskabætur sem leikkonunni Amber Heard hefur verið gert að greiða fyrrverandi eiginmanni sínum, Johnny Depp, fyrir meiðyrði. Depp vann meiðyrðamál gegn Heard í síðasta mánuði en það sneri að grein sem hún skrifaði á vef Washington Post þar sem hún sagðist hafa orðið fyrir heimilisofbeldi.
Persónulegar undanþágur fyrir Elísabetu Bretadrottingu hafa verið ritaðar í meira en 160 lög frá 1967 en lögin varða allt milli himins og jarðar, meðal annars dýravelferð og réttindi starfsmanna.
Tveir eru slasaðir eftir að vagnaröð losnaði í rússíbana í Tivoli Friheden í Árósum fyrr í dag. Búið er rýma tívolíið og því hefur verið lokað út daginn. Sjúkraliðar eru á staðnum til að sinna hinum slösuðu og eru vitni í skýrslutöku hjá lögreglu.
Sérfræðingur um málefni breska Íhaldsflokksins segir vel geta gerst að einhverjir þeirra sem komast áfram í annarri umferð í leiðtogakjöri flokksins í dag dragi sig í hlé og lýsi yfir stuðningi við einhvern þeirra efstu. Sama hver niðurstaðan verði að lokum megi ekki búast við stefnubreytingu í helstu málum flokksins.
Kevin Spacey, hinn víðfrægi bandaríski leikari, lýsti yfir sakleysi sínu í dómssal í Lundúnum í morgun en hann hefur verið ásakaður um að brjóta kynferðislega gegn þremur mönnum fyrir áratug og rúmlega það. Spacey, sem er 62 ára gamall, sagðist saklaus af öllum fimm ákæruliðunum gegn sér.
Hulið verk eftir listamanninn Vincent Van Gogh fannst við röntgenskoðun á öðrum verkum á safni í Skotlandi.
550 konur hafa höfðað mál gegn Uber vegna kynferðisbrota ökumanna á vegum fyrirtækisins. Glæpirnir sem ökumennirnir eru sagðir hafa framdir eru meðal annars mannrán, nauðganir, kynferðisofbeldi og áreitni.
Önnur umferð í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins í Bretlandi fer fram í dag og ættu úrslit að liggja fyrir um klukkan tvö í dag. Sex frambjóðendur berjast nú um leiðtogaembættið og um leið forsætisráðherrastólinn eftir fyrstu umferð í gær.
Stjórnvöld í Tyrklandi segja samkomulag hafa náðst við Úkraínu, Rússland og Sameinuðu þjóðirnar um útflutning kornvöru frá Úkraínu. Að sögn varnarmálaráðherrans Hulusi Akar verður samkomulagið undirritað í næstu viku.
Karlmaður á þrítugsaldri var í gær ákærður fyrir nauðgun á tíu ára stúlku í Ohio í Bandaríkjunum. Stúlkan varð þunguð eftir manninn og neyddist til að fara í þungunarrof í öðru ríki eftir að henni var meinaður aðgangur að því í Ohio.
Þrír karlmenn hafa verið ákærðir fyrir að hafa selt handskrifaða texta Don Henley, söngvara Eagles, af lögum plötunnar Hotel California. Textunum var stolið á áttunda áratug síðustu aldar.
Saksóknari í Rússlandi lagði í dag fram ákæru á hendur Ilya Yashin borgarfulltrúa í Moskvu skömmu áður en láta átti hann lausan úr 15 daga varðhaldi fyrir að fara ekki að fyrirmælum lögreglu.
Mikil reiði er meðal almennings á Sri Lanka eftir að landflótta forseti landsins skipaði forsætisráðherra í embættið í sinn stað. Herinn hefur gefið leiðtogum stjórnmálaflokka frest til að setja fram áætlun um framtíð Sri Lanka.
Róstursamt var á breska þinginu í dag og hart sótt að fráfarandi forsætisráðherra. Þingforseti lét henda tveimur þingmönnum skorska aðskilnaðarflokksins Alba út úr þingsalnum. Sex eru eftir í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins eftir fyrstu umferð í dag.
Þyrla á vegum slökkviliðsins á eyjunni Samos í Grikkland hrapaði niður í Eyjahaf er unnið var að því að slökkva skógarelda á eyjunni. Fjórir voru í þyrlunni er hún hrapaði.
Rishi Sunak, fyrrverandi fjármálaráðherra Bretlands, sigraði í fyrstu umferð leiðtogakosninga breska Íhaldsflokksins í dag. Alls buðu átta manns sig fram og féllu tveir úr keppni.
Ranil Wickremesinghe, forsætisráðherra Srí Lanka, hefur skipað her landsins að gera það sem nauðsynlegt er til að koma á röð og reglu. Hann er nú starfandi forseti eyríkisins eftir að forsetinn flúði til Malíveyja.
Súdönsk kona hefur verið dæmd til að vera grýtt dauða fyrir hjúskaparbrot en dómurinn er sá fyrsti af þessu tagi í Súdan í níu ár. Mannréttindastofnanir segja dóminn brjóta innlend og alþjóðleg lög og krefjast frelsunar konunnar.
Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa bjargað 4.000 hundum í „hvolpaverksmiðju“ í Virginíu í kjölfar fjölda brota á lögum og reglum um dýravelferð. Þau hafa nú um tvo mánuði til að finna heimili fyrir dýrin.
Frönsk yfirvöld hafa staðfest skaðsemi nítrata í unnum kjötvörum og tengsl þeirra við ristilkrabbamein. Matvælaöryggisyfirvöld í Frakklandi (ANSES) hafa hvatt til þess að neysla nítrata verði takmörkuð en nítrötin lengja líftíma ýmissa matvæla.
Utanríkisráðherra Úkraínu segir engan grundvöll til friðarviðræðna við Rússa fyrr en þeir láti af hernaði sínum í landinu. Þá verði að tryggja öruggar siglingar fyrir útflutning á korni um Svartahaf en í dag spili Rússar út hungurspilinu til að þrýsta á Vesturlönd að aflétta refsiaðgerðum þeirra.
Dauðsföllum af völdum sýklalyfjaónæmra baktería fjölgaði um 15 prósent í Bandaríkjunum árið 2020, á sama tíma og sýklalyfjum var ávísað til fjölda fólks vegna kórónuveirunnar og sýkinga hjá sjúklingum sem dvöldu langdvölum á heilbrigðisstofnunum.
Myndbönd úr öryggismyndavélum skóla í Uvalde í Texas, þar sem ungur maður skaut nítján börn og tvo kennara til bana í maí, sýna lögregluþjóna hörfa frá árásarmanninum og bíða á göngum skólans í meira en klukkustund.
Ekki hefur tekist að sanna að um íkveikju hafi verið að ræða þegar Íslendingur lést í bruna á Amager í Kaupmannahöfn í nóvember í fyrra.
Sérfræðingar hafa nú augun á nýju afbrigði af afbrigði kórónuveirunnar, BA.2.75, sem hefur fengið viðurnefnið „Centaurus“. Það er afbirgði Ómíkron-afbrigðisins BA.2 og breiðist nú hratt út á Indlandi. Þá hefur það einnig greinst á Bretlandseyjum.
Ranil Wickremesinghe, forsætisráðherra Sri Lanka, hefur verið útnefndur starfandi forseti landsins eftir að forsetinn Gotabaya Rajapaksa flúði í herflugvél til Maldíveyja. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í landinu en mótmælendur freista þess nú að komast inn á skrifstofu forsætisráðherrans.
Leiðtogakjör breska íhaldsflokksins hefst um hádegisbil í dag en átta eru í framboði sem vilja taka við stjórnartaumunum í flokknum af Boris Johnson.