Erlent

Jeremy Hunt skipaður nýr fjármálaráðherra
Breski þingmaðurinn Jeremy Hunt, fyrrverandi heilbrigðisráðherra og utanríkisráðherra, hefur verið skipaður nýr fjármálaráðherra í ríkisstjórn forsætisráðherrans Liz Truss.

Truss rekur fjármálaráðherrann úr embætti
Liz Truss, forsætisráðherra Bretlands, hefur rekið fjármálaráðherra sinn, Kwasi Kwarteng, úr embætti.

Hafa rænt úkraínskum börnum í massavís
Yfirvöld í Rússlandi hafa rænt fjölmörgum úkraínskum börnum frá yfirráðasvæðum þeirra í Úkraínu og ættleitt þau til fólks í Rússlandi. Meðal annars hefur verið logið að börnunum að úkraínskir foreldrar þeirra vilji þau ekki.

Einn hefur látist í gríðarlegum flóðum í Ástralíu
Íbúar í þremur áströlskum fylkjum hafa þurft að flýja heimili sín vegna úrhellisrigninga og flóða. Í hluta landsins hefur rigning undanfarinn sólarhring verið fjórum sinnum meiri en að meðaltali í októbermánuði.

Þriggja flokka stjórn sem Svíþjóðardemókratar verja vantrausti
Borgaralegu flokkarnir í sænskum stjórnmálum hafa náð saman um myndun nýrrar ríkisstjórnar undir forystu Ulf Kristersson, formanns Moderaterna. Ríkisstjórnin mun samanstanda af ráðherrum úr röðum Moderaterna, Kristilegra demókrata og Frjálslyndra. Svíþjóðardemókratar munu ekki eiga sæti í ríkisstjórninni en verja stjórnina vantrausti.

Ókyrrð í Kína eftir eins manns mótmæli
Kínversk stjórnvöld hafa undanfarna daga unnið dag og nótt að því að ritskoða umræður á samfélagsmiðlum um mótmæli sem fóru fram í Peking í gær. Mótmælendur hafa krafist þess að Xi Jinping, leiðtoga landsins, verði komið frá völdum en aðeins nokkrir dagar eru í að þjóðþing kommúnistaflokksins fer fram.

Yrði ekki svarað með kjarnorkuvopnum en sveitir Rússa þurrkaðar út
Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur verið harðlega gagrýndur fyrir að lýsa því yfir að Frakkar myndu ekki svara kjarnorkuárás á Úkraínu með kjarnorkuvopnum.

Flóttamenn frá Kherson komnir til Rússlands
Flóttamenn frá Kherson héraðinu í suðurhluta Úkraínu eru farnir að koma til Rússlands eftir að leppstjórn Rússa í héraðinu hvatti íbúa til að flýja öryggis síns vegna. Sérfræðingar segja þetta benda til þess að heljartak Rússa á héraðinu sé farið að linast.

Cuba Gooding Jr. sleppur við fangelsi
Leikarinn Cuba Gooding Jr. slapp við fangelsisrefsingu þegar dómur yfir honum var kveðinn upp í dag í New York ríki. Hann játaði að hafa kynferðislega áreitt þrjár konur árin 2018 og 2019. Með því skilyrði að halda áfengismeðferð sinni áfram hlaut hann sex mánaða skilorðsbundinn dóm.

Gasið flæðir frá Frakklandi til Þýskalands í fyrsta sinn
Gas er nú byrjað að flæða frá Frakklandi til Þýskalands í fyrsta sinn. Þetta er hluti af aukinni samvinnu ríkjanna í orkumálum vegna orkukreppu í Evrópu.

Stefna Trump til að mæta fyrir þingnefndina
Þingnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings sem rannsakar árásina á þinghúsið þann 6. janúar í fyrra samþykkti einróma á opnum fundi nefndarinnar að stefna Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, til að mæta fyrir þingnefndina.

Ekki á þeim buxunum að greiða milljarðinn sem hann skuldar
Bandaríski samsæriskenningasmiðurinn Alex Jones virtist gefa það til kynna að enginn möguleiki væri á því að hann myndi greiðar gríðarlega háar skaðabætur sem hann var dæmdur til að greiða fjölskyldum fórnarlamba skotárásarinnar í Sandy Hook.

Bein útsending: Segja Trump enn ógna lýðræðinu í Bandaríkjunum
Þingnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings sem rannsakar árásina á þinghúsið þann 6. janúar í fyrra heldur opin fund í kvöld þar sem til stendur að skoða hugarástand Donalds Trumps, fyrrverandi forseta, þegar árásin átti sér stað. Einnig ætla meðlimir nefndarinnar að ítreka það að lýðræði Bandaríkjanna stafi enn ógn af Trump og fylgjendum hans.

Ekki dæmdur til dauða fyrir árásina í Parkland
Kviðdómendur hafa komist að þeirri niðurstöðu að Nikolas Cruz, sem myrti sautján manns í skóla í Parkland í Flórída árið 2018, eigi ekki að vera tekinn af lífi. Þetta var gert opinbert rétt í þessu en saksóknarar höfðu farið fram á dauðadóm eftir að Cruz, sem er fæddur árið 1998, játaði ódæðið í Marjory Stoneman Douglas-skólanum.

Hvetja Breta til að spara gas og rafmagn í vetur
Orkustofnun Bretlands hvatti landsmenn til þess að spara gas og rafmagn eftir fremsta megni til þess að draga úr hættu á því að grípa þurfi til skammtana og hjálpa til við að lækka verð. Forstjóri stofnunarinnar telur þó ólíklegt að skortur verði á gasi og rafmagni.

Vígamenn tengdir al-Qaeda tóku Afrin í Sýrlandi
Vígamenn öfgahópsins Hayat Tahrir al-Sham, eða HTS, hafa tekið yfir stjórn borgarinnar Afrin í samnefndu héraði í Sýrlandi. HTS er afsprengi hryðjuverkasamtakanna al-Qaeda í Sýrlandi en vígamennirnir náðu tökum á borginni eftir harða bardaga við meðlimi öfgahópsins Al-Jabha Al-Shamiyyah.

Tveir skotnir til bana við skemmtistað hinsegin fólks í Bratislava
Tveir eru látnir eftir skotárás fyrir utan skemmtistað hinsegin fólks í slóvakísku höfuðborginni Bratislava í gærkvöldi.

„Innlimaði“ bílastæði rússneska ræðismannsins
Finnskur karlmaður tók sig til og „innlimaði“ bílastæði rússneska ræðismannsins í Turku fyrir hönd Úkraínu í gær. Hann segir innlimunina í samræmi við úrslit eins manns þjóðaratkvæðagreiðslu sem hann hélt sjálfur í anda þeirra sem fóru fram á vegum leppstjórna Rússa í Úkraínu nýlega.

Segir brýnt að grípa til aðgerða vegna eftirkasta Covid-19
Tugmilljónir manna þjást enn af eftirköstum Covid-19, sem eru að hafa alvarlegar afleiðingar á líf þeirra og afkomu. Þá hafa þau komið hart niður á heilbrigðiskerfum og efnahag ríkja heims.

Fundu óvænt málm í andrúmslofti glóandi gasrisa
Uppgötvun á málmtegundinni barín í lofthjúpi tveggja fjarlægra fjarreikistjarna kom vísindamönnum í opna skjöldu. Svo þungt frumefni hefur ekki áður fundist í lofthjúpi reikistjörnu og er fundurinn sagður afhjúpa hversu lítið menn vita enn um reikistjörnur í öðrum sólkerfum.

Heiðursþingmaður sem lifði af dvöl í Auschwitz situr yfir fyrsta þingfundi ítalska þingsins
Liliana Segre, 92 ára kona sem lifði af helförina mun sitja yfir fyrsta þingfundi ítalska þingsins eftir nýliðnar kosningar. Segre er heiðursþingmaður á ítalska þinginu og eina manneskja fjölskyldu sinnar sem lifði dvöl í Auschwitz af. Stjórnmálafólk Ítalíu sem hlaut kjör fyrir skömmu hefur verið gagnrýnt fyrir öfgafullar skoðanir og að sýna verkum Mussolini stuðning.

Sprengjum rignir enn yfir borgir Úkraínu
Ráðamenn í Kænugarði segja að það muni taka nokkrar vikur að gera að fullu við orkuver og dreifikerfi Úkraínu eftir umfangsmiklar árásir á innviði landsins í vikunni. Um þriðjungur rafmagnsinnviða landsins er sagður hafa orðið fyrir skemmdum og rafmagnsleysi er víða.

Trump sagður hafa látið færa skjölin eftir að honum var stefnt
Starfsmaður Donalds Trumps er sagður hafa tjáð alríkislögreglunni að fyrrverandi forsetinn hafi gefið skipanir um að færa kassa með skjölum sem hann hafði með sér úr Hvíta húsinu eftir að honum hafði verið stefnt til að skila þeim. Alríkislögreglan gerði síðar húsleit hjá Trump til að endurheimta skjölin.

Villtum dýrum fækkað um 70 prósent á fimmtíu árum
Villtum dýrum á jörðinni hefur fækkað um tæp 70 prósent á rétt tæpum fimmtíu árum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu en þar er ofurneyslu mannfólks, minnkun skóglendis vegna ágangs manna og mengun þeirra kennt um þessa gríðarlegu fækkun dýra.

143 af 193 aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna fordæma „innlimun“ Rússa
143 af 193 ríkjum sem eiga aðild að Sameinuðu þjóðunum greiddu atkvæði með því í gær að fordæma ólögmæta innlimun Rússa á fjórum héruðum í Úkraínu.

Sögð hafa gert tilraun til þess að myrða sama nýburann fjórum sinnum
Þriðji dagur réttarhalda yfir breska hjúkrunarfræðingnum Lucy Letby fóru fram í dag. Letby er sökuð um að hafa myrt sjö nýbura og gert tilraun til þess að myrða tíu til viðbótar á nýburadeild spítala sem hún vann á. Verknaðurinn er sagður hafa átt sér stað á milli júní 2015 og 2016.

Úkraína fær háþróuð loftvarnarkerfi frá bandamönnum
Bandamenn Úkraínu í NATO munu senda úkraínska hernum aukinn og háþróaðan herbúnað til að efla loftvarnarbúnað hersins. Ástæðan er aukning í eldflaugaárásum Rússa á skotmörk ú Úkraínu.

Kunna að hafa grandað sjálfum sér með loftslagsbreytingum á Mars
Hugsanlegt er að örverur kunni að hafa valdið eigin útrýmingu á Mars með því að breyta loftslagi reikistjörnunnar. Hópur vísindamanna hefur greint þrjá staði þar sem þeir telja mestar líkur á að finna merki um örverurnar, ef þær þrifust þá einhvern tímann þar.

Þarf að greiða fjölskyldum fórnarlamba tæpan milljarð dollara vegna samsæriskenninga
Bandaríski fjölmiðlamaðurinn og samsæriskenningasmiðurinn Alex Jones hefur verið dæmdur til að greiða fjölskyldum barna sem myrt voru í skotárásinni í Sandy Hook í Bandaríkjunum tæpan milljarð dollara í skaðabætur.

Lögðu hald á margar þrívíddarprentaðar byssur og íhluti
Lögregluþjónar í Lundúnum lögðu nýverið hald á magar þrívíddarprentaðar byssur og mikið magn skotfæra, sem talið er að sé stærsti slíki fundur í sögu Bretlands. Vopnin og íhlutir til að framleiða fleiri vopn fundust í íbúð í borginni en lögreglan telur að umfangsmikil framleiðsla slíkra skotvopna hafi átt sér stað þar.