Erlent

Hægri hönd téténska einræðisherrans sagður hafa særst
Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, sagði í dag að fregnir af því að rússneskur þingmaður og náinn bandamaður Ramzans Kadyrov, einræðisherra Téténíu, hefði særst í Úkraínu væru áhyggjuefni. Adam Delimkhanov, sem lýst hefur verið sem hægri hönd Kadyrov, var sagður hafa særst í árás Úkraínumanna.

Kynntu fyrstu þjóðaröryggistefnu Þýskalands
Olaf Scholz, kanslari Þýskalandi, opinberaði í dag nýja þjóðaröryggisstefnu ríkisstjórnar sinnar. Þetta er í fyrsta sinn sem Þjóðverjar setja sér stefnu sem þessa en er hann kynnti hana í morgun talaði Scholz um gerbreytt öryggisástand í Evrópu vegna innrásar Rússa í Úkraínu og sagði Rússland helstu ógnina sem Þýskaland stæði frammi fyrir.

Úkraínumenn og Svíar sitja enn á hliðarlínu Atlantshafsbandalagsins
Aðildarríki Atlantshafsbandalagsins munu ekki leggja fram tímasetta áætlun um inngöngu Úkraínu á næstu ráðstefnu Nató í Vilníus í júlí heldur lofa styttra umsóknarferli þegar Úkraína fær boð um inngöngu, einhvern tímann þegar átökunum í landinu er lokið.

Vopnaður maður skotinn á Kóngsins nýtorgi
Lögregluþjónar skutu og særðu mann á Kóngsins nýtorgi í Kaupmannahöfn í morgun. Maðurinn var vopnaður hnífi og er sagður hafa verið ógnandi.

Eldarnir í Kanada stærri en áður og kvikna mun fyrr
Gífurlega umfangsmiklir og margir gróður- og skógareldar hafa logað í Kanada í vor og í sumar. Eldarnir eru stærri og fyrr á ferðinni en áður. Þá hafa þeir logað víðsvegar um landið og tugir þúsunda hafa þurft að flýja heimili sín.

Hefur meiri áhyggjur af mismunun en útrýmingu
Margarethe Vestager, sem fer fyrir málefnum er varða stafræna framþróun og samkeppni hjá Evrópusambandinu, segir mismunun meira áhyggjuefni þegar kemur að gervigreind en möguleg endalok mannkynsins.

Fórnarlömbin háskólanemar og maður á sextugsaldri
Einstaklingarnir þrír sem stungnir voru til bana í Nottingham í gær voru maður á sextugsaldri og tveir 19 ára nemar við Nottingham University. Lögregla hefur 31 árs gamlan mann í haldi grunaðan um verknaðinn og telur ekki að aðrir hafi átt þátt að máli.

Vígreift afmælisbarn sakar Biden um spillingu og að grafa undan lýðræðinu
„Það var verið að ákæra mig. Dásamlegur afmælisdagur,“ sagði Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, þegar hann ávarpaði stuðningsmenn sína við gólfklúbb sinn í New Jersey í gær, eftir að hann var ákærður fyrir óvarlega meðferð leyniskjala.

Fox hótar Carlson lögsókn
Lögmenn fréttamiðilsins Fox News krefjast þess að sjónvarpsmaðurinn Tucker Carlson hætti birtingu á nýrri þáttaröð hans, sem nýverið kom út á samfélagsmiðlinum Twitter. Carlson lauk nýlega störfum hjá Fox.

Malasíska ríkið uggandi vegna flugslysagríns
Stjórnvöld í Malasíu hafa óskað eftir liðsinni alþjóðalögreglunnar Interpol við að lýsa eftir bandarískum uppistandara sem gantaðist að flugslysum Malaysian Airlines í uppistandi sínu sem hún birti á veraldarvefnum í síðustu viku.

Hundrað manns talin af eftir að bát hvolfdi í Nígeríu
Hundrað manns hið minnsta eru talin hafa látist eftir að bát hvolfdi á Nígerfljóti í Kwara-fylki í Nígeríu snemma í gærmorgun. Fimmtán hafa þegar verið staðfestir látnir.

Trump lýsir yfir sakleysi
Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er mættur í dómshús í Miami í Flórída. Hann hefur lýst yfir sakleysi í öllum ákæruliðum.

Segir Rússa hafa misst 54 skriðdreka á nokkrum dögum
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, gaf í skyn að hann myndi skipa rússneska hernum að ráðast aftur inn í norðurhluta Úkraínu. Hann hélt því fram að Úkraínumenn hefðu orðið fyrir gífurlegu mannfalli í gagnsókn þeirra, sem er nýhafin í suður- og austurhluta Úkraínu.

Frestaði verkefnum vegna tannpínu
Joe Biden Bandaríkjaforseti frestaði fundi, þar sem rætt var um næsta leiðtoga NATO, sem og öðrum verkefnum, vegna tveggja rótfyllingaraðgerða á jafnmörgum dögum í vikunni.

Bítlarnir gefa út síðasta lag sitt með hjálp gervigreindar
Paul McCartney hefur greint frá því að gervigreind hafi hjálpað eftirlifandi meðlimum Bítlanna við gerð síðasta lags hljómsveitarinnar sem kemur út á þessu ári.

Umdeildur dómari sem Trump tilnefndi stýrir réttarhöldunum
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, mætir fyrir dómara í fyrsta sinn eftir að hann var ákærður í leyniskjalamálinu svokallaða. Þar tekur á móti honum umdeildur dómari sem hann sjálfur tilnefndi og hefur áður tekið ákvarðanir honum í vil.

„Þetta er ekki raunverulegt, þetta er ekki raunverulegt“
Þrettán ára drengur sem var staddur í Field's verslunarmiðstöðinni í Kaupmannahöfn þegar árásarmaður lét til skarar skríða síðasta sumar og skaut þrjá til bana, segir hann hafa verið reiðilegan á svip og litið út eins og hann væri andlega veikur.

Semur um vopnahlé við uppreisnarmenn á þingi
Kevin McCarthy, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, komst í gærkvöldi að samkomulagi við hóp þingmanna Repúblikanaflokksins sem hafa haldið þinginu í gíslingu í viku. Hann fundaði með hópi þingmanna í klukkustund í gær og tilkynnti í kjölfarið að greitt yrði atkvæði um fimm frumvörp og tillögur í þessari viku.

Býflugnaher tók yfir Manhattan
Þúsundir býflugna gerðu sig heimkomnar utan á hóteli á Manhattan með þeim afleiðingum að loka þurfti heilli húsaröð á mótum Broadway og 54. götu.

Þrír drepnir og reynt að keyra fólk niður með sendibíl í Nottingham
Rúmlega þrítugur karlmaður er í haldi lögreglunnar í Nottingham á Englandi grunaður um morð eftir að þrír fundust látnir í miðborginni í nótt. Þrír til viðbótar eru á sjúkrahúsi eftir að reynt var að aka þá niður. Lögregla lýsir atvikinu sem „hryllilegu og sorglegu“.

Deilt um forræði barnanna sem lifðu flugslysið í regnskóginum
Forræðisdeilur eru komnar upp milli ættingja barnanna fjögurra sem lifðu flugslys og 40 daga ein í Amazon-regnskóginum í Kólumbíu. Móðir barnanna lést í kjölfar flugslyssins.

Bella lifnaði við í eigin jarðarför
Syrgjendur í jarðarför aldraðrar konu í Ekvador hrukku í kút á föstudaginn var þegar hin látna lifnaði við.

Gerðu loftárás á heimabæ Selenskís
Þrír létust og tuttugu og fimm særðust í loftárásum Rússa á úkraínska bæinn Kryvyi Rih í nótt.

Leikarinn Treat Williams er látinn
Bandaríski leikarinn Treat Williams, sem var þekktastur fyrir hlutverk sitt í söngvamyndinni Hair, er látinn. Hann var 71 árs.

Lögregluyfirvöld segjast geta höndlað allt að 50 þúsund mótmælendur
Mikill viðbúnaður er í Miami þar sem Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti mun mæta fyrir dóm í dag. Lögregla hefur unnið að því að fullvissa íbúa um að hún sé fær um að takast á við ástandið og allt að 50 þúsund mótmælendur.

Einn látinn eftir að brú féll saman í Fíladelfíu
Einn hefur fundist látinn eftir að brú í Pennsylvaníuríki í Bandaríkjunum féll saman í gær. Slysið varð til þess að hluti I-95 vegarins, sem er einn fjölfarnasti vegur austurstrandar Bandaríkjanna, lokaði.

Skilur eftir sig tómarúm í stjórnmálum og viðskiptum
Andlát Silvios Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, er talið geta valdið óróa í ítölskum stjórnmálum á næstunni. Þá liggur ekki ljóst fyrir hver tekur við viðskiptaveldi Berlusconi sem á meðal annars helstu fjölmiðla landsins.

Aki-Matilda Høegh-Dam sækist eftir formennsku í Siumut
Hin grænlenska Aki-Matilda Høegh-Dam, sem á sæti á danska þinginu fyrir hönd Grænlands, hefur tilkynnt um framboð sitt til formennsku í flokknum Siumut.

450 starfsmönnum Karolinska-sjúkrahússins sagt upp störfum
Um 450 starfsmönnum Karolinska-sjúkrahússins í Svíþjóð hefur verið sagt upp störfum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjúkrahúsinu sem SVT greinir frá.

Kaczynski sagður hafa svipt sig lífi í fangelsinu
Bandaríski hryðjuverkamaðurinn Ted Kaczynski, kallaður „Unabomber“ er sagður hafa svipt sig lífi í fangelsi um helgina. Kaczynski var með krabbamein á lokastigum og var 81 árs gamall. Hann hafði áður reynt að fyrirfara sér í fangelsi.