Erlent
141 142 143 144 145 146 147 148 149 … 334 ›
Sturgeon sleppt úr haldi Nicolu Sturgeon, fyrrverandi fyrsti ráðherra skosku heimastjórnarinnar, hefur verið sleppt úr haldi lögreglu að loknum yfirheyrslum. Hún var handtekin í morgun í tengslum við yfirstandandi rannsókn á fjármögnun og fjármálum skoska þjóðarflokksins. Erlent 11.6.2023 19:51
Á annað þúsund kynferðisglæpamanna hefur fengið dóma sína mildaða 1.120 kynferðisglæpamenn á Spáni hafa fengið refsingu sína mildaða og 114 kynferðisglæpamönnum hefur sleppt áður en þeir luku afplánun vegna mistaka í nýrri lagasetningu sem var ætlað að auka öryggi og réttarstöðu fórnarlamba kynferðisofbeldis. Erlent 11.6.2023 15:45
Nicola Sturgeon handtekin í tengslum við fjármálamisferli Nicola Sturgeon, fyrrverandi forsætisráðherra Skotlands var handtekin nú í morgun í tengslum við yfirstandandi rannsókn sem stendur yfir á fjármögnun og fjármálum Skoska þjóðarflokksins. Grunur leikur á að flokkurinn hafi misfarið með kosningaframlög uppá 600 þúsund pund. Erlent 11.6.2023 14:28
„Eins og að lenda á stálvegg“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði í gær að gagnsókn Úkraínumanna væri hafin. Hann gaf lítið fyrir orð Valdimír Pútín, forseta Rússlands, um að gagnsóknin hefði engum árangri skilað og bað blaðamenn þess í stað um að koma því til Pútíns að úkraínskir herforingjar væru í góðu skapi þessa dagana. Erlent 11.6.2023 08:53
Ákæran sé ein versta valdníðslan í sögu landsins Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, segir ákæru á hendur sér vegna þess að hann hélt opinberum gögnum með ólöglegum hætti og hindraði framgang réttvísinnar, munu fara í sögubækurnar sem ein versta valdníðslan í sögu Bandaríkjanna. Erlent 10.6.2023 21:29
Ted Kaczynski er látinn Bandaríski hryðjuverkamaðurinn Ted Kaczynski, sem þekktur var undir hryðjuverkamannsnafninu Unabomber, er látinn. Hann myrti þrjá og slasaði 23 með bréfasprengjum á árunum 1978 til 1995. Erlent 10.6.2023 18:01
Kosning ógilt af því bæjarstjórinn fór í bíltúr með kjörkassann Bæjarstjóri á Spáni fór í bíltúr með kjörkassann þegar sveitarstjórnarkosningarnar fóru fram í lok síðasta mánaðar. Hann segist bara hafa verið að aðstoða farlama konu að nýta sér kosningarétt sinn. Endurtaka þarf kosningarnar í bænum. Erlent 10.6.2023 15:30
Fjögur börn fundust eftir fjörutíu daga í frumskóginum Fjögur börn sem hafa vafrað allslaus í Amazon-regnkóginum í Kólumbíu undanfarna fjörutíu daga eftir flugslys fundust heil á húfi í gær. Erlent 10.6.2023 08:43
Lítil pilla gefur Assad mikil völd Ein helsta ástæða þess að nágrannar Sýrlands eru tilbúnir til að hleypa Bashar al-Assad, forseta landsins, inn úr kuldanum snýr að flæði fíkniefna frá Sýrlandi. Ríkið framleiðir og leyfir framleiðslu gífurlegs magns af Captagon-amfetamínpillum en hundruð milljóna slíkra pilla hefur verið smyglað til Jórdaníu, Írak, Sádi-Arabíu og annara ríkja Mið-Austurlanda. Erlent 9.6.2023 22:31
Boris Johnson segir af sér Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hefur sagt af sér þingmennsku. Erlent 9.6.2023 19:22
Viðurkenndi á upptöku að gögnin væru leynileg Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, viðurkenndi á upptöku að hann hefði ekki svipt leyndinni af skjölum sem hann tók með sér úr Hvíta húsinu. Þá viðurkenndi hann einnig að hann gæti ekki svipt hulunni af þeim lengur, þar sem hann væri ekki enn forseti. Erlent 9.6.2023 16:18
Frakkar hylla „bakpokahetju“ fyrir að bjarga börnum Maður sem var í pílagrímsferð í Annecy í Frakklandi hefur verið hylltur sem hetja eftir að hann barðist gegn manni sem stakk fjögur börn og tvo eldri menn í almenningsgarði í borginni í gær. Maðurinn heitir Henri, er 24 ára gamall og hefur verið lýst sem „bakpokahetju“. Erlent 9.6.2023 14:51
Hvetur önnur ríki til að fara að fordæmi Íslendinga Dmytro Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu, sendi í dag þakkir til Þórdísar Kolbrúnu R. Gylfadóttur, utanríkisráðherra Íslands. Það gerði hann vegna ákvörðunar Íslendinga að leggja niður starfsemi í sendiráðinu í Rússlandi og krefjast þess að Rússar takmarki umsvif sín hér á landi. Erlent 9.6.2023 13:50
Rússneskum manni banað af hákarli í Rauðahafi Rússneskur maður lést í gær eftir að tígrishákarl réðst á hann undan ströndum Hurghada í Egyptalandi. Hákarlinn réðst á manninn skammt frá landi og stóðu ferðamenn á bakkanum og horfðu á árásina. Erlent 9.6.2023 11:28
„Það er enn engin hjálp“ Fólk sem situr fast í húsum á austurbakka Dnipróár í Úkraínu segir litla hjálp berast frá Rússum. Fólk sem hefur reynt að koma öðrum til bjargar segist hafa lent í því að rússneskir hermenn taki báta þeirra. Aðrir segja að hermennirnir hjálpi ekki fólki nema þau hafi rússnesk vegabréf. Erlent 9.6.2023 10:34
Greta Thunberg útskrifast og hættir skólaverkfalli sínu Sænski loftslagsaðgerðasinninn Greta Thunberg stendur fyrir sínu síðasta skólaverkfalli í Stokkhólmi í Svíþjóð í dag. Hún hefur mótmælt á hverjum föstudegi frá árinu 2018, alls 251 vikur í röð. Erlent 9.6.2023 09:39
Keppinautar Trump koma honum enn til varnar eftir ákæru Nokkrir mótframbjóðendur Donalds Trump sem keppa við hann um að verða forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins tóku undir gagnrýni hans á dómsmálayfirvöld eftir að hann var ákærður vegna leyniskjala sem hann hélt eftir. Ákæran er söguleg en kemur ekki í veg fyrir að Trump geti boðið sig fram til forseta. Erlent 9.6.2023 09:07
Ástand barnanna í Annecy sagt vera stöðugt Börnin fjögur sem voru stungin í almenningsgarði í frönsku borginni Annecy í gær eru í stöðugu ástandi að sögn lækna. Börnin, sem eru á aldrinum eins árs til þriggja ára, eru þó enn á sjúkrahúsi í umsjá lækna. Erlent 9.6.2023 07:50
Assange nú sagður „hættulega nálægt því að verða framseldur“ Bróðir Julian Assange segir hann „hættulega nálægt því að verða framseldur“ til Bandaríkjanna eftir að dómari við yfirrétt á Bretlandseyjum hafnaði alfarið umleitan lögmanna hans. Erlent 9.6.2023 07:01
Trump ákærður vegna leyniskjala Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, greinir frá því á samfélagsmiðlum að hann hafi verið ákærður vegna leyniskjala sem hann hafði með sér úr Hvíta húsinu þegar hann lét af embætti. Erlent 9.6.2023 00:03
Útgefandi Lindemann lætur hann róa og fleiri ásakanir birtast Fleiri Metoo sögur um Till Lindemann, söngvara þungarokkssveitarinnar Rammstein hafa birst eftir að kona sakaði hann um byrlun í Litháen í síðasta mánuði. Bókaútgefandi hefur sagt upp samningi við Lindemann. Erlent 8.6.2023 22:17
Kínverjar sagðir borga fyrir njósnastöð á Kúbu Yfirvöld í Kína og á Kúbu hafa komist að samkomulagi um að Kínverjar fái að reisa njósnastöð í Karíbahafinu. Þessa stöð eru Kínverjar sagðir ætla að nota til að hlera fjarskipti, gervihnattasendingar og ýmsar annars konar sendingar frá suðausturhluta Bandaríkjanna, þar sem finna má fjölmargar herstöðvar. Erlent 8.6.2023 17:31
Fönguðu eyðilegginguna í Kherson úr lofti Drónamyndir frá Kherson-héraði í Úkraínu, bæði vestan og austan megin við Dnipróá, sýna gífurlega eyðileggingu vegna flóða. Vatn hefur streymt yfir fjölmargar byggðir og valdið gífurlegri eyðileggingu. Erlent 8.6.2023 14:45
Repúblikanar halda þinginu í gíslingu Fulltrúadeild Bandaríkjaþings er í lamasessi vegna hóps þingmanna Repúblikanaflokksins sem stendur í uppreisn gegn Kevin McCarthy, forseta þingdeildarinnar. Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram í vikunni og eru uppi spurningar um það hvort McCarthy geti leitt meirihlutann áfram. Erlent 8.6.2023 13:56
Hlébarðarnir sjást í fyrsta sinn á víglínunum Úkraínumenn eru sagðir hafa gert umfangsmiklar árásir gegn Rússum í Sapórisjía-héraði en þýskir skriðdrekar af gerðinni Leopard hafa sést á víglínunum í fyrsta sinn. Erlent 8.6.2023 10:43
Líkurnar á að Trump verði ákærður vegna leyniskjalanna aukast Alríkissaksóknarar hafa tjáð lögmönnum Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, að hann sé viðfangsefni rannsóknar þeirra á leyniskjölum sem Trump hafði með sér úr Hvíta húsinu þegar hann lét af embætti. Þetta er sagt benda til þess að Trump verði líklega ákærður. Erlent 8.6.2023 09:16
Átta leikskólabörn stungin með hníf í Annecy Átta börn særðust í stunguárás í frönsku borginni Annecy í austurhluta landsins í morgun. Þrjú barnanna eru sögð vera í lífshættu. Erlent 8.6.2023 09:00
Pence segir óbeinum orðum að Trump sé vanhæfur „Sjötti janúar var sorgardagur í sögu þjóðar okkar. En þökk sé hugrekki löggæsluyfirvalda náðist að kveða ofbeldið niður og hefja þingfund á ný. Sama dag ógnuðu kæruleysisleg orð Trump forseta fjölskyldu minni og öllum í þinghúsinu.“ Erlent 8.6.2023 08:12
600 ferkílómetrar undir vatni og jarðsprengjur á víð og dreif Um 600 ferkílómetrar lands eru nú undir vatni eftir að Kakhova-stíflan í Dnipro-ánni í Úkraínu brast í fyrradag. Þetta segir héraðsstjórinn í Kherson en 68 prósent tjónsins er þó á austurbakkanum, landi sem Rússar hafa stjórn á. Erlent 8.6.2023 07:17
Milljónum Bandaríkjamanna ráðlagt að taka upp grímuna á ný Milljónum manna í Norður-Ameríku hefur nú verið ráðlagt að notast við grímur, sömu gerðar og voru notaðar í kórónuveirufaraldrinum, vegna lélegra loftgæða. Erlent 8.6.2023 07:05