Formúla 1
147 148 149 150 151 ›
Aftur keppt á Spa á næsta ári Forráðamenn Belgíukappakstursins hafa náð samkomulagi við Bernie Ecclestone um að endurvekja keppnishald á Spa-brautinni þar í landi, en ekki var keppt á brautinni í ár eftir að mótshaldarar fóru á hausinn. Brautin hefur verið endurbætt fyrir um 25 milljónir dollara og verður keppt á þessari sögufrægu braut á ný í september á næsta ári. Formúla 1 13.10.2006 19:00
Schumacher heiðraður í Brasilíu Þýski ökuþórinn Michael Schumacher tekur um næstu helgi þátt í sínum síðasta kappakstri á ferlinum þegar lokamót ársins fer fram í Brasilíu og þar verður hann heiðraður sérstaklega af knattspyrnugoðsögninni Pele. Formúla 1 13.10.2006 18:15
Alonso á sigurinn vísan Allar líkur eru á því að Spánverjinn Fernando Alonso muni verja heimsmeistaratitil ökumanna eftir að hafa borið sigur úr býtum í Japans-kappakstrinum í fyrrinótt. Michael Schumacher féll úr keppni eftir vélin í Ferrari-bíl hans bræddi úr sér, en það er í fyrsta skipti í sex ár sem það gerist. Alonso er því með 10 stiga forystu á Scumacher í keppni ökumanna þegar aðeins eitt mót er eftir, í Brasilíu eftir tvær vikur. Formúla 1 9.10.2006 06:30
Schumacher í mun betri stöðu Michael Schumacher verður annar á ráslínu, á eftir félaga sínum Felipe Massa hjá Ferrari, þegar ræst verður til leiks í kappakstrinum í Japan í dag. Heimsmeistarinn Fernando Alonso náði aðeins fimmta sæti í tímatökunni og því ljóst að Schumacher er skrefinu á undan í baráttunni um titilinn í ár. Formúla 1 8.10.2006 12:00
Schumacher er yfir í sálfræðistríðinu Fyrrum heimsmeistarinn í Formúlu 1, Damon Hill, segir hinn sigursæla Michael Schumacher ekki hafa verið íþróttinni til mikils sóma á ferlinum, en þykist nokkuð viss um að hann muni enda ferilinn á meistaratitli. Formúla 1 6.10.2006 15:08
Við höfum engar afsakanir Pat Symonds, liðsmaður Renault, segir liðið ekki hafa neinar afsakanir fyrir því að hafa tapað Kínakappakstrinum í dag og segir að liðið hefði átt að vinna keppnina. Formúla 1 1.10.2006 14:19
Schumacher á toppinn Þýski ökuþórinn Michael Schumacher er kominn í efsta sætið í stigakeppni ökuþóra í Formúlu 1 í fyrsta skipti í tvö ár eftir að hann vann frábæran sigur í Kínakappakstrinum í dag. Heimsmeistarinn Fernando Alonso hafnaði í öðru sæti í dag og eru þeir því jafnir að stigum þegar tvö mót eru eftir, en fleiri sigrar Þjóðverjans tryggja honum efsta sætið. Formúla 1 1.10.2006 13:08
Alonso á ráspól í Kína Heimsmeistarinn Fernando Alonso verður á ráspól í Kínakappakstrinum á morgun eftir að hafa náð besta tímanum í tímatökum í morgun. Michael Schumacher varð að láta sér lynda sjötta sætið, en hann átti erfitt uppdráttar í rigningunni í Shanghai í dag. Giancarlo Fisichella náði öðrum besta tímanum og Honda mennirnir Jenson Button og Rubens Barrichello náðu þriðja og fjórða besta tímanum. Formúla 1 30.9.2006 13:35
Allt í járnum í Kína Það er ekki laust við að spennan sé að verða óbærileg í Shanghai í Kína þar sem æfingar standa nú yfir fyrir Kínakappaksturinn í Formúlu 1 um helgina. Keppinautarnir um heimsmeistaratitil ökumanna, Fernando Alonso og Michael Schumacher, komu í mark á nánast nákvæmlega sama tíma í dag. Formúla 1 29.9.2006 14:30
Þýsku brautirnar skipta með sér keppnum Nú hefur verið tilkynnt að þýsku kappakstursbrautirnar Nurburgring og Hockenheim muni skipta með sér mótshaldi í Formúlu 1 næstu fjögur árin. Þetta þýðir að keppnin á næsta ári fer fram á Nurburgring og svo aftur árið 2009, en 2008 og 2010 verður Þýskalandskappaksturinn haldinn á Hockenheim. Formúla 1 27.9.2006 17:15
Schumacher er fjórum sinnum vinsælli en Alonso Michael Schumacher, sjöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, er fjórum sinnum vinsælli meðal áhugamanna í greininni en heimsmeistarinn Fernando Alonso. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem Alþjóða Akstursíþróttasambandið lét gera á dögunum. Formúla 1 27.9.2006 15:32
Renault segir pressuna mikla á Schumacher Pat Symonds, yfirmaður tæknimála hjá Renault, segir að Fernando Alonso standist pressu betur en Michael Schumacher og telur meistaralið Renault eiga betri möguleika til að ná góðum árangir um næstu helgi þegar keppt verður í Kína. Formúla 1 26.9.2006 15:29
Mótum fjölgar á næsta ári Í dag var ákveðið að fjölga mótum á keppnistímabilinu í Formúlu 1 úr 17 í 18 og útlit er fyrir að San Marino-kappaksturinn á Imola muni halda áfram eftir allt. Þetta var ákveðið á fundi í París í dag, þar sem Alþjóða akstursíþróttasambandið og fulltrúar bílaframleiðenda og keppnisliðanna komu saman. Formúla 1 18.9.2006 20:15
Hætti hjá Renault vegna óvissu um framtíð liðsins Heimsmeistarinn Fernando Alonso hjá Renault, sem gengur í raðir McLaren á næsta tímabili, hefur gefið það upp að hann hafi ákveðið að yfirgefa liðið vegna óvissu um framtíð liðsins í Formúlu 1. Formúla 1 18.9.2006 17:00
Schumacher launahæstur þrátt fyrir að vera hættur Umboðsmaður þýska ökuþórsins Michael Schumacher fullyrðir í samtali við þýska blaðið Bild, að Schumacher muni hala inn meiri tekjur en helstu keppinautar hans Kimi Raikkönen og Fernando Alonso á næsta ári - þó hann setjist aldrei upp í bíl. Formúla 1 18.9.2006 15:21
Ferrari hafði ekkert með ákvörðun mína að gera Michael Schumacher blæs á sögusagnir sem hafa verið í gangi í dag um að forráðamenn Ferrari hafi þröngvað honum út í að hætta keppni í lok tímabils. Schumacher segir þvert á móti að Ferrari hafi veitt sér góðan stuðning alla tíð. Formúla 1 13.9.2006 17:45
Lætur Schumacher heyra það Heimsmeistarinn Fernando Alonso hjá Renault segir að Michael Schumacher hjá Ferrari sé óíþróttamannslegasti ökuþór í sögu Formúlu eitt og hlakkar til að losna við hann úr keppni á næsta ári eftir að Þjóðverjinn tilkynnti að hann ætlaði að hætta eftir yfirstandandi keppnistímabil. Formúla 1 12.9.2006 15:48
Raikkönen tekur við af Schumacher Það verður Finninn Kimi Raikkönen sem mun taka sæti Michael Schumacher sem ökumaður Ferrari á næsta keppnistímabili í formúlu 1. Þetta tilkynnti stjórn Ferrari eftir Ítalíu-kappaksturinn í dag en áður hafði Schumacher greint frá því að hann hyggðist draga sig í hlé eftir tímabilið. Formúla 1 10.9.2006 20:30
Schumacher ætlar að hætta eftir tímabilið Þýski ökuþórinn Michael Schumacher var rétt í þessum að tilkynna á dramatískum blaðamannafundi eftir Ítalíukappaksturinn að hann hafi ákveðið að þetta verði síðasta tímabilið á hans ferli. Þrjú mót eru eftir á keppnistímabilinu og eftir þau er Schumacher hættur. Formúla 1 10.9.2006 13:36
Schumacher sigraði Aðeins tveimur stigum munar á Fernando Alonso og Michael Schumacher í stigakeppni ökumanna í formúlu 1 eftir að sá þýski sigraði í Ítalíu-kappakstrinum sem var að ljúka rétt í þessu. Alonso féll úr leik þegar 10 hringir voru eftir og fer því stigalaus frá Monza. Formúla 1 10.9.2006 13:15
Alonso fallinn úr keppni Heimsmeistarinn Fernando Alonso var rétt í þessu að falla úr leik í Ítalíu-kappakstrinum. Vélin í bíl Alonso nánast hvellsprakk en þetta er í fyrsta skipti í hjartnær tvö ár sem vél Renault klikkar. Formúla 1 10.9.2006 13:06
Þetta er ekki íþrótt Ökuþórinn Fernando Alonso, sem ekur fyrir Renault í formúlu 1, er æfur eftir að hafa verið refsað fyrir að hindra Felipe Massa í tímatökunum fyrir Ítalíu-kappaksturinn í gær, að því er yfirmenn formúlunnar segja að hafi verið vísvitandi. Alrangt, segir Alonso. Formúla 1 10.9.2006 13:00
Raikkönen á ráspól Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen verður á ráspól í Ítalíu-kappakstrinum í formúlu 1 sem fram fer á morgun. Raikkönen var fyrstur í tímatökum sem var að ljúka rétt í þessu, aðeins 0,002 sekúndum fljótari en Michael Schumacher sem kom næstur. Formúla 1 9.9.2006 14:45
Vettel fljótastur á æfingu í gær Hinn nítján ára gamli Þjóðverji Sebastian Vettel, á BMW, átti besta tíma allra ökumanna á æfingu í gær fyrir fomúlukeppnina á Monza sem fram fer í dag. Formúla 1 9.9.2006 11:00
Raikkönen fer til Ferrari Flavio Briatore segist vera búinn að gefast upp á að reyna að fá finnska ökuþórinn Kimi Raikkönen til Renault-liðsins, því hann sé þegar búinn að gera munnlegt samkomulag um að ganga í raðir Ferrari og segir að þar verði hann eftirmaður Michael Schumacher á næsta tímabili því Þjóðverjinn muni tilkynna að hann sé hættur um helgina. Formúla 1 8.9.2006 18:40
Schumacher fljótastur á æfingum Michael Schumacher hafði í dag gríðarlega yfirburði aðalökuþóra á æfingum fyrir Ítalíukappaksturinn sem fram fer á Monza brautinni á sunnudag, en hann var með 1,7 sekúndum betri tíma en keppinautur sinn Fernando Alonso. Ferrari bílarnir komu mjög vel út úr æfingunum í dag og því er ljóst að þeir verða illsigraðir á heimavelli sínum um helgina ef að líkum lætur. Formúla 1 8.9.2006 14:30
Schumacher verður með fulla einbeitingu Heimsmeistarinn Fernando Alonso hjá Renault segir að Michael Schumacher verði með 100% einbeitingu í Ítalíukappakstrinum á Monza á sunnudaginn, þó tilkynnt verði eftir keppnina hverjir ökumenn Ferrari verði á næsta keppnistímabili - en þá kemur formlega í ljós hvort hinn sigursæli Þjóðverji leggur stýrið á hilluna eða heldur áfram að keppa á næsta tímabili. Formúla 1 7.9.2006 21:30
Kovalainen leysir Alonso af hólmi Keppnislið Renault í Formúlu 1 tilkynnti í dag að finnski ökuþórinn Heikki Kovalainen muni leysa Spánverjann Fernando Alonso af hólmi sem aðalökumaður liðsins á næsta keppnistímabili þegar heimsmeistarinn gengur í raðir McLaren. Giancarlo Fisichella verður áfram ökumaður hjá liðinu, en hann framlengdi samning sinn um eitt ár á dögunum. Formúla 1 6.9.2006 12:50
Raikkönnen klár í slaginn Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen hjá McLaren hefur nú gefið það út að hann sé við hestaheilsu og búinn að jafna sig af bakmeiðslum sem höfðu verið að angra hann síðan hann lenti í óhappi í Tyrklandskappakstrinum á dögunum. Raikkönen segist í toppstandi og tilbúinn í Ítalíukappaksturinn á Monza um næstu helgi. Formúla 1 5.9.2006 22:00
Aðeins eitt takmark á Monza Heimsmeistarinn Fernando Alonso segir að Renault-liðið sé aðeins með eitt takmark fyrir Ítalíukappaksturinn um næstu helgi og það sé að koma í mark á undan heimamönnum í Ferrari. Formúla 1 4.9.2006 20:00