Enski boltinn

Ronaldo gagnrýnir Ten Hag: Man Utd þarf að endurbyggja allt
Cristiano Ronaldo þekkir það vel að spila fyrir Manchester United þegar félagið var meðal þeirra bestu í Evrópu en líka það að spila undir stjórn Hollendingsins Erik ten Hag. Hann gagnrýnir gamla stjórann sinn og gamla félagið sitt í nýjum hlaðvarpsþætti.

Mikil sorg hjá Haaland
Erling Braut Haaland glímir við mikla sorg þessa dagana en norski framherjinn minntist góðs vinar síns á samfélagsmiðlum í gær.

Arteta samþykkir nýjan samning
Mikel Arteta hefur framlengt samning sinn sem knattspyrnustjóri Arsenal en þetta kemur fram í frétt hjá The Athletic.

Lokar á föður sinn: Gerði hryllilega hluti við fólkið sem ég elska
Sheffield United leikmaðurinn Anel Ahmedhodzic er búinn að fá sig fullsaddan af föður sínum og vill ekkert með hann hafa lengur.

Man United tapaði yfir tuttugu milljörðum á síðasta ári
Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United gefið út að félagið hafi verið rekið með tapi sem nemur 20 milljörðum króna síðasta árið. Þrátt fyrir það segjast forráðamenn félagsins að það standist fjárhagsreglugerðir ensku úrvalsdeildarinnar og knattspyrnusambands Evrópu.

Enzo missir bílprófið og fær sekt upp á hálfa milljón
Enzo Fernández, fyrirliði Chelsea á Englandi og landsliðsmaður Argentínu, má ekki keyra næstu sex mánuðina þar sem hann hefur verið sviptur ökuréttindum sínum. Þá þarf hann að borga sekt upp á 3020 pund eða rúmlega hálfa milljón íslenskra króna.

Vonarstjarna Liverpool með brotið bein í fæti
Miðjumaðurinn efnilegi Harvey Elliott verður frá keppni næstu vikurnar en hann braut bein í fæti í landsliðsverkefni með U-21 árs landsliði Englands á dögunum. Talið er að hann verði frá næstu sex vikurnar eða svo.

Ødegaard missir af leikjunum gegn Tottenham og City
Norðmaðurinn Martin Ødegaard verður frá í þrjár vikur í það minnsta. Hann meiddist á ökkla í landsleik Norðmanna gegn Austurríki í Þjóðadeildinni en Noregur vann leikinn 2-1.

Vildi ekki að nýi landsliðsþjálfarinn hefði samband við sig
Lee Carsley stýrði enska landsliðinu til sigurs á Finnum í Þjóðadeildinni í gær en hann þurfti þó að svara spurningum um leikmann Arsenal eftir leikinn.

Chelsea vill yfirgefa Stamford Bridge
Chelsea vill fá stærri leikvang og það lítur út fyrir að möguleikinn á því að stækka Stamford Bridge sé ekki í boði. Guardian segir frá því að forráðamenn félagsins séu búnir að finna stað fyrir mögulegan nýjan leikvang.

Austurríkismaðurinn sem meiddi Ödegaard fullur iðrunar
Fyrirliði Arsenal gæti misst af mörgum mikilvægum leikjum liðsins á næstunni eftir að hafa meiðst illa á ökkla í leik með norska landsliðinu.

Fortíðarþrá tröllríður öllu á X: Gamlar hetjur fá nýtt líf
Segja má að fortíðarþrá herji á öll þau sem voru djúpt sokkin í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu frá árunum 2005 til 2017. Ástæðan er ákveðin tíska eða trend svokallað sem tröllríður öllu nú á samfélagsmiðlinum X, áður Twitter.

Banna Chelsea stelpunum að gefa eiginhandaráritanir eftir leiki
Leikmenn kvennaliðs Chelsea mega ekki lengur gefa aðdáendum sínum eiginhandaráritanir eftir leiki liðsins. Ástæðan er öryggi leikmanna.

Rashford æfir hnefaleika
Manchester United hefur ekki byrjað tímabilið vel og alveg eins og á síðasta tímabili þá er framherjinn Marcus Rashford í vandræðum inn á vellinum.

Áfall fyrir Arsenal rétt fyrir rosalega viku
Martin Ödegaard kemur ekki heill úr þessum landsleikjaglugga. Fyrirliði Arsenal meiddist í leik Norðmanna og Austurríkismanna í Þjóðadeildinni í gærkvöldi.

Van Dijk vill vera áfram hjá Liverpool
Ensku blöðin slá því upp í morgun að fyrirliði Liverpool vilji fá nýjan samning hjá félaginu.

Tilbúinn að kaupa Boehly út
Það virðist mikið ósætti meðal eiganda enska knattspyrnuliðsins Chelsea og nú hefur Sky Sports greint frá því að Behdad Eghbali og Clearlake Capital séu tilbúin að kaupa Todd Boehly út en hann hefur verið andlit hinna misheppnuðu eigendaskipta félagsins.

Vill gera fjölskylduna stolta en það getur reynst þrautin þyngri
Stefán Teitur Þórðarson lék sinn 21. A-landsleik í 2-0 sigrinum á Svartfjallalandi. Hann er þó langt frá því að vera leikjahæsti landsliðsmaðurinn í fjölskyldu sinni enda kemur hann af mikilli fótboltaætt.

Rooney kann enn að gera glæsimörk
Wayne Rooney rifjaði upp gamla takta þegar hann skoraði gullfallegt aukaspyrnumark á Old Trafford í gær, í góðgerðaleik.

Ron Yeats látinn
Liverpool goðsögnin Ron Yeats er látinn. Hann var meðal þeirra sem spiluðu fyrsta Evrópuleik í sögu félagsins þegar liðið mætti KR á Laugardalsvelli árið 1964.

Romeo Beckham leggur skóna á hilluna
Romeo James Beckham, sonur David og Victoriu Beckham, hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna aðeins 22 ára að aldri.

Mendy mætir Man City í dómsal
Benjamin Mendy hefur kært fyrrverandi vinnuveitanda sinn Manchester City þar sem hann telur sig eiga inni laun hjá félaginu. Málið verður tekið fyrir í október.

Emma Hayes: Karlarnir ekki tilbúnir fyrir kvenþjálfara
Hver verður fyrsta konan til að taka við karlaliði í enska fótboltanum? Það gæti verið langt í það að við fáum svar við þeirri spurningu ef marka má einn besta kvenþjálfara heims.

Mjög afdrifaríkur hnerri
Knnatspyrnumaðurinn Victor Adeboyejo er meiddur en ástæðan er vægast sagt stórfurðuleg.

Það besta í lífinu hjá Ödegaard
Norski knattspyrnumaðurinn Martin Ödegaard bíður spenntur þessa dagana en hann er að verða faðir í fyrsta sinn. Hann er viss um að þessi stóra breyting á lífinu muni henta honum fullkomlega.

Chelsea leyfir Cole Palmer ekki að spila í Evrópukeppninni í vetur
Enski landsliðsmaðurinn Cole Palmer er ekki í leikmannahópi Chelsea fyrir komandi Sambandsdeild Evrópu.

Heillaður af stráknum sem fór frá Chelsea til Liverpool
Hinn 16 ára gamli Rio Ngumoha hefur þrátt fyrir ungan aldur verið til umfjöllunar í enskum fjölmiðlum eftir að hann ákvað að fara frá Chelsea til Liverpool.

Kallar Man. Utd liðið FC Hollywood
Liverpool fór illa með Manchester United í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi og United menn voru eftir leikinn í skotfæri hjá einum af knattspyrnusérfæðingum enska boltans.

Chelsea fær leyfi til að „redda sér“ með því að selja tvö hótel
Enska úrvalsdeildin hefur gefið Chelsea grænt ljós á það að bæta rekstrarreikninginn sinn með því að selja tvö hótel til systurfélags.

Tjáði sig loks eftir að hafa hafnað Liverpool
Spænski miðjumaðurinn Martin Zubimendi hefur nú í fyrsta sinn tjáð sig um þá ákvörðun að hafna því að fara til enska knattspyrnurisans Liverpool í sumar.