Enski boltinn

Segist vera víkingur en vill nýja legghlíf
Danski miðjumaðurinn Pierre-Emile Höjbjerg í liði Tottenham erfir það ekki við Joshua Dasilva að hafa tæklað hann til blóðs í enska deildabikarnum í gærkvöld. Atvikið má sjá hér í greininni.

„Er VAR versta vöruþróun sögunnar?“
Strákarnir í Sportinu í dag létu gamminn geysa þegar þeir ræddu um myndbandsdómgæsluna, VAR, í þætti dagsins.

Segir að Klopp hafi breyst úr „Herra hvatamanni“ í „Herra vælukjóa“
Það hefur verið mikið basl á Englandsmeisturum Liverpool að undanförnu og þýski knattspyrnustjórinn Jürgen Klopp þykir orðið kvarta heldur mikið að mati margra sem fylgjast með enska boltanum.

Halda undanúrslitaófarir United áfram?
Tekst Manchester United að komast í fyrsta úrslitaleikinn undir stjórn Ole Gunnars Solskjær eða kemst Manchester City í fjórða úrslitaleikinn í enska deildabikarnum í röð?

Solskjær líkti kvarti Klopps við fræga staðreyndaræðu Benítez
Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur sakað Jürgen Klopp, stjóra Liverpool, um að reyna að hafa áhrif á dómara ensku úrvalsdeildarinnar með því að kvarta yfir því hversu margar vítaspyrnur United fær.

Tottenham í úrslit
Tottenham er komið í úrslitaleik enska deildarbikarsins eftir 2-0 sigur á B-deildarliðinu Brentford á Tottenham leikvanginum í kvöld. Mörkin skoruðu þeir Son Heung-Min og Moussa Sissoko.

Tottenham tríóið fær sekt en ekki bann
Enskir fjölmiðlar greina frá því að Tottenham hafi sektað þá Sergio Reguilon, Erik Lamela og Giovani Lo Celso fyrir að hafa tekið þátt í jólapartíi á jóladag.

Fyrrum enskur landsliðsmaður látinn
Fyrrum enski landsliðsmaðurinn og leikmaður Manchester City, Colin Bell, er látinn 74 ára að aldri eftir stutta baráttu við veikindi.

Trent tókst að tapa boltanum 38 sinnum á aðeins 77 mínútum
Trent Alexander-Arnold hefur átt mjög erfitt uppdráttar á þessu tímabili og bakvörðurinn er að koma illa út í tölfræðinni.

Solskjær í Manchester-slaginn án afsakana
Ole Gunnar Solskjær segir að það yrði stórt skref fyrir lið sitt að landa titli en Manchester United mætir Manchester City í undanúrslitum enska deildabikarsins í fótbolta annað kvöld.

Nýtt met í fjölda smita í ensku úrvalsdeildinni
Enska úrvalsdeildin ætlar að halda leik áfram þrátt fyrir mikla aukningu á smitum meðal leikmanna og starfsmanna.

Mourinho sammála því að leikurinn í kvöld sé sá mikilvægasti
Tottenham getur tryggt sér sæti í úrslitaleik enska deildabikarsins með sigri á b-deildarliði Brentford í kvöld.

Fær fimm skiptinga óskina sína uppfyllta
Gera má fimm skiptingar í undanúrslitum og úrslitaleik enska deildabikarsins í fótbolta.

Vill að United kaupi Grealish og er alveg sama þótt Pogba fari
Rio Ferdinand segir að Manchester United eigi að gera allt til að fá Jack Grealish frá Aston Villa. Þá er honum alveg sama þótt Paul Pogba yfirgefi United.

Meira en fjórir klukkutímar af fótbolta síðan að Liverpool skoraði
Mikil umræða hefur verið um skort á varnarmönnum hjá Liverpool liðinu á þessu tímabili en það eru sóknarmennirnir sem eru að skjóta púðurskotum.

Grét af gleði eftir sigurinn á Liverpool
Tilfinningarnar báru Ralph Hasenhüttl, knattspyrnustjóra Southampton, ofurliði eftir sigurinn á Liverpool, 1-0, í ensku úrvalsdeildinni í gær.

„United hefur fengið fleiri víti síðustu tvö ár en ég á fimm og hálfu ári“
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var verulega ósáttur eftir tapið fyrir Southampton, bæði við liðið sitt og dómara leiksins, Andre Marriner.

Foden um Guardiola: Hann er snillingur í þessu
Phil Foden, miðjumaður Manchester City, sparaði ekki hrósið á stjóra sinn, Pep Guardiola, eftir sigur Manchester City á Chelsea í gær. City vann 3-1 sigur eftir að hafa verið 3-0 yfir í hálfleik.

Klopp ósáttur: Sagði að Liverpool hefði átt að fá tvær vítaspyrnur
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, var ekki hrifinn af leik sinna manna í kvöld. Hann sagði að liðið hefði ekki byrjað leikinn en hefði þó átt að fá tvær vítaspyrnur í leiknum.

Meistararnir töpuðu á suðurströndinni
Liverpool er einungis með tvö stig af síðustu níu mögulegum í ensku úrvalsdeildinni. Ensku meistararnir töpuðu 1-0 fyrir Southampton á útivelli í kvöld. Sigurmarkið gerði markavélin Danny Ings.

Enski boltinn rúllar áfram í útgöngubanni
Enska úrvalsdeildin getur haldið áfram að rúlla þrátt fyrir að Boris Johnson, forsætisráðherra Englands, hafi í kvöld tilkynnt um að útgöngubann væri í gildi á Englandi frá og með miðnætti.

Rodgers líklegastur til að taka við Chelsea fái Lampard sparkið
Veðbankar á Englandi telja Brendan Rodgers, stjóra Leicester, líklegastan til þess að taka við Chelsea fái núverandi stjóri liðsins, Frank Lampard, reisupassann á næstunni.

Fleiri vandræðafréttir af botnliðinu: Myndir af gjöreyðilögðum bíl framherjans láku á netið
Sextán leiki, núll sigrar. Tímabilið hjá Sheffield United hingað til hefur verið afleitt og er liðið á botnsæti ensku úrvalsdeildarinnar, með tvö stig eftir fyrstu sextán leikina.

Lampard: Pep lenti líka í vandræðum
Frank Lampard, stjóri Chelsea, er í vandræðum. Liðið hefur einungis unnið einn af síðustu sjö leikjum í deildinni og pressan er að aukast á Chelsea.

Solskjær fékk aðstoð frá Keane og Giggs
Ole Gunnar Solskjær leitaði til fyrrverandi samherja sinna hjá Manchester United, Roys Keane og Ryans Giggs, til að hjálpa sér við að snúa gengi liðsins við.

Lampard með versta árangur stjóra Chelsea síðan Abramovich eignaðist félagið
Frá því Roman Abramovich eignaðist Chelsea sumarið 2003 hefur enginn knattspyrnustjóri liðsins verið með færri stig að meðaltali í leik en Frank Lampard.

Er á því að keppnin um titilinn sé áfram á milli Liverpool og Manchester City
Það er mikil spenna í ensku úrvalsdeildinni eftir leiki jólahátíðarinnar en einn knattspyrnusérfræðingur sér samt ekki mikla breytingu á því hvaða lið eigi mestu möguleikana á því að verða enskur meistari í ár.

Mourinho refsar Lamela fyrir að brjóta sóttvarnarreglur
José Mourinho, knattspyrnustjóri Tottenham, ætlar ekki að nota Erik Lamela í leiknum gegn Brentford í undanúrslitum enska deildabikarsins eftir að Argentínumaðurinn braut sóttvarnarreglur um jólin.

Brexit að skapa vandræði fyrir Stóra Sam í björgunaraðgerðunum
Bretland er ekki lengur í Evrópusambandinu og frjálst flæði leikmanna frá Evrópu tilheyrir nú fortíðinni. Þetta munu liðin í ensku úrvalsdeildinni finna fyrir strax í janúar 2021.

Solskjær vill losna við sex leikmenn í janúar
Ole Gunnar Solskjær vill hreinsa til í leikmannahópi Manchester United og losa sig við sex leikmenn í þessum mánuði.