Enski boltinn

Coutinho snýr aftur í enska boltann
Steven Gerrard, knattspyrnustjóri Aston Villa, hefur fengið fyrrverandi liðsfélaga sinn hjá Liverpool að láni frá Barcelona.

Foreldrar verði settir í bann ef börnin hlaupa inn á völlinn
Forráðamenn enska knattspyrnufélagsins Leeds United hafa greint frá því að foreldrar og forráðamenn barna sem hlaupa inn á völlinn á leikdegi verði settir í eins árs bann frá leikjum félagsins.

Watford fær brasilískan varnarmann
Enska knattspyrnufélagið Watford hefur gengið frá kaupum á brasilíska miðverðinum Samir frá Udinese frá Ítalíu.

Gerrard gæti endurnýjað kynnin við gamlan liðsfélaga
Framtíð brasilíska knattspyrnumannsins Philippe Coutinho hjá Barcelona hefur verið í umræðunni síðustu daga og leikmaðurinn hefur verið orðaður við ýmis félög á Englandi. Þar á meðal er Aston Villa, en Coutinho lék með stjóra liðsins, Steven Gerrard, hjá Liverpool á sínum tíma.

Aubameyang missir nú líka af leikjum með landsliðinu eftir partýhöld í Dúbaí
Arsenal maðurinn Pierre-Emerick Aubameyang er kominn með kórónuveiruna en hann fékk jákvæða niðurstöðu úr próf þegar hann mætti til leiks í Afríkukeppninni í Kamerún.

Tveir Arsenal menn tilnefndir sem besti leikmaður desember
Tveir leikmenn toppliðs Manchester City og tveir leikmenn Arsenal eru tilnefndir sem bestu leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar í síðasta mánuði.

Dagný þarf að bíða með að mæta Man. Utd vegna fjölda smita
Vegna fjölda kórónuveirusmita í leikmannahópi og starfsliði West Ham verður bið á því að landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir mæti Manchester United á þessari leiktíð, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Stjóri Jóhanns smitaðist
Sean Dyche, knattspyrnustjóri Jóhanns Bergs Guðmundssonar hjá Burnley, hefur greinst með kórónuveirusmit.

Guardiola með veiruna
Pep Guardiola mun ekki getað stýrt liði Manchester City í enska bikarnum um helgina þar sem hann er kominn með kórónuveiruna.

Lýsir sundrung í klefa Man. Utd og segir sautján leikmenn óánægða
Ef eitthvað er að marka ensku götublöðin er allt í upplausn í herbúðum Manchester United eftir frekar dapurt gengi á leiktíðinni í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Chelsea í góðum málum eftir klaufalegan varnarleik Tottenham
Chelsea vann Tottenham Hotspur 2-0 í fyrri leik liðanna í undanúrslitum enska deildarbikarsins í kvöld.

Tilfinningaríkt fyrir Conte að snúa aftur á Brúna í kvöld
Chelsea tekur á móti Tottenham á Stamford Bridge í kvöld í fyrri leik liðanna í enska deildarbikarnum en hinum leiknum, sem átti að fara á morgun milli Liverpool og Arsenal, hefur verið frestað um viku.

Leik Arsenal og Liverpool frestað
Beiðni Liverpool um að fresta fyrri leik liðsins gegn Arsenal í undanúrslitum enska deildabikarsins hefur verið samþykkt. Leikurinn átti að fara fram á Emirates annað kvöld.

Mendy færður í eitt alræmdasta fangelsi Bretlands
Benjamin Mendy, leikmaður Manchester City sem er sakaður um átta kynferðisbrot, hefur verið færður í eitt alræmdasta fangelsi Englands vegna ótta um öryggi hans.

Missti af stórkostlegu marki Kovacic á móti Liverpool af því hann var í símanum
Mateo Kovacic skoraði eitt af mörkum ársins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta um síðustu helgi þegar hann kom Chelsea inn í leikinn á móti Liverpool.

Margir leikmenn sagðir vilja komast í burtu frá Man. United
Það er ljóst að næstu vikur og mánuðir verða mjög krefjandi fyrir Ralf Rangnick, knattspyrnustjóra Manchester United.

Liverpool aflýsti fundi því varamaður Klopps er einnig smitaður
Liverpool varð að hætta við blaðamannafund sem átti að vera í dag vegna leiks liðsins við Arsenal annað kvöld í undanúrslitum enska deildabikarsins í fótbolta.

Afsökunarbeiðni Lukaku: „Mér þykir leitt að hafa valdið öllum þessum vandræðum“
Romelu Lukaku hefur beðist afsökunar á ummælum sem hann lét falla í viðtali sem tekið var fyrir nokkrum vikum síðan en birtist skömmu fyrir stórleik Chelsea og Liverpool um liðna helgi.

Liverpool biður um frestun
Kórónuveiran heldur áfram að setja mark sitt á leiki enskrar knattspyrnu þessa dagana. Veiran geisar nú á æfingasvæði Liverpool og er alls óvíst hvort leikur liðsins gegn Arsenal á fimmtudag get farið fram.

Aftur fjárfestir Everton í bakverði
Enska knattspyrnufélagið Everton heldur áfram að bæta í bakvarðarsveit sína. Félagið festi kaup á hinum tvítuga Nathan Kenneth Patterson í dag.

Lukaku búinn að segja sorrí og verður í hóp gegn Spurs
Romelu Lukaku hefur beðist afsökunar á ummælum sínum við Sky Sports á Ítalíu og verður í leikmannahópi Chelsea gegn Tottenham í undanúrslitum deildabikarsins annað kvöld.

Paul Ince hefur áhyggjur: Segir leikmenn Man. United vera út um allt
Fyrrum lykilmaður á miðju Manchester United hefur áhyggjur af sínu gamla félagi eftir að hafa horft upp á liðið tapa 1-0 fyrir Úlfunum í gær.

Lukaku áfram hjá Chelsea eftir sáttafund
Belgíski framherjinn Romelu Lukaku verður ekki seldur eða lánaður frá Chelsea í janúar eða næsta sumar, þrátt fyrir viðtalið við Sky á Ítalíu sem fór illa í forráðamenn enska knattspyrnufélagsins.

Smitum fækkar í ensku úrvalsdeildinni
Smitum fækkar milli vikna meðal leikmanna og starfsfólks ensku úrvalsdeildarinnar í fyrsta skipti í tvo mánuði.

„Wolves er besta liðið sem við höfum spilað við“
Manchester United tapaði sínum fyrsta deildarleik undir stjórn Ralf Rangnick er liðið tók á móti Wolves í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Lokatölur urðu 0-1 og Þjóðverjinn segir liðið ekki hafa spilað vel.

Segir að Lukaku þurfi að biðjast afsökunar til að eiga framtíð hjá Chelsea
Gary Neville, fyrrverandi leikmaður Manchester United og núverandi sparkspekingur, segir að Romelu Lukaku þurfi að biðjast afsökunar á viðtali sem hann fór í ætli hann sér að eiga framtíð hjá Chelsea.

Moutinho tryggði Úlfunum stigin þrjú
Joao Moutinho reyndist hetja Wolves er liðið vann 0-1 útisigur gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Silva verður áfram í herbúðum Chelsea
Varnarmaðurinn reynslumikli Thiago Silva hefur framlengt samningi sínum við enska knattspyrnufélagið Chelsea.

Derby taplaust í fjórum eftir ótrúlega endurkomu
Wayne Rooney og lærisveinar hans í Derby County halda áfram að kroppa í stig í botnbaráttunni í ensku 1. deildinni. Liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Reading í dag eftir að hafa lent 2-0 undir.

Leikur sinn fyrsta leik í rúmlega sjöhundruð daga
Enski knattspyrnumaðurinn Phil Jones er í byrjunarliði Manchester United sem leikur gegn Wolves í ensku úrvalsdeildinni í þessum töluðu orðum. Hann lék seinast fyrir United þann 26. janúar árið 2020.