
Formúla 1

Heimsmeistarinn Verstappen byrjar á sigri
Verstappen hefur tímabilið í Formúlu 1 á sama hátt og undanfarin ár. Með frábærri frammistöðu og sigri.

Horner heldur áfram að hneyksla og gæti misst starfið
Christian Horner, liðsstjóri Red Bull í Formúlu 1 síðan 2005, gæti átt í hættu að missa starf sitt eftir að kynferðisleg smáskilaboð og myndir sem hann sendi samstarfskonu sinni láku á netið.

Stefnir í spennandi keppni í Barein: „Nánast ekkert þarna á milli“
Þrátt fyrir að Max Verstappen sé á ráspól í fyrstu keppni ársins í Formúlu 1 þá búast sérfræðingar við jafnari keppni en á sama tíma í fyrra.

Segir að Ricciardo sé bara í Formúlu út af vinsældum
Fyrrverandi heimsmeistari segir að Daniel Ricciardo sé bara í Formúlu 1 vegna vinsælda hans, ekki vegna ökuhæfileikanna.

Red Bull hreinsar Horner af öllum ásökunum um óviðeigandi hegðun
Christian Horner, liðsstjóri Formúlu 1 meistara Red Bull, hefur verið hreinsaður af öllum ásökunum samstarfskonu hans um óviðeigandi hegðun.

Toto vill allt upp á borðið tengt rannsókn á Horner
Toto Wolff, framkvæmdastjóri Formúlu 1 liðs Mercedes, segir rannsókn á ásökunum á hendur Christian Horner, liðsstjóra Red Bull Racing, um meinta óviðeigandi hegðun í garð kvenkyns starfsmanns liðsins, vera mál sem varðar Formúlu 1 í heild sinni. Vill hann fá allt upp á borðið tengt rannsókninni.

Alonso tjáði sig um Mercedes orðróma: „Staða mín er góð“
Fernando Alonso, tvöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1 og núverandi ökumaður Aston Martin, segist ekki hafa átt samtöl við forráðamenn Mercedes þess efnis að hann taki yfir sæti Lewis Hamilton hjá liðinu að komandi tímabili afloknu þegar að Bretinn skiptir yfir til Ferrari.

Engin niðurstaða eftir átta tíma yfirheyrslu
Christian Horner, liðsstjóri Formúlu 1 meistara Red Bull, er til rannsóknar vegna óviðeigandi hegðunar. Hann var yfirheyrður í dag, föstudag, en enn er engin niðurstaða komin í málið. Horner vill hreinsa nafn sitt.

Leclerc ósáttur við að fá Hamilton sem liðsfélaga
Charles Leclerc ku hafa verið vonsvikinn þegar hann komst að því að Lewis Hamilton yrði liðsfélagi hans hjá Ferrari frá og með tímabilinu 2025.

Liðsstjóri Red Bull yfirheyrður vegna ásakana um óviðeigandi hegðun
Christian Horner, liðsstjóri Red Bull í Formúlu 1, verður yfirheyrður vegna ásakana um óviðeigandi hegðun á föstudaginn.

Æðsti prestur hjá Red Bull til rannsóknar vegna óviðeigandi hegðunar
Christian Horner, liðsstjóri Formúla 1 meistara Red Bull, er til rannsóknar vegna óviðeigandi hegðunar.

„Mögulega stærstu skipti ökumanna og liða í sögu Formúlunnar“
„Ég náttúrulega bara trúði þessu ekki,“ sagði Bragi Þórðarson um vistaskipti sjöfalda heimsmeistarans Lewis Hamilton frá Mercedes til Ferrari.

Hissa á ákvörðun Hamilton
Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes í Formúlu 1, viðurkennir að það hafi komið honum á óvart að sjöfaldi heimsmeistarinn Lewis Hamilton hafi tekið ákvörðun um að yfirgefa liðið að komandi tímabili loknu.

Sainz yfirgefur Ferrari
Carlos Sainz, ökumaður Ferrari í Formúlu 1, mun yfirgefa liðið að komandi tímabili loknu.

Ferrari staðfestir komu Hamilton
Lewis Hamilton, sjöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, er á förum frá Mercedes eftir ellefu ára samstarf með liðinu.

Markaðsvirði Ferrari hækkað um tæpa þúsund milljarða eftir fréttirnar um Hamilton
Markaðsvirði Ferrari rauk upp úr öllu valdi eftir að fréttir bárust af því að Lewis Hamilton væri að öllum líkindum á leið til liðsins frá Mercedes.

Risatíðindi úr F1: Hamilton sagður á leið í Ferrari
Ein stærstu félagaskipti í sögu Formúlu 1 kappakstursins virðast vera í pípunum því talið er að sjöfaldi heimsmeistarinn Lewis Hamilton sé að ganga til liðs við Ferrari.

Norris skrifar undar nýjan samning og stefnir á heimsmeistaratitil
Lando Norris hefur skrifað undir nýjan samning við McLaren í Formúlu 1 og segist vera sannfærður um það að hann geti orðið heimsmeistari með liðinu.

Rekin úr raunveruleikaþætti vegna ótta um að hún myndi kjafta frá leyndarmálum Schumachers
Fyrrverandi eiginkona bróður Michaels Schumacher var rekin úr raunveruleikaþættinum I'm A Celebrity vegna ótta um að hún myndi ljóstra einhverju upp um heilsu þýska ökuþórsins.

Schumacher getur setið til borðs með fjölskyldu sinni
Sjöfaldi heimsmeistarinn í Formúlu 1, Michael Schumacher, getur setið til borðs með fjölskyldu sinni.

Schumacher keyrður um í Mercedes bíl til að örva heila hans
Ýmislegt er gert í ummönnum Michaels Schumachers. Meðal annars er reynt að vekja upp tengsl við ökumannsferill hans.

Kona Schumachers með strangar reglur um það hverjir geta hitt hann
Eiginkona Michaels Schumacher stjórnar því hverjir geta hitt ökuþórinn fyrrverandi og er með strangar reglur í þeim efnum.

Schumacher getur gert vissa hluti en „ekkert er eins og það var“
Þann 29. desember næstkomandi verða tíu ár liðin frá skíðaslysi fyrrum Formúlu 1 ökuþórsins Michaels Schumacher. Bróðir hans sagði nútímatækni læknisfræðinnar gera honum kleift að gera vissa hluti, en „ekkert er eins og það var“.


„Hann er ekki lengur sá Michael sem hann var“
Jean Todt, fyrrverandi framkvæmdastjóri Ferrari í Formúlu 1 og forseti Alþjóða akstursíþróttasambandsins, hefur tjáð sig um sig ástand Michaels Schumacher.

Segir önnur lið þurfa að klífa Everest til að ná Red Bull
Toto Wolff, liðstjóri Mercedes í Formúlu 1, segir að önnur lið þurfi að klífa Everest ætli þau sér að ná Red Bull liðinu á næsta tímabili.

Vakna upp við milljarðs þynnku eftir sögulega gott tímabil
Red Bull Racing, með Hollendinginn Max Verstappen í fararbroddi, bar höfuð og herðar yfir andstæðinga sína á nýafstöðnu tímabili í Formúlu 1. Verstappen varð heimsmeistari ökumanna og Red Bull Racing heimsmeistari bílasmiða. Árangur og stigasöfnun sem sér til þess að liðið mun þurfa að borga hæsta þátttökugjaldið í sögu Formúlu 1 ætli það sér að vera á meðal keppenda á næsta tímabili.

Verstappen vann síðasta kappakstur ársins
Síðasti kappaksturinn á F1 tímabilinu fór fram í Abú Dabí í dag þar sem Max Verstappen fór sem fyrr með sigur af hólmi. Charles Leclerc endaði í öðru sæti á meðan George Russel tók þriðja sætið.

Verstappen á ráspól enn á ný
Hollendingurinn fljúgandi, Max Verstappen, verður á ráspól í Aby Dhabi kappakstrinum á morgun en þetta verður í tólfta sinn sem Verstappen ræsir fremstur í ár.

Hamilton segir liðsstjóra Red Bull fara með rangt mál
Sjöfaldi Formúlu 1 heimsmeistarinn Lewis Hamilton, ökumaður Mercedes, segir Christian Horner, liðsstjóra Red Bull Racing, fara með rangt mál er hann segir Hamilton hafa sett sig í samband við forráðamenn Red Bull Racing og viðrað hugmyndir um að ganga til liðs við liðið.