Fréttir

Bílvelta austan við Hval­nes

Bíll með ferðavagn valt út af vegi rétt austan við Hvalnes á Suðausturlandi. Þrír voru um borð í bílnum en ekki er talið að um alvarlegt slys sé að ræða. 

Innlent

Verður ís­lenska hita­metið slegið á morgun?

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur telur íslenska hitametið, 30,5 gráður á Teigarhorni góðviðrissumarið 1939, nokkuð öruggt en að aðstæður til að metið verði loksins slegið séu nokkuð ákjósanlegar á Austurlandi og Héraði á morgun.

Veður

Hætt að taka við reiðu­fé vegna innbrotahrinunnnar

Eigendur veitingastaðanna Ramen Momo hafa ákveðið að hætta að taka við reiðufé vegna innbrotahrinu sem nú gengur yfir Reykjavík. Brotist var inn í svokallað preppeldhús veitingastaðanna í nótt og verðmætum var stolið. Þar voru þó engir peningar geymdir.

Innlent

Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn

Óli Rúnar Jónsson framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar tekur upp hanskann fyrir „lite“-bjórinn sívinsæla og segir næringafræðing sem gagnrýndi vöruflokkinn á dögunum fara með rangfærslur um „lite“-bjóra og bjórsölu almennt.

Innlent

„Miklar vendingar núna í mál­efnum bæjarins“

Nýr bæjarstjóri Grindavíkur lítur ekki svo á að farið sé gegn tilmælum Grindavíkurnefndarinnar með því að hefja skólastarf að nýju í bænum. Allt verði gert til að tryggja öryggi nemenda og starfsmanna og að miklar vendingar séu framundan í málefnum bæjarins.

Innlent

Mette-Marit út­skrifuð af sjúkra­húsi

Mette-Marit, krónprinsessa Noregs, hefur verið útskrifuð af sjúkrahúsi eftir að hún gekkst undir lungnaígræðslu í síðasta mánuði. Hún tekur sér frí frá konunglegum skyldum í nokkurn tíma til viðbótar.

Erlent

Tugir inn­brota til rann­sóknar hjá lög­reglu

Lögreglumenn á varðsvæði lögreglustöðvar eitt hafa fengið tugi tilkynninga um innbrot frá mánaðamótum. Lögreglan telur verknaðinn ekki vera skipulagða glæpastarfsemi heldur tilviljunarkennd innbrot á heimili og í fyrirtæki. 

Innlent

Dómari ó­gildir sátt Trump og skatta­yfir­valda

Dómstóll í Bandaríkjunum hefur ógilt samkomulag milli Donald Trump Bandaríkjaforseta og opinberra stofnana, sem kvað á um að Trump og fjölskylda hans yrðu varanlega undanskilin skattrannsóknum og að stofnaður yrði 1,8 milljarða dala sjóður fyrir þá sem telja sig hafa orðið fyrir ofsóknum af hálfu hins opinbera.

Erlent

Boðað til þing­kosninga í Ísrael þann 27. októ­ber

Boðað hefur verið til þingkosninga í Ísrael þann 27. október næstkomandi. Þá fá landsmenn í fyrsta sinn tækifæri til þess að leggja dóm á Benjamin Netanyahu og ríkisstjórn hans frá árásum Hamas á byggðir Ísraelsmanna þann 7. október árið 2023.

Erlent