Innlent

Aðal­með­ferð hafin í Dettifoss-málinu

Árni Sæberg skrifar
Kastriot Pepaj er talinn hafa skipulagt innflutninginn ásamt Sævari Hilmarssyni.
Kastriot Pepaj er talinn hafa skipulagt innflutninginn ásamt Sævari Hilmarssyni. Vísir

Aðalmeðferð í máli Héraðssaksóknara á hendur þeim Sævari Erni Hilmarssyni, Kastriot Pepaj og tveimur skipverjum á Dettifossi, vegna umfangsmikils fíkniefnasmygsl með skipinu, er hafin.

Kastriot og Sævar Örn eru ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnabrot með því að hafa staðið að skipulagi innflutnings til landsins með gámaflutningaskipinu Dettifossi í eigu Eimskips í apríl. Tveir skipverjar eru ákærðir fyrir að hafa flutt efnin til landsins en af ákæru og gæsluvarðhaldsúrskurðum má merkja að þeir hafi verið fengnir í innflutninginn en ekki skipulagt hann.

Ítarlega er fjallað um ákæruna í fréttinni hér að neðan:

Aðalmeðferðin hófst klukkan 09:15 og áætlað er að hún standi yfir næstu þrjá daga og ljúki síðdegis á föstudag. Vísir mun greina frá því helsta sem þar gerist.


Tengdar fréttir

Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus

Annar tveggja skipverja Dettifoss, sem ákærðir hafa verið fyrir að hafa komið að innflutningi á fjórtán lítrum af amfetamínbasa, segir þá hafa átt að fá 2,5 milljónir króna fyrir ómakið. Ætla má að götuvirði efnanna gæti numið allt að 280 milljónum króna og skipverjarnir gætu átt yfir höfði sér langa fangelsisvist.

Sími undir dýnu á skipti­borði tengdur inn­flutningi am­feta­mín­basa

Tveir menn eru grunaðir um að hafa í sameiningu skipulagt innflutning á fjórtán lítrum af amfetamínbasa til Íslands með Dettifossi, gámaskipi Eimskips, í apríl. Mennirnir fengu tvo skipverja Eimskips til að aðstoða við innflutninginn. Mennirnir fjórir hafa verið í gæsluvarðhaldi frá því í apríl en búast má við því að gefin verði út ákæra í málinu á næstu dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×