
Eldgos og jarðhræringar

Margir Grindvíkingar í óviðunandi húsnæði eða búi við óvissu
Innviðaráðherra segir alltof marga Grindvíkinga enn í óviðunandi húsnæði eða búa við óvissu. Stjórnvöld skoði hvernig hægt sé að koma til móts við kröfur um að ríkið kaupi upp húsnæði bæjarbúa þó hann sé ekki tilbúinn að slá af byggð í Grindavík til framtíðar.

Ný sprunga opnaðist í Grindavík í dag og gosið formlega búið
Ný og djúp sprunga opnaðist í Grindavík í dag en hættumat Veðurstofunnar var fært niður þar sem eldgosi er formlega lokið. Fjöldi viðbragðsaðila var að störfum í bænum í dag og í fyrramálið opnar Bláa lónið á ný.

Hættustig fært niður á öllum svæðum
Hættustig hefur verið fært niður á öllum svæðum í nýju hættumatskorti sem birtist á vef Veðurstofu Íslands rétt í þessu.

Rafmagnslaust eftir að stofnstrengur undir hrauni gaf sig
Rafmagn fór af Grindavík á áttunda tímanum í morgun þegar stofnstrengur, sem er undir hrauni, gaf sig. Unnið er að því að koma rafmagni á bæinn.

Býður Grindvíkingum upp á frítt skutl
Hafnfirðingur sem býður Grindvíkingum upp á frítt skutl á „stór-Hafnarfjarðarsvæðinu“ segir viðbrögðin hafa verið ótrúleg. Enn sem komið er sé bara eitt skutl til Keflavíkur fyrirhugað en ef eftirspurnin eykst er hann tilbúinn að skutla fram yfir helgi.

„Eykur óvissuna enn og aftur“
Otti Rafn Sigmarsson, björgunarsveitarmaður hjá Þorbirni, segir að sér hafi liðið vel í Grindavík í dag þar sem hann, ásamt fleirum, vann í bænum. Vinnu við að koma hita og rafmagni á hús í Grindavík var frestað í dag vegna snjóþyngsla, en björgunarsveitir og slökkvilið voru í bænum og unnu að því að moka snjó.

„Virðist vera að fara upp með svipuðum hraða“
Kvika heldur áfram að safnast saman undir Svartsengi og jarðeðlisfræðingur segir að á meðan landris heldur áfram gæti gosið innan næsta mánaðar. Hætta innan Grindavíkur er áfram talin mjög mikil.

„Svo vökvuðum við blómin fyrir ykkur“
Pípararar sem yfirfóru hús í Grindavík létu sér ekki nægja að sinna lögnum heldur vökvuðu þeir líka blómin. Grindvíkingur segir gjörninginn hafa fyllt hjarta sitt af gleði.

Drónamyndir af því þegar sprungan í grennd við Grindavík opnaðist
Bandaríski jarðfræðingurinn Shawn Willsey var að lýsa gosinu við Grindavík í beinni útsendingu þegar hann kom auga á þegar jörð rofnaði nálægt bænum síðastliðinn sunnudag.

Ekki hægt að hugsa lengra fram í tímann en klukkutíma í senn
Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis hf, útgerðarfélags í Grindavík, segir ekki hægt að hugsa lengra fram í tímann en eina klukkustund í senn. Hann segir starfsmenn sína merkilega bratta miðað við aðstæður.

Hafnfirðingar bíði rólegir eftir hættumati
Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar, segist bíða róleg eftir hættumati Veðurstofu Íslands og almannavarna vegna mögulegrar goshættu í byggð. Það sé væntanlegt í vor og þá verði hægt að skoða vinnu við mögulega varnargarða.

Landris heldur áfram við Svartsengi
Landris heldur áfram við Svartsengi og er hætta áfram metin mjög mikil innan Grindavíkur.

Óvíst hvenær hægt verður að opna Bláa lónið á ný
Óvíst er hvenær hægt verður að opna Bláa lónið á ný. Forsvarsmenn þess bíða eftir nýju hættumati til að hægt verði að taka ákvörðun um framhaldið. Nýja hættumatið verður birt á morgun. Þá hefur vinnu við að koma hita og rafmagni á hús í Grindavík verið frestað í dag af öryggisástæðum en mikið hefur snjóað á svæðinu.

Gera hlé á vinnu við varnargarða
Vinna við varnargarðana á Reykjanesi hefur verið stöðvuð tímabundið á meðan staðan er endurmetin.

„Erfiðasta svæðið í framtíðinni verður Hafnarfjörður“
Ármann Höskuldsson, prófessor í eldfjallafræði, segir ljóst að ekki sé búandi í Grindavík eins og staðan sé núna. Hann segir mikið þurfa að gera svo fólk geti flutt heim.

Sameiginlegir sjóðir til þess að nýta í slíkum aðstæðum
Fjármála-og efnahagsráðherra segir stöðuna í Grindavík kalla á stærri ákvarðanir. Sameiginlegir sjóðir séu til þess að nýta í slíkum aðstæðum en hún segir að um sé að ræða flókið verkefni. Staðan kalli klárlega á sérlög.

Sigmundur Davíð vill að byggð verði ný Grindavík
Breið samstaða er að myndast um að stjórnvöld leysi þá Grindvíkinga sem þess óska undan húseignum þeirra. Fulltrúar allra stjórnarandstöðuflokka á Alþingi tóku undir þetta í Pallborðinu í dag. Formaður Miðflokksins vill að reist verði ný Grindavík.

NTÍ geti ekki keypt upp eignir í Grindavík
Forstjóri Náttúruhamfaratryggingar Íslands (NTÍ) segir stofnunina ekki geta keypt upp eignir Grindvíkinga. Núverandi regluverk grípi einungis hluta Grindvíkinga vegna þess tjóns sem náttúruhamfarir á Reykjanesskaga hafa valdið. Hún treystir stjórnvöldum til að bæta regluverkið.

Að leysa Grindvíkinga út „eins og eins árs hallarekstur“ ríkisins
Fulltrúar allra stjórnarandstöðuflokkanna sem mættu í Pallborðið í dag eru sammála um að stjórnvöld eigi að leysa þá Grindvíkinga sem þess óska undan húseignum þeirra. Formaður Miðflokksins telur að stjórnvöld hefðu getað gert mikið betur við að lágmarka þá óvissu sem Grindvíkingar búa nú við.

Áfram líkur á að gossprungur opnist án fyrirvara
Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi en of snemmt er að segja til um hraða landrissins svo snemma eftir eldgos. Samkvæmt reiknilíkönum liggur kvika grunnt í suðurenda kvikugangsins, þar virðist landið vera mikið sprungið og kvikan eigi því auðvelt með að komast upp á yfirborðið. Áfram eru því líkur á að nýjar gossprungur opnist án fyrirvara.

Framlengja frystingu lána Grindvíkinga
Arion banki hefur ákveðið að bjóða Grindvíkingum að frysta íbúðalán sín hjá bankanum í þrjá mánuði til viðbótar og fella niður vexti og verðbætur lánanna til aprílloka.

Pallborðið: Hvað er stjórnarandstaðan að hugsa?
Viðvarandi verðbólga og vaxtahækkanir, húsnæðiskreppa, stöðugar jarðhræringar, óvinsæl ríkisstjórn, forsetakosningar framundan og hvað er stjórnarandstaðan að hugsa? Heimir Már Pétursson fær leiðtoga stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi í beina útsendingu í Pallborðinu á Vísi og Stöð 2/Vísi klukkan 14:00 í dag.

Heildarfasteignamat í Grindavík um 107 milljarðar
Hávær krafa er um að ríkissjóður bæti Grindvíkingum tjón sem íbúar í bænum hafa orðið fyrir vegna jarðhræringanna á Reykjanesi. Ýmsar tölur hafa verið nefndar um hvert verðmæti þeirra sé. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur nú tekið saman heildarfasteignamat bæjarins sem nemur um 107 milljörðum króna.

Gefa sér ekki tíma til að óttast
Pípulagningameistari sem fer fyrir vinnu í Grindavíkurbæ segir að unnið sé í kappi við tímann við að koma vatni og rafmagni á bæinn. Vinnumenn gefi sér ekki tíma til þess að óttast um eigið öryggi innan bæjarins en fari auðvitað varlega.

Fyrsta stig verðmætabjörgunar í gangi og næstu til skoðunar
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum lýsir aðgerðum til að tryggja hita á húsum í Grindavíkurbæ sem stórri verðmætabjörgun. Áfram verður unnið að því í dag auk þess sem sérfræðingahópur á vegum almannavarna er að kortleggja sprungur og hættur í bænum.

Byggð verið skipulögð án þess að huga að náttúruvá
Eldfjallafræðingur segir ekki hafa verið hugað nógu vel að náttúruvá þegar byggð og innviðir hafi verið byggð upp á undanförnum áratugum. Huga þurfi að vörnum áður en til neyðarástands komi.

Telur ríkið eiga að kaupa allt íbúðarhúsnæði í Grindavík
Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur að ríkið eigi að kaupa Grindvíkinga út og tekur þannig undir hugmyndir Vilhjálms Árnasonar, þingmanns sama flokks og íbúa í Grindavík. Þetta segir Óli Björn í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Vill að ríkið kaupi Grindvíkinga út: Fólk „vill bara komast í burtu“
Hilmar Gunnarsson, íbúi í Grindavík, segir það upplifun flestra sem hann hefur talað við frá Grindavík að fáum spurningum hafi verið svarað á íbúafundinum í gær. Hann upplifði gremju gagnvart ríkisstjórninni og að fólk upplifði að lítið hefði gerst síðustu tvo mánuði.

Landris heldur áfram við Svartsengi
Landris heldur áfram við Svartsengi og kvika safnast enn upp. Tæplega sextíu jarðskjálftar hafa mælst í kvikuganginum frá miðnætti. Staðan er þó meira og minna óbreytt.

Svona var íbúafundur Grindvíkinga í kvöld
Íbúafundur íbúa Grindavíkurbæjar í Laugardalshöll fór fram í dag. Margar spurningar brunnu á Grindvíkingum, og sneru margar að skorti á langtímaáætlunum þeim til stuðnings, nú þegar ljóst virðist orðið að hættan á eldsumbrotum inni í bænum er ekki á förum.