Eldgos og jarðhræringar
30 31 32 33 34 35 36 37 38 … 130 ›
Skjálftinn líklega ekki merki um kvika sé að brjótast upp Tveir nokkuð stórir skjálftar riðu yfir suðvesturhorn landsins rétt fyrir klukkan ellefu í morgun. Sérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir þá líklega ekki til marks um að kvika sé að brjóta sér leið til yfirborðsins heldur afleiðing spennubreytinga á Reykjanesi. Innlent 3.1.2024 12:24
Gikkskjálfti að stærð 4,5 skók suðvesturhornið Stór skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu og víðar um klukkan 10:50 í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni benda fyrstu tölur til að skjálftinn hafi verið 4,5 að stærð og að upptök hans hafi verið við Trölladyngju, nærri Keili, á um fimm kílómetra dýpi. Nokkrir eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið. Innlent 3.1.2024 10:52
„Náttúran er svolítið í að koma manni á óvart“ Jarðeðlisfræðingur segir ljóst að líkurnar á eldgosi á Reykjanesskaga aukist með tímanum. Líklegast sé að eldgos yrði svipað gosinu sem hófst um miðjan desember. Innlent 2.1.2024 23:20
Kapphlaup við tímann og náttúruna Undirbúningur fyrir varnargarða fyrir utan Grindavík er hafinn. Unnið verður allan sólarhringinn á svæðinu næstu vikur en verkstjóri segir starfsmenn vera í kapphlaupi við náttúruna og tímann. Innlent 2.1.2024 19:18
Mögulegt gos líklega eins og það síðasta Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur telur líklegt að mögulegt eldgos á Reykjanesskaga verði líkt síðasta gosi, sem varð í nýliðnum desember. Innlent 2.1.2024 13:41
Kvikuþrýstingur að byggjast upp og líkur á eldgosi aukast Vísbending um að kvikuþrýstingur sé að byggjast upp og þar með aukast líkur á nýju kvikuhlaupi og einnig eldgosi. Innlent 2.1.2024 11:58
Sennilega spurning um tíma frekar en hvort Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur segir stöðuna við Svartsengi vera óbreytta þar sem land hefur haldið áfram að rísa sem sé merki um að verið sé að safna í nýtt kvikuhlaup eða að nýtt gos sé yfirvofandi. „Það er því sennilega spurning um tíma frekar en hvort.“ Innlent 2.1.2024 11:20
Gist á 23 heimilum Gist var í 23 húsum í Grindavík á nýársnótt. Lögreglustjórinn segir allt hafa gengið vel í bænum yfir hátíðarnar. Vinna við varnargarða í kringum Grindavík hefst í dag. Innlent 2.1.2024 10:57
Árið 2023 í myndum: Skjálftar á skjálfta ofan Það var titringur víða í samfélaginu árið 2023. Hatrammar kjaradeilur settu mark sitt á árið og tekist var á um hvalveiðar, útlendingamál og valdheimildir lögreglu, svo eitthvað sé nefnt. Innlent 2.1.2024 08:47
Áfram skjálftavirkni við kvikuganginn Um 110 skjálftar hafa mælst við kvikuganginn norðan Grindavíkur frá miðnætti en til samanburðar mældust 160 í gær. Enn eru taldar auknar líkur á eldgosi. Innlent 1.1.2024 09:35
Grindvíkingurinn er maður ársins Maður ársins hjá fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, er Grindvíkingurinn. Valið var ekki erfitt að þessu sinni. Hver og einn íbúi bæjarins á hlutdeild í útnefningunni. Innlent 31.12.2023 17:15
Lokun Bláa lónsins framlengd Lokun Bláa lónsins sem tók gildi í kjölfar eldgossins við Sundhnúkagíga þann 18. desember síðastliðinn hefur verið framlengd til 3. janúar. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Bláa lónsins. Viðskipti innlent 30.12.2023 20:08
Einstæð móðir rukkuð um tvöfalda leigu Kolbrún Jónsdóttir, einstæð móðir, hefur verið rukkuð um leigu janúarmánaðar fyrir íbúð sína í Grindavík. Líkt og aðrir íbúar bæjarins fór hún úr bænum þegar hann var rýmdur þann tíunda nóvember, en síðan hefur hún byrjað að leigja íbúð í Hafnarfirði. Hún situr því uppi með tvær rukkanir fyrir leigu í næsta mánuði. Innlent 30.12.2023 16:11
Óttast að Grindvíkingar í göngutúr endi í sprungum Lögreglan á Suðurnesjum varar fólk í Grindavík við það að ganga utan vega um bæinn. Fólk gæti lent í sprungum án þess að verða þeirra vart. Innlent 30.12.2023 14:24
Áfram heimilt að dvelja í bænum þó að lögreglustjóri mæli gegn því Íbúum Grindavíkur er áfram heimilt að fara í bæinn og dvelja heima hjá sér þrátt fyrir nýtt hættumatskort sem bendi til þess að auknar líkur séu á eldgosi norðan Grindavíkur. Þetta tilkynnir lögreglustjórinn á Suðurnesjum sem fundaði í dag um stöðu mála með fulltrúum almannavarna. Innlent 30.12.2023 12:04
Sex milljarða Grindavíkurgarðar miklu stærri en í Svartsengi Auknar líkur eru á eldgosi norðan Grindavíkur og hætta er talin á hraunflæði inn í bæinn. Byrjað verður að reisa gríðarstóra varnargarða við Grindavík strax eftir helgi. Bæjarstjóri telur að uppbygging garðanna fái Grindvíkinga til að flytja heim. Innlent 29.12.2023 20:00
Svona mun varnargarðurinn við Grindavík líta út Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra, hefur tilkynnt að ráðist verði í fyrsta áfanga varnargarða við Grindavík og er undirbúningur framkvæmdanna þegar hafin. Gert er ráð fyrir að garðurinn verði um 7 km að lengd og að hann muni liggja að mestu í hápunktum í landinu ofan og umhverfis Grindavík. Innlent 29.12.2023 18:01
Fannar þakkar fyrir skjót viðbrögð Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra tilkynnti að loknum ríkisstjórnarfundi að samhugur væri í ríkisstjórninni varðandi byggingu varnargarða við Grindavík og að undirbúningur hans væri þegar hafinn. Fannar Jónsson, bæjarstjóri í Grindavík, segir þetta vera ánægjulegar fréttir. Innlent 29.12.2023 17:42
Breytt hætta í Grindavík vegna mögulegs hraunflæðis Veðurstofan hefur gefið út uppfært hættumatskort sem er byggt á samtúlkun gagna á samráðsfundi vísindafólks sem var haldinn var í morgun, en mat á hættustigi innan svæðanna er óbreytt frá því síðast. Hins vegar hefur þó verið gerð breyting á þeim hættum sem eru mögulegar innan Grindavíkur. Þar hafa bæst við hættur vegna hugsanlegs hraunflæðis og gasmengunar. Innlent 29.12.2023 15:24
Gríðarlega stór varnargarður til að gera Grindavík að öruggum kosti Eitt mál var á dagskrá á ríkisstjórnarfundi í dag, að sögn Guðrúnar Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra, en það var bygging varnargarðs í kringum Grindavík til að verja innviði bæjarins. Hún segir algjöra samstöðu um málið í ríkisstjórninni. Innlent 29.12.2023 11:45
Telur skynsamlegt að reisa varnargarða norðan við Grindavíkurbæ Innviðaráðherra telur skynsamlegt að byggja varnargarða norðan við Grindavíkurbæ til að verja bæinn ef til eldgoss kemur. Framkvæmdin sé vissulega dýr en verndi mun meiri verðmæti. Innlent 28.12.2023 19:57
Nýjar sprungur í Grindavíkurvegi Nýjar sprungur hafa myndast í Grindavíkurvegi, í nýrri viðgerð nærri Svartsengi. Vegagerðin segir talsverðan mun á veginum í dag miðað við í gær. Innlent 28.12.2023 14:53
Smáaurar í öllu samhengi Kostnaður við uppbyggingu varnargarða norðan við Grindavíkurbæ er smáaurar miðað við þau verðmæti sem garðarnir verja að sögn bæjarstjóra Grindavíkur. Það sé mikilvægt fyrir þjóðarbúið að ráðist verði í uppbyggingu garðanna sem fyrst. Innlent 28.12.2023 12:31
Yrði líklega aflminna en gæti varað lengur Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir að landrisið hafi haldið áfram við Svartsengi og sé nú á svipað statt og það var fyrir 18. desember þegar síðast byrjaði að gjósa. Innlent 28.12.2023 08:35
Þrautseigja Grindvíkinga Föstudagskvöldið 10. nóvember var heilt bæjarfélag rýmt í skyndi eftir stanslausa skjálftahrinu. Eldgosið á Reykjanesskaga varði sögulega stutt og íbúar Grindavíkur vita lítið sem ekkert um framhaldið. Innlent 28.12.2023 07:00
Vilja betra eftirlit með komum til Grindavíkur Enn eru miklar líkur á eldgosi. Kvikusöfnun og landris heldur áfram. Nýtt hættumatskort verður birt á föstudag sem ákvarðar fyrirkomulag í Grindavík. Íbúar vilja meira eftirlit og vöktun. Innlent 27.12.2023 21:30
Enn kröftugt landris við Svartsengi Enn mælist landris við Svartsengi og er enn metin töluverð hætta við Grindavík. Innlent 27.12.2023 12:00
Breytir ekki fyrirkomulagi við lokunarpósta þrátt fyrir þjófnað Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ætlar ekki að breyta verklagi við lokunarpósta inn í Grindavík þrátt fyrir þjófnað um jólin. Bærinn er opinn fyrir íbúa og verður fyrirkomulagið endurmetið á föstudag. Innlent 27.12.2023 11:59
Grindvíkingar geta áfram verið í Grindavík Íbúum Grindavíkur er áfram heimilt að fara til Grindavíkur og dvelja heima hjá sér miðað við uppfært hættumatskort Veðurstofu Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Innlent 27.12.2023 11:12
Altjón við Víkurbraut þar sem boltar renna eftir gólfinu Sigurður Óli Þórleifsson íbúi í Grindavík sýndi fréttamönnum TV2 í Noregi stöðuna á húsinu sínu við Víkurbraut í Grindavík á dögunum. Gólfið hallar svo mikið að boltar rúlla eftir því. Um er að ræða altjón samkvæmt Náttúruhamfaratryggingum Íslands. Innlent 27.12.2023 08:10
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti