
Mið-Austurlönd

Talið að Bandaríkjamenn muni kalla þúsundir hermanna frá Afganistan
Þetta herma heimildir Reuters fréttastofunnar.

Mattis hættir sem varnarmálaráðherra
Samband hans og Trump hefur þó beðið hnekki að undanförnu og var hann verulega andsnúinn ákvörðun Trump að draga hermenn Bandaríkjanna í skyndi frá Sýrlandi.

Sýrlenskir Kúrdar líta til Frakklands
Frakkland er meðlimur í bandalagi Bandaríkjanna gegn ISIS og er með sérsveitarmenn í norðurhluta Sýrlands þar sem þeir berjast með sýrlenskum Kúrdum og öðrum meðlimum samtakanna Syrian Democratic Forces gegn ISIS-liðum.

Telja að ákvörðun Trump muni efla ISIS
Forsvarsmenn samtaka Kúrda sem barist hafa gegn hryðjuverkasamtökunum ISIS í Sýrlandi telja að ákvörðun Donald Trump Bandaríkjaforseta, um að kalla alla hermenn Bandaríkjanna frá Sýrlandi heim, muni leiða til tómarúms sem geri það að verkum að ISIS geti safnað fyrri kröftum.

„Ef Obama hefði gert þetta, værum við allir brjálaðir“
Ákvörðun Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, að kalla alla hermenn Bandaríkjanna frá Sýrlandi heim, kom mörgum á óvart. Þar á meðal þingmönnum, embættismönnum og bandamönnum Bandaríkjanna.

Sagðir hafa drepið sjö hundruð fanga
Liðsmenn hryðjuverkasamtakanna ISIS hafa drepið fjölda fanga á síðustu tveimur mánuðum í austurhluta Sýrlands.

Sádar fordæma ályktun öldungadeildarinnar
Yfirvöld í Sádi-Arabíu hafa fordæmt ályktun öldungadeildar Bandaríkjaþings frá því í liðinni viku þar sem lagt er til að Bandaríkjamenn hætti stuðningi sínum við stríðið í Jemen.

Palestínumaður talinn hyggja á hryðjuverk
Dómstóll í Gautaborg úrskurðaði í gær lýðháskólanema á þrítugsaldri í gæsluvarðhald vegna gruns um að hafa undirbúið hryðjuverk í samráði við aðra.

Ástralir munu viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísrael
Ástralir munu brátt bætast í þann hóp ríkja sem viðurkenna stöðu Jerúsalem sem höfuðborg Ísrael.

„Ég veit hvernig á að skera“
Þetta sagði Recep Tayyip Erdogan, Tyrklandsforseti, í dag en tyrknesk yfirvöld hafa deilt hljóðupptökunni með yfirvöldum í Bandaríkjunum og Evrópu.

Sömdu um vopnahlé í Jemen
Stríðandi fylkingar hafa komist að samkomulagi um vopnahlé í jemensku hafnarborginni Hudaydah.

Önnur skotárásin á skömmum tíma í Ísrael
Tveir Ísraelar hafa verið skotnir til bana og nokkrir særðir, þar af einhverjir alvarlega, á Vesturbakkanum í Ísrael.

Erdogan hyggur á frekari árásir á Kúrda
Vísbendingar eru um að Tyrkir hafi verið að færa hergögn og menn að landamærum sýrlenskra Kúrda sem starfa undir regnhlífarsamtökum Syrian Democratic Forces og með stuðningi Bandaríkjanna.

Telur að gerð verði uppreisn verði hann kærður fyrir embættisbrot
"Það er erfitt að kæra einhvern fyrir embættisbrot sem hefur ekki gert neitt rangt af sér og hefur búið til besta efnahag í sögu ríkis okkar.“

Khashoggi og fleiri myrtir og fangelsaðir blaðamenn manneskjur ársins hjá Time
Tímaritið Time heiðrar blaðamenn sem sætt hafa kúgun í vali sínu á manneskju ársins 2018.

"Ég get ekki andað“
Jamal Khashoggi var myrtur þann 2. október síðastliðinn.

Sádar ætla ekki að framselja þá sem myrtu Khashoggi
Adel al-Jubei, utanríkisráðherra Sádí-Arabíu hefur útilokað að mennirnir sem grunaðir eru um morðið á Jamal Khashoggi verði framseldir til Tyrklands.

Bandaríkin, Rússland og Sádi-Arabía sameinuðust gegn loftslagsskýrslu
Fjögur ríki komu í veg fyrir að loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna samþykkti ályktun þar sem birtingu skýrslu um áhrif 1,5°C hlýnunar var fagnað.

Fjölskylda týndu prinsessunnar áréttar að hún sé "heil á húfi“
Engar sannanir þess efnis hafa þó verið birtar en prinsessan reyndi að flýja frá fjölskyldu sinni fyrr á þessu ári.

Týnda prinsessan af Dúbaí hafði skipulagt flótta í sjö ár
Ný heimildarmynd varpar ljósi á flóttatilraun prinsessunnar sem ekkert hefur spurst til síðan í mars á þessu ári.

Forstjóri CIA kemur fyrir Bandaríkjaþing vegna morðsins á Khashoggi
Gina Haspel, forstjóri bandarísku leyniþjónustunnar CIA, mun í dag koma fyrir Bandaríkjaþing og gefa skýrslu um morðið á sádi-arabíska blaðamanninum Jamal Khashoggi.

Uppfylla skilyrði friðarviðræðna
Hernaðarbandalagið sem Sádi-Arabar leiða í styrjöldinni gegn Hútum í Jemen samþykkti í gær að særðir hermenn Húta fengju að yfirgefa landið til þess að leita læknisaðstoðar.

Katar segir sig úr samtökum olíuframleiðsluríkja
Stjórnvöld í Katar tilkynntu í gær um að þau hygðust segja sig úr OPEC, samtökum olíuframleiðsluríkja, í janúar næstkomandi.

Sex dæmdir til dauða á Gasaströndinni
Herdómstóll á Gasaströndinni hefur dæmt sex manns til dauða fyrir að hafa starfað með Ísraelum.

Trú CIA á aðild sádiarabíska krónprinsins styrkist
Leyniþjónustan veit að krónprinsinn skiptust ítrekað á skilaboðum um það leyti sem hópur morðingja kom á ræðisskrifstofuna þar sem Jamal Khashoggi var myrtur.

Háttsettur Talibani felldur í loftárás
Mullah Abdul Manan Akhund, einn æðsti meðlimur Talibana í Afganistan, var felldur í loftárás Bandaríkjanna í gær.

Gefið að sök að hafa mútað blaðamönnum til að fjalla um sig í jákvæðu ljósi
Lögregluyfirvöld í Ísrael fara fram á að forsætisráðherrahjónin Benjamin og Sara Netanyahu verði ákærð fyrir spillingu.

Birti svör við „gildishlöðnum“ spurningum eftir að hann afþakkaði boð til Ísrael
Tónlistar- og athafnamaðurinn Margeir Steinar Ingólfsson, betur þekktur undir nafninu DJ Margeir, fann sig knúinn til að birta svör sín við spurningum ísraelsks blaðamanns á Facebook eftir að hann hafnaði boði um að spila á tónlistarhátíð í Ísrael.

Doktorsnemi sem dæmdur var í lífstíðarfangelsi náðaður
Breskur doktorsnemi sem var í liðinni viku dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir njósnir í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hefur verið náðaður.

Tugir fórust í sjálfsmorðsárás
Að minnsta kosti 26 fórust og 50 særðust þegar sjálfsmorðsárásarmaður sprengdi sig í loft upp í mosku á herstöð í Khost-fylki Afganistans í gær.