Stangveiði

Velheppnuð tilraunaveiði vekur vonir um lengingu tímabils
Nýleg tilraun með vorveiði í Svarfaðardalsá glæðir vonir stangveiðimanna um að gerlegt sé að lengja veiðitímabilið í Eyjafirði.



Grenlækur IV opnaði með 196 fiskum
Hollið sem opnaði svæði fjögur í Grenlæk á föstudag í síðustu viku tók veiðina með trompi og landaði samtals 196 fiskum. Þetta kemur fram á vef Stangaveiðifélags Keflavíkur sem selur leyfi í Grenlæk.

Teljarinn kominn upp í Elliðaánum
Jóhannes Sturlaugsson frá Laxfiskum kom teljaranum fyrir í Elliðaánum í gær. Að því er kemur fram á vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur er tilgangurinn með teljaranum margþættur.

Fær ekki að útbúa veiðitjörn í fólkvangi
Ekki fæst leyfi fyrir því að sleppa regnbogasilungi í Stórhólatjörn í Dalvíkurbyggð og selja íbúum í sveitarfélaginu veiðileyfi þar.

Tveir erlendir kastsnillingar með námskeið
Daninn Klaus Frimor og Englendingurinn Mark Surtees verða með kastnámskeið í sumar.

Mýveisla hjá silungnum í Elliðavatni
Veiðimenn við Elliðavatn hafa tekið eftir því undanfarið að mikið er af rykmýi við vatnið eins og sjá má á myndunum sem fylgja þessari frétt.


Gott síðdegi á urriðaslóð
Vorveiðin á urriða í efsta hluta Elliðaánna mun hafa verið undir meðallagi það sem af er vertíðinni sem stendur yfir í maí. Síðdegis síðastliðinn föstudag stóð tíðindamaður Veiðivísis þar á bakkanum ásamt öðrum og tók fyrstu fluguköst sumarsins.

Þúsund lítra olíutankur á botni Mývatns
Þúsund lítra olíutankur liggur í Ytriflóa Mývatns. Þetta kemur fram í verndaráætlun Mývatns og Laxár. Akureyri Vikublað greinir frá þessu.

SVFR áfram með Norðurá
Stangveiðifélag Reykjavíkur (SVFR) verður áfram með Norðurá í Borgarfirði á leigu.

Helgarviðtal: Hljóp klofið úr vöðlunum á bökkum Öxnadalsár
Björgólfur Hávarðsson er hámenntaður fiskeldisfræðingur sem frá barnsaldri hefur haft mikinn áhuga á veiði. Hann er alinn upp á Stöðvarfirði en hefur búið Noregi mörg ár. Hann starfar hjá fyrirtækinu Ocea AS í Bergen. Veiðivísir sló á þráðinn til Björgólfs.

Átta milljarðar til verndar laxastofnum
Orri Vigfússon, formaður Verndarsjóðs villtra laxastofna (NASF), hefur sett sér það takmark að semja við alla sem eiga rétt til netaveiða á laxi við Norður-Atlantshaf.

Kynning á veiðistöngum við Vífilsstaðavatn
Kynning á Vision fluguveiðistöngum verður við Vífilsstaðavatn í dag á milli klukkan 13 og 16. Veiðimenn geta fengið að prófa að kasta.

60% af stórlaxinum var sleppt síðasta sumar
Hér á landi er um það bil 40 prósent af laxi sleppt aftur út í á. Í Rússlandi er þetta hlutfall 80 til 85 prósent. Norðmenn sleppa helst ekki laxi.

Stórurriðar á sveimi úti um alla á
Tæplega 30 urriðar eru komnir á land í Minnivallalæk það sem af er vori. Algeng stærð er á bilinu 5 til 9 pund.

Urriðaflugan sem gleymdist
Stórar straumflugur hafa verið að gefa vel í urriðaveiðinni í vor og ekki síst draugarnir Black Ghost og Gray Ghost í stærri númerum.

Spáð í veiðisumarið: Bleikjan dalar en urriðinn ekki
Bleikjuveiði hefur dalað mikið og helst það í hendur við hlýnun vatns. Urriðinn tekur breytingunum fagnandi.

Spáð í veiðisumarið: Laxveiðin lítur vel út
Það er útlit fyrir laxveiðisumar í góðu meðallagi að mati Guðna Guðbergssonar, fiskifræðings hjá Veiðimálastofnun.

Tvíburar á stórlaxaveiðum í sjónvarpinu
Fyrir síðustu jól var rýnt í myndina um Leitina að stórlaxinum í Fréttablaðinu. Í tilefni þess að upp úr myndinni hefur nú verð unnin sjónvarpsþáttaröð sem hefst í kvöld á RÚV birtir Veiðivísir þessa gagnrýni úr Fréttablaðinu.

Sjóbleikjan komin í Breiðdalsá
Fyrir nokkrum dögum veiddust fyrstu sjóbleikjurnar á silungasvæði Breiðdalsár. Þetta kemur fram á heimasíðu Strengja.

Ótæmandi fjársjóðskista fyrir veiðimenn
Veiðimálastofnun hefur opnað dyrnar að ótæmandi fjársjóðskistu fyrir veiðimenn. Alls eru nú 1.750 skýrslur aðgengilegar á heimasíðu stofnunarinnar. Þær elstu frá miðri síðustu öld.



20 punda urriði á Þingvöllum
Mikal Wajitas, sem kom til landsins gagngert til að veiða urriða í Þingvallavatni, landaði einum 20 punda um helgina. Sagt er frá þessu á vef Veiðikortsins.

Fyrirmyndar leiðsögn um Hörgá
Veiðileyfi í Hörgá komu í sölu hjá Stangaveiðifélagi Akureyrar fyrir skemmstu. Á vef félagsins er að finna framúrskarandi góðar upplýsingar í máli og myndum um þetta spennandi veiðisvæði.

Allt um veiðihnúta
Stangaveiðimenn þurfa nauðsynlega að kunna nokkra veiðihnúta. Í raun er fásinna að halda til veiði án þess að búa yfir grunnþekkingu á því hvernig festa eigi taum og línu og flugu eða spún á taum eða girni. Ómögulegt er að þurfa að treysta á veiðifélagana ef fluga slitnar af taum nú eða taumur af línu.

Tíu urriðar á dag í Elliðaánum
Veiðst hafa um það bil tíu urriðar að meðaltali á dag á tvær stangir í Elliðaánum síðan veiði hófst.

Grátlegt að mega ekki nota fjaðrir fálka og arna
Pétur Steingrímsson í Laxárnesi í Aðaldal er fluguhnýtari af guðs náð. Hann liggur ekki á skoðunum sínum.