
Borgarstjórn

Afstaða borgarstjóra „blaut tuska í andlit margra“
Oddviti Flokks fólksins í borginni kveðst sleginn yfir ummælum borgarstjóra um stöðu fólks sem býr í hjólhýsum í borginni. Fólkið hafi fengið fyrirheit um úrlausn sinna mála, sem nú virðist úr sögunni.

Bendir íbúum á tjaldsvæði í grennd við borgina
„Ég hef ekki verið hlynntur þessari þróun að Reykjavíkurborg búi til hjólhýsagarð sem sérstakt húsnæðisúrræði. Aðal atriðið er það að byggja nóg til þess að allir geti fundið þak yfir höfuðið og mæta sérstaklega lágtekjuhópum með sérstökum úrræðum og það erum við að gera.“

Hjólhýsabúum „gert að búa á sorphaug“
Oddviti Flokks Fólksins í borgarstjórn segir hjólhýsabúa Reykjavíkur búa við mannskemmandi umhverfi. Hún segir fólkinu gert að búa á hreinum sorphaug við Sævarhöfða. Svæðið við Sævarhöfða hafi átt að vera til bráðabirgðar, en enn í dag búi þar á annan tug manns við ömurlegar aðstæður.

Gert að búa á sorphaug við Sævarhöfða
Ég fór í morgun og heimsótti hjólabúa við Sævarhöfða og brá illa við. Þessu fólki er gert að búa á hreinum sorphaug. Af hverju er ekki hægt að finna reit fyrir hjólabúa í borgarlandinu sem er mannsæmandi og nálægt helstu grunnþjónustu?

Ártúnshöfði gengur í endurnýjun lífdaga
Ártúnshöfði gengur í endurnýjun lífdaga. Áætlað er að í þessu nýja borgarhverfi rísi allt að átta þúsund íbúðir og að þar geti búið allt að tuttugu þúsund borgarbúar.

Kveikjum áhugann – Kveikjum neistann
Flokkur fólksins í borgarstjórn hefur margsinnis lagt til við meirihlutann í Reykjavík og skólayfirvöld að taka inn þróunarverkefnið Kveikjum neistann þó ekki væri nema í tilraunaskyni en tillögum í þá átt hafa ávallt verið vísað á bug.

Stærðarinnar skilti sem ekkert má sýna
Framkvæmdastjóri Ormsson segir dapurlegt að deilur við Reykjavíkurborg um auglýsingaskilti félagsins þurfi að fara fyrir dómstóla.

Grafarvogsbúar þurfi ekki að óttast blokkir
Borgarstjóri segir áhyggjur íbúa Grafavogs af fyrirhugaðri uppbyggingu í hverfinu óþarfar. Enginn sé að fá margra hæða blokk í bakgarðinn hjá sér.

Parísarhjólið varla óvinsælt ef sextíu þúsund vilja taka snúning
Borgarstjóri hefur ekki áhyggjur af því sem kallaður hefur verið lítill áhugi landsmanna á parísarhjólinu við Miðbakka í Reykjavík. Fimmtán prósent þjóðarinnar reiknar með að fara hring í hjólinu í sumar.

Gamla fólkið þarf að greiða fyrir sundferðina
Samkvæmt tillögu menningar,- íþrótta- og tómstundaráðs, sem samþykkt var í morgun og tekin verður fyrir í borgarráði, munu sundgestir sem náð hafa 67 ára aldri greiða stakt gjald fullorðinna og gjaldflokkurinn „eldri borgarar“ verður tekinn úr gjaldskránni. Stakt gjald fullorðinna í sundlaugar Reykjavíkurborgar er 1.330 krónur. Breytingin tekur gildi frá og með 1. ágúst.

Hart tekist á um öldungaráð borgarinnar
Óvænt tillaga leit dagsins ljós í öldungaráði Reykjavíkurborgar þess efnis að Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrennis fengi aðeins einn fulltrúa í sjö manna öldungaráði borgarinnar í stað þriggja eins og verið hefur.

Fjölga leikskólaplássum í miðbænum
Samþykkt var á í borgarráði í dag að fjölga leikskólaplássum í leikskólanum Miðborg í miðbæ Reykjavíkur um 75. Rekstarleyfi leikskólans Miðborgar hefur verið fært upp 161 barn en sem stendur eru þar 86 börn með pláss.

Sanna stefnir á þing
Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, hyggst bjóða sig fram til þings fyrir hönd flokksins hljóti hún stuðning félaga sinna.

Þétting byggðar í úthverfum sé jákvæð borgarþróun
Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata og formaður umhverfis- og skipulagsráðs, segir að áform borgarinnar um nýtingu lóða í helstu úthverfum borgarinnar sé frábært mál sem allir standi saman að.

Borgin kynnir þéttingu byggðar í úthverfum
Borgarstjóri kynnti í dag áform um nýtingu lóða í helstu úthverfum borgarinnar til að auka lóðaframboð til smærri verkefna. Fullbúnum íbúðum í borginni hefur fækkað á undanförnum árum. Borgarstjóri segir að með þessum áherslum verði aukin fjölbreytni og kraftur settur í húnsæðisuppbygginguna.

Bein útsending: Borgarstjóri kynnir átak í húsnæðimálum og úthverfum Reykjavíkur
Einar Þorsteinsson borgarstjóri býður til blaðamannafundar í dag þar sem hann mun fara yfir nýjar áherslur í húsnæðisuppbyggingu í Reykjavík, kynna hugmyndir um styrkingu úthverfa og fara yfir stöðuna í húsnæðisátaki borgarinnar til að auka framboð íbúða.

Hjólabrautin búin að liggja eins og hráviði í tvær vikur
Hjólabrautin sem var áður á Miðbakka í Reykjavík liggur nú á víð og dreif á malarplani á Klambratúni. Hún var fjarlægð fyrir um tveimur vikum þegar að parísarhjólið var sett upp á höfninni.

Borgin sendi ömurleg skilaboð út í samfélagið
Rithöfundurinn Sverrir Norland segir skammarlegt að starfsemi bókasafna Reykjavíkur verði ekki haldið úti í allt sumar vegna hagræðingarkröfu borgarinnar. Söfnin verða lokuð á víxl í sumar, hvert í þrjár vikur í senn, sparnaðarskyni. Sverrir telur það senda ömurleg skilaboð út í samfélagið, sér í lagi þegar íslenskt efni fyrir börn verður undir í samkeppni við efni á öðrum tungumálum.

„Þetta er ekki það sem ég kalla að vinna frítt“
„Þetta er ótrúleg fullyrðing. Það er svo margt í þessari stuttu færslu sem maður gæti gert athugasemdir við. Ég gæti í allan dag nefnt dæmi um það hvernig borgin hefur orðið fyrir miklu fjárhagslegu tjóni með því að hafa Dag í stóli borgarstjóra. Ég held að borgarbúar hefðu farið betur úr því að fá nýjan borgarstjóra og greiða biðlaun.“

Er aðeins á biðlaunum og hnýtir í Hildi og Morgunblaðið
Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur, verður á biðlaunum borgarstjóra í sex mánuði eftir að hann lét af störfum í byrjun árs. Hann mun ekki þiggja laun sem formaður borgarráðs á tímabilinu.

Vonsvikin vegna 25 milljóna kostnaðar við borgarstjóraskiptin
Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur lýst yfir vonbrigðum vegna frétta af 25 milljóna króna kostnaði við starfslok Dags B Eggertssonar, fyrrverandi borgarstjóra.

Kvosin verður að heildstæðu göngusvæði í allt sumar
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi sínum í dag að gera Austurstræti, Veltusund og hluta Vallarstrætis að göngugötu í allt sumar, eða fram til 1. október næstkomandi.

Blómsveigur lagður að leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, forseti borgarstjórnar, leggur blómsveig frá Reykvíkingum að leiði baráttukonunnar Bríetar Bjarnhéðinsdóttur í tilefni kvenréttindadagsins í dag, miðvikudaginn 19. júní.

Borgarstjóri fór fyrstu ferð í nýju parísarhjóli
Borgarstjóri fór jómfrúarferð Parísarhjólsins ásamt fréttamanni Stöðvar 2 í dag klukkan þrjú. Parísarhjólið. Einar segir að um tilraunaverkefni sé að ræða í sumar.

Parísarhjól sprettur upp við höfnina
Verið er að leggja lokahönd á byggingu parísarhjóls á Miðbakka í Reykjavíkurhöfn. Samkvæmt heimildum Vísis á byggingarvinnu að ljúka í dag og fyrsta ferðin farin á morgun, á lýðveldisdaginn.

Ekkert breyst til batnaðar í rekstri borgarinnar
Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir alveg ljóst að nýjum borgarstjóra fylgi ekki bættur rekstur. Fyrstu þrjá mánuði ársins hafi borgin skilað neikvæðri niðurstöðu sem nemur nær 3,3 milljörðum króna.

„Breyttum borgarkerfinu úr valdakerfi í þjónustustofnun“
Um þessar mundir eru þrjátíu ár frá því Reykjavíkurlistinn bauð fyrst fram og vann sögulegan sigur á Sjálfstæðisflokknum árið 1994. Margir sem komu að stofnun framboðsins komu saman til fagnaðar og málþings til að minnast þessa í Ráðhúsinu í dag.

Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni
Rekstrarniðurstaða A-hluta Reykjavíkurborgar var neikvæð um 3.292 milljónir króna á þremur fyrstu mánuðum ársins. Það er 1.357 milljónum króna lakari niðurstaða en gert var ráð fyrir. Meðal þess sem skýrir lakari afkomu er vetrarþjónusta borgarinnar, sem fór 782 milljónir króna umfram fjárheimildir.

Tekist á um safnskóla í Laugardal: Áformin „vanvirðing og eiginlega valdníðsla“
Heitt var í hamsi í ráðhúsinu í dag þegar umræða um framtíðarskipulag skóla í Laugardal á Borgarstjórnarfundi. Umræður tóku á fjórða tíma og borgarfulltrúar minni hlutans sökuðu meiri hluta meðal annars um svik og valdníðslu.

Borgin undirbýr sölu Perlunnar, rafstöðvar og bílastæða
Söluferli á Perlunni, rafstöðvarhúsi í Elliðaárdal og bílastæðum undir Hörpu var samþykkt á fundi borgarráðs í dag. Lágmarksverð fyrir Perluna verður þrír og hálfur milljarður króna en væntanlegur kaupandi þarf að opna dyr sínar fyrir grunnskólanemum.