
Landsdómur

Aðalmeðferð í Landsdómsmálinu hefst á morgun
Aðalmeðferð í Landsdómsmálinu hefst á morgun. Hæstaréttarlögmaður segir þá ákæruliði sem eftir standa í málinu hæpna og óskýra. Hann segir að Geir Haarde og fyrrverandi ríkisstjórn hafi tekist að afstýra miklu tjóni fyrir íslenska þjóð með neyðarlögunum. Ef sakfella eigi Geir fyrir aðgerðaleysi verði að benda á nákvæmar aðgerðir sem hann átti að stuðla að í aðdraganda hrunsins og hvaða þýðingu þær hefðu haft.

Geir fyrstur í vitnastúku á mánudag
Aðalmeðferð í Landsdómsmálinu hefst á mánudag. Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og sakborningur, verður fyrstur í vitnastúku í málinu á mánudag. Samkvæmt áætlun á Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra í aðdraganda hrunsins, einnig að bera vitni þann dag.

Byrjað á hrunráðherrum
Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og sakborningur, verður fyrstur í vitnastúku í landsdómsmálinu á mánudag. Samkvæmt áætlun á Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra í aðdraganda hrunsins, einnig að bera vitni á mánudag. Það fer þó eftir því hvort hún nái til landsins í tæka tíð, en Ingibjörg Sólrún starfar sem yfirmaður UN Women í Kabúl, höfuðborg Afganistans.

Deilt um ákæru gegn Geir
Alþingi hófst klukkan þrjú en um klukkan hálffjögur hefst síðari umræða um tillögu Bjarna Benediktssonar um afturköllun á ákæru á hendur Geirs H. Haade, fyrrverandi forsætisráðherra. Stefnt er á að atkvæði verði greidd um málið á morgun.

Saksóknari Alþingis svarar fyrrverandi ríkissaksóknara
Ríkissaksóknari og saksóknari Alþingis, Sigríður J. Friðjónsdóttir, svarar grein Valtýs Sigurðssonar, fyrrverandi ríkissaksóknara, sem birtist í Fréttablaðinu og á Vísir í dag. Í grein sinni heldur Valtýr því fram að Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hafi verið beittur órétti í atkvæðagreiðslu Alþingis þegar samþykkt var að draga hann fyrir Landsdóm. Þá segir hann ríkissaksóknara einnig æðsta handhafa ákæruvalds lögum samkvæmt. Hann hefur boðvald yfir öðrum ákærendum og eftirlit með þeim.

Vilja landsdómsfrumvarp Bjarna Ben burt
Flokksráðsfundur Vinstri grænna, sem hófst í gær og lauk í morgun, lýsir yfir andstöðu við þingsályktunartillögu Bjarna Benediktssonar um að Alþingi grípi inn í starf landsdóms og hvetur fulltrúa sína á þingi að berjast gegn framgangi hennar. Þá felur fundurinn Steingrími J. Sigfússyni, ráðherra bankamála, að flytja frumvarp til laga um aðskilnað starfsemi frjárfestingarbanka og viðskiptabanka. Í tilkynningu segir einnig að fundurinn álykti að hætt verði að úthluta byggðakvóta endurgjaldslaust. Sett verði á sanngjarnt arðgjald sem renni til þeirra sveitarfélaga sem byggðakvóta er úthlutað til.

Tæplega 44 prósent vilja falla frá ákæru
Þjóðin er klofin í tvær jafnar fylkingar í afstöðu sinni til þess hvort Alþingi eigi að draga til baka ákæru á hendur Geir H. Haarde fyrir Landsdómi, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2.

Þjóðin klofin í afstöðu sinni til Landsdómsmálsins
Þjóðin virðist klofin í afstöðu sinni til þess hvort draga eigi til baka ákæru á hendur Geir H Haarde fyrir Landsdómi, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins. Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn eru einu sem vilja afgerandi falla frá ákærunni.

Gefa skýrslu um fundinn fræga 7. febrúar nái Landsdómsmál fram að ganga
Verði ákæra á hendur Geir H. Haarde ekki felld niður fær þjóðin í fyrsta sinn frásögn fyrir dómi um hvaða upplýsingum bankastjórn Seðlabankans kom á framfæri við þrjá ráðherra í ríkisstjórninni um alvarlega stöðu íslensku bankanna sjöunda febrúar 2008. Fimmtíu og sex eru á vitnalista ákæruvaldsins í málinu en þar má finna ráðherra, bankastjóra og embættismenn.

Fjórir af sex liðum standa enn þá eftir
Mál á hendur Geir H. Haarde, fyrrum forsætisráðherra, hefur verið mikið í umræðunni. Tillaga Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að draga ákæruna á hendur honum til baka hefur valdið titringi innan þingsins og skipt stjórnarliðum í tvo hópa. Mikið hefur verið rætt um að tillagan sé ekki pólitísk en engum blöðum er um það að fletta að hún hefur haft pólitískar afleiðingar. Fréttablaðið beinir nú sjónum að ákærunni sjálfri og rifjar upp fyrir hvað Geir er ákærður. Líkt og áður segir standa fjórir liðir ákærunnar eftir.

Sýkna án dóms og laga
Eitt sinn gekk ég tímabundið úr trúfélagi í kjölfar þess að helstu leiðtogar þess ákváðu að sýkna æðsta prestinn án dóms og laga. Ég vil hvorki ganga úr þjóðfélaginu né get það en vil birta þessa ádrepu eftir samþykkt Alþingis á 3ja ára afmæli búsáhaldabyltingarinnar sl. föstudag, 20. janúar, um að leyfa efnisumfjöllun um hvort falla eigi frá málshöfðun á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, fyrir Landsdómi.

Engin efnisleg rök fyrir afturköllun
Sigríður Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis, segir engar forsendur hafa breyst í málinu gegn Geir H. Haarde sem styðji afturköllun ákæru á hendur honum. Það sé hins vegar Alþingis að taka þá ákvörðun og ef það, sem ákæruaðili, hafi skipt um skoðun í málinu, hafi vissulega orðið veigamikil breyting.

Um áhyggjur af mannréttindum Geirs H. Haarde
Nú liggur fyrir Alþingi þingsályktunartillaga þess efnis að afturkalla ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. Bjarni Benediktsson, flutningsmaður tillögunnar, hefur lýst því yfir að hún sé ekki síst til komin vegna umhyggju hans fyrir mannréttindum. Þó að málið sé mikið rætt og um það skrifað þykir mér hafa skort umfjöllun um úrskurð Landsdóms frá 3. október 2011, um kröfu ákærða um frávísun málsins. Ríkt tilefni er þó til að kynna sér úrskurðinn því þar reyndi einmitt fyrst og fremst á það hvort mannréttindi ákærða væru nægilega tryggð. Hér verður tæpt á þeim málsástæðum sem á reyndi og úrlausn Landsdóms þar að lútandi en nálgast má úrskurðinn í heild sinni og aðrar upplýsingar um málið á www.sakal.is.

Pólitísk réttarhöld
Atburðir undanfarinna daga hafa afhjúpað það endanlega, hafi verið vafi í huga nokkurs manns, að málshöfðunin gegn Geir H. Haarde fyrir Landsdómi er pólitísk réttarhöld.

Ég gæti ekki verið með í þeim flokki
Það var svolítið dapurlegt að "verða fyrir" niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar um að vísa frá tillögu Bjarna Benediktssonar um afturköllun ákærunnar á hendur Geir H. Haarde. Satt að segja fannst mér að í augum uppi lægi að vísa tillögunni frá; málið komið úr höndum Alþingis í hendur Landsdóms og hefur þar sinn gang. Ég var með sjálfum mér sannfærður um að tillagan yrði samþykkt og að mínir menn, þingmenn Samfylkingarinnar, myndu tryggja það. Fannst auk þess að það ætti að vera betra fyrir fyrrum forsætisráðherra að klára málið fyrir Landsdómi, í stað þess að hafa það hangandi yfir sér það sem eftir lifir.

Ungliðar lýsa vantrausti á Ástu
Ungir jafnaðarmenn lýsa vantrausti á Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, í ályktun sem þeir sendu fjölmiðlum í kvöld. Ástæðan er sú að hún, ásamt nokkrum öðrum þingmönnum Samfylkingarinnar, vilja að tillage Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að leggja niður málshöfðun gegn Geir Haarde fyrir Landsdómi fái efnislega umfjöllun á Alþingi.

Leitar stuðnings við vantraust á Ástu Ragnheiði
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, er farin af stað með undirskriftarsöfnun til þess að safna stuðningi við vantrauststillögu á hendur Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis.

Össur segir fráleitt að Geirsmálið sprengi stjórnarsamstarfið
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir fráleitt að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar í gær á Alþingi muni hafa áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið. Atkvæðin féllu, eins og greint hefur verið frá, þannig að Alþingi ákvað að efnisleg umræða skyldi fara fram um tillögu Bjarna Benediktssonar um að draga málshöfðun gegn Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, til baka.

Frávísun felld eftir langar umræður
Þingmenn ræddu tillögu um afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde fram á kvöld í gær. Lagt var til að henni yrði vísað frá og niðurstaða lá ekki ljós fyrr en í gærkvöldi. Frávísunartillagan var felld með 31 atkvæði gegn 29. Tekist var á um lagatúlkanir og hvort ný efnisleg rök hefðu komið fram.

Leggja fram frávísunartillögu
Þingmenn allra flokka að Sjálfstæðisflokki undanskildum hafa nú lagt fram tillögu til rökstuddrar dagskrár þar sem lagt er til að Alþingi samþykki að vísa frá tillögu Bjarna Benediktssonar um að afturkalla málshöfðun á hendur Geir Haarde fyrrverandi forsætisráðherra.

Afturköllun málshöfðunar rædd á þingi
Tillaga Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins þess efnis að Alþingi afturkalli málshöfðun á hendur Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra fyrir Landsdómi verður tekin til fyrri umræðu í dag. Þingfundur hefst klukkan hálfellefu og er þetta eina málið á dagskrá. Hér á Vísi getur þú fylgst með í beinni.

Enn er óvissa um lögmæti tillögunnar
Frávísunartillaga kemur fram í dag vegna tillögu Bjarna Benediktssonar um afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde. Margir þingmenn telja að verði málinu ekki vísað frá þurfi þingnefnd að ganga í störf Landsdóms. Skýrt kemur fram í skýringum með lögum um Landsdóm að með ákæru sé málið úr höndum Alþingis.

Gögnin um Geir gætu endað í skjalageymslu
Allt bendir til þess að málsgögn saksóknara Alþingis komi ekki fyrir sjónir almennings í langan tíma, fari svo að landsdómsmálið verði fellt niður. Alþingi hefur því í hendi sér hvort uppgjör stjórnmálanna við hrunið fer fram eður ei.

Réttlætismál
Alþingi greiðir væntanlega atkvæði í dag um tillögu Bjarna Benediktssonar um að þingið afturkalli málshöfðun á hendur Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra fyrir Landsdómi.

Geir H. Haarde vill endurheimta æru sína
"Ég er að verða þekktur af vitlausum ástæðum,“ segir Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, í viðtali við bandaríska stórblaðið Washington Post, þar sem fjallað erum dómsmál gegn honum sem er rekið fyrir Landsdómi.

Unnið að frávísunartillögu
Þingflokkar funduðu í gær um tillögu Bjarna Benediktssonar um að draga ákæru á hendur Geir H. Haarde til baka. Tillagan verður til umræðu á morgun og hefur hún valdið miklum titringi innan stjórnarflokkanna.

Mistök á að leiðrétta
Í fréttaskýringu í Fréttablaðinu síðastliðinn föstudag segir eftirfarandi um fyrirsjáanleg átök á Alþingi um að fallið verði frá málshöfðun á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra: "Þar munu mætast stálin stinn og báðar fylkingar virðast nokkuð sigurvissar. Hvernig það mál fer verður ákveðinn mælikvarði á styrk stjórnarinnar.“

Mörður ósammála Ögmundi
Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, segist vera ósammála því að afturkalla ákæruna á hendur Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. Hann segist vera hissa á því að ráðherra dómsmála vilji stöðva réttarhald í miðjum klíðum. Ögmundur lýsti því í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag að hann hygðist styðja þingsályktunartillögu Bjarna Benediktssonar um að leggja málið gegn Geir Haarde niður.

VG í Reykjavík skorar á þingmenn að vera samkvæmir sjálfum sér
Stjórn Vinstihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík hvetur þingmenn flokksins að vera samkvæmir sjálfum sér og greiða atkvæði gegn þingsályktunartillögu Sjálfstæðisflokksins þess efnis að máli Geirs H. Haarde verði vísað frá landsdómi. Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, lýsti því yfir í grein í dag að hann ætli sér að greiða atkvæði með tillögunni.

Ögmundur vill losa Geir úr snörunni
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra ætlar að styðja tillögu Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins um að draga til baka ákæru Alþingis á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra fyrir Landsdómi.