Meiðyrðamál Margrétar Friðriksdóttur

Fréttamynd

Margrét fær ekki að leiða dómaratríóið fyrir dóm

Héraðsdómur Reykjaness hefur hafnað kröfu Margrétar McArthur Friðriksdóttur um að fá að leiða dómarana Barböru Björnsdóttur, Símon Sigvaldason og Sigríði Hjaltested fyrir dóminn sem vitni í meiðyrðamáli lögreglunnar á hendur henni. Barbara og Símon höfðu áður gefið vitni en Margrét hélt því fram að Barbara hefði reynt að hafa áhrif á framburð Símonar. Þá vildi hún að Sigríður kæmi fyrir dóminn vegna ásakana Barböru um áralang einelti af hálfu Sigríðar.

Innlent
Fréttamynd

Enn frekari dráttur á máli Margrétar

Mál Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu á hendur Margréti McArthur Friðriksdóttur var ekki endurflutt í dag líkt og til stóð. Þess í stað fór fram málflutningur um kröfu Margrétar um endurteknar vitnaleiðslur í málinu og um að Sigríður Hjaltested héraðsdómari verði leidd fyrir dóminn sem vitni.

Innlent
Fréttamynd

Mál Margrétar flutt á ný vegna dráttar

Mál Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu á hendur Margréti McArthur Friðriksdóttur verður flutt munnlega á ný klukkan 14. Ástæðan er sú að ekki tókst að kveða upp dóm í málinu innan fjögurra vikna frá málflutningi, líkt og kveðið er á um í lögum um meðferð sakamála.

Innlent
Fréttamynd

Málið verði flutt upp á nýtt með nýju vitni

Margrét Friðriksdóttir og verjandi hennar Hilmar Garðar Þorsteinsson hafa krafist þess að mál gegn henni vegna ummæla um héraðsdómara verði endurflutt. Dómsuppkvaðningu hefur ítrekað verið frestað umfram þann tímaramma sem lög gera ráð fyrir.

Innlent
Fréttamynd

„Í mínum huga eru þetta klárar æru­meiðingar“

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður Barböru Björnsdóttur héraðsdómarar í ærumeiðingamáli Margrétar Friðriksdóttur, segist telja ummæli Margrétar klárar ærumeiðingar. Hún kallaði Barböru meðal annars „lausláta mellu“. Þá gagnrýnir hann hversu nærri var gengið Barböru í vitnaleiðslu.

Innlent
Fréttamynd

Barbara sakar Sig­ríði um ein­elti og Valtý um gagnaleka

Barbara Björnsdóttir héraðsdómari segir Sigríði Hjaltested, meðdómara hennar við Héraðsdóm Reykjavíkur, hafa lagt hana í einelti í rúma tvo áratugi. Sigríður hafi ritað Dómstólasýslunni bréf þar sem fullyrt er að þau Símon Sigvaldason, þáverandi dómstjóri, hafi átt í ástarsambandi. Valtýr Sigurðsson, eiginmaður Sigríðar og fyrrverandi ríkissaksóknari, hafi lekið bréfinu til verjanda Margrétar Friðriksdóttur, sem sætir ákæru fyrir meiðyrði í garð Barböru.

Innlent
Fréttamynd

„Laus­lát mella“ hafi verið mildasta lýsingin á dómaranum

Margrét Friðriksdóttir, sem sætir ákæru fyrir meiðyrði í garð Barböru Björnsdóttur héraðsdómara, segir Barböru hafa framið á henni réttarmorð, með því að sakfella hana fyrir hótunarbrot. Hún hafið reiðst vegna þess og því ritað færslu á Facebook, þar sem hún úthúðaði dómaranum. Hún kveðst hafa opnað orðabók í leit að mildasta orðinu til þess að lýsa Barböru. „Viðbjóðslegur dómur og lauslát mella gefur sinn dóm,“ sagði hún meðal annars.

Innlent
Fréttamynd

Mál Margrétar fyrir opnum tjöldum

Aðalmeðferð í máli lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á hendur Margréti Friðriksdóttur, ritstjóra vefsins Frettin.is verður háð fyrir opnum tjöldum í Héraðsdómi Reykjavíkur. Margrét er ákærð fyrir ærumeiðingar í garð dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur sem hafði sakfellt hana fyrir hótanir.

Innlent
Fréttamynd

Dómari fær ekki að víkja í máli Margrétar

Landsréttur hefur fellt úrskurð héraðsdómarans Jónasar Jóhannssonar, um að hann víki sjálfur sæti í ærumeiðingamáli Margrétar Friðriksdóttur ritstjóra, úr gildi. Margrét sætir ákæru fyrir að hafa meðal annars kallað annan héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur „lausláta mellu“. Allir dómarar þess dómstóls höfðu áður vikið sæti í málinu.

Innlent