Bandaríkin

Guðfaðir snjóbrettaíþróttarinnar er látinn
Jake Burton Carpenter, stofnandi Burton Snowboards, er látinn eftir glímu við krabbamein.

Útivistardóms krafist á Løvland í LA
Lögmaður Jóhanns Helgasonar krefst þess nú að kveðinn verði upp útivistardómur yfir höfundum lags og texta You Raise Me Up þar sem þeir hafi í engu sinnt stefnum í málinu um lögin You Raise Me Up og Söknuð.

Sammála um að réttarhöldin renni sitt skeið verði Trump ákærður
Háttsettir embættismenn innan Hvíta hússins og öldungardeildarþingmenn Repúblikana eru sagðir vera sammála um það að verði Donald Trump, forseti Bandaríkjana, formlega ákærður fyrir embættisbrot sé æskilegt að réttarhöldunum sem því fylgja verði leyft fram að ganga.

Bloomberg færist nær forsetaframboði
Milljarðamæringurinn Michael Bloomberg hefur skilað inn tilskyldum gögnum sem þarf til þess að bjóða sig fram í forkosningum demókrata fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum á næsta ári

Segir ásakanir um afskipti Úkraínu skáldskap
Fiona Hill, fyrrverandi sérfræðingur Hvíta hússins varðandi Rússlands, skammaði þingmenn Repúblikanaflokksins í upphafsræðu sinni í vitnaleiðslum vegna rannsóknar fulltrúadeildarinnar á meintum embættisbrotum Donald Trump, forseta Bandaríkjanna.

Eignaði sér heiðurinn af opnun verksmiðju sem hefur verið opin frá 2013
Þetta mun vera í þriðja sinn á þessu ári, sem Trump skoðar gamlar verksmiðjur og eignar sér heiðurinn af því að þær hafi verið opnaðar.

Hefur aldrei barist gegn spillingu í Úkraínu: „Forsetanum er drullusama um Úkraínu“
Bandamenn Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, hafa ítrekað haldið því fram að honum sé annt um að berjast gegn kerfisbundinni spillingu í Úkraínu. Með því að halda aftur af tæplega 400 dollara neyðaraðstoð, sem þingið hafði samþykkt, hafi forsetinn verið að kanna vilja yfirvalda Úkraínu til að berjast gegn spillingu. Markmiðið hafi ekki verið að beita Úkraínumenn þrýstingi.

Sagði Trump líklega spilltasta forseta sögunnar
Alls tóku tíu sem sækjast eftir að verða forsetaframbjóðandi bandarískra Demókrata þátt í kappræðum í Atlanta í nótt.

Skikka Boeing til endurhönnunar eftir að kona sogaðist út úr flugvél og lést
Bandaríska flugslysanefndin, NTSB, hefur lagt það til við flugvélaframleiðandann Boeing að hann ráðist í endurhönnun á tiltekinni tegund 737-flugvéla sinna í kjölfar banaslyss sem varð í fyrra.

Myndefni sýnir lögreglu bjarga átta ára stúlku frá mannræningja
Dómstóll í Texas-ríki í Bandaríkjunum birti í gær myndefni sem sýnir fjölmennt lögreglulið bjarga ungri stúlku sem var rænt í maí síðastliðnum.

Vann með Giuliani í Úkraínu að skipan Trump
Gordon Sondland, sendiherra Bandaríkjanna gagnvart Evrópusambandinu, segir að hann, Rudy Guiliani, einkalögmaður Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, og aðrir hafi beitt yfirvöld Úkraínu þrýstingi með því markmiði að fá Úkraínumenn til að hefja tvær rannsóknir sem myndu nýtast Trump með pólitískum hætti, vegna þess að Trump hafi skipað þeim að gera það.

Segja Bandaríkjamönnum að skipta sér ekki af Hong Kong
Kínverjar hafa skilgreint alla gagnrýni á ástandið í Hong Kong og meðhöndlun yfirvalda á mótmælendum sem skammarverð afskipti af innanríkismálum Kína.

Stjórnandi hjá NPR segir bandarískt fjölmiðlaumhverfi erfitt
Loren Mayor, einn æðsti yfirmaður bandaríska almenningsútvarpsins NPR, segir vandvirkni nú afar mikilvæga fyrir blaðamenn.

Fangaverðir Epsteins ákærðir
Tveir fangaverðir sem voru á vakt kvöldið sem bandaríski auðkýfingurinn Jeffrey Epstein lést hafa verið ákærðir fyrir gagnafölsun.

Sagði símtalið umdeilda óviðeigandi
Alexander Vindman, meðlimur þjóðaröryggisráðs Hvíta hússins, segir umdeilt símtal Donald Trump og Volodymir Zelensky, forseta Bandaríkjanna og Úkraínu, hafa verið óviðeigandi. Það hefði ekki verið rétt af Trump að biðja erlendan þjóðarleiðtoga að rannsaka bandarískan borgara og pólitískan andstæðing hans.

Blása á sögusagnir um heilsu Trump
Óundirbúin ferð Donald Trump á sjúkrahús um síðustu helgi hefur vakið spurningar um heilsu hins 73 ára gamla forseta Bandaríkjanna.

Tveimur gíslum Talibana sleppt úr haldi eftir rúm þrjú ár
Talibanar hafa sleppt tveimur vestrænum gíslum sem hafa verið í haldi þeirra frá 2016. Það var gert í skiptum fyrir þrjá leiðtoga Talibana sem var sleppt var úr haldi ríkisstjórnar Afganistan.

Breyta afstöðu sinni til landtökubyggða Ísraela
Bandaríkjamenn hafa síðustu áratugi litið svo á að byggðin sé í trássi við alþjóðalög eins og alþjóðasamfélagið er að mestu leyti sammála um.

„Jane Doe 15“ vill svör frá Andrési prins
Kona, sem segir Jeffrey Epstein hafa brotið kynferðislega gegn sér þegar hún var 15 ára gömul, hefur höfðað mál gegn dánarbúi bandaríska auðkýfingsins.

Bandaríkin þurfi að hætta að „hnykla vöðvana“ í Suður-Kínahafi
Wei Fenghe, varnarmálaráðherra Kína lét Mark Esper, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna vita að Bandaríkjamenn þyrftu að hætta að „hnykla vöðvana“ í Suður-Kínahafi er þeir hittust á fundi í Bangkok í Taílandi í dag.

Eins og að horfa á mann sökkva í kviksyndi
Lögmaður fimm þolenda barnaníðingsins og auðjöfursins Jeffreys Epstein segir að viðtal BBC við Andrés Bretaprins, vin Epsteins, um ásakanir gegn prinsinum hafi verið hamfarakennt.

Tveir karlar og ein kona létu lífið í skotárás
Lögreglan í Oklahoma kallar eftir upplýsingum frá þeim sem urðu vitni að árásinni.

Ritstjóri New York Times segir Trump hafa stofnað lífi blaðamanna í hættu
Ritstjóri bandaríska dagblaðsins New York Times, Dean Baquet, sakar Donald Trump Bandaríkjaforseta um að stofna lífi blaðamanna blaðsins í hættu þar sem forsetinn útsetji þá fyrir svívirðingum og misnotkun og lýsi þeim sem óvinum fólksins.

Fjórir látnir eftir árás í garðveislu í Fresno
Tíu voru skotnir og þar af eru fjórir látnir eftir að óþekktir aðilar hófu skothríð í garðveislu í Fresno í Kaliforníu í gærkvöldi.

Bjóða Trump að svara spurningum þingmanna
Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, bauð í gær Donald Trump, forseta, að mæta á fund þingmanna og svara spurningum þeirra varðandi rannsókn fulltrúadeildarinnar á mögulegum embættisbrotum forsetans.

Efnafræðiprófessorar handteknir grunaðir um framleiðslu metamfetamíns í skóla
Tveir efnafræðiprófessorar í Arkansasríki í Bandaríkjunum voru handteknir á föstudag, grunaðir um að hafa stundað framleiðslu á metamfetamíni. Grunur leikur einnig á því að mennirnir hafi búið til efnin á vinnustaðnum.

Trump segist vera sá eini sem geti hjálpað Kim
Bandaríkin og Suður-Kórea munu fresta heræfingum sem til stóð að halda í von um að það muni bæta líkurnar á samkomulagi við Norður-Kóreu vegna kjarnorkuvopna og eldflauga einræðisríkisins.

Sondland sagðist fara eftir skipunum Trump
Fyrrverandi meðlimur þjóðaröryggisráðs Hvíta hússins viðurkennir að hafa lagt til að hylja gögn um símtal á milli Trump og Zelensky. Þrátt fyrir það sagðist hann ekki hafa heyrt neitt óviðeigandi í símtalinu.

Fimm fjölskyldumeðlimir liggja í valnum
Fimm meðlimir sömu fjölskyldunnar og þar á meðal þrjú börn liggja í valnum eftir skotárás í San Diego í Bandaríkjunum í kvöld.

Trump náðar hermenn sakaða um og dæmda fyrir stríðsglæpi
Hvíta húsið tilkynnti í gærkvöldi að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefði gripið inn í mál þriggja hermanna sem hafa verið sakaðir og jafnvel dæmdir fyrir stríðsglæpi. Forsvarsmenn herafla Bandaríkjanna voru hins vegar á móti aðgerðunum.