Vaxtamálið
1 2 ›
Arion banki tilkynnir nýtt lánaframboð Arion banki hefur kynnt nýtt húsnæðislánaframboð í kjölfar óvissunnar sem skapaðist á íbúðalánamarkaði í kjölfar niðurstöðu Hæstaréttar í máli gegn Íslandsbanka. Nú verða í boði verðtryggð íbúðalán með fasta vexti til þriggja eða fimm ára og lánstíma allt að þrjátíu ár og einnig óverðtryggð íbúðalán með fasta vexti til þriggja ára, með lánstíma allt að fjörutíu ár. Viðskipti innlent 10.11.2025 14:41
Nýtt lánafyrirkomulag varanleg lausn til að losa um stífluna Bankastjóri Íslandsbanka segir nýtilkynnt lánafyrirkomulag verðtryggðra lána vera til þess gerð að losa stífluna sem myndast hefur á fasteignamarkaði vegna dóms Hæstaréttar frá í síðasta mánuði. Fyrirkomulagið sé hugsað sem langtímalausn og stendur fyrstu kaupendum og almennum lántökurum til boða. Viðskipti innlent 9.11.2025 20:06
Illskiljanleg viðmið vinni gegn markmiði Seðlabankans Hagfræðingur og dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands segir ýmislegt gagnrýnisvert við ný vaxtaviðmið Seðlabanka Íslands. Hann telur óskýrleika og flækjustig viðmiðsins vinna gegn því að leysa úr óvissu á lána- og fasteignamarkaði og segir óvíst hvort Seðlabankanum takist ætlunarverk sitt. Viðskipti innlent 8.11.2025 13:04
Óvissu á lánamarkaði eytt í byrjun næsta árs Síðustu tvö vaxtamálin svokölluðu eru komin á dagskrá Hæstaréttar. Það síðara er á dagskrá þann 8. desember og því má reikna með því að dómur verði kveðinn upp í því ekki síðar en 5. janúar næstkomandi. Viðskipti innlent 7.11.2025 06:48
Kólnun á fasteignamarkaði: Færri skoða og lægra verð Fasteignasalar telja virkni fasteignamarkaðsins litla miðað við árstíma. Fáir mæta í opin hús og er það talið algengt að verð sé lækkað í söluferli. Þá eru vísbendingar um að fyrstu kaupendum sé að fækka. Innlent 6.11.2025 21:09
Ómögulegt sé fyrir fólk á Eflingarlaunum að komast á húsnæðismarkað Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segja mikilvægt að bregðast við erfiðri stöðu á húsnæðismarkaði. Sólveig Anna kallar eftir leigubremsu og Sigurður segir ríkisstjórnina verða að kynna sín úrræði fljótlega vegna dóms Hæstaréttar í vaxtamálinu. Viðskipti innlent 6.11.2025 11:40
Lánið löglega Mikið hefur verið rætt og ritað um „óvissu í kjölfar dóms Hæstaréttar í Vaxtamálinu.“ Er þar ýmsu slengt saman og líkt dómurinn sé notaður sem átylla til að þrengja að lántökum. Skoðun 5.11.2025 16:02
„Hætt við því að það muni bitna á leigjendum“ Stjórnarformaður Húseigendafélagsins segir hættu á því að áform ríkisstjórnarinnar um að draga úr skattaafslætti leigutekna muni bitna á leigjendum. Það gæti mögulega unnið gegn markmiðum ríkisstjórnarinnar á húsnæðismarkaði. Viðskipti innlent 3.11.2025 12:49
„Ástand sem við getum ekki búið við til lengdar“ Samtök iðnaðarins segja útlitið hjá byggingariðnaðnum vera svart í kjölfar dóms Hæstaréttar í vaxtamálinu svokallaða. Söguleg óvissa grafi undan markaðnum. Hver dagur skipti máli í núverandi ástandi sem er ekki hægt að lifa við til lengri tíma. Viðskipti innlent 2.11.2025 12:17
Hefur aldrei upplifað aðra eins óvissu á þrettán ára ferli Formaður Félags fasteignasala segist aldrei hafa upplifað aðra eins óvissu og ríkir nú á fasteignamarkaði í kjölfar dóms í vaxtamálinu svokallaða. Hver dagur og vika sem líði í óvissu hafi neikvæð áhrif á markaðinn til lengri tíma. Viðskipti innlent 1.11.2025 22:03
Tiltölulega lítil áhrif af breytingum Seðlabankans Breytingar á lánareglum Seðlabankans munu ekki hafa áhrif á fjölda fólks, þar sem reglur um greiðslubyrði haldast þær sömu. Þetta segir dósent við Háskóla Íslands. Þó geti um fimmtán hundruð kaupendur komið nýir inn á fasteignamarkaðinn Viðskipti innlent 1.11.2025 14:02
Fagnar komu Dags um borð í evrubátinn Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fagnar því að þungaviktarfólk í Samfylkingunni sé farið að tala hátt, skýrt og af skynsemi um evruna. Um sé að ræða eitt stærsta hagsmunamál almennings á Íslandi í dag. Innlent 31.10.2025 17:06
Seðlabankinn rýmkar lánþegaskilyrði Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að gera breytingar á reglum Seðlabankans um hámark veðsetningarhlutfalls fasteignalána til neytenda og hækka hámarkið við kaup á fyrstu fasteign úr 85 prósent í 90 prósent. Hámark veðsetningarhlutfalls fyrir aðra lántaka helst óbreytt í 80 prósent. Innlent 31.10.2025 16:16
Eyðum óvissunni Nýleg ákvörðun Landsbankans um að hætta að veita verðtryggð lán nema til fyrstu kaupenda hefur haft í för með sér meiri háttar áhrif á fasteignamarkaðinn. Markaðurinn hefur kólnað á örfáum dögum og óvissan magnast. Skoðun 31.10.2025 14:31
Of snemmt að segja hvort vaxtadómurinn geri lán dýrari eða ódýrari Bankastjóri Íslandsbanka segir of snemmt að skera úr um hvort að vaxtadómur Hæstaréttar eigi eftir að gera lán dýrari eða ódýrari á Íslandi. Hann á síður von á að sinn banki bjóði aftur upp á breytilega verðtryggða vexti. Viðskipti innlent 31.10.2025 09:30
Tilkynna breytingar á lánaframboði Íslandsbanki hefur tilkynnt breytingar á lánaframboði bankans vegna dóms Hæstaréttar í Vaxtamálinu svokallaða. Tímabundið verða einungis óverðtryggð lán á föstum vöxtum í boði. Viðskipti innlent 30.10.2025 15:46
Svona lítur fyrsti húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar út Forsætisráðherra segir fyrsta húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar sýna að hún þori og framkvæmi. Gengið sé í verk og gripið til aðgerða sem talað hafi verið um svo árum skipti. Innlent 29.10.2025 16:47
Eyða óvissunni um verðtrygginguna með vaxtaviðmiði Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hyggst eyða óvissunni sem komin er upp á lánamarkaði í kjölfar dóms Hæstaréttar í Vaxtamálinu svokallaða. Það verður gert með samráði við Seðlabanka Íslands um að hefja eins fljótt og auðið er birtingu vaxtaviðmiðs, sem getur legið til grundvallar verðtryggðum lánum. Vaxtaviðmiðið mun byggja á vöxtum ríkisskuldabréfa. Viðskipti innlent 29.10.2025 16:40
Stjórnendur Íslandsbanka enn undir feldi Stjórnendur Íslandsbanka hafa ekki ákveðið hvernig lánaframboði bankans verður breytt í kjölfar dóms Hæstaréttar í Vaxtamálinu svokallaða. Viðskipti innlent 29.10.2025 14:31
Segir mikla vinnu í gangi vegna lánamála Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir ráðuneytið hafa undanfarið haft til skoðunar hvernig lánastofnanir geti áfram boðið fasteignalán. Lánastofnanir hafa flestar stöðvað lánveitingar tímabundið vegna dóms Hæstaréttar í vaxtamálinu svokallaða. Viðskipti innlent 28.10.2025 14:15
Sér ljós við enda ganganna: „Kannski þurfti svona stóra truflun til“ Bankastjóri Landsbankans segir ávöxtunarkröfu á ríkisskuldabréf þegar hafa lækkað frá því að bankinn tilkynnti um breytingar á lánaframboði sínu. Nú sé ljós við enda ganganna og spurning hvort slíka truflun á lánamarkaði hafi þurft til að verðbólga hjaðni og vextir verði lækkaðir. Hún segir markmið bankans þó aðeins hafa verið tryggja framboð íbúðalána. Viðskipti innlent 28.10.2025 11:55
„Ekki bara smá eyða, þetta er risastórt gat“ Það er ekki raunhæft að lífeyrissjóðirnir fylli einir í það stóra gat sem myndast á fasteignalánamarkaði í kjölfar viðbragða bankanna við vaxtamálinu svokallaða. Þetta segir dósent í hagfræði við Háskóla Íslands. Formaður Neytendasamtakanna bendir á að margir lífeyrissjóðir séu enn að veita verðtryggð lán og það kæmi honum mjög á óvart ef sjóðirnir skorist undan því að veita félagsmönnum sínum hagstæð lán. Viðskipti innlent 27.10.2025 20:57
Hætt við að vextir hækki Framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríksins telur hættu á að vextir fasteignalána muni hækka eftir niðurstöðu í vaxtamálinu svokallaða. Mikil óvissa ríki nú sem sé slæm fyrir neytendur og fjármálafyrirtæki. Hæstiréttur þurfi að setja næstu vaxtamálin í flýtimeðferð. Viðskipti innlent 27.10.2025 19:13
Niðurstaða í máli Arion banka um miðjan desember Búast má við því að Hæstiréttur kveði upp dóm í máli tveggja lántaka á hendur Arion banka, vegna skilmála í samningi um verðtryggt lán á breytilegum vöxtum, í desember. Bankinn hefur sett veitingu verðtryggðra lána á ís en boðar frekari viðbrögð við dómi Hæstaréttar í Vaxtamálinu svokallaða, áður en dómur gengur í desember. Viðskipti innlent 27.10.2025 15:48
Hafi áhrif á innan við tíu prósent fyrstu kaupenda Framkvæmdastjóri einstaklingssviðs Landsbankans segir að breytt lánaframboð bankans hefði ekki haft áhrif á lánsmöguleika yfir 90 prósent þeirra fyrstu kaupenda sem hafa tekið íbúðalán hjá bankanum á þessu ári. Viðskipti innlent 27.10.2025 15:13
Íbúðalán Landsbankans og fyrstu kaupendur Við í Landsbankanum kynntum á föstudaginn breytingar á framboði bankans á íbúðalánum í kjölfar dóms Hæstaréttar í vaxtamáli gegn Íslandsbanka. Skoðun 27.10.2025 15:00
„Það verða fjöldagjaldþrot“ Útlitið er dökkt á húsnæðismarkaði eftir vaxtadóminn svokallaða. Það segja þeir Páll Pálsson, fasteignasali, og Már Wolfgang Mixa, dósent við Háskóla Íslands, sem voru í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Þar ræddu þeir vaxtadóminn og áhrif hans á fasteignamarkaðinn, húsnæðisverð og lánskjör almennings. Viðskipti innlent 26.10.2025 13:06
Útspil bankans sýni að dómurinn auki samkeppni Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir að breytingar á lánaframboði Landsbankans séu áhugaverðar, og hægt sé að líta á þær bæði jákvæðum og neikvæðum augum. Annars vegar minnki framboð af verðtryggðum lánum og stýrivextir fari í kjölfarið að bíta meira, en hins vegar séu komin skilyrði fyrir mikilli lækkun stýrivaxta. Vaxtadómurinn komi til með að auka samkeppni og skýrleika fyrir neytendur. Innlent 25.10.2025 00:03
Vill fund vegna „alvarlegrar stöðu“ á lánamarkaði Fulltrúi Framsóknar í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis, Stefán Vagn Stefánsson, hefur óskað eftir fundi í nefndinni til að ræða þá alvarlegu stöðu sem upp er komin á lánamarkaði í kjölfar dóms Hæstaréttar í Vaxtamálinu svokallaða. Innlent 24.10.2025 14:27
Telur breytinguna ekki stuðla að því að fólk festist í húsnæði Landsbankinn mun aðeins bjóða fyrstu kaupendum verðtryggð lán. Bankastjórinn segist ekki sjá jafn mikinn grundvöll fyrir verðtryggingu. Breytingin hefur ekki áhrif á þá sem eru með verðtryggð lán hjá bankanum nú þegar. Neytendur 24.10.2025 12:02