Gögnum stolið frá sérstökum saksóknara

Jón Óttar kærir Ólaf Þór fyrir rangar sakargiftir
Jón Óttar Ólafsson, fyrrverandi lögreglumaður og fyrrum eigandi PPP, hefur kært Ólaf Þór Hauksson, héraðssaksóknara og fyrrverandi sérstakan saksóknara, fyrir rangar sakargiftir í tengslum við rannsókn á meintum brotum hans í tengslum við vinnu á vegum PPP á þrotabúi Milestone árið 2011 til 2012. Greint er frá kærunni í Morgunblaðinu í dag.

Krefur Ríkisútvarpið um leiðréttingu
Björgólfur Thor Björgólfsson hefur sent Ríkisútvarpinu formlega beiðni um leiðréttingu á meintum rangfærslum sem voru viðhafðar í þætti Kveiks á RÚV þann 29. apríl síðastliðinn, og hafi síðan verið endurteknar í öðrum miðlum.

Vill rannsaka störf sérstaks saksóknara eftir hrun
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur lagt fram þingsályktunartillögu um stofnun rannsóknarnefndar til að rannsaka sérstakan saksóknara og aðra sem komu að rannsókn og málsmeðferð sakamála í kjölfar fjármálahrunsins árið 2008.

Fordæmir vinnubrögð njósnaranna
Björgólfur Thor Björgólfsson athafnamaður segir að PPP, félagið sem njósnaði um hóp fólks haustið 2012, hafi kynnt starfsemi sína sem löglega upplýsingaöflun. Hann hafi aldrei fengið neinar upptökur afhentar. Þá hafi ekki verið greiddar 33 milljónir fyrir upplýsingaöflunina, heldur átta. Hann hafi ekkert með leka út úr embætti sérstaks saksóknara að gera.

Vísaði frá kæru Jóns Óttars vegna Kveiksumfjöllunarinnar
Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands vísaði kæru Jóns Óttars Ólafssonar, fyrrverandi lögreglumanns, vegna umfjöllunar Kveiks um persónunjósnir hans frá. Kæran var ekki talin uppfylla formsskilyrði.

Varað við embætti sérstaks saksóknara
Í ljósi umræðu síðustu daga um verkefni og verk embættis sérstaks saksóknara á árunum eftir bankahrunið 2008 finnst mér rétt að birta erindi sem ég hélt sem framsögumaður á málþingi sem ríkissaksóknari og Ákærendafélagið efndu til með dómsmálaráðherra, lagadeild HÍ, ákærendum og fulltrúum þeirra 18.mars 2011. Þetta geri ég til þess að sýna fram á að viðvörunarorð og alvarlegar athugasemdir komu fram við það ferli sem þá var hafið og reyndist illa grundað að mínu viti.

Vill rannsóknarnefnd um rannsókn hrunmálanna
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, hyggst leggja fram þingsályktunartillögu um rannsókn á störfum réttarvörslu- og eftirlitsstofnana í kjölfar fjármálahrunsins.

„Vinnubrögð sem maður er ekki vanur“
Róbert Wessman vill lítið tjá sig um meintar njósnir manna á snærum Björgólfs Thors Björgólfssonar, sem beindust meðal annars að Róberti. „Auðvitað eru þetta vinnubrögð sem maður er ekki vanur,“ segir hann þó.

Sérstakar hleranir og símtölin sem gætu alltaf orðið til
Leki á gögnum frá sérstökum saksóknara er kominn til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi í máli sem má rekja allt aftur til falls bankanna haustið 2008. Hleranir, njósnir, vanhæfi, auðmenn og embættið sem enginn vildi stýra; allt er orðið að miklum graut og margir hættir að skilja málið. Jafnvel Namibíumál Samherja fléttast inn í það.

Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“
„Það hefur ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu síðan mér var nauðbeygður kostur að reka Róbert úr forstjórastóli Actavis eftir að félagið fór á hliðina undir hans stjórn,“ skrifaði Björgólfur Thor Björgólfsson, auðugasti maður Íslands, á heimasíðu sína um samband þeirra Róberts Wessman í lok árs 2015.

„Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“
Fyrrverandi eigandi PPP segir að hann hafi haft aðgang að öllum gögnum hjá sérstökum saksóknara og lögreglu meðan hann vann fyrir þrotabú og slitastjórnir. Hann sakar héraðssaksóknara um að hafa lekið gögnum PPP til RÚV til að skaða hann. Saksóknarinn hafnar þessu.

Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum
Fyrrverandi starfsmaður sérstaks saksóknara og eigandi PPP njósnafyrirtækisins er sannfærður um að Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari vilji koma á sig höggi og hafi því komið gömlum kynningum PPP til Helga Seljan og Kveiks á RÚV. Ólafur Þór hafnar því alfarið.

Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum
Jón Óttar Ólafsson, fyrrverandi lögreglumaður, er sannfærður um að Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari vilji koma á sig höggi með því að koma gömlum kynningum PPP njósnafyrirtækis til Helga Seljan og Kveiks á RÚV.

Þorbjörg um sérstakan saksóknara: „Gerum þennan tíma upp“
Dómsmálaráðherra hefur sent héraðssaksóknara bréf þar sem hún óskar eftir upplýsingum um lykilatriði í máli sérstaks saksóknara, sem lögreglan á Suðurlandi og Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hafa nú til rannsóknar. Frá þessu greindi hún í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag.

Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu
Tryggingafyrirtækið Sjóvá hefur staðfest að PPP hélt kynningu fyrir starfsfólk félagsins á sama tíma og fyrirtækið vann að rannsókn á fyrrum eigendum og stjórnendum Sjóvár fyrir sérstakan saksóknara. Samkvæmt yfirlýsingu frá Sjóva fjallaði kynning PPP um hvort það gæti aðstoðað við rannsókn mögulegra tryggingasvika.

Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann
Héraðssaksóknari segir ekkert athugavert vera við verktakasamning sem hann gerði við fyrirtækið PPP í ársbyrjun 2012, þá í embætti sérstaks saksóknara. Fyrirtækið fékk 4,3 milljónir í greiðslu frá embættinu fyrir vinnu sína. Samningurinn hafi verið nauðsynlegur og ekki legið fyrir að PPP reyndi að selja þjónustu sína til Sjóvá á sama tíma og þeir unnu að máli tengdu fyrirtækinu fyrir embættið.

Lögreglan á Suðurlandi rannsakar gagnastuldinn
Lögreglustjórinn á suðurlandi segir rannsókn á meintum umfangsmiklum gagnastuldi úr kerfum sérstaks saksóknara hefjast á byrjunarreit. Gögn muni berast eftir helgi og þá geti rannsókn hafist af alvöru.

Sérstakur saksóknari gerði samning við PPP
Sérstakur saksóknari gerði verktakasamning við fyrirtækið PPP sf. um sérfræðiráðgjöf á sviði rannsókna í tengslum við tiltekið sakamál.

Ólafur Þór segir ekki tilefni til afsagnar
Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari telur gagnastuld úr sínum fórum þá er hann starfaði sem sérstakur saksóknari ekki vera ástæðu til þess að hann segi starfi sínu lausu eða stígi til hliðar.

Telur að Ólafur Þór og Sigríður hljóti að víkja við rannsókn málsins
Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur hefur lagst yfir hlerunar- og gagnastuldsmálið og hann segir ótvírætt að þar beri ríkissaksóknari og þáverandi sérstakur saksóknari ábyrgð. Þeim beri að víkja við rannsókn málsins.

„Þeir sem búa í glerhúsi ættu að spara grjótkastið“
Sigurbjörn Árni Arngrímsson sakar Þorvald Lúðvík Sigurjónsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra Niceair, um hræsni í málflutningi hans um ábyrgð sérstaks saksóknara vegna gagnaþjófnaðar frá embættinu. Þorvaldur kalli eftir ábyrgð stjórnenda en hafi sjálfur ekki axlað ábyrgð þegar flugfélag hans fór í þrot.

„Svik við lögreglumannastéttina“ og slái hann „mjög illa“
Víðir Reynisson, þingmaður og fyrrverandi lögreglumaður, segir víðtækan gagnaþjófnað frá embætti Sérstaks saksókna slá sig mjög illa. Þeir sem stálu gögnunum hafi svikið lögreglumannastéttina og eyðilaggt það traust sem stéttin hafi byggt yfir langan tíma.

Þungt hugsi og í áfalli
Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari segir áfall að trúnaðargögnum hafi verið stolið á sínum tíma af embætti sérstaks saksóknara. Grunsemdir embættisins frá árinu 2012 hafi hins vegar reynst réttar.

Svik við almenning, kerfið og samstarfsfólk
Dómsmálaráðherra segist upplifa framferði forsvarsmanna PPP, sem lýst var í Ríkissjónvarpinu í gær, sem svik. Svik við almenning, kerfið og samstarfsmenn í réttarkerfinu.

„Rotnir starfshættir og ríkisrekið ofbeldi gegn borgurunum“
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, fyrrverandi forstjóri Saga Capital sem hlaut tólf mánaða skilorðsbundinn dóm í Stím-málinu svokallaða, kallar eftir því að dómsmálaráðherra gangist í opinbera rannsókn á starfsháttum og embættisfærslum innan Sérstaks saksóknara á árunum 2009 til 2020 og draga menn til ábyrgðar. Hann spyr hvort uppgjör á uppgjöri við Hrunið sé kannski loksins byrjað?

Sagðir hafa stolið viðkvæmum rannsóknargögnum frá lögreglu og saksóknara
Fyrrverandi lögreglumenn sem njósnuðu um fólk fyrir hönd Björgólfs Thors Björgólfssonar eru einnig sagðir hafa stolið viðkæmum persónugögnum úr rannsóknum lögreglu og saksóknara. Gögnin eru þeir sagðir hafa notað til þess að selja þjónustu ráðgjafarfyrirtækis síns.

„Maður skyldi ætla að það þurfi tiltekið siðferði til að starfa í lögreglunni“
Grímur Grímsson alþingismaður og fyrrverandi lögreglumaður segir umfjöllun Kveiks um njósnir starfandi lögreglumanns að undirlagi Björgólfs Thors hafa verið sér mikil vonbrigði. Hann segir þáttinn hafa verið erfiðan að horfa á.

„Vona að þú sofir vel“
„Vona að þú sofir vel“. Þessi skilaboð bárust Helga Seljan blaðamanni á Messenger Facebook í kjölfar Kveiks-þáttar sem fjallaði um njósnir sem fyrirtækið PPP ehf. stóð fyrir að undirlagi Björgólfs Thors Björgólfssonar fjárfestis 2012.

Buðu mótherjum Björgólfs fyrst þjónustu sína
Fyrrverandi lögreglumenn sem njósnuðu um fólk fyrir hönd Björgólfs Thors Björgólfssonar buðu fyrst þjónustu sína lögmönnum sem undirbjuggu málsókn gegn Björgólfi. Einn lögmannanna segir að aðeins hafi verið rætt um lögmæta gagnaöflun.

Gefur lítið fyrir tal um fyrningu
Vilhjálmur Bjarnason, fyrrverandi þingmaður og eitt viðfang njósna sem hafa verið á allra vörum síðan fjallað var um þær í gærkvöldi, furðar sig á tali ríkissaksóknara um að meint brot kunni að vera fyrnd.