E. coli-sýking á Mánagarði
Eitt barn enn á gjörgæslu og líðan þess stöðug Eitt barn er enn á gjörgæslu í öndunarvél vegna E.coli sýkingar sem kom upp á leikskólanum Mánagarði. Valtýr Stefánsson Thors, yfirlæknir á barnaspítala Hringsins, segir líðan þess stöðuga. Innlent 5.11.2024 18:56
Leikskólinn Mánagarður opinn á ný Búið er að opna leikskólann Mánagarð þar sem kom upp E. coli sýking í síðasta mánuði. Það staðfestir Guðrún Björnsdóttir framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta sem rekur leikskólann. Enn eru tíu börn inniliggjandi á Landspítalanum, þar af eitt á gjörgæslu. Innlent 5.11.2024 12:40
E. coli-sýking á Mánagarði: „Hræðilegt að horfa upp á barnið svona veikt“ Amma barns af leikskólanum Mánagarði segir hræðilegt að horfa upp á veikindi barnsins, sem liggur á spítala vegna E. coli-hópsýkingar á leikskólanum. Foreldrar barnsins séu hræddir og bugaðir. Barn sem smitaðist fyrir fimm árum er enn að glíma við eftirköst af E. coli-sýkingu. Innlent 3.11.2024 20:03
Þrjú börn á gjörgæslu og eitt í öndunarvél Þrjú börn eru enn á gjörgæslu á Landspítalanum vegna E.coli-sýkingar sem kom upp á leikskólanum Mánagarði. Eitt barnið er í öndunarvél. Sjö börn til viðbótar liggja inni á almennri deild vegna sýkingarinnar. Innlent 2.11.2024 14:23
Amma lýsir blóðugum niðurgangi og örvæntingu foreldra Amma fjögurra ára drengs sem hefur barist fyrir lífi sínu undanfarnar tvær vikur segir nauðsynlegt að fram fari ítarleg rannsókn á því hvað olli sýkingu á leikskólanum Mánagarði. Draga þurfi lærdóm af sýkingunni og tryggja að svona lagað gerist aldrei aftur. Innlent 1.11.2024 16:14
Rétt meðhöndlun hakksins hefði komið í veg fyrir veikindi Framkvæmdastjóri Kjarnafæðis segir fyrirtækið hafa átt í nánum samskiptum við MAST allt frá því að E. coli smit kom upp á leikskólanum Mánagarði. Það sé miður að fjöldi barna hafi veikst en með réttri meðhöndlun á hakkinu hefði verið hægt að koma í veg fyrir það. Innlent 1.11.2024 12:17
Uppruni smitsins var hakk frá Kjarnafæði Rannsóknir Matís á uppruna E.coli smits á leikskólanum Mánagarði hafa staðfest að bakterían var í hakki sem var matreitt á leikskólanum. Niðurstaða rannsóknarinnar er að meðhöndlun hakksins á leikskólanum var ekki fullnægjandi með tilliti til hreinlætis. Innlent 1.11.2024 10:49
Á ekki von á að þeim fjölgi sem þurfi innlögn vegna E.coli Eitt barn var útskrifað af gjörgæslu í gær og fjögur liggja þar inni vegna Ecoli sýkingar. Yfirlæknir segist ekki eiga von á að þeim fjölgi mikið sem þurfi að leggjast inn vegna sýkingarinnar. Innlent 31.10.2024 13:01
Matráður segir upp á Mánagarði Matráður leikskólans Mánagarðs þar sem upp kom svæsin E.coli-sýking í síðustu viku hefur sagt upp störfum. Leikskólinn verður lokaður út vikuna. Innlent 31.10.2024 11:40
Eitt barn útskrifað af gjörgæslu Eitt barn hefur verið útskrifað af gjörgæslu Landspítalans vegna E. coli sýkingarinnar sem greindist á leikskólanum Mánagarði í síðustu viku. Ellefu eru inniliggjandi og enn fjögur á gjörgæslu. Greint er frá á vef RÚV. Rannsókn á E.coli smiti á leikskólanum Mánagarði beinist aðallega að mati sem börnin neyttu þann 17. október. Þá fengu börnin hafragraut, spaghettí og melónur í kaffitímanum. Innlent 31.10.2024 11:09
Færri börn undir eftirliti vegna E.coli en enn fimm á gjörgæslu Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir á ekki von á því að niðurstöður úr rannsókn á uppruna E.coli smits á Mánagarði liggi fyrir fyrr en í fyrsta lagi við lok vikunnar eða um helgina. Leikskólinn er enn lokaður. Tíu börn eru undir undir eftirliti á bráðamóttöku Barnaspítalans eins og er samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum. Auk þess eru tíu börn inniliggjandi, þar af eru fimm á deild og fimm á gjörgæslu. Innlent 30.10.2024 11:43
Fimm börn alvarlega veik á gjörgæslu vegna E.coli sýkingar Alls eru nú tíu börn inniliggjandi á Landspítalanum vegna E.coli sýkingar. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum eru þar af fimm þeirra á gjörgæslu. Um 40 börn eru undir eftirlit vegna sýkingarinnar. E. Coli sýking getur leitt til alvarlegar nýrnabilunar og því eru börn sem eru á gjörgæslu í blóðskilun. Innlent 29.10.2024 21:17
Smitaðist fimm mánaða en lifir nú eðlilegu lífi „Ég bið bara fólk og samfélagið allt að hugsa fallega til þeirra. Þessi baktería er hræðileg. Ég man þegar minn litli var inni á spítala þá fengum við kveðjur úr ótrúlegustu áttum og fólk var að kveikja á kertum fyrir hann. Þetta hlýjar svo mikið og að finna fyrir að fólk sé að hugsa til þín. Ég held að allir séu að hugsa til þeirra og senda alla þá orku sem til er.“ Innlent 28.10.2024 19:41
Kaupa tilbúinn mat á meðan E.coli sýkingin er til rannsóknar Leikskólinn Mánagarður í Vesturbæ Reykjavíkur er enn lokaður eftir að upp kom E.coli sýking á leikskólanum í síðustu viku. Leikskólastjóri segir það koma í ljós síðar í dag hvort hægt sé að opna í vikunni. Hún ætlar að kaupa tilbúinn mat á meðan málið er til rannsóknar. Innlent 28.10.2024 11:55
Þrjú börn á gjörgæslu vegna E.coli sýkingar Alls eru nú 42 börn undir eftirlit á Landspítalanum vegna E. Coli sýkingar sem kom upp á leikskólanum Mánagarði í síðustu viku. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum eru 11 af þeim inniliggjandi og þrjú þeirra á gjörgæslu alvarlega veik. Innlent 28.10.2024 10:46
Gömul sár opnuð á ný og stofnar stuðningshóp „Dóttir mín var þá tveggja að verða þriggja ára og fékk allan pakkann og vorum við rúmlega mánuð á spítalanum áður en hún fékk að fara heim, en var alls ekki fullfrísk og er ekki fimm árum seinna. Okkur langar svo að geta gefið af okkur til aðstandenda og veitt stuðning svo við ákváðum að stofna vettvang þar sem aðstandendur geti leitað stuðnings og fengið upplýsingar.“ Innlent 27.10.2024 21:11
Tvö börn til viðbótar lögð inn á spítala vegna E.coli Tvö börn til viðbótar hafa verið lögð inn á Landspítala vegna E.coli sýkingar sem kom upp á leikskólanum Mánagarði í Reykjavík í vikunni. Alls liggja sex börn inni á spítala og þar af eru tvö enn á gjörgæslu. Innlent 26.10.2024 13:40
Tæplega þrjátíu börn í virku eftirliti Tæplega þrjátíu leikskólabörn eru í virku eftirliti vegna e. coli sýkingar sem kom upp á leikskólanum Mánagarði í Reykjavík í vikunni. Alls liggja fjögur börn inni á spítala en tvö þeirra eru enn á gjörgæslu. Þetta staðfestir Andri Ólafsson, samskiptastjóri Landspítalans. Innlent 25.10.2024 19:39
Starfsfólk Mánagarðs í áfalli Tvö börn af leikskólanum Mánagarði í Reykjavík eru á gjörgæslu vegna E. coli-sýkingar. Leikskólastjórinn segir alla starfsmenn skólans vera í áfalli vegna málsins. Innlent 24.10.2024 19:16
Tveimur deildum á leikskóla í Hveragerði lokað vegna E.coli smits Tvær deildir á leikskólanum Óskalandi í Hveragerði verða lokaðar á morgun eftir að barn á leikskólanum greindist með E.coli í dag. Fjallað er um málið á vef RÚV en þar kemur fram að barnið var í leikskólanum Mánagarði en hóf aðlögun í Óskalandi á mánudag. Innlent 24.10.2024 18:31
Nú 27 börn veik vegna e.coli sýkingarinnar Alls eru nú 27 börn á leikskólanum Mánagarði veik vegna e. coli sýkingar sem kom upp á leikskólanum. Af þeim eru fjögur inniliggjandi. Tvö þeirra sem eru inniliggjandi eru á gjörgæslu og þurfa bæði að öllum líkindum að fara í nýrnaskilun. Þetta staðfestir Andri Ólafsson samskiptastjóri Landspítalans. Innlent 24.10.2024 17:20
Veikindi á fimm af sjö deildum leikskólans Sóttvarnalæknir segir rannsókn á uppruna E.coli sýkingar á leikskólanum Mánagarði í fullum gangi og þar séu matvæli helst til skoðunar. Tvö börn liggja á gjörgæslu vegna veikindanna og fara að líkindum í nýrnaskilun. Innlent 24.10.2024 13:57
Fjölgar í hópi alvarlega veikra barna Af sjö börnum úr leikskólanum Mánagarði sem liggja inni á Barnaspítala Hringsins með staðfesta E.coli-sýkingu eru tvö alvarlega veik. Tíu eru með staðfesta sýkingu. Innlent 24.10.2024 10:47
Eitt barnanna alvarlega veikt og óvissa fram yfir helgi Eitt barn er alvarlega veikt eftir að E.coli sýking kom upp á leikskólanum Mánagarði, en tólf hafa leitað á spítala vegna hennar. Læknir á Barnaspítala Hringsins segir óvissuástand uppi um umfang smitsins, sem muni líklega vara fram yfir helgi. Óráðlegt sé að gefa börnum sýklalyf við þessar aðstæður, og mikilvægast að tryggja að þau fái nægan vökva. Innlent 23.10.2024 15:42
Greina matinn sem börnin á Mánagarði borðuðu Mikil vinna stendur yfir hjá Matvælastofnun, embætti sóttvarnalæknis og heilbrigðiseftirlitinu við að leita að uppruna sýkingar sem leitt hefur til veikinda barna á leikskólanum Mánagarði. Þó nokkur börn hafa verið lögð inn á Landspítalann. Sterkar vísbendingar eru um orsök smitsins. Leikskólastjóri lítur málið alvarlegum augum en fyrsta barnið greindist síðdegis í gær. Innlent 23.10.2024 12:58
Sex börn inniliggjandi vegna E.Coli-sýkingar Mikið álag er á barnaspítalanum vegna E.coli-sýkingar meðal leikskólabarna samkvæmt upplýsingum fréttastofu. Sex börn eru inniliggjandi eða voru það að minnsta kosti á tímabili í morgun. Starfsfólk býst við að innlögnum fjölgi. Innlent 23.10.2024 11:56
Tíu börn með einkenni E.Coli-sýkingar Tíu börn á leikskólanum Mánagarði höfðu í gærkvöldi leitað á sjúkrahús með einkenni E.Coli-sýkingar. Fjögur eru nú inniliggjandi til eftirlits og fjögur til viðbótar höfðu leitað á bráðamóttöku Landspítalans. Innlent 23.10.2024 09:09
Segist ekki geta tjáð sig um innlagnir vegna E. coli sýkingar „Við erum rétt mætt og að fara yfir stöðuna,“ segir Soffía Emelía Bragadóttir, leikskólastjóri Mánagarðs, sem var lokað í gær vegna alvarlegrar E. coli sýkingar. Innlent 23.10.2024 07:58
Leikskóla lokað vegna E.coli sýkingar Leikskólanum Mánagarði í Reykjavík hefur verið lokað samkvæmt tilmælum sóttvarnarlæknis vegna alvarlegrar E.coli sýkingar. Þetta herma heimildir fréttastofu. Innlent 23.10.2024 00:03