Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar (2024)

„Þessi kostnaður hverfur ekki“
Fyrstu umræðu um fjórðu fjáraukalög ríkisstjórnarinnar lauk á ellefta tímanum á Alþingi í kvöld. Frumvarpið fer nú í aðra umræðu og aftur til fjárlaganefndar. Þingmenn stjórnarandstöðu ræddu óvæntan kostnað og afleiðingar aukinna útgjalda í ræðum sínum á þingi í kvöld. Ráðherra vísaði í svörum sínum til ófyrirsjáanlegra aðstæðna vegna náttúruhamfara.

Þrettán ungliðahreyfingar fordæma breytingar á útlendingalögum
Þrettán íslenskar ungliðahreyfingar krefjast þess að ný útlendingalög verði samin í samráði við sérfræðinga í málaflokknum, mannréttindasamtök og hagsmunaaðila. Þau fordæma breytingarnar sem á að gera á útlendingalögunum og krefjast þess að allar lagabreytingar séu gerðar með mannréttindi að leiðarljósi.

Fjárlaganefnd leggur til opnun sendiráðs á Spáni
Fjárlaganefnd hefur lagt til opnun sendiráðs Íslands á Spáni í nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um fjármálálaáætlun næstu fimm ár. Hingað til hefur Spánn verið umdæmisland sendiráðsins í París.

Stjórnvöld ætla að auka við mannúðarstuðning á Gasa
Íslensk stjórnvöld ætla að auka við mannúðarstuðning á Gasa. Utanríkisráðherra segir þó liggja á að tryggja að slík aðstoð berist til fólksins á Gasa en hjálparstofnunum eins og Sameinuðu þjóðunum hefur verið nánast ómögulegt að koma hjálpargögnum inn á svæðið síðustu mánuði. Hún segir stjórnvöld hafa talað skýrt um að þau telji alþjóðalögum ekki fylgt og kallað eftir tafarlausu vopnahléi.

Segir magnafslátt á umhverfissóðaskap skelfilega hugmynd
Gísli Rafn Ólafsson Pírati var ómyrkur í máli um þann hrylling sem hann og Píratar telja sjókvíaeldi vera. Hann sagði magnafslátt, eins og til sendur á leiða í lög með nýjum lagasetningum um lagareldi, skelfilega hugmynd.

Willum vill pakka tóbaki í ljótasta lit í heimi
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur lagt fram drög að reglugerð, sem fer núna til samráðs, sem varðar pakkningar á öllum tóbaksvörum.

Vinstri græn geti farið í sögubækurnar
Það er raunveruleg hætta á að Vinstri græn kveðji íslensk stjórnmál og fari í sögubækurnar, nái flokkurinn sér ekki á strik fyrir næstu kosningar. Þetta segir stjórnmálafræðingur sem segir einnig athyglisvert að landsfundur verði ekki haldinn fyrr en í október.

Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu
Fjóla Einarsdóttir, einn eigenda fyrirtækisins Livefood, fyrstu íslensku grænkera ostagerðarinnar, segir fyrirtækið nú róa lífróður. Fyrirtækið hafði sett sér markmið um að selja ostana á smásölumarkaði á þessu ári. Fyrirtækið er með vilyrði frá Hagkaup og Krónunni um smásölu en eftir synjun úr Matvælasjóði er ólíklegt að það takist.

Telur kjördæmin of stór og vill jafna vægi atkvæða
Forsætisráðherra telur að kjördæmi séu of stór og að jafna ætti vægi atkvæða á milli þeirra. Hann boðaði formenn flokkanna á Alþingi til fundar í dag til þess að ræða stjórnarskrárbreytingar.

Skortsalar fá ekki að kaupa í Íslandsbanka í útboði ríkisins
Fjárfestar sem skortselja Íslandsbanka á þrjátíu daga tímabili fyrir almennt útboð ríkisins á hlut sínum í bankanum munu ekki fá að kaupa í útboðinu. Almennt má gera ráð fyrir því að hlutabréfaverð lækki í aðdraganda almenns útboðs.

Settu af stað umbótaáætlun sem skilaði ekki árangri
„Við settum af stað ákveðna umbótaáætlun og hún hefur ekki skilað þeim árangri sem ég hafði séð fyrir að myndi gerast. Að sjálfsögðu fer ég í það mál sem ráðherra og það á ekki að líðast að það séu svo miklar tafir á málaferlum.“

Koma upp viðbragðshóp vegna áhrifa kuldakastsins
Settur hefur verið á laggirnar sérstakur viðbragðshópur á vegum stjórnvalda vegna erfiðleika sem skapast hafa í landbúnaði vegna kuldatíðar undanfarið. Í honum sitja fulltrúar matvæla- og innviðaráðuneyta, Bændasamtakanna, Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins, Almannavarna og lögregluembættana á Norðurlandi vestra og eystra.

Kjartan Bjarni skipaður landsréttardómari
Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að leggja til við forseta Íslands að Kjartan Bjarni Björgvinsson verði skipaður dómari við Landsrétt frá 1. september 2024.

Markaðsbrestur tilfinninga
Markaðsbrestur er hugtak úr hagfræði sem flestir sem fylgjast með fréttum þekkja og er (oftast) notað yfir það þegar framleiðsla á einhverri vöru (eða gæðum) er ekki skilvirk. Markaðsbrestur á vöru eða gæðum eru gjarnan notað til þess að ýta undir og réttlæta það að stofnanir hins opinbera séu með inngrip sem hafi áhrif á brestina. Þessi inngrip þekkjum við vel. Þetta eru t.d. stýrivaxtahækkanir (og hægar stýrivaxtalækkanir) Seðlabankans til að sporna gegn verðbólgu.

Augljóslega þurfi að aðstoða bændur
Matvælaráðherra segir augljóst að stjórnvöld þurfi að grípa inn í aðstæður bænda sem nú berjast margir í bökkum vegna kuldatíðar. Veita þurfi þeim stuðning með einhverjum hætti í gegnum bjargráðasjóð.

Svar og opið bréf til Þórdísar Kolbrúnar varðandi vopnakaup íslensku þjóðarinnar
Mig langaði að varpa nokkrum spurningum til þín Þórdís með tilvitnunum í grein þína „Hví styður Ísland vopnakaup fyrir Úkraínu“

Bjarni vill fjölga meðmælendum
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hefur boðað formenn allra flokka á fund í dag að loknum ríkisstjórnarfundi. Tilefni fundarins er að ræða hugsanlegar breytingar á stjórnarskrá. Líklegt er að þar verði breytingar á meðmælendafjölda forsetaframbjóðenda til umræðu.

Kynna úttekt á stöðu drengja í menntakerfinu
Mennta- og barnamálaráðuneytið og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið kynna viðamikil úttekt á stöðu drengja í menntakerfinu í blaðamannafundi í dag. Fundurinn hefst klukkan 13:30 og verður sýndur hér á Vísi.

Ríkisstjórnin hafi sjálf skilyrt stuðning við Úkraínu
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar segir ríkisstjórnina sjálfa hafa fallið á því prófi að styðja Úkraínu. Hún hafi raunar skilyrt stuðning sinn „við það sem henni liði vel með“. Þorbjörg vísar þar til afnám tollfrelsis á úkraínskum landbúnaðarvörum sem hafi strandað á sérhagsmunaaðilum.

Ákvörðun Bjarkeyjar um hvalveiðar mun liggja fyrir á þriðjudaginn
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra sagði á þinginu nú rétt í þessu að hún muni birta ákvörðun sína um hvort hvalveiðar verði leyfaðar á þriðjudaginn.

Grímur segir tímabært að Vg biðji kjósendur sína afsökunar
Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, segir að vera Vinstri grænna í ríkisstjórninni gangi í berhögg við stefnu flokksins og tilgang hans. Hann segir flokkinn í slæmum félagsskap.

„Hrokafull afstaða“ að skilyrða stuðning við Úkraínu
„Í mínum huga væri það ansi hrokafull afstaða að skilyrða fjárhagslegan stuðning okkar við að Úkraínumenn kaupi ekki það sem þá vantar helst heldur það sem okkur sjálfum líður best með,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra í aðsendri grein á Vísi.

Mikilvæg mál föst vegna „störukeppni“ ríkisstjórnarinnar
Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar segir mikilvæg mál fyrir þjóðarheill föst í þinginu vegna þess að ríkisstjórnarflokkarnir ná ekki samkomulagi sín á milli. Hann segir að það megi láta þingviljann ráða ef meirihluti er fyrir slíkum málum til að „störukeppninni“ eins og hann kallar hana geti lokið.

Viðreisn býðst til að bjarga lögreglufrumvarpi dómsmálaráðherra
Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á lögreglulögum miðar meðal annars að því að efla svokallaðar „afbrotavarnir“ eða „forvirkar rannsóknarheimildir“ lögreglu. Það er enn fast í nefnd og óljóst hvort takist að koma málinu í gegn áður en þingi verður slitið.

Síðasta hálmstrá Vinstri grænna í höndum Bjarkeyjar Olsen
Undirritaður hefur fylgzt með stjórnmálum, hér og erlendis, til lengri tíma, og minnist þess ekki, að hafa horft upp á annað eins fylgishrun stjórnmálaflokks, og Vinstri grænir, VG, hafa orðið fyrir, síðustu 6-7 árin. Úr 17% í rúm 3%!

VG geti ekki gefið meiri afslátt
VG-liðar hafa gengið of langt í málamiðlunum í ríkisstjórnarsamstarfinu að mati þingmanns flokksins og hreyfingin getur ekki gefið meiri afslátt. Hún setur fyrirvara við frumvarp um afbrotavarnir sem enn á eftir að afgreiða úr nefnd.

Sextán umsagnir bárust Bjarkeyju sem liggur undir feldi
Matvælaráðherra liggur enn undir feldi með ákvörðun sína um leyfisveitingu til hvalveiða. Umsagnarfresti lauk á miðnætti og sextán umsagnir bárust.

Bæjarfulltrúi aðstoðar ráðherra
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur ráðið Andra Stein Hilmarsson sem tímabundinn aðstoðarmann sinn í stað Eydísar Örnu Líndal, sem er í fæðingarorlofi.

„Skítaskilaboð“ forsetaframbjóðenda til Úkraínumanna
Formaður utanríkismálanefndar Alþingis lýsir afstöðu sumra forsetaframbjóðenda að Ísland eigi ekki að styðja Úkraínumenn til vopnakaupa sem „skítaskilaboðum“. Halla Tómasdóttir, nýkjörin forseti, var einna mest afgerandi í þeirri skoðun fyrir kosningar.

Fjarheilbrigðisþjónusta
Nú í maímánuði voru samþykktar breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu. Með þessum breytingum var verið að bæta inn í lögin ákvæðum um fjarheilbrigðisþjónustu, skýringum á þeirri þjónustu sem flokkast þar undir ásamt ákvæði um upplýsingaöryggi. Hér er um að ræða enn eitt góða málið frá Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra og því ber að fagna.