Líkamsárás við 203 Club

Umdeildur dómur fyrir árás við Club 203 þyngdur verulega
Daniel Zambrana Aquilar, 24 ára karlmaður, var í Landsrétti í dag dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til manndráps. Daniel hafði áður verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í héraði fyrir alvarlega stunguárás. Daniel var dæmdur til að greiða fórnarlambinu 1,5 milljón króna í miskabætur.

Segir dómarann færa fullgild rök fyrir niðurstöðu sinni
Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrverandi Hæstaréttardómari segir rök dómarans vegna dómsins sem féll nú á dögunum vegna stunguárásar í miðbæ Reykjavíkur vera fullgild. Hann hafi verið á því máli að dómurinn hafi átt að vera þyngri þar til hann las dóminn.

„Það gerir mig reiða að það sé verið að niðurlægja strákinn minn svona“
Móðir ungs manns sem varð fyrir lífshættulegri stunguárás í miðborginni í vor segir nýfallinn dóm í málinu skammarlegan. Hún lítur á árásina sem manndrápstilraun og skorar á saksóknara að áfrýja til Landsréttar.

Tvö og hálft ár fyrir stunguárásina við 203 Club
Daniel Zambrana Aquilar, 23 ára karlmaður, hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir alvarlega stunguárás fyrir utan skemmtistaðinn 203 Club við Ingólfstorg í Reykjavík í mars síðastliðnum. Bæði lungu fórnarlambsins féllu saman við árásina en fórnarlambið fékk fleiri áverka. Daniel stakk hann að minnsta kosti sex sinnum með skrúfjárni.

Ákærður fyrir tilraun til manndráps
Tveir karlmenn á þrítugsaldri hafa verið ákærðir fyrir árás fyrir framan skemmtistaðinn 203 Club í miðborg Reykjavíkur. Annar þeirra er ákærður fyrir tilraun til manndráps. Líklegt er að skrúfjárni hafi verið beitt.

Handtekinn og í fjögurra vikna varðhald
Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn lögreglu á stunguárás í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt laugardags. Hann hefur þegar verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald.

Myndband sýnir árásina í miðbænum um helgina
Tvítugur íslenskur karlmaður varð fyrir alvarlegri stunguárás við Ingólfstorg í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt laugardags. Myndband af árásinni er komið í dreifingu á samfélagsmiðlum og má sjá í spilaranum að ofan. Andlit hlutaðeigandi hafa verið afmáð.

Sonur Öldu stunginn sex sinnum í bakið: „Þakklát að hann sé á lífi“
Íslenskur karlmaður liggur á sjúkrahúsi eftir að hann lenti í alvarlegri stunguárás í miðbæ Reykjavíkur um helgina. Móðir hans, Alda Lárusdóttir, segir mildi að ekki hafi farið verr.