
VÍS-bikarinn

Kári: „Fannst við ekkert spila frábærlega en við gerðum nóg“
Kári Jónsson fyrirliði Vals fór fyrir sínum mönnum í dag þegar Valsmenn unnu sinn fyrsta bikarmeistaratitil í 32 ár. Kári var valinn maður leiksins, en hann var stigahæstur á vellinum með 22 stig, og bætti við 7 stoðsendingum og 4 fráköstum.

„Ég hef bara aldrei séð annað eins í körfubolta“
Hörður Axel Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur, var að vonum svekktur eftir stórt tap gegn Haukum í úrslitum VÍS-bikars kvenna í dag. Haukar eru bikarmeistarar þriðja árið í röð.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Keflavík 94-66 | Haukakonur bikarmeistarar með miklum yfirburðum
Haukar eru bikarmeistarar kvenna í körfubolta þriðja árið í röð eftir magnaðan stórsigur gegn Keflavík í Laugardalshöll í dag.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Höttur - Valur 47-74 | Valur mætir Stjörnunni í úrslitum
Valur vann sannfærandi sigur á Hetti í undanúrslitum VÍS-bikarsins 47-74. Höttur átti enginn svör við frábærum varnarleik Vals sem sá til þess að Valsarar mæta Stjörnunni í úrslitum VÍS-bikarsins á laugardaginn.

„Að tapa á móti Val er ekkert til að skammast sín fyrir en ég er ekki sáttur með frammistöðuna“
Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari Hattar, var afar svekktur með frammistöðu Hattar í tuttugu og sjö stiga tapi gegn Val í undanúrslitum VÍS-bikarsins.

Arnar heldur með Hetti: Ég er utan af landi og held með landsbyggðinni
Arnar Guðjónsson, þjálfari Stjörnunnar, var skiljanlega gríðarlega sáttur eftir sigurinn á Keflavík í undanúrslitum VÍS-bikarsins í kvöld. Stjarnan hefur gengið í gegnum nokkuð mikla leikmannaveltu að undanförnu en lét það ekki hafa áhrif á sig.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Keflavík 89-83 | Stjarnan í bikarúrslit fimmta árið í röð
Stjarnan tryggði sér sæti í úrslitaleik VÍS-bikarsins í körfubolta eftir 89-83 sigur á Keflavík í Laugardalshöll í kvöld. Stjarnan mætir annað hvort Val eða Hetti í úrslitum.

Arnar getur komið Stjörnuliðinu í bikarúrslit í fimmtu bikarkeppninni í röð
Arnar Guðjónsson, þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í körfubolta, á dag möguleika á því að koma liði sínu í bikarúrslitaleikinn í fimmta sinn á fimm tímabilum sínum sem þjálfari Garðabæjarliðsins.

„Okkur langar að vera eins og þær þegar við verðum stórar“
„Mér líður vel. Ég er stoltur af stelpunum,“ sagði Arnar Guðjónsson, annar þjálfara Stjörnunnar, eftir 27 stiga tap gegn Keflavík í undanúrslitum VÍS-bikars kvenna.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Keflavík 73-100 | Keflvíkingar í bikarúrslit
Keflavík vann býsna auðveldan sigur gegn ungu liði Stjörnunnar þegar topplið Subway-deildar kvenna og topplið 1. deildar kvenna áttust við í undanúrslitum VÍS-bikarsins í Laugardalshöll.

Umfjöllun: Snæfell - Haukar 62-98 | Haukar ekki í vandræðum með 1. deildarliði Hólmara
Haukar tryggðu sér sæti í úrslitaleik VÍS bikars kvenna í körfubolta eftir sannfærandi sigur á 1. deildarliði Snæfells í Laugardalshöll í kvöld. Lokatölur 98-62 Haukum í vil og munu þær mæta aftur í höllina á laugardaginn til að verja bikarmeistaratitilinn.

Höttur gefur út sérstakt bikarlag fyrir heimsókn í Höllina: Bikarinn á nýjan stað
Höttur skrifar söguna í þessari viku þegar karlalið félagsins spilar bikarleik í Laugardalshöllinni.

Hvað verða margar á bílprófsaldri í byrjunarliði Stjörnunnar í kvöld?
Kvennalið Stjörnunnar hefur farið á kostum í 1. deild kvenna og VÍS-bikarnum í körfubolta í vetur en í kvöld fær þetta unga og skemmtilega lið risastórt próf.

Viðar í Hetti: Fólki hrífst með og það er gott að við séum að gera eitthvað gagn
Viðar Örn Hafsteinsson og lærisveinar hans í Hetti frá Egilsstöðum stigu sögulegt skref á dögunum með því að tryggja sér sæti í undanúrslitum VÍS-bikarsins í körfubolta.

Stjarnan og Keflavík mætast bæði karla- og kvennamegin
Stjarnan og Keflavík mætast í undanúrslitum VÍS-bikarsins í körfubolta, bæði í karla- og kvennaflokki. Dregið var í undanúrslitin í hádeginu.

„Eigum harma að hefna gegn Stjörnunni“
Keflavík er komið áfram í undanúrslit VÍS bikars karla í körfubolta eftir 13 stiga sigur á erkifjendunum í Njarðvík í 8-liða úrslitunum í kvöld, 99-86. Valur Orri Valsson, leikmaður Keflavíkur, gat ekki leynt ánægju sinni í leikslok.

Höttur í undanúrslit eftir sigur á KR
Höttur varð síðasta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslit VÍS-bikars karla í körfubolta þegar liðið vann lánlaust lið KR í Vesturbænum. Munurinn gat ekki verið minni en gestirnir frá Egilsstöðum unnu leikinn 94-93.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík 99-86 Njarðvík | Reykjanesbær er blár
Keflvíkingar unnu afar sannfærandi 13 stiga sigur á nágrönnum sínum í Njarðvík í 8-liða úrslitum VÍS bikar karla í körfubolta í kvöld, 99-86.

Umfjöllun og myndir: Valur - Grindavík 90-80 | Valur tryggði sér farseðilinn í Laugardalshöll
Íslandsmeistarar Vals eru komnir í undanúrslit VÍS-bikars karla í körfubolta. Valur vann Grindavík með tíu stiga mun á Hlíðarenda í kvöld, lokatölur 90-80. Varð Valur þar með annað liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitunum sem fram fara í Laugardalshöll 11. janúar næstkomandi.

Fjórtán og fimmtán ára stelpur frábærar þegar 1. deildarlið komust í undanúrslit
Kornungar körfuboltakonur voru heldur betur í sviðsljósinu um helgina þegar átta liða úrslit VÍS bikar kvenna í körfubolta fóru fram.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík-Njarðvík 103-97 | Keflavíkurkonur unnu baráttuna um Reykjanesbæ
Nágrannaliðin og erkifjendurnir í Reykjanesbæ, Keflavík og Njarðvík, mættust í átta liða úrslitum VÍS-bikars kvenna í Blue-höllinni fyrr í kvöld þar sem Keflvíkingar höfðu að lokum betur eftir tvíframlengdan leik, 103-97.

„Það er eitthvað sem við getum ekki beðið hana um að gera“
Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari kvennaliðs Njarðvíkur í körfubolta, var nokkuð brattur í viðtali við Vísi eftir að lið hans féll úr leik í VÍS bikarnum eftir tap í tvíframlengdum leik, 103-97, gegn Keflavík. Hann sagði leikplan Njarðvíkinga hafa gengið upp að mörgu leyti þrátt fyrir tapið.

Haukar og Stjarnan tryggðu sér sæti í undanúrslitum
Haukar og Stjarnan urðu í kvöld tvö seinustu liðin til að tryggja sér sæti í undanúrslitum VÍS-bikars kvenna í körfubolta. Haukar unnu nauman tveggja stiga sigur gegn Grindavík, 66-64, og 1. deildarlið Stjörnunnar hafði betur gegn Subway-deildarliði ÍR, 84-92. Haukar eru ríkjandi bikarmeistarar og eiga því enn möguleika á að verja titilinn.

Bikarmeistararnir í undanúrslit
Bikarmeistarar Stjörnunnar urðu í dag fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum VÍS-bikars karla í körfubolta er liðið vann sex stiga sigur á 1. deildarliði Skallagríms, 98-92.

Umfjöllun: Njarðvík - Haukar 88-84 | Haukar endanlega úr leik í bikarnum
Njarðvík vann Hauka 88-84 í margfrestuðum leik. Leikurinn var í járnum en sóknarleikur Hauka hrundi í lok fjórða leikhluta og Njarðvík gekk á lagið. Njarðvík mætir grönnum sínum í Keflavík í átta liða úrslitum.

Maté: Hefði viljað vita það fyrr hvenær leikurinn yrði spilaður
Haukar eru úr leik í VÍS-bikarnum eftir fjögurra stiga tap geng Njarðvík 88-84. Maté Dalmay, þjálfari Hauka, var svekktur eftir leik og var ósáttur með hvernig staðið var að tímasetningu leiksins.

Loksins endanleg niðurstaða í máli Tindastóls og Hauka
Áfrýjunardómstóll KKÍ hefur staðfest úrskurð aga- og úrskurðarnefndar KKÍ í málinu sem varðar bikarleik Tindastóls og Hauka í körfubolta karla.

Tindastóll áfrýjaði og óvissan í bikarnum heldur áfram
Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur áfrýjað úrskurði aganefndar KKÍ þess efnis að Haukum skyldi dæmdur 20-0 sigur í bikarleik liðanna í haust.

Haukar með tillögu til sátta: „Þá er enginn „lúser“ í þessu dæmi“
Bragi Hinrik Magnússon, formaður körfuknattleiksdeildar Hauka, segir að markmiðið með því að kæra úrslitin í bikarleiknum gegn Tindastóli hafi ekki verið að koma Haukum áfram í keppninni heldur að laga reglur KKÍ um erlenda leikmenn.

Haukum dæmdur sigur og liðið tekur sæti Tindastóls í 16-liða úrslitum
Haukar munu taka sæti Tindastóls í 16-liða úrslitum VÍS-bikars karla í körfubolta eftir að aga- og úrskurðarnefnd KKÍ dæmdi liðinu sigur í bikarleik liðanna sem fram fór fyrir tæpum mánuði síðan.