
Landslið karla í handbolta

Gapandi hissa á „katastrófu“ í leik Íslands: „Hvaða grín er þetta?“
Sérfræðingar Besta sætisins voru gapandi hissa á atviki sem að kom upp í leik Strákanna okkar við Grænhöfðaeyjar á HM í handbolta í gær. Númerið og nafn Sveins Jóhanssonar, línumanns Íslands, flagnaði af treyjunni hans og ekki var varatreyja til reiðu sem olli því að Sveinn mátti ekki spila síðasta stundarfjórðung leiksins.

HM í dag: Bitur Króati og blaðamenn í brasi
Strákarnir okkar í karlalandsliðinu í handbolta unnu 13 marka sigur á Grænhöfðaeyjum í fyrsta leik á HM í Zagreb. Farið var yfir sviðið í keppnishöllinni eftir leik í HM í dag.

Gaf tvær stoðsendingar í fyrri hálfleik þrátt fyrir að koma ekkert inn á
Tölfræði á stórmótum í handbolta er ekki alltaf sú áreiðanlegasta. Það sannaðist enn og aftur í gær.

„Óheppni ef þú gerir þetta einu sinni en síendurtekið er þetta bara lélegt“
Elliði Snær Viðarsson spilaði aðeins í rúmar tíu mínútur þegar Ísland sigraði Grænhöfðaeyjar, 34-21, í fyrsta leik sínum á HM í handbolta þar sem hann fékk rautt spjald.

Lætur ekki glepjast þrátt fyrir þrettán marka sigur: „Hafa ekki efni á þessu“
Íslenska karlalandsliðið hóf vegferð sína á HM í handbolta með þrettán marka sigri gegn Grænhöfðaeyjum. Rætt var um frammistöðuna í Besta sætinu þar sem að sérfræðingar þáttarins létu þennan sigur á móti liði „sem ætti erfitt með að halda sér í Olís deildinni“ ekki slá ryki í augun á sér. Margt gott við leik íslenska liðsins en mikið rými til bætinga.

Myndasyrpa úr stórsigri strákanna í fyrsta leik á HM
Íslenska karlalandsliðið í handbolta byrjaði heimsmeistaramótið á öruggum þrettán marka sigri í Zagreb í gærkvöldi. Fyrri hálfleikurinn var vissulega betri en sá síðari hjá strákunum en sigurinn var aldrei í hættu eftir 8-2 byrjun. Tólf leikmenn komust á blað og allir fengu að spila.

Skýrsla Vals: Píptest og svefnlyf
Þetta var skrýtinn handboltaleikur. Strákarnir okkar gerðu sitt, drápu allan vonarneista snemma og náðu í 13 marka sigur. Þetta var hins vegar ekki merkilegt eftir hlé.

„Mjög skemmtilegt og sérstaklega á móti Íslandi“
„Maður er ennþá að ná að jarðtengja sig aðeins. Maður er dálítið hátt uppi núna, eftir fyrsta leik á HM, en þetta er gott fyrir reynsluna,“ sagði Hafsteinn Óli Berg Ramos Rocha, sem afrekaði það að spila á móti Íslandi á HM í handbolta í kvöld.

Einkunnir Strákanna okkar á móti Grænhöfðaeyjum: Hlaðborð fyrir hornamennina
Ísland vann þrettán marka sigur á Grænhöfðaeyjum, 34-21, í fyrsta leik sínum í G-riðli heimsmeistaramótsins í handbolta karla í kvöld. Flestir leikmenn íslenska liðsins spiluðu vel í sigrinum sem var mjög öruggur.

Töfræðin á móti Grænhöfðaeyjum: Orri nýtti allt sitt í fyrsta HM-leiknum
Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann þrettán marka sigur á Grænhöfðaeyjum, 34-21, í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramótinu í handbolta en þrátt fyrir öruggan sigur þá átti íslenska liðið engan stórleik. Liðið kláraði engu að síður verkefnið nokkuð sannfærandi og sigurinn var aldrei í hættu.

„Þetta tók eina eða tvær sóknir en svo var ég rólegur“
„Þetta var æðisleg upplifun, að spila sinn fyrsta leik á stórmóti. Þetta var mjög gaman,“ sagði Þorsteinn Leó Gunnarsson strax eftir sinn fyrsta leik á HM, í stórsigrinum gegn Grænhöfðaeyjum.

„Þeir eru ekki með lélega handboltamenn“
„Það var hrikalega skemmtilegt að byrja þetta mót, og á svona sigri,“ sagði hornamaðurinn Orri Freyr Þorkelsson eftir frábæran fyrsta leik sinn á HM í handbolta.

Umfjöllun: Ísland - Grænhöfðaeyjar 34-21 | Strákarnir okkar stungu strax af
Strákarnir okkar hófu HM í handbolta algjörlega án vandræða með viðbúnum stórsigri á Grænhöfðaeyjum, 34-21, í Zagreb í Króatíu í kvöld.

Myndaveisla: Fámenn en góðmenn upphitun í Zagreb
Ekki má búast við mörgum Íslendingum í stúkunni þegar Ísland spilar fyrsta leik liðsins á HM karla í handbolta í Zagreb í Króatíu við Grænhöfðaeyjar klukkan 19:30 í kvöld. Nokkrir tugir voru saman komnir til að hita upp á knæpu í bænum.

Ásgeir Örn um landsliðið: „Þeir hafa ekkert getað ennþá“
Ásgeir Örn Hallgrímsson og Einar Jónsson segja að tími sé til kominn að kjarninn sem skipar íslenska karlalandsliðið í handbolta nái árangri á stórmóti.

Svona var HM-Pallborðið
Ásgeir Örn Hallgrímsson og Einar Jónsson voru gestir Stefáns Árna Pálssonar í sérstakri HM-útgáfu af Pallborðinu. Íslenska karlalandsliðið mætir Grænhöfðaeyjum í fyrsta leik sínum á HM í kvöld.

„Þeir eru mjög óagaðir“
„Það er mikil tilhlökkun að spila sinn fyrsta leik á stórmóti. Þetta hefur verið draumur síðan maður var lítill strákur þannig að þetta verður mikil skemmtun, vonandi,“ segir Þorsteinn Leó Gunnarsson sem þreytir frumraun sína á HM með íslenska karlalandsliðinu í handbolta í Zagreb.

Ísland sennilega ekki úr milliriðli en 14,2 prósent líkur á undanúrslitum
Háskólinn í Reykjavík hitaði upp fyrir heimsmeistaramótið í handbolta í HR stofunni, í tilefni þess að íslenska karlalandsliðið leikur sinn fyrsta leik á mótinu í dag. Gestir HR stofunnar voru Patrekur Jóhannesson og Arnar Pétursson og þá kynnti Dr. Peter O‘Donoghue, prófessor við íþróttafræðideild HR, spálíkan sem hann hefur gert fyrir mótið.

„Vil að menn spili eins og hver leikur sé sá síðasti á ferlinum“
„Tilfinningin er góð rétt fyrir mót,“ segir landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson við Vísi þegar rúmur sólarhringur var í fyrsta leik liðsins á HM í handbolta.

Gætið ykkar: Pina en væntanlega engin kvöl
Fyrstu mótherjar Íslands á HM í handbolta hafa litla reynslu af stórmótum og ættu ekki að reynast mikil hindrun. Í liði Grænhöfðaeyja finnast þó flottir leikmenn og einn þeirra skoraði ellefu mörk gegn Íslandi fyrir tveimur árum.

Aron ekki skráður inn á HM
Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta hefur valið 17 manna hóp fyrir komandi Heimsmeistaramót. Ísland leikur fyrsta leik sinn á mótinu í kvöld gegn Grænhöfðaeyjum. Aron Pálmarsson er ekki skráður inn í mótið en hægt er að bæta honum við leikmannahópinn seinna meir.

HM í dag: Allslaus leikmaður Kúbu með vindla til sölu
Strákarnir okkar í handboltalandsliðinu hefja leik á HM í Zagreb í dag. Fulltrúar Vísis eru mættir á staðinn og hafa áhugaverða ferðasögu að segja.

HM-barinn í Zagreb klár en Sérsveitin sparar kraftana
Ljóst er að fjölmargir stuðningsmenn íslenska karlalandsliðsins í handbolta hafa sett stefnuna til Zagreb í Króatíu, vegna HM, en þó er ekki búist við að margir verði á fyrsta leiknum, við Grænhöfðaeyjar í kvöld.

„Var að vonast til að spila með Íslandi en ekki vera hinum megin“
Hafsteinn Óli Berg Ramos Rocha verður í leikmannahópi Grænhöfðaeyja í kvöld er liðið spilar við Ísland í fyrsta leik liðanna á HM í handbolta.

Spáir Íslandi sæti í undanúrslitum
Kristján Andrésson, fyrrum landsliðsmaður Íslands og landsliðsþjálfari Svíþjóðar frá 2016 til 2020, telur að strákarnir okkar fari í undanúrslit á HM í handbolta. Ísland hefur leik gegn Grænhöfðaeyjum í Zagreb í dag.

„Líður eins og ég sé tvítugur“
Markvörðurinn síungi Björgvin Páll Gústavsson er sem fyrr í leikmannahópi íslenska landsliðsins en þar hefur hann verið síðan árið 2008.

„Fíaskó“ og Norðmenn í lítt eftirsóttan hóp með strákunum okkar
Norðmenn töpuðu óvænt fyrsta leik á HM karla í handbolta fyrir liði Brasilíu í Bærum í útjaðri Oslóar í gærkvöld. Það er ekki á hverjum degi sem Evrópuþjóðir tapa fyrir liðum utan álfunnar á heimavelli.

Bað um nýtt herbergi í Zagreb
Elliði Snær Viðarsson er klár í slaginn fyrir komandi heimsmeistaramót karla í handbolta. Hann tók út rauðu spjöldin fyrir mót og sefur eins og ungabarn á hótelinu í Zagreb.

Stökk óvænt til á HM: „Mér var alveg sama“
„Þetta er fínt hótel, fínn matur, fín æfingaaðstaða. Þetta er bara topp,“ segir línumaðurinn Sveinn Jóhannsson sem kom óvænt inn í landsliðshóp Íslands fyrir komandi heimsmeistaramót. Hann kveðst afar spenntur fyrir komandi móti.

Strákarnir ferskir á æfingu í Zagreb
Íslenska karlalandsliðið í handbolta æfði í íþróttahöll liðs Tresnjevka í króatísku höfuðborginni Zagreb í morgun. Á æfingunni tóku allir leikmenn fullan þátt að Aroni Pálmarssyni undanskildum, sem leikur ekki með liðinu fyrr en í milliriðil verður komið.