
Endurtalning í Norðvesturkjördæmi

Undirbúningskjörnefnd kemur saman á opnum fundi í dag
Undirbúningskjörnefnd kemur saman á fundi í dag til að fara yfir kærur sem borist hafa vegna framkvæmdar þingkosninganna í Norðvesturkjördæmi.

Ummæli Birgis Ármannssonar óheppileg
Fráfarandi þingmaður segir að hringekja hafi breyst í rússíbana þegar endurtalning breytti jöfnunarsætum með þeim afleiðingum að hún datt út af þingi. Hún gagnrýnir formann kjörbréfanefndar fyrir að lýsa yfir sinni persónulegri skoðun áður en nefndin hefur komist að niðurstöðu um Norðvesturkjördæmi.

Líst ekkert sérlega vel á að kjósa aftur
Fólk er almennt ekki sérlega spennt fyrir uppkosningu þrátt fyrir annmarka á talningu í Norðvesturkjördæmi. Framkvæmdin þar hefur laskað traust almennings á kosningum ef marka má viðmælendur fréttastofu.

„Það skiptir máli hvaða manneskjur setjast á þing“
Formaður Stjórnarskrárfélagsins hefur lagt fram kæru vegna Alþingiskosninganna og kallar eftir að þjóðin öll gangi að kjörstöðum að nýju. Vistaskipti Birgis Þórarinssonar, þingmanns í Suðurkjördæmi, sýni svart á hvítu hve miklu máli skipti hvaða fólk hafi komist inn á þing.

Átta hafa kært framkvæmd talningar
Allir frambjóðendurnir sem duttu út sem jöfnunarþingmenn eftir endurtalninguna í Norðvesturkjördæmi, auk tveggja borgara, hafa kært framkvæmdina. Formaður undirbúningskjörbréfanefndar segir að ákveðið hafi verið að hafa fundi hennar opna.

Tæpur fjórðungur vantreystir niðurstöðum kosninganna
Tæpur fjórðungur landsmanna treystir niðurstöðum nýafstaðinna Alþingiskosninga illa. Traustið er komið niður í það sem þekkist í nágrannalöndum eftir að hafa sögulega séð verið mjög mikið hér á landi.

Búið að uppfæra þingmannalistann á alþingi.is til samræmis við úrslitin eftir endurtalningu
Búið er að uppfæra þingmannalistann á Alþingisvefnum til samræmis við úrslit kosninganna. Athygli vekur að það hefur verið gert í samræmi við niðurstöður seinni talningarinnar í Norðvesturkjördæmi, þrátt fyrir að hún hafi verið kærð.

Undirbúningskjörbréfanefnd þarf góðan tíma til að meta kosningaúrslitin
Formaður undirbúningskjörbréfanefndar Alþingis telur nefndina þurfa nokkrar vikur til að ljúka vinnu sinni vegna kæra sem borist hafa í tengslum við meðferð kjörgagna í Norðvesturkjördæmi.

Bætist í hóp kærenda Alþingiskosninganna
Lenya Rún Taha Karim, frambjóðandi Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður, kærði í dag endurtalningu í Norðvesturkjördæmi. Hún hefði náð sæti sem jöfnunarþingmaður hefði niðurstaða upphaflegrar talningar staðið.

Fulltrúar frá landskjörstjórn koma fyrir undirbúningsnefnd í dag vegna Norðvesturkjördæmis
Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa mun funda í dag kl. 13. Þetta er annar fundur nefndarinnar, sem kom fyrst saman á mánudag, en fyrir henni, og í framhaldinu, kjörbréfanefnd, liggur að finna lausn á hinum ýmsu álitamálum sem komin er upp vegna talningar atkvæða í Norðvesturkjördæmi.

Fundir kjörbréfanefndar verða ekki allir opnir
Fyrsti fundur undirbúningskjörbréfanefndar sem fór fram í dag gekk vel að sögn formanns hennar. Nefndarmenn eru almennt á því að fundir eigi að vera opnir þegar hægt er og vonast til að geta myndað breiða sátt um lausn á ágreiningi um kosningarnar.

Segir ótvírætt að þingið hafi lokaorðið um gildi kosninga
Formaður undirbúningsnefndar kjörbréfanefndar segir alveg ótvírætt að þingið hafi síðasta orðið um það samkvæmt stjórnarskrá hvort kosningar séu gildar og hvort þingmenn séu rétt kjörnir.

Birgir Ármannsson verður formaður kjörbréfanefndar
Birgir Ármannsson var kjörinn formaður kjörbréfanefndar á fyrsta fundi undirbúningsnefndarinnar í dag. Hann hefur gegnt því hlutverki áður og hefur jafnframt langmesta reynslu allra af störfum í nefndinni.

Skipta út konu fyrir karl vegna jafnréttissjónarmiða
Breyting hefur orðið á vali Framsóknarflokksins í kjörbréfanefnd. Hafdísi Hrönn Hafsteinsdóttur hefur verið skipt út fyrir Jóhann Friðrik Friðriksson.

Ræða hvort fundirnir verði opnir öllum
Undirbúningskjörbréfanefnd kemur saman klukkan eitt í dag á nefndarsviði Alþingis til að hefjast handa við að reyna að leysa úr þeirri flóknu stöðu sem er komin upp eftir endurtalninguna í Norðvesturkjördæmi. Á fundinum verður formaður nefndarinnar valinn og meðal annars rætt hvort fundir hennar verði opnir eða ekki.

Undirbúningsnefnd kjörbréfanefndar fundar í dag
Undirbúningsnefnd kjörbréfanefndar Alþingis fundar í dag og fer þar yfir þau kjörbréf sem landskjörstjórn gaf út fyrir helgi. Nefndinni er falið að undirbúa tillögur til þingsins um afgreiðslu kjörbréfanna en hún þarf einnig að taka til umræðu kærur sem hafa borist, eða munu berast, vegna nýliðinna kosninga.

Kjörbréfanefnd fullskipuð
Undirbúningskjörbréfanefnd tekur væntanlega til starfa eftir helgi. Níu manns sitja í nefndinni.

Landskjörstjórn gefur út kjörbréf samkvæmt seinni talningu í Norðvesturkjördæmi
Landskjörstjórn gaf í dag út kjörbréf þeirra sextíu og þriggja þingmanna sem náðu kjöri til Alþingis í kosningunum á laugardag miðað við seinni talningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi. Undirbúningskjörbréfanefnd þingsins tekur kjörbréfin til skoðunar á fundi á mánudag.

Yfirstjórn í NV biður kjósendur og frambjóðendur afsökunar
Yfirkjörstórn í Norðvesturkjördæmi biður frambjóðendur til Alþingis og kjósendur afsökunar á þeim mistökum sem áttu sér stað við talningu atkvæða í kjördæminu. Yfirkjörstjórnin harmar þá stöðu sem upp er komin. Framkvæmd kosninga hefur bæði verið kærð til lögreglu og kjörbréfanefndar.

Kærendur talningar í Norðvesturkjördæmi vilja ógilda kosningar í kjördæminu
Magnús Davíð Norðdahl frambjóðandi í fyrsta sæti Pírata í Norðvesturkjördæmi í kosningunum á laugardag vill að kosningarnar í kjördæminu verði ógiltar og kosið aftur. Hann afhenti Alþingi kæru þessa efnis í dag sem frambjóðandi í kjördæminu, almennur kjósandi og sem umboðsmaður Pírata í málinu.

Kæran komin í hendur forseta Alþingis
Magnús Davíð Norðdahl, oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi og lögmaður, segist trúa því og treysta að þingmenn skoði kosningakæru sem hann afhenti forseta Alþingis í dag af fullri sanngirni og alvöru.

Telur að fjöldi muni leita réttar síns sama hvað verður ákveðið
Samfylkingin virðist vera eini flokkurinn sem hefur þegar tilnefnt fulltrúa í kjörbréfanefnd til bráðabirgða. Hinir flokkarnir gera það síðar í dag. Oddviti Pirata hyggst kæra kosningarnar til Alþingis í dag. Þingmaður Samfylkingarinn segir líkur á að fjöldi einstaklinga muni leita réttar síns.

Tveir flokkar fá ekki sæti í kjörbréfanefnd
Á morgun kemur í ljós hverjir munu sitja í kjörbréfanefnd Alþingis, sem mun þurfa að leysa þá flóknu stöðu sem upp er komin eftir endurtalninguna í Norðvesturkjördæmi. Ákall er uppi um að störf nefndarinnar fari fram fyrir opnum tjöldum.

Kosningaskandallinn og mögulegar lausnir í Pallborðinu
Hin umdeilda staða sem upp er komin eftir kosningarnar og mistök við framkvæmd talningar í Norðvesturkjördæmi var til umræðu í Pallborðinu á Vísi og Stöð 2 Vísi klukkan 14 í dag.

Mjög mikilvægt að nefndin sé hlutlaus
Starfandi forseti Alþingis segir mikilvægt að kjörbréfanefnd njóti trausts og sé hlutlæg. Hann telur að það yrði erfitt fyrir jöfnunarþingmenn eða þingmenn Norðvesturkjördæmis að taka sæti í nefndinni.

Skipt um lás í Suðvesturkjördæmi og öryggisvörður gætti gagna í Ráðhúsinu
Yfirkjörstjórn Suðvesturkjördæmis virðist hafa gengið hvað lengst til þess að tryggja öryggi kjörgagna á kjördag og eftir talningu atkvæða. Skipt var um lás á geymslunni þar sem kjörgögnin voru geymd og eini lykillinn að henni skilinn eftir í vörslu yfirkjörstjórnar.

Fimm ástæður fyrir að endurtaka kosningarnar í heild sinni
Eins og fram kom í fréttum í gær hefur Mannréttindadómstóllinn þegar komist að því að kerfi þar sem þingmenn úskurði sjálfir um lögmæti kjörs síns standist ekki 3. grein I. viðauka við lögfestan Mannréttindasáttmála Evrópu.

Alvarlegasti misbrestur í lýðveldissögunni
Karl Gauti Hjaltason, fráfarandi þingmaður Miðflokksins, segir að þetta sé í fyrsta sinn í lýðveldissögu Íslands sem alvarlegur misbrestur hafi komið upp við framkvæmd kosninga. Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingar, segir stöðuna vera fádæma klúður.

Vilja ekki nýjar kosningar í Norðvesturkjördæmi: „Bíttar þetta svo miklu?“
Íbúar í Norðvesturkjördæmi eru fæstir á þeim buxunum að blása eigi til nýrra kosninga eftir að annmarkar á framkvæmd þeirra í kjördæminu komu í ljós.

Íslendingar ættu ekki von á góðu í Strassbourg
Mannréttindadómstóll Evrópu telur ótækt að þingmenn greiði sjálfir atkvæði um lögmæti eigin kjörs, eins og til stendur hér á landi. Lögfræðiprófessor segir Íslendinga enn geta komið í veg fyrir að kosningin í Norðvesturkjördæmi fari til Strassbourg, en þá þurfi að hafa hraðar hendur.