

Hönnuðurinn og listakonan Sigga Heimis hefur sett fallega hæð við Flókagötu 39 á sölu. Um er að ræða 178 fermetra eign í reisulegu húsi sem var byggt árið 1944. Ásett verð er 154,9 milljónir.
Þrátt fyrir mikla siglingu á hlutabréfaverði Heima í Kauphöllinni að undanförnu, meðal annars drifið áfram af endurkaupum, væntingum um frekari vaxtalækkanir og bættri rekstrarafkomu, þá er fasteignafélagið enn nokkuð undirverðlagt á markaði, að mati greinenda. Verðmatið á Heimum hefur verið hækkað en félagið gaf nýlega út jákvæða afkomuviðvörun og seldi frá sér eignir utan kjarnasvæða.
Sérlega athyglisvert parhús í botnlanga á Sogavegi er nú komið á sölu. Það er sérstaklega athyglisvert enda er stór heitur pottur í garði hússins sem mætti ganga svo langt að hreinlega kalla sundlaug.
Ívera íbúðafélag, áður Heimstaden, hefur gengið frá samningum við dótturfélag KEA um kaup hins síðarnefnda á um 120 íbúðum Íveru á Akureyri. Kaupverð eignanna er rúmir 5 milljarðar króna.
Rebekka Rafnsdóttir, kvikmyndagerðarkona og rithöfundur, hefur sett fallega hæð við Ægisíðu á sölu. Um er að ræða 174 fermetra hæð í húsi sem var byggt árið 1952 og steinað meðal annars með íslenskri hrafntinnu.
Grínistinn Halldór Laxness Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA, og eiginkona hans, Magnea Þóra Guðmundsdóttir arkitekt, hafa sett íbuð sína við Skeljanes á sölu. Ásett verð er 108 milljónir.
„Til að bæta gráu ofan á svart, þá miðast óverðtryggð og allt að því verðtryggð lán á Íslandi að stórum hluta til við stýrivexti Seðlabankans. Í mínum huga er þetta alveg galið. Seðlabankavextir eru sú prósenta sem að fjármálastofnanir fá fyrir að leggja pening inn í Seðlabankann til sjö daga í senn. Vaxtakjör íslenskra heimila, óverðtryggðra og óbeint verðtryggðra vaxta miðast við sjö daga innlán hverju sinni. Það segir sig nokkuð sjálft að þegar þú ert að líta á þessar sveiflur að þá eru miklu meiri sveiflur í skammtíma vöxtum.“
Einkaþjálfarinn Arnar Grant hefur fest kaup á íbúð við Drómundarvog í Reykjavík. Íbúðina keypti hann af Ólafi Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekanda.
Ragnhildur Sveinsdóttir, betur þekkt sem Ragga Sveins, hefur sett glæsihús sitt á Arnarnesi á sölu. Um er að ræða tæplega 500 fermetra einbýlishús á tveimur með stórbrotnu útsýni. Ásett verð er 590 milljónir.
Tónlistarkona Bjartey Sveinsdóttir og kærastinn hennar Hrafn Ingason hafa sett íbúð sína við Leifsgötu í Reykjavík á sölu. Um er að ræða fallega 60 fermetra eign í húsi sem var byggt árið 1937.
Yfirskattanefnd hefur hafnað kröfu konu sem taldi sig eiga rétt á helmingsafslætti stimpilgjalds vegna fyrstu kaupa íbúðarhúsnæðis. Var það vegna eignarhlutar í íbúðarhúsnæði, sem hún hlaut í arf á barnsaldri, að virði 45.000 króna.
Daníel Takefusa Þórisson, leikari og verkfræðingur, og unnusta hans, Ásdís Eva Ólafsdóttir, forstjóri Arctic Circle og fyrirsæta, hafa sett íbúð sína við Ljósvallagötu í Reykjavík á sölu. Ásett verð fyrir eignina er 79,9 milljónir.
Útvarpsmaðurinn Egill Ploder Ottósson og sambýliskona hans Thelma Gunnarsdóttir, sérfræðingur í sjálfbærni hjá Embla Medical, hafa sett íbúð sína við Naustabryggju í Reykjavík á sölu. Ásett verð er 64,9 milljónir.
Herkastalinn, eitt sögufrægasta hús Reykjavíkur, hefur verið skráð á sölu og tilboða er óskað. Húsið er í eigu félags í eigu Quangs Lé, athafnamanns sem grunaður er um fjölda afbrota.
Kraftlyftingahjónin Ellen Ýr Jónsdóttir og Júlían J. K. Jóhannsson, íþróttamaður ársins 2019, hafa sett íbúð sína við Sogaveg í Reykavík á sölu. Ásett verð er 79,9 milljónir.
Tara Sif Birgisdóttir, fasteignasali og dansari, og eiginmaður hennar Elfar Elí Schweitz Jakobsson lögfræðingur, hafa sett íbúð sína við Álalind í Kópavogi á sölu. Ásett verð er 96,8 milljónir.
Norskt fyrirtæki sem býður einstaklingum að selja hluta af eign sinni í fasteign til fjárfestingasjóðs ætlar að hasla sér völl hér á landi og hefur ráðið Sigurð Viðarsson, fyrrverandi aðstoðarforstjóra Kviku banka, sem framkvæmdastjóra félagsins á Íslandi. Með miklum hækkunum á fasteignamarkaði hefur hreinn auður margra heimila aukist verulega en á sama tíma er hátt vaxtastig farið að valda sumum þeirra lausafjárerfiðleikum.
Davíð Lúther Sigurðarson, framkvæmdastjóri veitinga- og afþreyingastaðarins Oche, og Linda Björk Hilmarsdóttir, markþjálfi og verslunareigandi, hafa sett sælureitinn sinn við Tjarnabyggð á Selfossi á sölu. Ásett verð er 117, 9 milljónir.
Samkvæmt nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eru „Grindavíkuráhrifin“ að fjara út á fasteignamarkaðnum.
Ferðaljósmyndarinn og áhrifavaldurinn Ása Steinarsdóttir og eiginmaður hennar Leo Sebastian Alsved hafa fest kaup á einbýlishúsi við Steinás í Garðabæ. Hjónin greiddu 188 milljónir fyrir eignina.
Samtökin '78 hafa sett bækistöðvar sínar að Suðurgötu 3 á sölu. Óskað er eftir tilboðum í eignina.
Erna Mist Yamagata listakona og Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri hafa fest kaup á 134 fermetra hæð í Vesturbæ Reykjavíkur. Parið greiddi 126,9 milljónir fyrir eignina.
Þeir sem selt hafa hús sín í Grindavík til Þórkötlu geta frá og með deginum í dag gert samning um afnot af húsinu, gegn greiðslu. Um er að ræða svokallaðan hollvinasamning sem byggir á samstarfi Þórkötlu við seljendur húsa í Grindavík og snýr að umhirðu, viðhaldi og eftirliti með húsunum.
Við skerjabraut á Seltjarnarnesi er að finna stílhreina og fallega 137 fermetra íbúð á tveimur hæðum í húsi sem var byggt árið 2015. Ásett verð er 137,9 milljónir.
Kári Knútsson, lýtalæknir og hluthafi í Klínikinni Ármúla, og Erla Ólafsdóttir, fyrrverandi bankastarfsmaður, hafa sett íbúð sína við Bryggjugötu í Reykjavík á sölu. Ásett verð er 330 milljónir.
Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emerítus í íslenskri málfræði, og Guðrún Ingólfsdóttir hafa sett einbýlishús sitt við Smyrilsveg í Reykjavík á sölu. Húsið var byggt árið 1929. Ásett verð er 135 milljónir.
Einbýlishús að Hátúni 1 í Reykjanesbæ hefur verið auglýst til sölu á 83 milljónir króna. Húsið var keypt á nauðungaruppboði á þrjár milljónir króna eftir að það hafði verið tekið upp í skuldir ungs öryrkja.
Við Gunnarssund í Hafnarfirði er að finna sjarmerandi 134 fermetra einbýlishús. Húsið var byggt árið 2011 og er á tveimur hæðum. Ásett verð 119,9 milljónir.
Við Þrastarhöfða í Mosfellsbæ er glæsilegt 250 fermetra einbýlishús á einni hæð, byggt árið 2006. Húsið hefur verið endurnýjað verulega síðustu ár og var innanhússhönnunin í höndum Rutar Káradóttur. Ásett verð er 225 milljónir.
Brimgarðar, stór einkafjárfestir í öllum skráðu fasteignafélögunum, hefur á undanförnum tveimur mánuðum losað um verulegan hluta af stöðu sinni í Heimum og Reitum samtímis því að fjárfestingafélagið hefur freistað þess að stækka enn frekar við eignarhlut sinn í Eik.