Stytting vinnuvikunnar

Fréttamynd

„Fjöl­skyldur eru margar í al­gjörri spenni­treyju“

Oddviti Sjálfstæðisflokksins og formaður Eflingar telja nýjar tillögur Reykjavíkurleiðarinnar betri en þær sem voru kynntar í haust. Formaður Eflingar hefur áhyggjur af því að ekki sé nóg gert til að bregðast við alvarlegri stöðu innan leikskóla en er vongóð. Oddviti Sjálfstæðisflokksins hefur áhyggjur af áhrifum breytinganna á fjölskyldur og er ekki hrifin af tekjutengingu í gjaldskrá.

Innlent
Fréttamynd

Borgin taki til sín fimmtung launa­hækkunar barnafólks

VR gerir ráð fyrir því að Reykjavíkurborg taki um 20 prósent, eða fimmtung, af kjarasamningsbundnum launahækkunum barnafjölskyldna í borginni á þessu ári. Mest muni þar í krónum talið um nýkynnta hækkun á leikskólagjöldum en hitaveitukostnaður vegi einnig hlutfallslega þungt. 

Innlent
Fréttamynd

Stærstur hluti for­eldra falli al­gjör­lega utan af­sláttar­kerfis

Formenn VR og BSRB gagnrýna breytta Reykjavíkurleið. Formaður VR segir tekjutengingu leikskólagjalda fátæktargildru og formaður BSRB segir flesta foreldra nú standa frammi fyrir því að greiða meira eða þurfa að draga úr vinnu. Hún segir umhugsunarvert að svo stórar kerfisbreytingar hafi orðið án nokkurrar pólitískrar umræðu og gagnrýnir að starfsfólki og foreldrum sé stillt upp sem andstæðum hópum.

Innlent
Fréttamynd

Rukka ekki fyrir 36 tíma leikskóladvöl

Í nýrri Reykjavíkurleið er gert ráð fyrir að gjaldfrjálsi 36 tíma dvöl í leikskóla, að undanskildu fæðisgjaldi sem er rúmar 15 þúsund krónur. Allir einstæðir foreldrar fá afslátt og fólk í sambúð sem þénar minna en 18 milljónir á ári. Skráningardagar eru um 11 á ári og mun hver þeirra kosta 5000 krónur. Markmið með breytingum er að fá foreldra til að skrá raundvalartíma barna sinna. 

Innlent
Fréttamynd

Kynna breytta Reykjavíkurleið

Reykjavíkurleiðin, leikskólaleiðin í Reykjavík, verður kynnt á blaðamannafundi í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Reykjavíkurleiðin var fyrst kynnt síðasta haust og fór þá í samráð. Eftir samráð var tillögunum breytt og þær sendar í jafnréttismat. Breyttar tillögur verða kynntar í ráðhúsinu klukkan 11 í beinni útsendingu á Vísi.

Innlent
Fréttamynd

Skila af sér breyttri Reykja­víkur­leið í febrúar

Líf Magneudóttir, formaður stýrihóps um leikskólaleiðina og oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, segir brýningu leikskólastjóra borgarinnar um stöðu leikskólanna, mönnunar og innleiðingu styttingar vinnuvikunnar mikilvæga. Hún áætlar að stýrihópurinn muni skila af sér í febrúar.

Innlent
Fréttamynd

Helmingur ríkis­stofnana hafi stytt opnunar­tíma

Síðan samið var um styttingu vinnuvikunnar fyrir sex árum hefur um helmingur ríkisstofnana stytt opnunartíma sinn. Algengast er að opnunartíminn hafi verið styttur um tvær klukkustundir, úr átta í sex, í þeim tilfellum sem það hefur verið gert. Þá hefur opnunartími haldist óbreyttur hjá rúmum þriðjungi stofnana ríkisins en þrettán prósent þeirra hafa lengt opnunartíma sinn.

Innlent
Fréttamynd

Kynna breytta Reykja­víkur­leið eftir ára­mót

Líf Magneudóttir, formaður stýrihóps um leikskólaleiðina og oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, segir stýrihópinn enn að vinna úr umsögnum um Reykjavíkurleiðina svokölluðu. Líf segir hópinn stefna á að kynna breytingar Reykjavíkurleiðinni eftir áramót.

Innlent
Fréttamynd

Reisa minnis­merki um síðutogaraútgerð á Akur­eyri

Bæjarráð Akureyrarbæjar hefur samþykkt að ganga til samninga við Sjómannafélag Eyjafjarðar um uppsetningu og viðhald minnisvarða um síðutogaraútgerð á Akureyri. Til stendur að minnisvarðinn verði reistur við strandstíginn við Drottningarbraut á Akureyri, en áætlaður kostnaður vegna minnisvarðans er hálf milljón króna sem bærin mun leggja til, en að öðru leyti skal Sjómannafélag Eyjafjarðar standa straum af kostnaði vegna verksins.

Innlent
Fréttamynd

Lík­legast að Reykja­víkur­leiðin taki breytingum eftir um­sagnir

Líf Magneudóttir, formaður stýrihóps um leikskólaleiðina og oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, segir stýrihópinn stefna að því að vinna úr umsögnum um Reykjavíkurleiðina svokölluðu hratt og örugglega. Stýrihópurinn fundar tvisvar í þessari viku. Líf segir líklegt að tillagan muni ekki vera samþykkt í þeirri mynd sem hún var lögð fram og nefnir í því samhengi tekjubil í gjaldskrá fyrir afslætti og skráningu á skráningardögum með þeim fyrirvara að hópurinn eigi eftir að taka málið til umræðu.

Innlent
Fréttamynd

„Kópavogsmódelið er ekkert annað en þjónustuskerðing“

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjarfulltrúi Pírata í Kópavogi, segir niðurstöður nýrrar rannsóknar Vörðu um viðhorf foreldra til Kópavogsmódelsins svokallaða sýna að enn sé þörf á að gera betur og hlusta á foreldra í Kópavigi. Niðurstöður bendi til þess að foreldrar séu undir miklu álagi og tímapressu eftir innleiðingu módelsins 2023.

Innlent
Fréttamynd

Til­lögurnar í leik­skóla­málum séu von­brigði og upp­gjöf

Formaður BSRB segir nýjar tillögur meirihlutans í Reykjavík í leikskólamálum vonbrigði. Tillögurnar taki ekki á grunnvanda leikskólakerfisins heldur velti álagi og kostnaði yfir á foreldra. Það sé vel hægt að gera kerfi sem hentar börnum, foreldrum og starfsfólki og það sé ekki þetta kerfi. 

Innlent
Fréttamynd

Módelið svín­virkar fyrir marga en þó ekki alla

Almenn ánægja er meðal stjórnenda og starfsfólks leikskóla Kópavogs með innleiðingu Kópavogsmódelsins svonefnda en skoðanir eru mjög skiptar meðal foreldra. Leikskólum hefur nær aldrei verið lokað vegna manneklu eða veikinda frá því módelið var tekið upp fyrir tveimur árum. Verkalýðsfélög segja módelið aðför að jafnrétti kynjanna og sumir foreldrar eru afar gagnrýnir á háa greiðslubyrði og takmarkaða afslætti miðað við nágrannasveitarfélög.

Innlent
Fréttamynd

Það er ekkert til sem heitir full vinnustytting með 15 mínútna neysluhléi

Jæja, kostulegt, en viti menn ég er aftur sest niður til þess að skrifa um útfærslu á vinnustyttingu, í þetta skiptið á það ekki bara við um útfærslu í leikskólum landsins, ó nei, heldur á það við um þá mörgu vinnustaði sem rituðu undir kjarasamning veturinn 2019-2020 þar sem heimild er til þess að gera breytingu á vinnutíma og stytta vinnuvikuna í allt að 36 stundir á viku.

Skoðun
Fréttamynd

Stytting vinnu­vikunnar hjá grunnskólakennurum

Síðan ákveðið var að innleiða styttingu vinnutíma hjá grunnskólakennurum hef ég lagt höfuðið í bleyti og reynt að sjá fyrir mér þennan gjörning raungerast í sátt miðað við þær forsendur sem eru gefnar.

Skoðun
Fréttamynd

Hvaða styttu á að fjar­lægja næst?

Séra nokkur kom m.a. að stofnun KFUM og KFUK, Knattspyrnufélagsins Vals og sumarbúðanna í Vatnaskógi. Sérann var yfir nírætt þegar hann lést árið 1961. Á meðan sérann var enn á lífi þótti ástæða til að reisa af honum styttu en hún var afhjúpuð árið 1955. Síðan þá hefur styttan verið í miðborg Reykjavíkur.

Skoðun
Fréttamynd

Um vinnustyttingu á leikskóla - Vinnustytting eða ísköld blekking?

Svo ég geti fengið 36 stunda vinnuviku í staðinn fyrir 40 þá þarf ég að „gefa eftir forræði yfir kaffitímanum mínum“. Athyglisvert í ljósi þess að margar aðrar starfsstéttir fá einfaldlega vinnustyttingu, eins og nafnið segir til um, styttingu á vinnutíma en halda sömu launum og fullum kaffitíma. Jú því það var nú tilgangurinn með vinnustyttingu, að launafólk fengi styttingu á vinnutíma en héldi sömu launum, sem sé yrði ekki fyrir kjaraskerðingu. Takið eftir ágætu lesendur, þetta á ekki við um leikskólakennara. Óh nei.

Skoðun
Fréttamynd

„Í rauninni bara sagt: Gjörið svo vel, reddið þessu“

Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir að illa hafi gengið að greina mælanlegan árangur í verkefni ríkisins um styttingu vinnuvikunnar. Margir þættir séu óljósir og undirbúningstíminn hafi verið knappur. Í raun hafi verkefninu verið komið í hendur annarra og þeim sagt að „redda þessu.“

Innlent
Fréttamynd

„Betri vinnutími“

Mikil umskipti hafa orðið til hins betra á mörgum vinnustöðum með styttingu vinnuvikunnar. Þannig hafa verið stigin stór skref í að gera íslenskt samfélag fjölskylduvænna. Fólki hefur verið gert kleift að njóta í meira mæli samveru með fjölskyldu og vinum. Stytting vinnuvikunnar felur sannarlega í sér aukin lífsgæði.

Skoðun
Fréttamynd

Vilja stytta vinnu­vikuna enn frekar

Friðrik Jónsson, formaður BHM segir styttingu vinnuvikunnar hafa tekist mjög vel. Starfsfólk sé ánægt með breytinguna. Nú þurfi vinnulöggjöfin að breytast og óskað sé eftir því að vinnuvikan sé stytt enn frekar.

Innlent