Þýski boltinn

Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð
Í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta vann Lillestrøm 2-5 sigur á Lyn. Ásdís Karen Halldórsdóttir skoraði fyrsta mark þeirra gulu og svörtu.

Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt
Fortuna Düsseldorf komst í hann krappann gegn Köln í þýsku B-deildinni í dag en náði að bjarga stigi. Lokatölur 2-2.

Segir Leipzig hinn fullkomna áfangastað fyrir unga og efnilega leikmenn
Það má með sanni segja að RB Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni sé besti áfangastaður ungra og efnilegra knattspyrnumanna í Evrópu. Á undanförnum árum hefur liðið selt fjöldann allan af leikmönnum fyrir gríðarlega háar fjárhæðir.

Kompany svarar fyrir sig: „Líkurnar mínar voru 0,000 eitthvað“
Vincent Kompany, stjóri Bayern München, nýtti tækifærið í gærkvöld til að svara þeim sem efast hafa um að hann ráði við starfið, sem hann fékk óvænt í hendurnar í sumar.

Sagði fjölmiðlum að hætta að kalla Valgeir „Friðriksson“
Valgeir Lunddal lék sinn fyrsta leik fyrir Fortuna Düsseldorf í gær, í þýsku 2. deildinni í fótbolta. Fjölmiðlafulltrúi þýska félagsins nýtti tækifærið til að kenna fjölmiðlum rétta notkun á nafni Íslendingsins.

Ísak Bergmann lagði upp mark í sigri í Íslendingaslag
Ísak Bergmann Jóhannesson lét til sína taka þegar lið hans Fortuna Düsseldorf vann góðan útisigur á Herthu Berlín.

Kane sló met Haaland sem sló met Rooney
Tveir af helstu markahrókum ensku og þýsku úrvalsdeildanna undanfarin ár, Erling Haaland og Harry Kane, voru báðir á skotskónum í gær. Harry Kane sló met sem Haaland átti áður en Haaland sló met sem var áður í eigu Wayne Rooney.

Glódís Perla með stoðsendingu í öruggum sigri
Þýskalandsmeistarar Bayern München unnu 6-2 sigur á RB Leipzig í þýsku úrvalsdeild kvenna í fótbolta. Fyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir lagði upp eitt markanna.

Glódís Perla um liðsfélagann: Hún er allt öðruvísi en ég hélt hún væri
Glódís Perla Viggósdóttir er að sjálfsögðu í stóru hlutverki í nýjum heimildarmyndaþáttum um kvennalið Bayern München en fyrsti þátturinn var frumsýndur í gær.

Tah getur valið úr gylliboðum næsta sumar
Jonathan Tah, fyrirliði Bayer Leverkusen, verður samningslaus næsta sumar og er miðvörðurinn gríðarlega eftirsóttur.

Klopp mættur aftur til Dortmund og mun þjálfa um helgina
Jürgen Klopp var mættur á æfingasvæði Borussia Dortmund, síns fyrrum félags, á föstudag. Hann mun stýra leik um helgina en er þó ekki farinn að þjálfa hjá félaginu á nýjan leik.

Glöð og stolt en mætir ekki á Ballon d'Or: „Hélt að þetta væri eitthvað grín fyrst“
Glódís Perla Viggósdóttir þakkar liðsfélögum sínum í íslenska landsliðinu og Bayern München, eftir þann gríðarlega heiður að hafa verið tilnefnd fyrst Íslendinga til Gullboltans, eða Ballon d'Or. Hún verður önnum kafin með landsliðinu þegar þetta virtasta hóf fótboltans fer fram.

Glódís Perla tilnefnd til Gullboltans
Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins og þýska stórliðsins Bayern München, var í kvöld tilnefnd til Gullboltans, Ballon d’Or.

Reynsluboltarnir tryggðu Bayern þrjú stig
Bayern Munchen vann sinn annan sigur í þýsku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið lagði Freiburg 2-0 á heimavelli. Bayern hefur unnið báða leiki sína í deildinni til þessa.

Jón Dagur lék sinn fyrsta leik og Davíð Kristján skoraði
Jón Dagur Þorsteinsson kom við sögu í liði Hertha Berlin sem vann 4-3 sigur á Kaiserslautern í dag. Þá átti Davíð Kristján Ólafsson góða innkomu af bekknum hjá liði Cracovia í Póllandi.

Fyrsta tap Leverkusen í 15 mánuði
Ótrúleg taplaus hrina Bayer Leverkusen er á enda eftir tap gegn RB Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Leverkusen komst í 2-0 en missti niður forskotið í síðari hálfleik.

Karólína Lea lagði upp tvö og Amanda vann fyrsta titilinn
Íslensku landsliðskonurnar Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Amanda Andradóttir áttu báðar góðan dag í Evrópufótboltanum.

Valgeir Lunddal til liðs við Ísak Bergmann hjá Düsseldorf
Valgeir Lunddal Friðriksson er genginn til liðs við Fortuna Düsseldorf, toppliðs þýsku B-deildarinnar í knattspyrnu. Hann kemur frá BK Häcken þar sem hann hefur spilað síðan 2021.

Sævar Atli kom inn af bekknum í fyrsta sigri Lyngby
Lyngby er komið á blað í dönsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu eftir sigur á Vejle í kvöld. Sævar Atli Magnússon kom inn af bekknum í fyrri hálfleik. Þá voru Íslendingar í eldlínunni á Ítalíu sem og Þýskalandi.

Glódís Perla og Bayern byrja á þægilegum sigri
Þýskalandsmeistarar Bayern München byrja tímabilið í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu á þægilegum 2-0 sigri á Potsdam.

Hertha Berlín staðfestir komu Jóns Dags
Landsliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson er genginn í raðir þýska félagsins Herthu Berlínar frá OH Leuven í Belgíu. Þetta staðfestir Hertha á heimasíðu félagsins.

Fullyrða að Jón Dagur sé á leið til Þýskalands
Íslenski landsliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson er á leið til þýska félagsins Hertha Berlin ef marka má heimildir vefmiðilsins 433.is.

Glódís lyfti fyrsta titli tímabilsins
Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur hennar í Bayern München fögnuðu fyrsta titli tímabilsins er liðið vann 1-0 sigur gegn Wolfsburg í leiknum um þýska Ofurbikarinn í dag.

Naumur sigur í fyrsta deildarleik Kompanys
Bayern München þurfti að hafa mikið fyrir því að vinna Wolfsburg, 2-3, í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Þetta var fyrsti deildarleikur Bæjara undir stjórn Vincents Kompany.

Tvö mörk á tveimur mínútum tryggðu Ísaki og félögum sigur
Fortuna Düsseldorf vann 1-2 endurkomusigur á Ulm í þýsku B-deildinni í fótbolta í dag.

Christoph Daum látinn
Einn fremsti fótboltaþjálfari Þýskalands á sínum tíma, Christoph Daum, lést í gær, sjötíu ára að aldri. Banamein hans var lungnakrabbamein.

Þýskur blaðamaður hleypur til minningar um Atla Eðvalds
Í dag fer Reykjavíkurmaraþonið fram þar sem margir hlaupa í þágu góðs málefnis. Þýskur blaðamaður hleypur til minningar um einn dáðasta íþróttamann Íslands.

Byrjuðu þetta tímabil eins og þeir enduðu það síðasta: Sigurmark á 101. mínútu
Segja má að Þýskalandsmeistarar Bayer Leverkusen hafi tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið á síðasta tímabili í upphafsleik þýsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Íslendingaliðið keypti markakóng þýsku deildarinnar
Tveir af þremur markahæstu leikmönnum þýsku bundesligunnar í handbolta á síðustu leiktíð spila með Magdeburg á komandi tímabili og annar þeirra er íslenskur.

Neuer leggur landsliðshanskana á hilluna
Manuel Neuer spilaði sinn síðasta leik fyrir þýska landsliðið gegn Spáni á EM í sumar. Markvörðurinn tilkynnti í dag að hann myndi ekki spila aftur fyrir landsliðið en verður áfram hjá Bayern Munchen.