

Guðrún Arnardóttir bar fyrirliðabandið þegar Svíþjóðarmeistarar Rosengård steinlágu fyrir Hammarby í efstu deild sænska fótboltans, lokatölur 4-0.
Valgeir Lunddal Friðriksson kom inn á sem varamaður á 78. mínútu þegar Fortuna Düsseldorf sigraði Paderborn, 1-2, á útivelli í þýsku B-deildinni í fótbolta í dag.
Bayern Munchen og Borussia Dortmund gerðu 2-2 jafntefli í 29. umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Öll fjögur mörkin voru skoruð í seinni hálfleik. Bæjarar voru með sigur í hendi sér en þurftu að sætta sig við eitt stig eftir óvænt mark varnarmannsins Waldemars Anton.
Bayer Leverkusen minnkaði í dag forskot Bayern München á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í sex stig en liðið var þó nálægt því að tapa stigum í leiknum.
Fortuna Düsseldorf hafði betur í Íslendingaslag á móti Preussen Münster í þýsku b-deildinni í fótbolta í dag.
Bayern München náði níu stiga forystu á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir 3-1 útisigur á Augsburg í kvöld.
Þýska knattspyrnufélagið Wolfsburg, sem Sveindís Jane Jónsdóttir spilar fyrir, hefur fundið tímabundinn arftaka Tommy Stroot sem hætti sem þjálfari kvennaliðs félagsins í vikunni.
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, hefur áhyggjur af stöðunni á Glódísi Perlu Viggósdóttur fyrir Evrópumótið í sumar. Hann segir að í versta falli gæti hún misst af mótinu.
St. Pauli á mjög öfluga og ástríðufulla stuðningsmenn og það sýndu þeir í verki í fjárhagsvandræðum þýska fótboltafélagsins. Herferð þýska félagsins er kannski eitthvað sem við sjáum í meira af í fótboltaheiminum í framtíðinni.
Bikarævintýri Arminia Bielefeld í þýska fótboltanum heldur áfram. Liðið sló bikarmeistara Bayer Leverkusen úr leik í gærkvöld og er á leið í bikarúrslit í fyrsta skipti í sögu félagsins.
Louis Van Gaal, fyrrum þjálfari Bayern München, segir Thomas Müller eiga skilið góða kveðjustund frá félaginu, þar sem ekki lítur út fyrir að samningur hans verði framlengdur.
Tommy Stroot, þjálfari Wolfsburg í Þýskalandi, hefur sagt starfi sínu lausu. Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir mun því spila undir nýrri stjórn það sem eftir er tímabils en samningur hennar rennur út í sumar.
„Þetta er alveg nýtt fyrir mér en ég hef reynt að horfa á þetta sem lærdóm,“ segir Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins og Þýskalandsmeistara Bayern München. Í fyrsta sinn á ferlinum glímir hún við meiðsli sem auk þess eru snúin og bataferlið óljóst. Hún vonast þó til að EM í sumar sé ekki í hættu.
Markahrókurinn Harry Kane náði fáheyrðum áfanga í gær þegar hann skoraði eitt marka Bayern München í 3-2 sigri á St. Pauli en Kane hefur nú skorað í það minnsta eitt mark gegn hverju einasta liði sem hann hefur spilað gegn í þýsku úrvalsdeildinni.
Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins og Bayern München, ætti að geta tekið þátt í leikjunum mikilvægu við Noreg og Sviss í Þjóðadeildinni í fótbolta eftir að hafa spilað í toppslag við Leverkusen í dag.
Ari Sigurpálsson átti algjöra draumabyrjun sem leikmaður Elfsborg, eftir söluna frá Víkingi, þegar hann skoraði í dag eftir að hafa spilað örfáar mínútur. Markið má sjá í greininni.
Helgi Kolviðsson, fyrrverandi aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, er óvænt byrjaður að þjálfa að nýju eftir að hafa starfað sem yfirmaður íþróttamála hjá þýska félaginu Pfullendorf undanfarin ár.
Vinstri bakvörðurinn Alphonso Davies sleit krossband í hné á dögunum og mun ekki leika meira með Bayern München á þessari leiktíð. Ólíklegt er að hann spili aftur fyrr en á næsta ári.
Þorsteinn Halldórsson gæti orðið án landsliðsfyrirliðans Glódísar Perlu Viggósdóttur í fyrsta skipti á hans tíma með liðið í komandi leikjum í Þjóðadeild UEFA.
Glódís Perla Viggósdóttir hefur í fyrsta sinn á sínum atvinnumannsferli misst af leik vegna meiðsla og gæti mögulega misst af leik Bayern gegn Lyon í kvöld í einvígi liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Hún ku ekki glíma við höfuðmeiðsli.
Íslenska landsliðskonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og félagar í Bayer Leverkusen voru í miklu stuði í þýsku kvennadeildinni í dag.
Bayern München gaf Bayer Leverkusen tækifæri á því að minnka forskot sitt á toppnum þegar liðið tapaði stigum á útivelli á móti Union Berlin í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Fortuna Düsseldorf vann 1-0 heimasigur á Jahn Regensburg í þýsku b-deildinni í fótbolta í dag.
Bayern München hafði betur á móti VfL Wolfsburg í toppslag þýska kvennafótboltans í kvöld en þarna voru líka tveir lykilmenn íslenska kvennalandsliðsins að mætast.
Eftir að hafa aldrei á sínum ferli misst af deildarleik vegna meiðsla þá var fyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir ekki með Bayern München í dag þegar liðið mætti Köln í þýsku 1. deildinni í fótbolta.
Sveindís Jane Jónsdóttir og Emilía Kiær Ásgeirsdóttir mættust í sjö mínútur þegar Wolfsburg vann Leipzig 2-0 á útivelli í efstu deild Þýskalands.
Það var ekki eintóm gleði hjá Bayern München í gær þrátt fyrir 3-0 sigur á Bayer Leverkusen í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Fótboltaleikjum hefur nú verið aflýst af mörgum mismunandi ástæðum í gegnum tíðina en það er ekki oft sem ástæðan er sú sem orsakaði það að leikur í þýsku neðri deildunum fór ekki fram um helgina.
Bayern München vann 3-1 útisigur á Stuttgart eftir að lenda marki undir þegar liðin mættust í efstu deild þýska karlafótboltans.
Fortuna Düsseldorf varð af gríðarlega mikilvægum stigum í baráttunni um sæti í efstu deild þýska fótboltans þegar liðið tapaði 1-2 fyrir Greuther Fürth. Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði mark heimaliðsins.