Þýski boltinn
112 113 114 115 116 117 … 117 ›
Bayern mætir Mainz í 8-liða úrslitunum Bayern Munchen tryggði sér í gærkvöld sæti í undanúrslitum þýska bikarsins með sigri á HSV 1-0. Það var enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves sem skoraði mark Bayern í framlengingu. Þriðjudeildarlið St.Pauli sló Hertha Berlin úr keppni með sigri í framlengingu 4-3. Sport 22.12.2005 17:06
Áttundi stjórinn rekinn Holger Fach þjálfara og Thomas Strunz knattspyrnustjóra Wolfsburg var sagt upp störfum hjá félaginu í dag eftir að liðið þótti valda miklum vonbrigðum það sem af er vetri. Þetta er því í áttunda skipti í vetur sem þjálfari í þýsku úrvalsdeildinni eru látinn taka pokann sinn. Sport 19.12.2005 18:08
Ætlar að skrifa undir nýjan samning Ef marka má fréttir úr þýskum blöðum í dag, mun markvörðurinn Oliver Kahn líklega skrifa undir nýjan samning við Bayern sem gilda mun til ársins 2008. "Mér líður of vel hérna til að hugsa um að fara annað," sagði Kahn. Kahn hefur verið hjá Bayern síðan 1994 og eftir frábæra frammistöðu með liðinu á árinu, er talið víst að hann verji mark Þjóðverja á HM í sumar. Sport 18.12.2005 18:44
Kohler tekur við Duisburg Fyrrum þýski landsliðsmaðurinn Jurgen Kohler var í dag ráðinn þjálfari úrvalsdeildarliðs Duisburg, sem er í bullandi fallbaráttu í deildinni. Kohler kemur í stað Norbert Meier sem var rekinn fyrir að skalla leikmann á dögunum. Kohler hefur aldrei þjálfað áður, en er ýmsum hnútum kunnugur í boltanum og varð m.a. heims- og Evrópumeistari með Þjóðverjum í tíunda áratugnum. Sport 17.12.2005 19:54
Bayern með örugga forystu í jólafríið Meistarar Bayern Munchen fara með þægilegt forskot inn í jólafríið í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, eftir góðan 2-1 útisigur á Dortmund í dag. Ali Karimi skoraði fyrsta mark Bayern í dag og Claudio Pizzarro það síðara. Florian Kringe minnkaði muninn fyrir Dortmund undir lokin. Liðin í öðru og þriðja sæti, Hamburg og Bremen eigast við á morgun, en Bayern hefur sjö stiga forystu á toppnum. Sport 17.12.2005 19:44
Ragnick hættur hjá Schalke Ralf Rangnick hefur sagt starfi sínu lausu og er hættur að þjálfa þýska úrvalsdeildarliðið Schalke. Rangnick hafði ætlað að hætta eftir að samningur hans rynni út í sumar, en hann hefur átt erfitt samband við stjórn liðsins að undanförnu og gengi liðsins hefur ekki þótt nógu gott. Sport 12.12.2005 15:05
Elber látinn fara frá Gladbach? Brasilíski framherjinn Giovane Elber verður látinn fara frá þýska úrvalsdeildarliðinu Borussia Mönchengladbach um helgina ef marka má fréttir úr þýskum fjölmiðlum, en hann ku hafa verið til eintómra vandræða síðan hann kom á frjálsri sölu frá franska liðinu Lyon í janúar. Elber hefur lítið fengið að spreyta sig hjá Gladbach í vetur, en hann er markahæsti útlendingur í sögu úrvalsdeildarinnar með 133 mörk. Sport 4.12.2005 15:17
Neitar ásökunum um peningagræðgi Þýski knattspyrnumaðurinn Michael Ballack brást reiður við þegar fjölmiðlar í Þýskalandi héldu því fram að ástæða þess að hann vildi ekki undirrita áframhaldandi samning við Bayern væri hrein og klár peningagræðgi. Sport 17.11.2005 14:59
Hoyzer dómari í fangelsi í á þriðja ár Knattspyrnudómarinn Robert Hoyzer var í dag dæmdur í tveggja ára og fimm mánaða fangelsi fyrir að taka við mútugreiðslum í níu leikjum sem hann dæmdi á síðasta ári. Sport 17.11.2005 12:37
Allt annað en Madrid yrði skref aftur á bak "Keisarinn" Franz Beckenbauer, forseti Bayern Munchen, hefur látið hafa það eftir sér að úr því útlit sé fyrir að Michael Ballack sé að fara frá Bayern, sé Real Madrid eini raunhæfi kosturinn fyrir hann því annarsstaðar nái hann ekki að bæta sig sem knattspyrnumaður. Sport 16.11.2005 16:08
Gunnar Heiðar metinn á 2 milljónir punda Breska dagblaðið Sunday Mirror greindi frá því í gær að Steve Bruce, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Birmimgham, ætli að gera sænska liðinu Halmstad tilboð í Eyjamanninn Gunnar Heiðar Þorvaldsson. Eyjapeyjinn er sagður metinn á 2 mlljónir punda en það jafngildir um 216 milljónum íslenskra króna. Sport 14.11.2005 10:39
Ballack verður ekki seldur í janúar Michael Becker, umboðsmaður miðjumannsins Michael Ballack hjá Bayern Munchen, segir að leikmaðurinn verði alls ekki seldur frá Bayern þegar félagaskiptaglugginn opnast í janúar, en fjöldi liða er á höttunum eftir Ballack sem hefur enn ekki gefið upp hvort hann ætli að framlengja samning sinn við Bayern. Sport 9.11.2005 17:42
Hannover rekur þjálfarana Þýska úrvalsdeildarliðið Hannover 96 hefur rekið aðalþjálfarann Ewald Lienen og aðstoðarmann hans Michael Frontzeck, eftir að þeir náðu aðeins einum sigri í síðustu átta leikjum með liðið. Lienen er þriðji þjálfarinn sem tekur pokann sinn í úrvalsdeildinni í vetur, en áður höfðu þeir Klaus Augenthaler hjá Leverkusen og Wolfgan Wolf hjá Nurnberg verið látnir fara. Sport 9.11.2005 13:03
Móðgaði lestarstjóra Hinn litríki fyrrverandi landsliðsþjálfari Ítala, Giovanni Trapattoni er ekki að afla sér vinsælda í Þýskalandi þar sem hann stýrir Bundesliguliði Stuttgart við slæman orðstír. Hann er ekki bara í ónáðinni hjá stuðningsmönnum liðsins sem hefur byrjað tímabilið skelfilega heldur hefur honum nú tekist að reita til reiði lestarstjóra í landinu. Sport 30.10.2005 13:11
Frankfurt burstaði Schalke Þýska úrvalsdeildarliðið Frankfurt er heldur betur í stuði þessa dagana, því eftir að hafa unnið Cologne 6-3 um helgina, burstaði Frankfurt lið Schalke í gærkvöldi 6-0. Schalke komst alla leið í úrslitin í fyrra, en voru niðurlægðir í gærkvöldi. Sport 26.10.2005 04:14
Bayern á toppinn í Þýskalandi Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen skutust í toppsæti úrvalsdeildarinnar í dag þegar þeir tóku Duisburg í kennslustund 4-0 á heimavelli sínum. Michael Ballack, Ze Roberto, Claudio Pizarro og Roque Santa Cruz skoruðu mörk Bayern í leiknum. Sport 23.10.2005 17:51
Ballack lofar ákvörðun fyrir jól Miðjumaðurinn sterki, Michael Ballack hjá Bayern Munchen, hefur lofað félaginu að hann tilkynni ákvörðun um framtíð sína fyrir jól, en hann hefur mikið verið orðaður við Manchester United eftir að samningi hans hjá þýska liðinu lýkur. Sport 23.10.2005 17:50
Hargreaves samdi við Bayern Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves hefur framlengt samning sinn við þýsku meistarana Bayern Munchen um fjögur ár og slekkur þar með í þeim orðrómi um að hann snúi til heimalandsins og spili í úrvalsdeildinni ensku. Sport 23.10.2005 15:04
United fylgist með Ballack Þýski landsliðsmaðurinn Michael Ballack mun funda með forráðamönnum Bayern Munchen síðar í þessum mánuði, þar sem nýr samningur verður aðalumræðuefnið. Ekki er búist við að Ballack semji áfram við Bayern, en samningur hans rennur út í sumar. Sport 23.10.2005 15:03
Ziege að hugsa um að hætta Þýski varnarmaðurinn Christian Ziege óttast að þrálát ökklameiðsli sem hann hefur átt við að stríða lengi séu að neyða hann til að leggja skóna á hilluna. Ziege leikur með Gladbach í þýsku úrvalsdeildinni, en lék áður á Englandi, meðal annars með Liverpool og Tottenham. Sport 23.10.2005 15:02
Loksins tapaði Bayern Þýsku meistararnir í Bayern Munchen töpuðu loks sínum fyrsta leik í Bundesligunni í dag þegar liðið sótti sprækt lið Hamburger heim og tapaði 2-0. Sigur HSV var síst of stór og aðeins góður leikur Oliver Kahn í marki heimamanna bjargaði meisturunum frá stærra tapi. Sport 23.10.2005 14:59
Fjórir leikir í Þýskalandi Fjórir leikir voru á dagskrá í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Hamburger komst í annað sæti deildarinnar með góðum útisigri á Stuttgart. Leverkusen sigraði Cologne 2-1, Hertha sigraði Duisburg 3-2 og Nurnberg og Schalke skildu jöfn 1-1. Þá vann Mainz sinn fyrsta leik á tímabilinu þegar það lagði Kaiserslautern 2-0 á útivelli. Sport 17.10.2005 23:47
Naumur sigur Bayern á Frankfurt Bayern München marði 0-1 útisigur á Eintracht Frankfurt í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld. Paolo Guerrero skoraði sigurmarkið 18 mínútum fyrir leikslok. Þetta var 15. sigur Bæjara í röð í deildinni en liðið hefur unnið alla sex leiki sína í deildinni til þessa. Sport 17.10.2005 23:46
Fjórir leikir í Þýskalandi Fjórir leikir voru á dagskrá í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.Monchengladbach vann góðan sigur á Werder Bremen á heimavelli 2-1 og þá vann Bayern Munchen enn einu sinni, nú gegn Frankfurt á útivelli, 1-0 með marki frá varamanninum Paolo Guerrero. Sport 17.10.2005 23:45
Fjórtan sigrar hjá Bayern í röð Bayern München setti met í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær þegar liðið vann fjórtánda leik sinn í röð. Þeir unnu níu síðustu leik sína á síðustu leiktíð og hafa unnið alla fimm til þessa. Bæjarar lögðu Hannover að velli 1-0 með marki Martins Demichelis. Werder Bremen er í öðru sæti, tveimur stigum á eftir Bayern, með 13 stig eftir 3-2 sigur á Borussia Dortmund. Sport 14.10.2005 06:43
Bayern getur slegið met á morgun Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen geta slegið met sitt yfir flesta sigra í röð í þýsku úrvalsdeildinni á morgun þegar liðið mætir Hanover 96 á morgun, en með sigri vinnur liðið sitt 14. leik í röð, sem telur frá síðasta tímabili. Sport 14.10.2005 06:42
Augenthaler rekinn Klaus Augenthaler, knattspyrnustjóra Bayer Leverkusen, var í morgun sagt upp störfum hjá félaginu og mun yfirmaður knattspyrnumála hjá Leverkusen, Rudi Völler, taka við starfi hans tímabundið þar til annar maður fæst í starfið. Sport 14.10.2005 06:42
Fullt hús hjá Bayern Bayern München sigraði Herthu Berlín 3-0 í þýsku úrvaldeildinni í dag. Bayern er nú búið að vinna alla fjóra leiki sína það sem af er móti. Mörk Bayern gerðu Michael Ballack, Memet Scholl og Roy Makaay Sport 13.10.2005 19:46
Landsliðshópur Þjóðverja Jürgen Klinsmann. landsliðsþjálfari Þýskalands í knattspyrnu hefur valið landsliðshóp Þjóðverja sem mætir Slóvakíu og Suður Afrík í næsta mánuði. Athygli vekur að Oliver Kahn, markvörður og Dietmar Hamann leikamður Liverpool eru hvíldir. Sport 13.10.2005 19:44
Borussia Dortmund fallið úr leik Þýska stórliðið Borussia Dortmund féll úr leik fyrir annarrar deildarliðinu Eintracht Braunschweig í fyrstu umferð bikarkeppninnar. Jan Koller kom fyrrverandi Evrópumeisturunum yfir í fyrri hálfleik en Juergen Rische og Daniel Graf tryggðu Braunschweig sigurinn. Sport 13.10.2005 19:44