Þýski boltinn

Bayern þýskur meistari
Bayern München varð í dag þýskur meistari í knattspyrnu eftir markalaust jafntefli gegn Wolfsburg á útivelli í dag.

Liverpool nálgast Degen
Samkvæmt fréttum frá Liverpool er liðið að nálgast hægri bakvörðinn svissneska Philipp Degen. Rafael Benítez ræddi í vikunni við Tom Hicks um leikmannakaup sumarsins og er Degen ofarlega á óskalista hans.

Samningstilboð Lahm dregið til baka
Framtíð þýska landsliðsmannsins Philipp Lahm hjá Bayern Munchen virðist nú vera upp í loft eftir að félagið tók samningstilboð til hans út af borðinu.

Toni tryggði Bayern bikarmeistaratitilinn
Bayern München varð í kvöld þýskur bikarmeistari í knattspyrnu eftir sigur á Dortmund, 2-1, í framlengdum leik.

21. titillinn í augsýn hjá Bayern
Bayern Munchen er nú komið með aðra höndina á meistaratitilinn í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir 3-1 útisigur á Frankfurt í kvöld. Ítalinn Luca Toni hélt uppteknum hætti og skoraði tvívegis í leiknum.

Kevin Kuranyi með fernu
Schalke burstaði Energie Cottbus 5-0 í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Kevin Kuranyi gerði sér lítið fyrir og skoraði fjögur af fimm mörkum Schalke í leiknum.

Bayern burstaði Dortmund
Tveir leikir voru á dagskrá í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Bayern Munchen náði 10 stiga forskoti á toppi deildarinnar með 5-0 stórsigri á Dortmund. Þá vann Leverkusen 3-0 sigur á meisturum Stuttgart.

Tannlæknirinn leggur flautuna á hilluna
Þýski knattspyrnudómarinn Markus Merk hefur ákveðið að flýta því að leggja flautuna á hilluna og ætlar að hætta nú í vor. Hann hafði áður gefið það út að hann ætlaði að hætta næsta vor.

Bayern með níu stiga forskot
Bayern München er með níu stiga forystu í þýsku úrvalsdeildinni þegar sjö umferðir eru eftir. Þrátt fyrir að hada lent undir og orðið manni færri gegn Bochum náði liðið 3-1 sigri á heimavelli.

Podolski hefur fengið nóg
Þýski landsliðsframherjinn Lukas Podolski segist vera búinn að fá sig fullsaddan af því að verma tréverkið hjá Bayern Munchen og íhugar að fara frá félaginu.

Altintop er fótbrotinn
Tyrkneski landsliðsmaðurinn Hamit Altintop hjá Bayern Munchen leikur væntanlega ekki meira með liði sínu á leiktíðinni og er tæpur fyrir EM í sumar eftir að hafa fótbrotnað í leik Tyrkja og Hvít-Rússa í gær.

Matthäus ætlar aftur í slaginn í sumar
Þýska goðsögnin Lothar Matthäus hefur tilkynnt að hann ætli sér aftur út í knattspyrnuþjálfun í sumar. Hann hefur nú klárað að ná sér í full þjálfunarréttindi en hefur ekki starfað sem þjálfari síðan hann hætti sem aðstoðarmaður Giovanni Trapattoni hjá Red Bull í Austurríki í fyrra.

Bayern mætir Dortmund í úrslitum
Það verða Bayern Munchen og Dortmund sem leika til úrslita í þýsku bikarkeppninni í knattspyrnu. Bayern vann í kvöld 2-0 sigur á Wolfsburg í undanúrslitum með mörkum frá Miroslav Klose og Franck Ribery. Þetta er í 16. sinn sem Bayern leikur til úrslita í bikarkeppninni og hefur unnið 13 af 15 úrslitaleikjum sínum til þessa.

Dortmund í úrslitaleikinn
Borussia Dortmund komst í kvöld í úrslitaleik þýsku bikarkeppninnar í þegar liðið vann 2. deildarliðið Carl Zeiss Jena 3-0 í undanúrslitum.

Diego vill til Real Madrid
Draumur Diego er að ganga til liðs við Real Madrid á Spáni. Þetta segir faðir þessa brasilíska miðjumanns sem hefur slegið í gegn með Werder Bremen í Þýskalandi á yfirstandandi leiktíð.

Ramelow hættur
Þýski miðjumaðurinn Carsten Ramelow hjá Bayer Leverkusen hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Ramelow er 33 ára gamall og hefur átt í miklu stríði við meiðsli á undanförnum árum og fannst því rétt að hætta.

Stuttgart á sigurbraut
Portúgalinn Fernando Meira skoraði sigurmark Stuttgart sem vann Energie Cottbus 1-0 á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni. Þetta var eini leikur kvöldsins í deildinni en markið kom á 30. mínútu.

Líkir Ribery við Zidane
Oliver Kahn, markvörður Bayern Munchen, hefur líkt félaga sínum Franck Ribery við goðsögnina Zinedine Zidane vegna tilþrifa hans með Bayern í vetur.

Veldu mig í landsliðið, pabbi
Miðjumaðurinn Mark van Bommel hjá Bayern Munchen gerir sér vonir um að spila með hollenska landsliðinu á ný þegar Marco van Basten lætur af störfum eftir EM í sumar.

Bayern München á eftir Kuyt
Hollenskir fjölmiðlar hafa greint frá því að Bayern München muni bjóða í framherjann Dirk Kuyt hjá Liverpool í sumar.

Eitursvalur Ribery tryggði Bayern ótrúlegan sigur
Það var nágrannaslagur af bestu gerð í fjórðungsúrslitum þýsku bikarkeppninnar í kvöld er Bayern München tók á móti 1860 München.

Stuttgart tapaði fyrir 2. deildarliði
Það er alltaf nóg um óvænt úrslit í þýsku bikarkeppninni. Stuttgart féll úr leik fyrir 2. deildarliðinu Carl Jeiss Jena eftir vítaspyrnukeppni í kvöld. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 2-2.

Bayern náði ekki sigri
Þar sem Werder Bremen beið lægri hlut fyrir Eintracht Frankfurt í gær gat Bayern München náð sex stiga forystu í þýsku deildinni með því að vinna Hamborg í dag.

Luca Toni skaut Bayern aftur í þriggja stiga forskot
Ítalski sóknarmaðurinn Luca Toni skoraði öll þrjú mörk þýska liðsins Bayern München þegar liðið vann Hannover 3-0 í dag. Bayern komst með sigrinum aftur í þriggja stiga forystu á Werder Bremen.

Werder Bremen upp að hlið Bayern
Werder Bremen vann Nürnberg 2-0 í þýska boltanum í dag. Með sigrinum komst Bremen upp að hlið Bayern München á toppi þýsku deildarinnar. Bæði lið hafa 40 stig en Bayern á leik inni gegn Hannover á morgun.

Diego ekki á förum frá Werder Bremen
Forráðamenn Werder Bremen í Þýskalandi eru allt annað en sáttir við að fjölmiðlar hafa verið að orða miðjumanninn Diego við ítalska liðið Juventus. Þeir segja að Diego sé einfaldlega ekki til sölu.

Hitzfeld tekur við Sviss í sumar
Ottmar Hitzfeld mun að öllum líkindum taka við þjálfun svissneska landsliðsins næsta sumar. Þetta staðfesti hann í samtali við fjölmiðla í dag.

Klinsmann tekur við Bayern í sumar
Bayern München hefur tilkynnt að Jürgen Klinsmenn taki við starfi knattspyrnustjóra hjá liðinu frá og með 1. júlí næstkomandi.

Keisarinn biðlar til Mourinho
"Keisarinn" Franz Beckenbauer, forseti Bayern Munchen, segist muni taka Jose Mourinho opnum örmum hjá félaginu þegar Ottmar Hitzfeld hættir þjálfun í sumar.

Lippi orðaður við Bayern
Fréttir frá Ítalíu herma að forráðamenn Bayern München muni á næstu dögum funda með Marcello Lippi.