

Eftir erfiða daga í kjölfar þess að Juventus féll úr leik í Meistaradeild Evrópu skoraði Cristiano Ronaldo þrennu þegar ítölsku meistararnir sigruðu Cagliari, 1-3, í ítölsku úrvalsdeildinni í gær.
Brasilíska knattspyrnugoðsögnin Pele hefur sent Portúgalanum Cristiano Ronaldo hamingjuóskir nú þegar CR7 hefur „endanlega“ bætt markamet Pele.
Frakklandsmeistarar PSG tapaði óvænt gegn fallbaráttuliði Nantes í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld. Þá vann Napoli 1-0 útisigur á AC Milan.
Lautaro Martinez tryggði Inter stigin þrjú er liðið vann 2-1 sigur á Torino á útivelli í Seriu A í dag. Forysta Inter á toppnum er níu stig.
Giovanni Cobolli, fyrrum forseti Juventus, segir að það hafi verið risa mistök hjá ítalska stórveldinu að sækja Cristiano Ronaldo til félagsins.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir var á skotskónum fyrir lið sitt Le Havre í frönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Juventus eru sagðir tilbúnir að láta Cristiano Ronaldo fara frá félaginu fyrir litlar 25 milljónir punda, þremur árum eftir að hann kom til félagsins frá Real Madrid fyrir hundrað milljónir evra.
Cristiano Ronaldo þakkar örugglega fyrir það að Pepe hefur oftast verið með honum í liði inn á fótboltavellinum.
Inter er með sex stiga forystu á toppi Seriu A eftir 1-0 sigur á Atalanta í stórleik umferðarinnar.
AC Milan vann í dag sannfærandi tveggja marka sigur á útivelli gegn Hellas Verona. Sigurinn færir AC Milan upp í 56 stig í öðru sæti, en nágrannar þeirra í Inter hafa 59 stig í efsta sæti og eiga einn leik til góða.
Napoli kíktu í heimsókn til Inter í Serie A í ítalska kvennaboltanum í dag. Niðurstaðan markalaust jafntefli, en Guðný Árnadóttir spilaði allan leikinn í vörn Napoli. Lára Kristín Pedersen kom inná á 59. mínútu leiksins.
Juventus vann í kvöld 3-1 sigur á heimavelli gegn Lazio. Gestirnir komust yfir snemma leiks, en ítölsku meistararnir kláruðu leikinn í seinni hálfleik.
Brescia vann 1-0 útisigur á Venezia í uppgjöri Íslendingaliðanna og SPAL vann Pescara einnig 1-0 á útivelli.
Alexis Sanchez var óvænt hetja Inter Milan er liðið vann 2-1 sigur á Parma í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni, í kvöld.
AC Milan gerði 1-1 jafntefli fyrir Udinese á heimavelli í ítalska boltanum í kvöld. Blóðtaka fyrir Mílanóliðið sem er að fatast flugið í toppbaráttunni.
Ítalíumeistarar Juventus átti í vandræðum með nýliða Spezia framan af leik liðanna í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni, í kvöld. Það fór þó svo að Juventus vann 3-0 sigur og heldur í vonina um að vinna deildina tíunda árið í röð.
Birkir Bjarnason skoraði fyrra mark Brescia er liðið vann 2-0 sigur á Cosenza í Serie B á Ítalíu í kvöld.
Zlatan Ibrahimovic, framherji AC Milan, er meiddur og missir af báðum leikjunum gegn Manchester United í sextán liða úrslitum Evrópudeildarinnar.
AC Milan hafði betur í stórleik dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni.
Inter Milan er með sjö stiga forystu á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar eftir 3-0 sigur á Genoa.
Hinn skrautlegi Antonio Cassano telur ítalska meistaraliðið Juventus hafa farið í ranga átt þegar þeir fjárfestu í portúgalska markahróknum Cristiano Ronaldo.
Óvænt úrslit urðu niðurstaðan í síðasta leik dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði fyrra mark Lyon sem vann 2-0 sigur á Soyaux á útivelli í frönsku úrvalsdeildinni í dag.
Vonir Liverpool um að halda miðjumanninum Georginio Wijnaldum eru ekki miklar. Leikmaðurinn rennur út af samningi í sumar og mörg stórlið bíða eru talin reiðubúin að bjóða Hollendingnum myndarlegan samning.
Zlatan Ibrahimovic segir að LeBron James eigi ekki að vera að blanda sér í pólitísk umræðuefni heldur halda sig við það sem hann sé góður í – að spila körfubolta.
Willy Ta Bi, 21 árs leikmaður Atalanta, lést í gær eftir baráttu við lifrarkrabbamein.
Nígeríumaðurinn Victor Osimhen hefur ekki haft heppnina með sér að undanförnu. Hann meiddist á öxl, fékk kórónuveiruna og rotaðist síðan í leik.
Juventus er nú átta stigum á eftir toppliði Inter, og á leik til góða, eftir 2-0 sigur ítölsku meistaranna í kvöld.
Inter Milan er með fjögurra stiga forystu á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar eftir 3-0 sigur á fjendum sínum í AC Milan í dag.
Inter er með fjögurra stiga forskot á toppnum á Ítalíu eftir 3-0 sigur á grönnum sínum í AC Milan í slagnum um Mílanóborg í dag.