Ítalski boltinn

Hörmulegt gengi Juventus heldur áfram
Hvorki gengur né rekur hjá Juventus í ítölsku úrvalsdeildinni en liðið tapaði í gær fyrir Palermo á heimavelli, 3-1.

Ranieri hugsanlega rekinn um helgina
Claudio Ranieri, þjálfari Roma, er enn eina ferðina við það að vera rekinn úr starfi. Það aðeins nokkrum mánuðum eftir að hafa verið algjör hetja í herbúðum liðsins.

Erfitt fyrir Benitez að feta í fótspor Mourinho
Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, segir að Rafa Benitez muni eiga erfitt uppdráttar hjá Inter. Hann segir það ekki vera auðvelt verk að feta í fótspor manns eins og Jose Mourinho.

Dzeko dreymir enn um Juventus
Sóknarmaðurinn Edin Dzeko segist harma það að félagaskipti hans frá Wolfsburg til Juventus á Ítalíu hafi ekki gengið í gegn eins og hann vonaðist til.

Framtíð Sneijder í óvissu
Umboðsmaður Wesley Sneijder hefur greint frá því að framtíð leikmannsins hjá Inter er í óvissu eftir að viðræður hans við félagið fóru út um þúfur.

Benitez: Stjórnarmenn Liverpool vissu ekkert um fótbolta
Rafael Benitez, þjálfari Internazionale Milano á Ítalíu, er ekki búinn að segja sitt síðasta í orðastríðinu við sitt gamla félag Liverpool. Benitez lætur nú síðast stjórnina hjá Liverpool heyra það en það hefur komið vel fram í fjölmiðlum að Benitez náði aldrei vel saman við stjórnarmenn félagsins.

AC Milan gerði jafntefli á heimavelli gegn Catania
AC Milan er ekki að byrja leiktímabilið í ítölsku deildinni vel. Liðið gerði í kvöld jafntefli, 1-1, gegn Catania á heimavelli.

Ranieri: Við Totti erum enn vinir
Roma-liði var mikið gagnrýnt eftir leik liðsins gegn FC Bayern í Meistaradeildinni í vikunni. Claudio Ranieri, þjálfari liðsins, hefur nú loksins svarað þeirri gagnrýni.

Lippi orðaður við þjálfarastarfið hjá Roma
Hlutirnir eru fljótir að breytast í boltanum. Fyrir aðeins nokkrum mánuðum var Claudio Ranieri hetjan hjá AS Roma og félagið virtist helst vilja semja við hann út öldina.

Sacchi: Zlatan sýndi mér vanvirðingu
Arrigo Sacchi, fyrrum þjálfari AC Milan, er í smá sjokki yfir því hvernig Zlatan Ibrahimovic réðst harkalega að sér í sjónvarpsþætti í vikunni.

Leikmenn Roma settir í fjölmiðlabann
Ítalska félagið AS Roma hefur ekki farið vel af stað í vetur undir stjórn Claudio Ranieri þrátt fyrir miklar væntingar um gott gengi.

Arigo Sacchi segir Zlatan Ibrahimovic að læra mannasiði
Zlatan Ibrahimovic var fljótur að breytast úr hetju í skúrk í sjónvarpsþætti eftir 2-0 sigur AC Milan á Auxerre í Meistaradeildinni í gær en Svíinn skoraði bæði mörk AC Milan í leiknum.

Benitez breytir öllu sem Mourinho gerði hjá Inter
Það gengur ekki alveg sem skildi hjá Rafa Benitez síðan hann kom til Inter. Samanburðurinn við Jose Mourinho virðist fara verulega í taugarnar á honum og svo hafa fyrstu leikirnir með Inter ekki gengið nógu vel.

Ronaldinho vill spila til fertugs
Þó svo Brasilíumaðurinn Ronaldinho hafi oft virkað áhugalaus síðustu ár og verið duglegur að hlaða á sig kílóum yfir sumartímann er hann alls ekkert á því að hætta í fótbolta.

Juventus vill fá Benzema
Juventus ætlar að láta til sín taka á leikmannamarkaðnum í janúar og efstur á lista félagsins er franski framherjinn Karim Benzema sem spilar með Real Madrid.

Zlatan sparkar í liðsfélaga - myndband
Zlatan Ibrahimovic hefur margoft lent í deilum við þjálfara og hugsanlega má sjá ástæðuna fyrir því á þessu myndbandi.

Gladdist er Zlatan klúðraði vítinu
Það eru litlir kærleikar á milli Mílanó-liðanna AC og Inter. Massimo Moratti, forseti Inter, fylgdist með AC Milan tapa gegn Cesena um helgina og sagðist hafa skemmt sér konunglega.

Inter vill framlengja við Sneijder
Evrópumeistarar Inter ætla sér alls ekki að missa hollenska miðjumanninn Wesley Sneijder og ætla að bjóða honum samning til ársins 2015.

Jafntefli hjá Juventus og Sampdoria í markaleik
Juventus náði í sitt fyrsta stig á þessu tímabili þegar liðið gerði 3-3 jafntefli við Sampdoria í 2. umferð ítölsku A-deildarinnar. Sampdoria er með fjögur stig.

Samuel Eto'o tryggði Inter sigur en AC Milan lá fyrir Cesena
Internazionale vann sinn fyrsta leik undir stjórn Rafael Benitez þegar liðið lagði Udinese að velli, 2-1, í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Samuel Eto'o skoraði sigurmarkið í leiknum á 67. mínútu en nágrannarnir í AC Milan töpuðu hinsvegar 2-0 fyrir Cesena.

Robinho tók á sig mikla launalækkun
Brasilíumanninum Robinho var svo mikið í mun að komast frá Man. City til AC Milan að hann tók á sig helmingslaunalækkun.

Leikmenn í ítölsku deildinni á leiðinni í verkfall
Leikmenn í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta hafa tilkynnt að þeir ætli að fara í verkfall eftir tvær vikur til þess að mótmæla því hversu lítinn rétt þeir eiga að hafa í félagsskiptum sínum. Samkomulag á milli ítölsku A-deildarinnar og leikmannasamtakanna rann út í sumar.

AC Milan getur alveg spilað með alla fjóra í einu
Mino Raiola, umboðsmaður Zlatan Ibrahimovic, er duglegur að tjá skoðanir sínar og hann hefur ekki áhyggjur af því að AC Milan verði að láta eina eða tvær af stóru sóknarstjörnum sínum sitja á bekknum.

AC Milan borgar nú hærri laun en Internazionale
AC Milan er komið upp í efsta sætið yfir þau félög í ítölsku deildinni sem borga hæstu launin. AC Milan fór upp fyrir nágranna sína í Internazionale samkvæmt nýrri úttekt hjá ítalska blaðinu Gazzetta dello Sport.

Maradona vill halda upp á fimmtugsafmælið sitt í Napolíborg
Diego Maradona ætlar að taka áhættuna á því að lenda aftur í skattayfirvöldum á Ítalíu þar sem að hann vill endilega halda upp á fimmtugsafmælið í Napolíborg. Maradona verður fimmtugur 30. október næstkomandi.

Robinho: Líður eins og heima hjá mér
Robinho líður eins og hann sé loksins kominn heim til sín eftir skamma veru hjá AC Milan. Brasilíumaðurinn gekk í raðir félagsins í vikunni.

Zenga: Benitez er enginn Mourinho
Walter Zenga, fyrrum markvörður Inter og ítalska landsliðsins, er ekkert sérstaklega bjartsýnn á að Rafa Benitez geti fylgt eftir árangri José Mourinho með Inter.

Juventus ætlar að reyna að fá Dzeko næsta sumar
Forráðamenn ítalska úrvalsdeildarliðsins Juventus ætla sér að reyna að fá Edin Dzeko, leikmann Wolfsburg, næsta sumar fyrst það tókst ekki nú.

Zlatan: Guardiola er ómerkilegur þjálfari
Zlatan Ibrahimovic hefur ekki miklar mætur á Pep Guardiola, þjálfara Barcelona á Spáni. Zlatan var á dögunum seldur þaðan til AC Milan á Ítalíu.

Manchester City eyddi mest í sumar
Það kemur fáum á óvart að Manchester City eyddi allra mest í leikmannakaup nú í sumar.