Spænski boltinn

Mascherano skrifaði undir hjá Barcelona
Javier Mascherano skrifaði nú síðla dags undir samning við Barcelona eftir ítarlega læknisskoðun. Hann kostar félagið 17,25 milljónir punda.

Fabiano framlengir við Sevilla
Brasilíski sóknarmaðurinn Luis Fabiano hefur skrifað undir nýjan samning við Sevilla á Spáni. Hann hefur í sumar verið á óskalista margra félaga en nýr samningur hans við Sevilla er til 2013.

Ronaldo frá í þrjár vikur
Cristiano Ronaldo meiddist á ökkla í gær þegar Real Madrid gerði markalaust jafntefli við Mallorca í spænsku úrvalsdeildinni. Hann verður frá vegna þessara meiðsla næstu þrjár vikur.

Barcelona byrjar á öruggum sigri
Barcelona byrjaði leiktíðina í spænska boltanum vel í dag. Liðið sótti Racing Santander heim og vann öruggan sigur, 0-3.

Veit ekki hvort Guardiola sé hræddur við mig
Svíinn Zlatan Ibrahimovic segir að Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, hafi eyðilagt draum sinn um að spila áfram á Camp Nou.

Guardiola reiður út í umboðsmann Zlatans
Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, hefur loksins rofið þögnina um Zlatan Ibrahimovic og hann ræðst harkalega að umboðsmanni leikmannsins, Mino Raiola, fyrir það hvernig hann heldur á málum skjólstæðings síns.

Zlatan hefur ekki skemmt stemninguna í búningsklefanum
Carles Puyol, fyrirliði Barcelona, segir að stemningin í búningsklefa félagsins sé fín þó svo framherjinn Zlatan Ibrahimovic tali ekki við þjálfara félagsins, Pep Guardiola.

Liverpool samþykkti tilboð frá Barcelona
Argentínumaðurinn Javier Mascherano er væntanlega á leið til Barcelona eftir allt saman en Barcelona hefur loksins komið með tilboð í kappann sem Liverpool hefur samþykkt.

Mourinho: Mikið hungur í liðinu
José Mourinho, þjálfari Real Madrid, segir að það sé mikið hungur í liði sínu fyrir tímabilið.

Mourinho er bóluefnið gegn Barcelona
Spænski varnarmaðurinn Sergio Ramos hjá Real Madrid segir að þjálfarinn José Mourinho sé bóluefnið sem vantaði til þess að stöðva einokun Barcelona á Spáni.

Milan og Barcelona í viðræðum um Zlatan
Svo gæti farið að Zlatan Ibrahimovic sé aftur á leið til Ítalíu þrátt fyrir allt eftir aðeins eitt ár í herbúðum Barcelona á Spáni.

Guardiola er ekki eins fullkominn og allir halda
Umboðsmaður Zlatan Ibrahimovic, Mino Raiola, hefur stigið fram og gagnrýnt Pep Guardiola, þjálfara Barcelona, harkalega.

Adebayor fer ekki til Real Madrid
José Mourinho, þjálfari Real Madrid, hefur verið að skoða þann möguleika að fá Emmanuel Adebayor frá Man. City. Hann hefur nú nánast gefið upp alla von um að fá framherjann.

Aguero mun framlengja við Atletico
Argentínumaðurinn Sergio Aguero situr að samningaborðinu með Atletico Madrid þessa dagana og nýr þriggja ára samningur er svo gott sem tilbúinn.

Messi með þrennu þegar Barcelona vann Konungsbikarinn
Lionel Messi sendi skýr skilaboð til allra hinna 19 félaganna í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Hann skoraði þrennu þegar Barcelona varð Meistari meistaranna.

Zlatan ekki á förum frá Barcelona
Það er enn slúðrað um það að Zlatan Ibrahimovic sé á förum frá Barcelona. Nú síðast var hann orðaður við AC Milan í dag.

AC Milan staðfestir áhuga á Zlatan
AC Milan útilokar ekki að kaupa Zlatan Ibrahimovic í sumar. Barcelona gæti vel selt hann, en aðeins fyrir ansi háa upphæð.

Johan Cruyff er í fýlu
Hinn nýi forseti Barcelona, Sandro Rosell, reyndi að sættast við Johan Cruyff á dögunum en án árangurs.

Carvalho eini miðvörður Real Madrid sem er heill fyrir fyrsta leik
Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, verður í miklum vandræðum með að stilla upp varnarlínu liðsins í fyrsta leiknum í spænsku deildinni sem er gegn Mallorca 29. ágúst næstkomandi.

Mourinho: Özil verður mjög mikilvægur
Mesut Özil gæti verið leikmaður Real Madrid næstu tíu árin. Þetta segir nýji stjórinn hans, Jose Mourinho.

Real Madrid búið að kaupa Özil
Staðfest var á heimasíðu Real Madrid í dag að félagið hefði náð samkomulagi við Werder Bremen um kaup á þýska landsliðsmanninum Mesut Özil.

Forlan vill ekki fara frá Atletico
Diego Forlan hefur heldur betur verið eftirsóttur eftir stórkostlega frammistöðu með Úrúgvæ á HM en hann var valinn besti leikmaður mótsins.

Benzema lofar mörkum í vetur
Franski framherjinn Karim Benzema náði sér engan veginn á strik með Real Madrid í fyrra og spilaði það illa að hann var ekki valinn í franska landsliðið fyrir HM. Hann var samt líklega feginn að hafa ekki verið valinn eftir mótið.

Guardiola hvíldi átta landsliðsmenn og Barcelona tapaði 3-1
Spænsku bikarmeistararnir í Sevilla eru í góðum málum í Meistarakeppninni á Spáni eftir 3-1 sigur á Spánarmeisturum Barcelona í fyrri leiknum sem fram fór í Sevilla í gær. Seinni leikurinn fer síðan fram á heimavelli Barcelona.

Mourinho: Werder Bremen hafnaði tilboði Real í Ozil
Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, sagði eftir leik Real Madrid í Beckenbauer-bikarnum í gær að Werder Bremen hafi hafnað tilboði Real Madrid í Mesut Ozil.

Iker Casillas varði þrjár vítaspyrnur frá Bæjurum
Iker Casillas, markvörður og nýr aðalfyrirliði Real Madrid, var í miklu stuði þegar Real Madrid vann 4-2 sigur á Bayern Munchen í vítakeppni í gær. Casillas afrekaði þetta í árlegum leik til heiðurs Franz Beckenbauer sem fram fór í Munchen í gær.

Iniesta spenntur fyrir því að fá Özil til Barca
Spænski miðjumaðurinn Andrés Iniesta er spenntur fyrir því að fá þýska landsliðsmanninn Mesut özil til Barcelona.

Carvalho kominn til Real Madrid
Spænska stórliðið Real Madrid hefur formlega gengið frá kaupunum á portúgalska miðverðinum Ricardo Carvalho frá Chelsea.

Barcelona býður Liverpool Hleb og pening fyrir Mascherano
Það verður ekkert úr því að Javier Mascherano fari frá Liverpool til ítalska liðsins Internazionale en argentínski landsliðsmaðurinn er þess í stað orðaður sterklega við spænsku meistarana í Barcelona í spænska blaðinu El Mundo Deportivo í dag.

Barcelona búið að ná samkomulagi við Bremen um Mesut Ozil
Spænska blaðið El Pais segir frá því í morgun að FC Barcelona sé búið að ná samkomulagi við Werder Bremen um kaup á þýska landsliðsmanninum Mesut Ozil.