Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Stuðningsmenn Manchester United létu óánægju sína skýrt í ljós eftir 3-0 tap liðsins gegn Bournemouth á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í gær. Enski boltinn 26.10.2026 11:00
Hver gæti tekið við af Carrick? Manchester United íhugar nú mögulega arftaka þar sem framtíð Michaels Carrick sem knattspyrnustjóra er í mikilli óvissu eftir þungt tap helgarinnar. Enski boltinn 26.10.2026 09:31
Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Gary Neville lét leikmenn Manchester United heyra það eftir skellinn á móti Bournemouth á Old Trafford í gær en fann til með knattspyrnustjóranum Michael Carrick. Enski boltinn 26.10.2026 07:02
„Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Michael Carrick, þjálfari Manchester United, hélt blaðamannafund í dag fyrir leik liðsins gegn Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Þar lagði hann áherslu á gildi félagsins og að enginn leikmaður væri stærri en félagið. Enski boltinn 23. október 2026 14:15
Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður Antonio Conte hefur mikið verið orðaður við Manchester United en hann er ekki samningsbundinn neinu öðru liði. Hann birti þó á Instagram færslu þar sem hann þverneitar að hafa rætt við nokkurt félag, sem hægt er að gera sterklega ráð fyrir að sé Manchester United, og segir að hann muni velja lið sem honum finnst vera rétt. Enski boltinn 23. október 2026 13:32
Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla Michael Carrick mun vera áfram þjálfari Manchester United þegar liðið tekur á móti Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Ef hann ætlar þó að vera áfram þjálfari liðsins þá þarf hann á góðum úrslitum að halda. Enski boltinn 23. október 2026 09:33
Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Vandræðaleg frammistaða leikmanna Manchester United í Meistaradeildinni á miðvikudagskvöldið þætti mörgum full ástæða til harðra viðbragða þjálfarateymisins en aðallið Manchester United fékk frí í dag í kjölfar niðurlægjandi 4-1 taps gegn Como. Enski boltinn 23. október 2026 07:02
Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Michael Carrick verður áfram við stjórnvölinn gegn Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni þrátt fyrir vaxandi áhyggjur forráðamanna félagsins af slæmu gengi liðsins en þetta hefur Sky Sports fengið staðfest. Enski boltinn 22. október 2026 17:56
Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Mikið fjaðrafok hefur verið hjá Manchester United eftir slæmt gengi félagsins og mikla gagnrýni leikmanna á stjórn félagsins. Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, og Michael Carrick, stjóri Manchester United, skutu föstum skotum hvor á annan eftir stórtap gegn Como í gær. Enski boltinn 22. október 2026 11:32
Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Krabbamein hefur grasserað hjá Manchester United undanfarinn rúman áratug. Sigursæll Skoti dró úr einkennum þess um árabil en eftir brotthvarf hans gengur bölvanlega fyrir hæstráðendur að finna lækningu við meininu. Enski boltinn 22. október 2026 10:01
Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Julian Nagelsmann, fyrrverandi þjálfari þýska landsliðsins og Bayern München, er sagður áhugasamur um að taka við Manchester United í þeim djúpa og dimma dal sem félagið er í. Enski boltinn 22. október 2026 09:26
Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Como vann stórsigur í Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi þegar liðið vann Manchester United 4-1 á heimavelli. Cesc Fabregas þjálfari liðsins sagði leikmönnum sínum að minnka ákefðina og spara orku undir lok leiksins fyrir komandi leikjaálag. Fótbolti 22. október 2026 08:31
Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Meistaradeild Evrópu stóð undir nafni og bauð upp á nóg af mörkum. Bayern München tók á móti Arsenal þar sem var stórmeistarajafntefli, Como gaf Manchester United rassskellingu og Hákon Arnar Haraldsson gaf góða stoðsendingu. Fótbolti 22. október 2026 07:32
„Þetta voru meira en vonbrigði“ Michael Carrick, þjálfari Manchester United, fór ekkert í felur með það að 4-1 skellurinn á móti Como í Meistaradeildinni í kvöld var áfall fyrir enska félagið. United var hræðilegt í leiknum og mark undir lokin breytti litlu. Þjálfarinn bað stuðningsmenn félagsins afsökunar. Fótbolti 21. október 2026 19:26
„Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Bruno Fernandes og félagar hans í Manchester United fengu stóran 4-1 skell á móti Como í Meistaradeildinni í kvöld og vandræðaleg frammistaða liðsins var tilefni til margra spurninga eftir leikinn. Fótbolti 21. október 2026 19:18
Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Manchester United steinlá á móti ítalska félaginu Como í Meistaradeildinni í kvöld en lærisveinar Cesc Fabregas voru miklu betra liðið og unnu afar sannfærandi 4-1 sigur. Fótbolti 21. október 2026 18:36
Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Appelsínugul veðurviðvörun hefur verið í gildi á Norður-Ítalíu sökum þrumuveðurs. Gríðarleg rigning hefur verið í kringum Como-vatn þar sem Manchester United á að mæta Como í Meistaradeild Evrópu í dag. Enski boltinn 21. október 2026 12:03
Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Erik ten Hag, fyrrum stjóri Manchester United, talar vel um ungstirnið Kobbie Mainoo. Hann vissi um leið og hann sá hann að þetta yrði gulldrengur Manchester United. Enski boltinn 21. október 2026 08:32
Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Erik Ten Hag, fyrrverandi þjálfari Manchester United, heldur því fram að Cristiano Ronaldo hafi brugðist sér og liðinu í stjóratíð Hollendingsins. Enski boltinn 20. október 2026 11:02
„Hann kvartar yfir öllu“ Eru stuðningsmenn Manchester United komnir með nóg af stanslausu tuði stjörnuleikmannsins Bruno Fernandes? Eiður Smári Guðjohnsen velti því upp í Messunni. Enski boltinn 19. október 2026 15:45
Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Ýmsir hafa sagt sína skoðun á Michael Carrick, þjálfara Manchester United, síðustu daga en gengi liðs hans hefur ekki verið frábært. Liðið er aðeins með sjö stig þegar sjö umferðir eru búnar af ensku úrvalsdeildinni en það er nægur tími til þess að bæta gengið. Enski boltinn 19. október 2026 07:30
Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Boðið var upp á alvöru gæðamörk og dramatík í leikjum dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Arsenal og Brighton halda áfram að elta topplið Manchester City. Enski boltinn 18. október 2026 22:02
Löng bið eftir sigri lengist enn Leeds og Manchester United gerðu 1-1 jafntefli í sjöundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. Enski boltinn 18. október 2026 12:31
Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Michael Carrick, þjálfari Manchester United, sagði að leikmannahópur Manchester United væri búinn að ýta frá sér málinu sem Lissandro Martinez vakti athygli á eftir tapið gegn Atletico Madrid í Meistaradeild Evrópu fyrr í vikunni. Enski boltinn 16. október 2026 17:02