Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Wiele niewiadomych w związku z otwarciem granic
Nikt nie wie, w jaki sposób bezpiecznie otworzyć granice.

Rekstraraðilar geta nú sótt um lokunarstyrk
Þeim rekstraraðilum sem var gert að stöðva starfsemi sína vegna kórónuveirufaraldursins geta nú sótt um lokunarstyrk.

Íslendingar fá að gista í Köben eftir allt saman
Íslendingar, Þjóðverjar og Norðmenn sem ferðast til Danmerkur í sumar fá að gista í Kaupmannahöfn eftir allt saman. Frá þessu greindi danski dómsmálaráðherrann á fréttamannafundi nú eftir hádegi.

Svona var blaðamannafundur Áslaugar Örnu
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur boðað til blaðamannafundar í Ráðherrabústaðnum klukkan 14.

Tæplega 800 milljónir til UNICEF á síðasta ári
Framlög utanríkisráðuneytisins til verkefna Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) námu 787 milljónum króna á síðasta ári. UNICEF er skilgreind sem ein af fjórum lykilstofnunum í marghliða þróunarsamvinnu Íslands

Vika frá síðasta smiti
Enn eru þrjú virk kórónuveirusmit hér á landi en ekkert nýtt smit greindist milli daga. Nýtt smit greindist síðast fyrir viku síðan.

Hjúkrunarfræðingar standa eftir í skugganum
Nú bendir flest til þess að 22. júní muni hjúkrunarfræðingar um land allt leggja niður störf. Stétt sem oft er kölluð hryggjarstykki heilbrigðiskerfisins mun draga saman seglin svo um munar og öll þjónusta utan þeirrar sem má kalla lífsbjargandi verður felld niður.

Segir ekkert ríki í raun vita hvernig eigi að opna landamæri eftir heimsfaraldur
Víðir Reynisson ræddi fyrirhugaða opnun landamæranna í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Tekjuafkoma hins opinbera neikvæð um 32,2 milljarða
Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 32,2 milljarða króna á fyrsta fjórðungi ársins 2020, 32,2 milljarðar teljast 4,8% af vergri landsframleiðslu ársfjórðungsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofu Íslands í dag.

Áslaug Arna boðar til blaðamannafundar
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur boðað til blaðamannafundar í Ráðherrabústaðnum í dag.

Líkbrennslur í Nýju Delí hafa ekki undan
Þeim sem smitast af Covid-19 fer nú hratt fjölgandi í höfuðborg Indlands. Staðan þar hefur versnað til muna og hafa líkbrennslur ekki undan og geta ekki brennt líkin nógu hratt.

Stærstu flugfélög Norðurlanda skulda milljarða
Tvö stærstu flugfélög Norðurlandanna, SAS og Norwegian, eru sögð skulda viðskiptavinum um sjö milljarða danskra króna.

Breska hagkerfið dróst saman um rúm 20 prósent í apríl
Breska hagkerfið dróst saman um 20,4 prósent í aprílmánuði miðað við mánuðinn á undan og er það mesti samdráttur í breskri sögu.

Hrun á Wall Steet eftir svartar kórónuveirutölur
Verð á hlutabréfum á Wall Street hrundi meira en það hefur gert frá upphafsdögum kórónuveirufaraldursins um miðjan mars eftir að nýjum smitum fjölgaði á nýjan leik vestanhafs í dag. Seðlabanki Bandaríkjanna varaði við því í gær að efnahagsbati eftir dýpstu niðursveiflu í áratugi yrði hægur.

Leggja til að ytri landamærin verði opnuð 1. júlí
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mælti í dag með því að innri landamæri ESB og Schengen-svæðisins verði opnuð í næstu viku og þau ytri um mánaðamótin.

Engin takmörk á gestafjölda í sundlaugum og líkamsræktarstöðvum frá 15. júní
Þann 15. júní næstkomandi taka í gildi frekari tilslakanir á samkomubanni vegna kórónuveirufaraldursins. Fjöldatakmörk á samkomum hækka úr 200 í 500 manns og núgildandi takmarkanir á gestafjölda sundlauga og líkamsræktarstöðva við 75% af leyfilegum hámarksfjölda falla jafnframt niður.

Ekkert smit greinst síðan á föstudag
Enn eru þrjú virk kórónuveirusmit hér á landi en ekkert nýtt smit greindist milli daga. Nýtt smit greindist síðast á föstudag.

Dregið úr félagsforðun víða um heim, þrátt fyrir mikla fjölgun smitaðra
Þrátt fyrir að víða sé verið að slaka á takmörkunum á ferðafrelsi og félagsforðun er faraldur nýju kórónuveirunnar ekki í rénun. Veiran er að gefa í og hafa nýsmitaðir aldrei verið fleiri á heimsvísu.

Finnar bjóða Íslendinga velkomna
Finnsk stjórnvöld hafa opnað á ferðir einstaklinga frá sex löndum til Finnlands frá og með 15. júní næstkomandi. Ísland er eitt þeirra ríkja, en athygli vekur að grannlandið Svíþjóð er ekki á lista.

Íslendingar hvattir til að dreifa myndum sem sýna hversu gott lífið er hér
Myndaleikur Icelandair 2020 heitir Heimssókn og er markmiðið er að fá Íslendinga til þess að taka myndir af landinu, deila á Facebook eða Instagram og merkja þær #icelandisopen.

Stilling og Liqui Moly gefa bætiefni að andvirði 25 milljóna króna til bílaleiga
Stilling hf. ætlar í samstarfi við þýska olíu- og bætiefnaframleiðandann Liqui Moly að styðja við íslenskar bílaleigur. Allar bílaleigur, rútufyrirtæki sem og aðrir flotaeigendur fá bætiefni frá Liqui Moly sem ver eldsneytiskerfi bifreiða fyrir tæringu og ryðmyndun.

Meira en tvær milljónir tilfella í Bandaríkjunum
Meira en tvær milljónir manna hafa nú greinst með kórónuveiruna sem valdið getur sjúkdómnum Covid-19 í Bandaríkjunum. Hvergi í heiminum hafa fleiri tilfelli veirunnar verið staðfest.

Eitt nýtt smit hjá ensku úrvalsdeildarliðunum
Nú er vika í að keppni í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta hefjist að nýju, eftir hlé frá því í mars vegna kórónuveirufaraldursins, og er grannt fylgst með heilsu leikmanna.

„Eins og djammið sé það versta sem hefur komið fyrir“
Meðeigandi skemmtistaðarins B5 segir aðstæður skemmtistaða afar slæmar. Þá gagnrýnir hann viðhorf yfirvalda til næturlífsins og á bágt með að trúa að meiri smithætta sé þar en á öðrum stöðum þar sem mikill fjöldi kemur saman.

Skjótari viðbrögð hefðu getað fækkað dauðsföllum um helming
Fyrrverandi vísindaráðgjafi breskra stjórnvalda segir að helmingi færri hefðu látist í kórónuveirufaraldrinum hefðu tilmæli um að fólk héldi sig heima verið gefin út viku fyrr. Bretland greip síðar til aðgerða vegna faraldursins en flest önnur vestræn ríki.

Alvarlegasta smithættan á djamminu
Fimm hundruð manns mega koma saman frá og með næsta mánudegi þegar samkomubanni verður aflétt frekar. Skemmti- og vínveitingastöðum verður áfram lokað klukkan ellefu en óvíst er hvenær því verður breytt.

Ríður á að ferðaþjónustufólk fylgist með heilsu ferðamanna sem það sinnir
„Eins og svo oft í þessum faraldri er kannski komið allt í einu fólk sem að hafði ekki hugsað sér að vera einhverjir framlínustarfsmenn í baráttu við einhvern heimsfaraldur en svona er staðan,“ sagði Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn.

Ferðamenn fái niðurstöður skimunar í gegnum appið
Stefnt er að því að koma niðurstöðum úr skimunum fyrir kórónuveirunni á landamærum hér á landi til ferðamanna í gegnum smitrakningarappið Rakning C-19.

Svona var blaðamannafundurinn um sýnatöku á landamærunum
Bein útsending og textalýsing frá blaðamannafundi heilbrigðisráðherra um framkvæmd sýnatöku á landamærum vegna Covid-19.

Ríkið: „Covid flýtti í raun bara þróun sem var að verða“
Vinnustaðir eru að breytast hratt þessi misserin og það á við um vinnustaði hins opinbera eins og í einkageiranum.