Innlent
194 195 196 197 198 199 200 201 202 … 334 ›
Sjálfvirk mótmæli Maður er drulluleiður á þessum yfirlætislegu afskiptum alltaf, segir Stefán Máni rithöfundur um mótmælin sem nú dynja á okkur vegna nýhafinna hvalveiða, m.a. frá Bretum og Bandaríkjamönnum. Þessi mótmæli eru sjálfvirk eins og Velvakandi og þreytandi pólitík sem snúast held ég ekkert um hvali. Við eigum ekki að fara á taugum þótt einhverjir túristar stappi niður fæti. Innlent 19.10.2006 21:01
Ljósmæður í friðargæsluna Íslenskar ljósmæður munu halda námskeið í móttöku barna í Afganistan á vegum íslensku friðargæslunnar. Um leið verður dregið úr þeirri starfsemi sem friðargæslan hefur haft með höndum í landinu. Þó eru líkur á að Íslendingar annist yfirtöku heimamanna á stjórn Kabúl-flugvallar. Innlent 19.10.2006 21:01
Hættuleg efni algeng í stofum Mikið af hættulegum efnum er að finna í smíðastofum í grunnskólum landsins, loftræsting er oft léleg í stofunum og aðstaðan ekki nógu góð. Þetta segir Gunnar Kristinsson, heilbrigðisfulltrúi á umhverfissviði Reykjavíkurborgar, en þetta kemur fram á vefsíðu sviðsins. Innlent 19.10.2006 21:03
Heimahjúkrun aukin eystra Kvöld- og helgarþjónusta sú sem Heilbrigðisstofnun Suðurlands veitir nú í heimahjúkrun verður aukin verulega eystra. Innlent 19.10.2006 21:03
Jólailminn leggur yfir alla Húsavík „Menn komast strax í jólastemningu þegar byrjað er að vinna með hangikjötið,“ segir Sigmundur Hreiðarsson, vinnslustjóri Norðlenska á Húsavík. Sláturtíðinni þar er lokið og nú vinnur Sigmundur og starfsfólk hans hörðum höndum að því að gera jólarétt Íslendinga, hangikjötið eins ljúffengt og unnt er. Innlent 19.10.2006 21:03
Pólitísk afskipti skaða Strætó Pólitísk afskipti af daglegri starfsemi Strætó bs. eru skaðleg fyrirtækinu og óljóst hver stefna fyrirtækisins er. Þetta kemur fram í nýrri stjórnsýsluúttekt á Strætó sem endurskoðunarfyrirtækið Deloitte gerði að beiðni stjórnar fyrirtækisins. Innlent 19.10.2006 21:03
Paul Watson ætlar að koma með tvö skip til landsins Paul Watson, forseti umhverfissamtakanna Sea Shepherd, líkir hvalveiðum Íslendinga við kjarnorkutilraunir Norður-Kóreu. Árið 1986 sökkti Watson tveimur hvalveiðiskipum í Reykjavíkurhöfn. Innlent 19.10.2006 21:00
Ölvaður með skotvopn Sérsveit Ríkislögreglustjórans á Akureyri handtók í fyrrakvöld mann á Siglufirði eftir tilkynningu um að töluvert ölvaður maður væri vopnaður skotvopni í heimahúsi. Hann hafði hleypt af byssu í þrígang inni í bílskúr. Hafði hann skotið í ruslapoka og hlaut því enginn skaða af. Innlent 19.10.2006 21:01
Próflaus á stolnum bíl Próflaus ökumaður á stolnum bíl keyrði út af í Borgarfirði í gær. Bílveltan varð við Dalsmynni í Norðurárdal síðdegis í gærdag. Grunur leikur á að bílstjórinn, sem var 16 ára stúlka, hafi verið undir áhrifum fíkniefna. Einn farþegi var í bílnum og reyndist hann með útrunnið ökuskírteini. Innlent 19.10.2006 21:01
Gefur kost á sér í 3.-5. sæti Grímur Gíslason framkvæmdastjóri hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3.-5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar næsta vor. Innlent 19.10.2006 21:00
Tekinn tvívegis með fíkniefni Karlmaður á miðjum aldri var tekinn tvívegis fyrir að hafa ætluð fíkniefni í fórum sínum. Lögreglan í Reykjavík hafði fyrst afskipti af manninum í miðborginni í fyrrakvöld og svo aftur um nóttina. Hann var þá enn staddur á svipuðum slóðum en aðeins liðu fáeinir klukkutímar á milli þess sem lögreglan stöðvaði för hans. Eftir seinna tilvikið var maðurinn fluttur á lögreglustöð. Innlent 19.10.2006 21:01
Sýknaður af árás á lögreglu Ungur maður var í gær sýknaður af ákæru um að hafa brotið gegn valdstjórninni í mars síðastliðnum með því að hafa tekið lögreglumann hálstaki. Lögreglumaðurinn sakaði manninn um að hafa veist að sér með ofangreindum hætti til að losa félaga sinn sem lögreglan hafi haft afskipti af. Maðurinn neitaði sök og sagðist einungis hafa snert öxl lögreglumannsins sem hafi á móti úðað á hann með varnarúða. Fjölmörg vitni komu fyrir dóminn og staðfestu frásögn hans. Innlent 19.10.2006 21:01
Gísli gefur kost á sér í 2. sætið Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, gefur kost á sér í 2. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar næsta vor. Innlent 19.10.2006 21:01
Kókaíntölvumaður í dóm Maður sem reyndi að smygla tæplega sjö hundruð grömmum af kókaíni til landsins í tölvu bíður nú dóms í Héraðsdómi Reykjavíkur. Maðurinn sem er um fimmtugt reyndi að smygla fíkniefninu til landsins í mars. Innlent 19.10.2006 21:01
Ágúst sækist eftir 4. sætinu Ágúst Ólafur Ágústsson varaformaður Samfylkingarinnar, sækist eftir 4. sætinu í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Innlent 19.10.2006 21:03
Með hálft kíló af kókaíni Þrír karlmenn eru í haldi lögreglunnar í Reykjavík, sem rannsakar tilraun þeirra til að smygla nálægt fimm hundruð grömmum af kókaíni til landsins. Innlent 19.10.2006 21:01
Fékk fjögurra ára fangelsi Hæstiréttur þyngdi í gær refsidóm yfir Litháanum Roman Kosakovskis, sem reyndi að smygla amfetamíni í fljótandi formi svo og brennisteinssýru til landsins í febrúar. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði dæmt hann í tveggja og hálfs árs fangelsi en Hæstiréttur þyngdi dóminn í fjögur ár. Innlent 19.10.2006 21:01
Dómur Símamanna mildaður Hæstiréttur mildaði í gær dóm héraðsdóms yfir fjórum mönnum sem höfðu verið ákærðir fyrir að standa ekki skil á virðisaukaskatti og staðgreiðslu opinberra gjalda og lækkaði sektargreiðslur þeirra um 74,25 milljónir króna. Þrír mannanna, þeir Árni Þór Vigfússon, Kristján Ragnar Kristjánsson og Ragnar Orri Benediktsson tengdust allir Landssímamálinu svokallaða þar sem þeir voru meðal annars sakfelldir fyrir fjárdrátt og peningaþvætti. Auk þeirra var fyrrverandi framkvæmdastjóri Japis dæmdur í þessu máli. Innlent 19.10.2006 21:01
Mýrin fær 4 stjörnur Mýrin, ný kvikmynd leikstjórans Baltasars Kormáks sem byggir á samnefndri glæpasögu Arnaldar Indriðasonar, fær 4 stjörnur af 4 mögulegum í fyrsta dómi sem birtur var um hana á íslenskum kvikmyndavef í kvöld. Gagnrýnandi fer þar lofsamlegum orðum um myndina. Myndarinnar er beðið með töluverðri eftirvæntingu. Innlent 19.10.2006 21:26
Bannað að nota firmanafnið Orms lyftur Neytendastofa hefur bannað Orms lyftum ehf. að nota firmanafnið Orms lyftur í kjölfar kvörtunar Bræðranna Ormsson ehf. og Íslandslyfta ehf. Fram kemur í ákvörðun Neytendastofu að hún telur að Orms lyftur ehf. hafi með notkun trúnaðarupplýsinga úr rekstri Bræðranna Ormsson ehf., með bréfi til viðskiptavina og með notkun firmanafnsins Orms lyftur ehf. brotið gegn ákvæðum um atvinnuleyndarmál og firmanöfn í lögum um óréttmæta viðskiptahætti. Innlent 19.10.2006 19:27
Frjármálaráðherra fundar með 3 framkvæmdastjórum ESB Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, átti í gær og í dag fundi með þremur framkvæmdastjórum Evrópusambandsins, þeim Joaquín Almunia, sem fer með efnahagsmál, Lasló Kóvaks sem fer með tolla- og skattamál og Dalíu Grybauskaité sem fer með fjármál sambandsins. Tilgangur fundanna var að ræða um stefnumál og þróun sambandsins á þessum sviðum. Auk þess heimsótti ráðherrann Eftirlitsstofnun EFTA og fékk kynningu á starfseminni sem felst í að fylgjast með framkvæmd samningsins um evrópska efnahagssvæðið hjá Íslandi, Noregi og Lichtenstein. Innlent 19.10.2006 18:15
Hótar Íslendingum ófarnaði Sjávarútvegsráðherra Bretlands segir að Íslendingum muni hefnast fyrir að hefja hvalveiðar og spáir því að Bretar muni sniðganga íslenskar vörur og þjónustu. Bandarísk stjórnvöld hafa einnig lýst yfir vonbrigðum með veiðarnar. Erlent 19.10.2006 18:11
Háskólinn baðaður bleikum lit á morgun Háskóli Íslands tekur á táknrænan hátt þátt í átaki helgað árvekni um brjóstakrabbamein og mun lýsa upp Aðalbygginguna í bleika lit átaksins. Kveikt verður á lýsingunni annað kvöld kl. 19:30 í tengslum við Háskólahátíð sem verður haldin daginn eftir. Innlent 19.10.2006 17:36
Kynbundinn launamunur nánast ekkert minnkað á 10 árum Kynbundinn launamunur hefur sama og ekkert minnkað á síðustu tíu árum, samkvæmt nýrri rannsókn. Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra lýsir yfir vonbrigðum með þessa niðurstöðu og kallar eftir samvinnu við aðila vinnumarkaðarins. Innlent 19.10.2006 17:45
Reykjavík verði valkostur fyrir erlend kvikmyndafyrirtæki Borgarráð samþykkti í morgun, að tillögu Björns Inga Hrafnssonar, formanns borgarráðs, að hrinda af stað átaki sem miði að því að gera Reykjavík að áhugaverður valkosti fyrir erlend kvikmyndafyrirtæki. Verkefnisstjórn, skipuðum fulltrúa Reykajvíkurborgar, innlendra kvikmyndafyrirtækja, Kvikmyndmiðstöðvar og Kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík, verði falið að gera tillögur í þeim efnum. Framkvæmdaáætlun verði síðan lögð fyrir í borgarráði í síðasta lagi 1. júlí 2007. Innlent 19.10.2006 17:29
Kirkjan styrkir fátæka íslenska unglinga til náms Þjóðkirkjan hefur stofnað sjóð til að styrkja fátæka íslenska unglinga í gegnum framhaldsskóla. Innlent 19.10.2006 17:37
Ísafjarðarbær dæmdur til að greiða bætur vegna skíðaslyss Hæstiréttur dæmdi í dag Ísafjarðarbæ til að greiða manni um sex milljónir króna í skaðabætur vegna slyss sem hann varð fyrir í skíðaferð á vegum Súðavíkurskóla á skíðasvæði bæjarins í Tungudal árið 2002. Sneri hann að hluta til við dómi héraðdóms sem hafði sýknað Ísafjarðarbæ og Súðavíkurhrepp vegna slyssins. Innlent 19.10.2006 17:19
Mildar dóm yfir Landssímamönnum Hæstiréttur hefur mildað dóm Héraðsdóms yfir fjórum mönnum sem gefið var að sök að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti og staðgreiðslu opinberra gjalda hjá einu eða fleiri af fimm hlutafélögum, þar á meðal Japís og Planet Reykjavík. Innlent 19.10.2006 16:57
Fékk sex mánuði fyrir tilraun til ráns Karlmaður var í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi í Hæstarétti Íslands fyrir ránstilraun og fíkniefnabrot. Félagi hans sem tók þátt í brotunum hlaut tólf mánaða skilorðsbundinn dóm en sá hafði ekki áður gerst sekur um hegningarlagabrot. Innlent 19.10.2006 16:50
Fjögurra ára fangelsi fyrir innflutning á vökva sem innihélt amfetamínbasa Hæstiréttur Íslands dæmdi í dag litháan Roman Kosakovskis í fjögurra ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Hann flutti til landsins verulegt magn af vökva sem innihélt amfetamínbasa og brennisteinssýru. Hæstiréttur þyngdi dóm Héraðsdóms Reykjavíkur. Innlent 19.10.2006 16:32