
Kvöldfréttir

Bið eftir NPA-þjónustu og eftirspurn eftir sæðisgjöfum
Maður, sem er með MND-sjúkdóminn, hefur í þrjú ár þurft að berjast við Kópavogsbæ til að fá fulla ummönun vegna veikinda hans. Hann er hræddur um að kerfið sé að ganga frá eiginkonu hans sem er eini stuðningurinn sem hann fær. Rætt verður við hann í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Fjölskylda flugmanns vill að lögregla rannsaki andlát hans
Fjölskylda flugmanns hjá Icelandair hefur lagt fram beiðni til lögreglu um að andlát hans verði rannsakað. Flugmaðurinn féll fyrir eigin hendi eftir að mál tengd honum voru tekin fyrir innan fyrirtækisins. Fjölskylda hans telur mörgum spurningum enn ósvarað í málinu. Miklar brotalamir hafi verið á málsmeðferð innan Icelandair.

Dæmi um að fólk hafi fallið frá á meðan beðið er eftir NPA-þjónustu
Dæmi eru um að aðstandendur hafi endað á örorku og fatlaðir einstaklingar hafi fallið frá á meðan beðið er eftir NPA-þjónustu. Í kvöldfréttunum verður rætt við Harald Þorleifsson baráttumann og frumkvöðul, sem bíður eftir að fá þjónustu.

Yazan fær efnismeðferð og talstöðvar sprengdar
Yazan Tamimi, ellefu ára palestínskur drengur með vöðvahrörnunarsjúkdóminn Duchenne, og fjölskylda hans verða ekki flutt af landi brott fyrir laugardag. Þau munu þá geta krafist efnislegrar meðferðar á máli sínu.

Spenna innan ríkisstjórnarinnar og mannskæðir gróðureldar
Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild, segir lögreglu ekki ætla að eyða tíma í að eltast við sögusagnir í Krýsuvíkurmálinu þegar engar ábendingar eða sönnunargögn liggi fyrir um annað en það sem faðirinn hefur sjálfur sagt hafa gerst. Farið verður yfir stöðu málsins í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Harmleikur á Krýsuvíkurvegi og harkalegar aðgerðir lögreglu
Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald grunaður um að hafa banað tíu ára gamalli dóttur sinni um kvöldmatarleytið í gær. Rætt verður við Grím Grímsson, yfirlögregluþjón hjá miðlægri rannsóknardeild, í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Mannskæð flóð og fækkun fiskbúða í borginni
Minnst sjö hafa látist í flóðunum sem gengið hafa yfir Mið- og Austur-Evrópu eftir storminn Boris. Fjölmargra er saknað. Íslendingur í Vín segist aldrei hafa séð annað eins á þeim átta árum sem hann hefur búið á svæðinu.

Kostnaður við vaxtahækkanir og umdeild stytta
Boðaðar vaxtahækkanir á verðtryggðum húsnæðislánum geta kostað heimilin tugi þúsunda aukalega á mánuði. Þetta endurspeglar vaxtaumhverfið á Íslandi í dag og hefur slæm áhrif á heimilin, segir dósent í viðskiptafræði. Þá gerir það illt verra að ekki standi til að endurnýja almenna heimild til að ráðstafa séreignasparnaði inn á húsnæðislán.

Ráðherra stendur fastur á sínu og möguleg ofgreining á ADHD
Dómsmálaráðherra stendur keikur við ákvörðun sína um að veita Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara ekki lausn frá störfum, þrátt fyrir gagnrýni. Farið verður yfir gagnrýnina og þróun málsins í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Uppsagnir í verktakageiranum og dularfult ýl í Laugarnesi
Stjórnarandstaðan telur fátt í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar stuðla að hjöðnun verðbólgu og lækkun vaxta. Í kvöldfréttunum verðum við í beinni útsendingu frá þinginu og heyrum í Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur þingmanni Viðreisnar og Njáli Trausta Friðbertssyni þingmanni Sjálfstæðisflokksins.

Tárast yfir verði á aðgerð og þúsundir barna á biðlista
Sjúklingar þurfa að reiða fram rúma milljón króna til að komast í bakaðgerð hjá einkaaðilum. Við ræðum við forstjóra sem segir að verið sé að búa til stéttaskiptingu í heilbrigðiskerfinu og að fólk fari stundum að gráta þegar það heyrir verðið.

Mótmælt við þingsetningu, hávaði og afdrifaríkar kappræður
Síðasti þingvetur kjörtímabilsins hófst formlega í dag þegar Alþingi var sett og fjárlagafrumvarp lagt fram. Mótmælendur söfnuðust saman á Austurvelli og stjórnarandstaðan gagnrýnir útgjaldavöxt í verðbólgu.

Sláandi myndir frá Grindavík, óveður og úrræðagóðar flugfreyjur
Sprungan sem liggur í gegnum Hópið í Grindavík nær niður á grunnvatn, allt að þrettán metra niður í jörðina. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 sláumst við í för með bæjarfulltrúum sem kynntu sér aðstæður í skemmdum byggingum í Grindavík í dag og sjáum sláandi myndir frá bænum.

Ópíóðar í fráveituvatni og einstakt samband stúlku og æðarfugls
Bæjarráð Grindavíkur hefur frestað niðurrifi íþróttamiðstöðvarinnar Hópsins og skoðar nú að breyta húsinu í safn. Forseti bæjarstjórnar vill losna við lokunarpósta og hleypa öllum inn í bæinn á næstunni. Við förum til Grindavíkur í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.

Þjóðarátak gegn ofbeldi og hjartnæm kyrrðarstund
Forseti Íslands kallar eftir samstilltu þjóðarátaki gegn ofbeldi í kjölfar andláts Bryndísar Klöru Birgisdóttur, sem stungin var til bana á Menningarnótt. Opin kyrrðarstund var haldin í Lindarkirkju í dag þar sem gestir heiðruðu minningu Bryndísar Klöru og veittu sorg sinni útrás. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.

Börn sem flytja vopn til landsins og fjöllistamenn
Tollurinn lagði hald á átján skotvopn á fyrstu átta mánuðum ársins sem er mun meira en fyrir ári. Dæmi eru um að börn komi með vopn heim úr sólarlandafríum. Við skoðum sýnishorn af þeim vopnum sem tollurinn hefur haldlagt.

Deilur harðna hjá ríkissaksóknara og glæpasögukviss í beinni
Ríkissaksóknari ítrekar að henni hafi borið að áminna vararíkissaksóknara vegna ósæmilegrar hegðunar fyrir tveimur árum og senda mál hans til dómsmálaráðuneytisins á þessu ári þegar hann hélt uppteknum hætti. Háttsemi hans hafi verið ósæmileg og varpað rýrð á embættið.

Málmleitartæki á böllum og Sjálfstæðiskonur bregðast við umdeildum ummælum
Skipuleggjendur Ljósanætur og Októberfest ætla að auka viðbúnað í kringum hátíðarnar vegna alvarlegra atvika í samfélaginu undanfarið. Þá hefur verið ákveðið að nota málmleitartæki á öllum framhaldsskólaböllum á höfuðborgarsvæðinu. Forseti Stúdentaráðs segir mikilvægt að fólk upplifi sig öruggt.

Aðgerðir gegn vopnaburði ungmenna og mikilvægi EES-samningsins
Dómsmálaráðherra boðar hertar aðgerðir gegn vopnaburði ungmenna. Lögregla hefur lagt hald á hundruð vopna á síðustu árum. Rætt verður við forstjóra Barna- og fjölskyldustofu í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Vopnaburður ungmenna ekki nýr af nálinni
Formaður skólastjórafélags Íslands segir ekki nýtt af nálinni að börn og ungmenni gangi um með vopn. Það sem hafi breyst sé vilji þeirra til að beita þeim. Rætt verður við hann í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Þjóð í áfalli vegna hnífaburðar og mótmælaalda í Ísrael
Lögregla leggur nú áherslu á að kanna ásetning drengsins sem grunaður er um að hafa stungið þrjú ungmenni á menningarnótt, með þeim afleiðingum að sautján ára stúlka lést. Málið hefur hreyft við þjóðinni og á samfélagsmiðlum biðlar fólk til ungmenna að hætta hnífaburði. Við ræðum við yfirlögregluþjón í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.

Bjarni íhugar stöðu sína og ævintýraheimur í Hafnarfirði
Formaður Sjálfstæðisflokksins er ekki búinn að ákveða hvort hann sækist eftir áframhaldandi setu á formannsstól en varaformaðurinn kveðst tilbúinn að taka við keflinu ef svo ber undir. Ungliðahreyfingin sendi forystu flokksins væna pillu vegna sögulega lítils fylgis í könnunum.

Ábyrgð foreldra og mikið verður lítið
Drengurinn sem er í haldi vegna stunguárásar á menningarnótt hefur verið fluttur á Hólmsheiði vegna líflátshótana. Ráðamenn vilja auka sýnileika lögreglu vegna ofbeldis unglinga en lögreglumaður ítrekar að foreldrar beri fyrst og síðast ábyrgð á börnum sínum. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Vopnuð börn og játning í dularfullu máli
Lögreglan telur að stórfellt átak þurfi til að taka á hnífaburði barna. Dæmi er um að börn gangi um með rafbyssur og piparúða. Einnig hefur borið á því að börn mæti með hnífa í skólann. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Tíðindi í nýrri könnun, neyðarkassi og hundahlaup í beinni
Nokkur tíðindi eru í nýrri könnun Maskínu á fylgi stjórnmálaflokkanna. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 rýnum við í hana og fáum viðbrögð frá hástökkvara.

Fjórföldun alvarlegra ofbeldisbrota og samstöðufundur
Fjöldi alvarlegra ofbeldisbrota ungmenna hefur fjórfaldast á tíu árum og sífellt algengara er að hnífur komi við sögu. Dómsmálaráðherra er sleginn yfir lífshættulegri hnífaárás á menningarnótt. Nú þurfi allt samfélagið að leggjast á eitt til að sporna við slíkum brotum.

Leit hætt og rætt við föður drengs sem varð fyrir stunguárás
Björgunaraðgerðum við Breiðamerkurjökul var hætt í dag eftir að í ljós kom að enginn var undir ís sem féll á ferðamenn. Lögregla segir mikilvægt að skráning í varasamar ferðir sé skýr.

Fólk fast í íshelli og stunguárás
Nokkrir eru slasaðir eftir að íshellir í Breiðamerkurjökli hrundi síðdegis í dag. Fjölmennt viðbragð er á svæðinu og fólk fast inni í hellinum. Við ræðum við yfirlögregluþjón sem stýrir aðgerðum í beinni útsendingu í fréttatímanum.

Aurskriður og menningarnæturtónleikar
Aurskriður féllu á þrjú heimili á Húsavík í nótt vegna mikillar úrkomu. Skriður féllu einnig beggja vegna Strákaganga, og Siglufjarðarvegi var lokað, en á Ólafsfirði var allt þurrt.

Dregið úr virkni eldgossins, harmleikur í Neskaupstað og nóróveiran
Dregið hefur úr virkni eldgossins sem hófst á Sundhnúksgígaröðinni í gærkvöldi og viðbúnaður almannavarna færður af neyðarstigi á hættustig. Við verðum í beinni frá gosstöðvunum og ræðum við jarðeðlisfræðing í myndveri.